Dagur - 30.01.1952, Page 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 30. janúar 1952
Fjórðungssjúkrahúsið á Ákureyri
Ávarp til k\en|)jóðarimiar
Það er kunnara en frá þurfi að
segja, að kvenfélögin á Norður-
landi áttu sinn þátt í því að
Iieilsubæli Norðurlands komst
upp. Þau lögðu mörg drjúgan
skerf til þess nauðsynjamáls. —
Stofnun heilsuhælisins var bless-
unarríkt starf í baráttunni við
berklaveikina.
Nú — 30 árum síðar — er ann-
að stórmál á döfinni, sem krefst
aðstoðar góðra manna. Það er
Fjórðungssjúkrahúsið hér á Ak-
ureyri. Að sjúkrahússbyggingu
þessari hefur verið unnið 4—5 ár
og mikið fé lagt fram, bæði af al-
mannafé og frá Akureyrarbæ. En
sjúkrahúsið er ætlað öllu Norð-
urlandi, og okkur Norðlendingum
á að vera það metnaðarmál ,að
þessari þörfu byggingu verði lok-
ið sem fyrst, að hún megi verða
til blessunar alþjóð hér norðan-
lands.
Erfiðar aðstæður.
Um þessi áramót eru erfiðar
ástæður hjá þessari stofnun. Lít-
ið fé fyrir hendi til að halda
verkinu áfram. — Mikið af efni
og áhöldum er þegar komið á
staðinn, en eftir að koma þeim
fyrir. Það, sem mest á ríður nú
er að geta staðist kostnaðinn af
vinnunni við sjúkrahúsið.
Þörfin fyrir spítalann er aug-
Ijós öllum almenningi hér norð-
anlands. Sjúkrahús það, sem nú
er starfrækt hér á Akureyri —
fimmtíu ára gamalt timburhús —
er algerlega óviðunandi.
Það ætti því að vera áhuga- og
metnaðai-mál allra Norðlendinga,
að Fjórðungssjúkrahúsið á Ak-
ureyri geti tekið að fullu til starfa
sem allra fyrst og helzt ekki síðar
en á árinu 1952.
Sjúkrahúsið verður, að áliti
dómbærra manna, mjög fullkom-
ið að allri gerð. Og allir, sem
þekkja mannkosti og hæfni yfir-
læknisins, Guðmundar Karls
Péturssonar, fagna því að hann
fái þar notið starfskrafta sinna að
fullu, fái þar starfsskilyrði við sitt
hæfi.
Starf kvenna.
Ríkið hefur í mörg horn að líta
um þessar mundir, og svo mun
enn verða um skeið, hefur enda
lagt þessari stofnun stórar fúlgur.
Konur á Akureyri hafa á und-
anförnum árum gengist fyrir
fjársöfnun til sjúkrahússins með
miklum dugnaði og fómfýsi. Hafa
safnað til byggingarinnar nær Vt.
milljón króna, og auk þess veitt
hagstæð lán. — Nú er komið til
kasta annarra félaga á Norður-
landi. Og eru mér þá hæst í huga
þær 70 kvenfélagsdeildir í Sam-
bandi norðlenzkra kvenna. Að
þau taki nú höndum saman við
aðra áhugamenn um þetta mál.
— Mörg þarfleg málefni hafa
kvenfélögin á Norðurlandi látið
til sín taka. Þau hafa styrkt og
hrint af stað mörgum þjóðþrifa-
málum.
Það er alkunnugt, að kvenfé-
lögin hafa verið dugleg að efla
sjóði sína og eiga mörg álitlegar
fúlgur í sjóði. .
Vilja kvenfélögin leggja fram fé?
Væri það ekki vel til fallið, að
félögin stigu nú á stokk og
strengdu þess heit að leggja fram
hvert fyrir sig 1000.00 — eitt þús-
und krónur — úr sjóði sínum
þessu nauðsynjamáli til eflingar
og framdráttar, og gerðu það
fljótt! — Þanu mundu standa jafn
rétt eftir sem áður.
En auk þess ,að þau með þessu
framlagi sýndu þegnskap og
félagsanda að hlaupa undir bagga
og veita nauðsynjamáli lio og
hljóta þakklæti og virðingu al-
þjóðar fyrir, þá er hitt * ekki
minna um vert, að finna sam-
takamáttinn, finna hvað hægt er
að gera, ef við stöndum saman.
Það er ennfremur trúa mín að
mörg önnur félög á Norðurlandi
færu að dæmi kvenfélaganna, ef
þau ríða á vaðið, legðu þennan
skerf fram líka.
Þúsund krónur, hvorki meira
né minna. Það er gott að setja sér
það markmið. Það munar um
minna! — Félögin á Norðurlandi
skipta hundruðum.
