Dagur - 30.01.1952, Side 6

Dagur - 30.01.1952, Side 6
6 D A G U R Miðvikudaginn 3ÍT. janúar 1952 Þorp í álögum Saga eftir Julia Truitt Yenni 21. DAGUR. (Framhald). gætinu sjálf. Hún hafði selt beztu og lostaetustu kökurnar fyrir smáaura skólasystkina sinna. Hún hafði aldrei eytt eyri aftur, heldur geymt aurana í horninu á vasaklútnum sínum og bundið fyrir. Og Pearl hafði átt til það, sem verra var. Oftar en einu sinni hafði verið komið að henni úti í runnanum í skólagarðinum. Þangað hafði hún lokkað smá- 9 börn úr fyrsta bekk og þar hélt hún þeim frosnum við jörðina af skelfingu. Hún snerti þau aldrei eða meiddi þau. En hún sagði þeim hræðile^ar sögur um for- ynju, sem mundi koma að sækja þau í myrkrinu. Þessi forynja væri heljarstór maður, sem and- litið vantaði á, og hann læddist um á nóttunni og þreifaði í rúm- um barnanan eftir þeim. Hann þreifaði af því að hann hafði engin augu, en það var ekki hægt að sleppa frá honum, því að hann heyrði svo óskaplega vel — jafn- vel hjartslátt barnanna og and- ardrátt. Pe'arl var alltaf viðloða slys og óhamingju og virtizt líða bezt í návist voveiflegra atburða. Þeg- ar eitthvað skelfilegt kom fyrir, hafði Pearl venjulega verið þar nálægt. Eva starði á hana. Hún fann, að hún gat ekki þolað návist henn- ar. Hún varð að fara héðan sem fyrst. ,,Hvað vilt þú hér, Pearl?“ spui-ði hún. En Pearl kom ekki upp nokkru orði fyrir grát og ekka. Hún var eins og óásjáleg fatahrúga í stólnum. „Eva mín —“ byrjaði hún, en orðin komu slitrótt. „Eg hef aldr ei gert neitt rangt —■ ekki eins og — eg meina að eg tók þá aldrei — en eg, get ekki lifað við að hann horfi á mig — eins og eg væri —' —o— Hún komst ekki lengra. Ný gráthviða stöðvaði framhaldið. — Eva horfði þögul á hana ofurlitla stund, en sneri sér síðan undan. Hún þoldi ekki lengur að horfa á þessa ógeðfelldu hryggðarmynd. Hún gekk út í horn stofunnar og kveikti á litlu gasvélinni undir tekatlinum, sem hún hafði jafnan reiðubúinn í stofunni. Hún sýsl- aði við að raða bollum á bakka og sneri jafnan baki að Pearl, en hún heyrði greinilega grátstun- urnar, en jafnframt merki þess, að Pearl var að byrja að ná stjórn á tilfinningum sínum. „Það er allt saman þessum kvenmanni að kenna,“ snökti Pearl, „— henni þarna, sem skrifaði bókina. Honum mundi aldrei hafa dottið neitt í hug, ef hann hefði ekki lesið þessa bann- settu bók.“ Hendur Evu stirðnuðu á boll- unum á tebakkanum. Jæja. Svo að þær Pearl voru fastar í sama netinu. Hún sneri sér að henni, ofurhægt og svipbrigðalaust. — „Viltu segja mér til hvers þú ert komin hingað?“ sagði hún. „Eva, — eg —“ En hún komst ekki lengra. Ný gráthviða greip hana, og Eva sneri sér aftur að katlinum á eldstónni. Vatnið sauð og hún hellti upp á teketilinn og lagaði bollana aftur á bakkanum, en hún hlustaði eftir hverju orði frú Pearl. „Eg sparaði fyrir hann og safnaði þessu fyrir hann. Það er allt og sumt. Til hvers hefð- um við svo sem átt að nota þessa peninga. Við höfðum ekkert með lá að gera. Þeir hefðu farið í einhvern óþarfa, engum til gagns.