Dagur - 30.01.1952, Side 8
Bagum
Miðvikudaginn 30. janúar 1952
Dagskrármál landbúnaðarins:
Kaup á tilbúnum áburði 1952
Fyrir stuttu síðan hefur áburð-
arsalá ríkis auglýst áætlað verð á
tilbúnum áburði á vori komanda,
jafnframt þeim tegundum áburð-
ar, sem verða á boðstólum og eins
og venjulega þurfa menn að panta
áburð fyrir 20. febrúar.
Verð áburðarins hækkar nokk-
uð, eins og sjá má á eftirgreind-
um tölum yfir þann áburð, sem
fáanlegur verður í vor
Kalkammonsaltpétur .... 75
Þrífosfat ................. 100
Súperfosfat ............... 100
Kalí, klórsúrt ............ 100
Kalí, brennisteinssúrt . . 100
Blandaður áburður .... 50
Tröllamjöl ................. 50
kg 73,00 88.00 20.5
kg 163.00 200.00 22.7
kg 76.00 85.00 11.8
kg 92.00 116.00 5.0
kg 119.00 134.00 12.6
kg 65.00 75.00 15.0
kg 55.00 60.00 9.0
Þetta áburðarverð er bæði árin
miðað við verð við skipshlið.
Hvað kostar nú meðal áburð-
arskammtur á hektara með þessu
verði?
Sé gert ráð fyrir að borið sé á
hvern ha á túni, sama áburðar-
magn og eg gerði ráð fyrir, í grein
í þessum þáttum 31. jan. 1951, en
þar var áætlað 75 kg hreint köfn-
unarefni, 50 kg hrein fosfórsýra
(P.jO-) og 60 kg kalí (KjO), en
þetta magn samsvaraði 365 kg
kalkammonsaltpétri, 110 kg þrí-
fosfat og 12 kg kalí 50%. Sam-
kvæmt auglýsingu áburðarsöl-
unnar er nú á boðstólum aðeins,
60% kalí og þarf því ekki nema
100 kg af því á móti 120 í fyrra. í
því liggur líka verðmismunurinn
á kg í pokanum. Við skipshliðkost
aði þessi áburður kr. 685.00 á
hektara 1951. Nú myndi sama
magn kostar um kr. 775,00, eða 90
kr. hærra pr. ha.
Gera má ráð fyrir að bóndi, sem
keypt hefur áburð í fyrra fyrir
um 8000 kr., muni nú þurfa að
borga um 9500 kr. fyrir sama
magn.
Það er skoðun min, að þótt
áburðurinn sé óneitanlega dýr,
kæmi það ekki til mála að draga
úr skynsamlegri notkun hans.
Eins og eg benti á í fyrra, þá má
telja það mjög hóflegan árangur
a ð fá í uppskeruauka 25—30
hesta af töðu fyrir ofangreint
ábui'ðarmagn. Sé gert ráð fyrir
50 hesta uppskeru af ha, sem tæp
legáler meðal uppskera, þá verð-
ur áburðarkostnaður á hvern
heyhest varla meira en 20—25
krónur, nema þar sem flutningar
eru mjög dýrir og aðrar aðstæður
óhagstæðar.
Veglegt afmælisrit
Samvinnuskólans
Samvinnuskólinn varð 30 ára
1948 og var þess minnzt af nein-
Tilbúni áburðurinn er orðinn
einn allra þýðingarmesti rekstr-
arliður hjá öllum, sem fást við
ræktun jarðarinnar. Hér á landi
höfum við möguleika til að afla
heyja á tiltölulega ódýran hátt.
Uppskera af hverri flatareiningu
er sambærileg við svo til hvaða
uppskeru sem er í nágrannalönd-
um okkar, svo sem kornupp-
skeru, rófnauppskeru o .fl. Og
það sem grasið hefur fram yfir
allar aðrar fóðurtegundir er: í
fyrsta lagi er það algilt fóður, í
öðru lagi er það venjulega ódýr-
asta fóðrið og í þriðja lagi er það
holt og eðlilegt þeim búfénaði
sem við ræktum hér á landi. —
Grasið er gullnáma íslenzks
londbúnaðar. Tilbúni áburðurinn
er lykill að þeirri námu.
Á. J.
Viljið |)ér gerast
áskrifandi að blaða-
umsögnum?