Halldóra Bjamadóttir.
Jörð ti! sölu
Ásláksstaðir II
í Arnarneshreppi er til sölu.
Tilboðum sé skilað til Guð-
mundar Frímannssonar, skóla-
stjóra á H jalteyri, fyrir 20. fe-
brúar næstkomandi.
Skógrœktarjélag
A rnarnesshrepps.
Nýkomið
ZJllargarn, margir litir,
Kvensokkar, ull og nylon,
Herrasokkar, ull og nylon,
Hdlfdúnn, væntanlegur
næstu daga.
ÁSBYRGI h.f.
Barnavagn
til sölu í Fjólugötu 12 uppi,
eftir kl. 6.
Tek að sauma
telpukjóla, kápur og úti-
föt. Verkefni tekin á þriðju-
dögum og fimmtudögum,
frá kl. 1—6.
Signý Kristjánsdöttir,
Ránargötu 24, syðri clyr.
Stúlka
óskast á fámennt sveita-
heimili. Upplýsingar í Qdd-
eyrargötu 3.
I STUTTU MÁLI
DANSKT blað hermir í sl.
viku, að söngkonan Elsa Sig-
fúss hafi fengið tilboð frá Þjóð
leikhúsinu í Reykjavík að
leika og syngja í óperettunni
,,Leðurblakan“ eftir Johan
Strauss, en ætlunin sé að
sýna söngleik þennan þar í
vor. Sé þetta fyrsta leikhlut-
verk Elsu Sigfúss. Ungfrúin á
að leika hlutverk Orlovskys
prins. Þá veit maður, eftir
dönskum heimildum, hvað
Þjóðleikhúsið á.íslandi hyggst
aðhafast með vorinu.
*
t SÍÐASTA hefti hins
vandaða ameríska tímarits
The American Scandinavian
Review er grein um KEA og
starfsemi þess eftir Hauk
Snorrason ritstjóra. Ritstjóri
ameríska tímaritsins er dr.
Henry Goddard Leach, er
hingað kom sumarið 1950.
*
UM ÞESSAR mundir er
efnafræðin ofarlega á dagskrá
í Sovét-Rússlandi. Efnafræð-
ingarnir þar hafa fengið nýja
línu. Það var allt í einu upp-
lýst að þeir höfðu verið á villi-
götum. Nú eiga þeir að innlifa
sig í efnavísindi þau, er kennd
eru við A. M. Butlerov ,en þau
byggja á „efnasamsetningu á
grundvelli hins díalektíska
materíalisma, sem er lagður af
himun mikla vísindamanni J.
V. Stalin og eftir forsögn hans
um réttlínu hinna franisæknu
visinda og þýðingu þeirra fyr-
ir Ráðstjórnarríkin-. Undir
leiðsögn flokks þeirra Lenins
og Stalins, munu efnafræðing-
ar Sovétríkjanna mcð lieiðri
framkvæma það, sem hinn
mikli lciðtogi alls verkalýðs,
ef naf ræðisnillingurinn Josef
Vissorinovich Stalin, liefur
falið þeim,“ eins og segir um
þessi mál í síðustu rússnesk-
um blöðum, að sögn Social-
Dcmokraten í Khöfn nú ný-
lega.
-k
DANSKA ríkisstjórnin hef-
ur orðið fyrir vonbrigðum
með hækkun á ölskatti, er
gerðiu- var í apr. 1951. Uppgjör
um áramót sýndi, að minna fé
kom í ríkiskassaim á árinu
1951 en 1950. Danir svöruðu
hækkuninni með minni öl-
kaupum.
TRIPPLON-
Vinnuvettlingar
Járn- og glervörudeildin
Peningabudda
m
með tveimur merktum 100
kr. seðlum, tapaðist síðastl.
fimmtudag frá K.E.A. upp
Kaupvangsstræti. Vinsam-
iegast skilist til Sigurðar O.
Björnssonar í P. O. B.
Skemmtikvöld
í Skjaldborg miðvikudaginn
30. jan., kl. 8.30 e. h. Félags-
vist og dans. Aðgangur kr.
7.00. "
Stúkurnar Brynja og ísafold.
- Sveinn Björnsson, forseti, látinn
(Framhald af 1. síðu).
og til 1920 og hæstaréttarmálaflutningsmaður eftir það til
1926. Alþingismaður Reykjavíkur var hann 1914—1916 og
1919—1920. Formaður Eimskipafélags íslands 1914—1920 og
1924—1926. Forstjóri Brunabótafélags íslands 1916—1920 og
1924-1926.