“ Er það svona ennþá, hugsaði Eva. Eg man vel dagana þegar liún gekk um með aurana í vasa- klútnum og eg minnist þess ekki að eg sæí liana eyða grænum eyri í þá daga. Eg veit fyrir víst, .að eg hef ekkert rangt aðhafst, Eva, en eg þoli þetta ekki lengur. Hann er hættur að tala við mig og hann horfir á mig eins og eg væri — ó, Eva, þú veizt ekki hvað eg hef mátt þola. .. . “ Grátur batt enda hnútinn á setninguna. Þegar Pearl fékk málið aftur, var röddin miklu styrkari. „Mér 'datt í .hug, að eg gæti sannað hönum, að eg hefði aldréi meiht "á'nnáð en gött rrieð þessu. Lem hefur alltaf verið hrifinn af þessu húsi. Eg get vel skilið það. Þetta hús mundi henta okkur svo að ekki ýrði á betra kosið. Stof- urnar uppi og niðri eins og okkur hefur alltaf dreymt um. Og læk- urinn gæti orðið gagnlegur. Og garðurinn með læknum er dá samlegur. Það mætti gera þenn- an stað ákaflega skemmtilegan, Eva.“ Tepotturinn, sem Eva hélt á, datt á bakkann. Bollarnir ultu um koll,' teið flóði um bakkann og borðið og rann niður á gólfið. Eva stóð hreyfingarlaus. Pearl virtist ekki taka eftir neinu. Brotni tepotturinn stöðvaði orðaflauminn naumast andartak „Eg skal ekki prútta, Eva, ekki fárast um verðið. Eg skal láta þig fá alla peningana. Alla, nema það sem til þarf til að koma upp tækjunum hér. Þú átt vatnsrétt- indi í læknum, er það ekki? Þau yrðu ekki undanskilin?11 Eva sneri sér að henni og horfði þögul — nærri því í leiðslu, — áfjáð, nærri því gráðugt, andlitið og augnatillitið. Hendurnar voru krepptar um svörtu töskuna, sem geymdi blúnduverkið, sem Pearl sleppti aldrei úr hendi. Pearl greip niður í töskuna og sótti þangað þykkan seðlabunka. (Framhald). í....'B'Æ'N'OTJET Það er nauðsynlegt að endurnýja pantanir á eftir- töldum vélum og áhöldum fyrir 7. febrúar næstk., þar sem aðeins verða keyptar vélar samkvæmt endurnýjuð- um pöntunum. Mjaltavélar Mugavélar Mykjuclreifarar Mykj uhleðsluvélár Plógar, allar gerðir Raðhreinsarar Rakstrarvélar, allar gerðir Raf magnsgirðingar Rófnasáðvélar Snúningsvélar Saxblásarar Sogdœlur fyrir safnþrœr Handsláttuvélar Þvagdreifarar. Áburðardreifarar Ávinnsluherfi Brýnsluvélar Dráttarválar, allar gerðir Dekk og felgur á W 4 Herfi Dieselrafst öðvar Dieselvélar H eyhleðsluvélar Heyvagnar Kartöfluflokkunarvélar Kartöfluuþþtökuvélar Kúakliþþur Kaupfélag Eyfirðinga Véla- og varalilutadeild. Flautur Hinar heimsfrægu Boscli-flautur nýkomnar. Véla- og varahlutadeild KEA. Sakk arin Kaupfélag Eyfirðinga Nýlenduvörudeild og útibú. Skantaskór Kven-skólilífar með 14 hæl. Skódeild KEA. Nýjar sítrónur ítölsk epíi Kaupfélag Eyfirðinga Nýlenduvörudeildin og útibú. Renniiásar 15, 171/4, 30, 35, 40, 50, 55 og 60 cm. Vefnaðarvörudeild. 45, 3500 bifreiðaeigendur hafa tryggt bifreiðar sínar hjá Samvinnutryggingum og njóta hinna *góðu kjara, sem félagið býður. 212 319 kr. arðnr Samvinnutryggingar úthluta arði sínum til félagsmanna, og hlutu þeir, sem tryggja bifreiðir sínar hjá félaginu, 212,319 krónur, á tveim árum, en það samsvarar 5% afslætti af endurnýjunariðgjöldum. 320 000 kr. afsláttur « Samvinnutryggingar tóku upp þann sið, að gefa þeim bifreiðaeig- endum, sem ekki valda skaðabótaskyldu tjóni á ákveðnu tímabili, ríf- legan afslátt af iðgjöldum bifreiðanna. Þannig voru greiddar í afslátt 320,000 krónur á tveim árum, og eru það ekki lítil hlunnindi fyrir örugga ökumenn. Bifreiðastjórar! Setjið ykkur það takmark á hinu nýbyrjaða ári að draga stórlega úr árekstrunr og slysurn og tryggið ykkur þannig veru- legan afslátt af1 tryggingagjöldum hifreiðanna. Samvinmitryggingar Skrifstofur i Sambandshúsinu. — Umboðsmenn um allt land. Umboðsmenn á Akureyri: Vátryggingadeild KEA.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.