Fyrsta febrúar næstk. tekur til
starfa í Reykjavík fyrir.tæki, er
„Blaðaumsagnir“ nefnist. Er
þetta hliðstætt „Press clipping“
þjónustu, sem algeng er erlendis.
Tilgangur þessa félags er sá, að
safna saman úrklippum um ýmis
efni úr öllum dagblöðum. Þessu
er komið fyrir á þann hátt, að
einhver aðili, fyrirtæki, félag eða
einstaklingar gerist áskrifandi að
einhverju efni, einu eða fleiri og
fær þá tilsent frá „Blaðaumsögn-
um“ allt það, sem um viðkomandi
efni er ritað í blöðum landsins.
Á hverja úrklippu er límdur
blaðhaus fyrirtækisins og á hann
er prentað nafn og heimilisfang
þess blaðs, sem greinin birtist í,
ásamt dagsetningu. Á þennan
endum m. a. í afmælishefti Sam-
vimumnar og með afmælishófi í
Reykjavík.
En nemendur skólans hafa ekki
látið þar við sitja, heldur standa
þeir nú að útgáfu veglegs afmæl-
isrits, sem nýlega er komið út hjá
Norðra. Þar ritar Jónas Jónsson
skólastjóri um starf skólans, Þór-
arinn Þórarinsson ritstj. segir
sögu hans og Sigurvin Einarsson
kennari segir frá afmælishátíða-
höldunum syðra. Síðan er nafna-
skrá nemenda og stutt æviágrip
tekið saman af Árna Benedikts-
syni frá Hofteigi, þá kemur kenn-
aratal, og loks myndasafn ár-
ganga skólans. Nemendur skól-
ans úr öllum árg. munu hafa gagn
og gaman af þessu riti og fjöl-
margir aðrir Samvinnumenn
munu telja feng að því.
hátt fær áskrifandi ritaða sögu
þess málefnis, sem hann er
áskrifandi að, glögga og alhliða
samtíðarlýsingu, sem getur orðið
mjög nauðsynlegt plagg fyrir við-
komanda.
Áskrift að einu efni kostar kr.
20.00 á mánuði, en hver úrklippa
kostar 1.00 kr. Sé sami aðili
áskrifand'i að tveim efnum kostar
það 25.00 kr. á mánuði, hækkar
þannig um 5.00 kr. við hvert við-
bótarefni. Fastagjaldið er nokk-
urs konar trygging fyrir fyrir-
tækið, því að oft kemur það fyrir,
að ekkert er skrifað í langan tíma
um ýmis efni, en blöðin þarf allt-
af að lesa mjög gaumgæfilega, því
að ekkert má fara fram hjá fyrir-
tækinu.
Heimilisfang fyrirtækisins er á
Laugateig 44, Reykjavík.
Hækka útvarpsgjöldin
í 180 krónur?
Lausafregnir herina,, að búið
sé að áltveða að hækka afnota-
gjöld útvarps fyrir yfirstand-
andi ár í 180 krónur. Virðist
hér um einkennilega ráðstöfun
að ræða, ef satt reynist, því að
útvarpið er stóreignafyrirtæki
og á milda sjóði ,er útvarpsfor-
ráðamennimir vilja verja til
þess að byggja „höll“ í Rvík.
Ohætt er að fullyrða að lands-
menn hafa lítinn áhuga fyrir
hallarbyggingunni og telja von
lítið að dagskráin batni hót þótt
útvarpsíorustan verði flutt í
lúxushúsakynni. Miðað við
dagskrána í vetur ,er 100 krón-
ur yfrið nógu liátt gjald fyrir
hana.
- Ilraðfrystihúss-
rckstnr á Akureyri
(Framhald af 1. síðu).
Steinsen bæjarstjóri og Tryggvi
Helgason útgerðai'maður. Guð-
mundur Jörundsson benti á hver
væri aðstaða togaranna á hverri
árstíð til fiskupplags hér og taldi
hana á ýmsan hátt erfiða og ú'.i-
lokaða er sækja þarf aflann
vestur og suður fyrir land. Hent-
ugast væri það þann tíma er veitt
er fyrir Norðurlandi. en sá galii
aftur á móti fyrir væntaníegt
hraðfrystihús, að í Norðurlands-
fiskinum væri sáralítið af góð-
fiski, heldur mest megnis smár
þorskur. Guðmundur taldi sjálf-
sagt að hraðfrystihússmálið yrði
rækilega. rannsakað og hafizt
handa um byggingu húss, ef sýnt
þætti -að grundvöllui' væri fyrir
hendi, en hann vildi ekki að svo
stöddu fullyrða neitt um það, að
hve miklu leyti togaraútgerðin
gæti bundið sig við slíkan rekst-
ur.