Hinn 16. ágúst 1920, eftir að ísland fékk fulla sjálfstjórn,
varð hann sendihcrra íslands í Kaupmannahöfn og gegndi
því staríi til 1924, er hann kom heim, en tók við því á ný
15. júní 1926 og gegndi því til ársins 1940, er Þjóðverjar her-
námu Danmörku og hann kom heim til Islands svo að segja
alkominn. A sendiherraárunum gegndi hann margvíslegum
trúnaðarstörfum fyrir þjóðina, sótti margar alþjóðaráðstefnur
og þing og gerði marga verzlunarsamninga við önnur lönd.
Fyrsta árið eftir heimkomuna var liann ráðunautur ríkis-
stjórnarinnar um skipan utanríkismála.
En 17. júní 1941 var hann kosinn ríkisstjóri Islands af al-
þingi, og endurkosinn árin 1942 og 1943. A lýðveldishátíð-
inni að Þingvelli var hann kosinn fyrsti forseti íslenzka lýð-
veldisins, 17. júní 1944, og hefur síðan verið sjálflcjörinn, er
forsetakosningar hafa átt að fara fram.
Sveinn Björnsson beitti sér fyrir ýmsum framfaramálum
og stofnun félaga til alþjóðarheilla, svo sem Eimskipafélags
íslands, Hins íslenzka flugfélags og Rauða krossins.
Sveinn Björnsson kvæntist árið 1908 eftirlifandi konu sinni
Georgíu Björnsson, fæddri Hoff-Hansen, dóttur Hendriks
Emils Hansen, jústizráðs í Hobro á Jótlandi. Fluttist hún
til íslands með manni sínum og gerðist þar ágæt húsmóðir
á forsetaheimilinu sem íslenzk væri, vinsæl og mikils metin.
ÚTSALA
Stórfelld yerðlækkun á fatnaði
og vefnaðarvörum
Tilbúinn faínaour:
Karlm.föt frá kr. 495.00. Karlm.frakkar frá kr. 390.00.
Karlm.jakkar frá kr. 380.00. Karlm.buxur f. kr. 159.00.
Kvenkápur, frá kr. 450.00. Kuldajakkar drg. frá kr.
139.00. Ivarlm.skinnjakkar, frá kr. 300.00. Kvenblúss-
ur, verð kr. 98.00. Barna-snjógallar (útiföt), á ca. 3—5
ára, verð kr. 49.00. Kvensloppar, hvítir, lítil nr. verð
kr. 59.00. Karlm.hattar, nr. 7, 7i/g, 714, kr. 20.00.
Karlm.vetrarhúfur frá kr. 39.00. Drg.vetrarhúfur, frá
kr. 17.00. Skíðahúfur, kr. 11.00. Hálsbindi, verð frá
kr. 10.00. — 200 Manchettskyrtur, verð frá kr. 94.00.
100 sportskyrtur, stór nr., fyrir innkaupsverð. Toledo-
sportskyrtur á kr. 165.00. Vinnuskyrtur, khaki, á 59.00.
Prjónavörur:
Kvenpeysur frá kr. 30.00. Kvengolftreyjur frá kr. 72.00.
Bamapeysur á kr. 16.00—20.00. Prjónaföt bama (peysa,
buxur) á kr. 29.00. Prjónavesti drengja frá kr. 22.00.
Prjónavesti karlm. frá kr. 39.00. Ullartreflar, kr. 15.00.
Nærfatnaður:
Satin-undirföt, lítil nr. á kr. 49.00. Undirkjólar, lítil
nr. á kr. 39.00. Sportbolir á kr. 25.75. 100 sokkabanda-
belti (ísl.) seld fyrir innkaupsverð. Mikið af nærfatnaði
karlm., kvenna og barna, mjög ódýrt. 600 pör kven-
sokkar, nylon, fyrir innkaupsverð. 300 pr. karlmanna-
sokkar, fyrir innkaupsverð.
Baðmullarvörur:
Ca. 3000 metr. af ýmsum baðmullarvörum, svo sem:
flónel, sirz, tvisttau, milliskyrtuefni, náttfataefni o. fl.
fyrir innkaupsverð.
Kjólaefni:
Ca. 1000 metr. kjólaefni (gervisilki), seld fyrir inn-
kaupsverð. — Baðmottur, frotté, verð kr. 59.00.
Leðurvörur:
Sérstaklega ódýrar, t. d. kventöskur og veski, frá kr.
39.00. Innkaupatöskur, seðlaveski, buddur, skrif-
möppur, fyrir mjög lágt verð.
Taubútar, ódýrir, og margt fleira á lágu verði.
Notfærið yður þetta sérstæða tækifæri.
Branns verzlnn Páll Sigurgeirsson.
L