Álþingi samþykkti lög um hækkun
fðsteignagjaida bæjaríélðganna
Lækkar útsvarsáætlunin um 1.5-2 millj. kr.?
Alþingi samþykkti í sl. viku
frv. um heimild fyrir bæjarfélög-
in að innheimta gjöld, sem miðuð
eru við fasteignamat, önnur en
vatnsskatt, með 400% álagi, enda
komi til samþykki félagsmála-
ráðherra.
Eru þar með orðin að lögum til-
mæli bæjarstjórnar Akureyrar
um fjáröflun til þess að halda
beinni niðurjöfnun í skefjum. Er
áður skýrt frá aðdraganda þessa
máls í blaðinu.
Utsvarsáætlun lækkar.
Sá fyrirvari var hafður við
samþykkt fjárhagsáætlunar bæj-
arins nú eftir nýjárið, að ef frv.
þetta næði fram að ganga, mundi
bæjarstjórn notfæra sér heimild-
ina og lækka útsvarsálagningu
„Reykjafoss“
á Akureyri
Hið nýja vöruflutningaskip
Eimskipafélags íslands, Reykja-
foss, var væntanlegt hingað til
bæjarins í gærkvöldi austan fyrti'
land. Er þetta fyrsta koma skips-
ins til Akureyrar.
sem næmi hækkun fasteignagjald
anna. Hefur verið áætlað, að út-
svarslækkunin nemi lVi— 2 millj.
króna. Verður nú væntanlega
hafizt handa um að reikna út
gjöldin með álaginu og þá um
leið, hinn nýja útsvarsstiga.
Ileimskuskrif kommúnista.
Kommúnistar hafa valið þann
furðulega kost, að berjast gegn
því, að þessi samræming á fast-
eignagjöldum við núv. verðlag,
kæmist á. Vilja þeir hejdur afla
tekna til bæjarfélagsins með
beinu tekjuútsvari en taka jafn-
framt nokkurt tillit til eigna
manna. Er alveg augljóst, að þessi
skipan mála kemur í heild rétt-
látar niður en bein stórhækkuð
niðurjöfnun. í skrifum um þetta
mál hafa kommúnistar haldið
fram þeirri furðulegu staðhæf-
ingu, að hin nýja skipan muni
vera hagstæðari fyrir KEA en
bein útsvarsálagning. Þetta er
heimskutal hið mesta. Vitað er að
kaupfélagið er einn stærsti fast-
eigandi í bænum og Ijóst, að álag-
ið er mjög þungur skattur fyrir
það, líklega svo að nemur hundr-
uðum þúsunda kr.
Endurvarpssföðin kom hingað
með Brúarfossi á mánudaginn
Verður sett upp^skammt frá Skjaldarvík
Von um stórbætt hlustunarskilyrði
Afstaða ríkisvaldsins.
Svavar Guðmundsson taldi m.
a. að erfitt yrði að sannfæra rík-
isvaldið að það ætti að styðja
hraðfrystihússbyggingu hér, á
sama tíma og fiskiðjuver víða á
landinu hefðu ekki nægilegt hrá-
efni. Fyrir þjóðfélagið í heild
virtist eðlilegra að fiskupplag
væri sem næst miðunum. Annars
taldi ræðumáður sjálfsagt að
málavextir yrðu rækilegar at-
hugaðir. Helgi Pálsson andmælti
þeirri skoðun Hallgríms Björns-
sonar, að hentast væri að reisa
fiskiðjuverið í Krossanesi og
taldi fram mörg atriði til and-
mæla. Tryggvi Helgason talaði
mjög fyrir því, að ráðizt yrði í
húsbygginuna hið allra fyrsta.
Málið skýrðist.
Að öllu samanlögðu varð þessi
íundur í Stúdentafélaginu til þess
að skýra málið og til þess að sýna
fram á, að það er ekki eins ein-
falt og auðvelt viðfangs og ýmsir
vilja lialda fram. Á vegi þess eru
ýmsir erfiðleikar, sem óvíst er að
unnt reynist að yfirstíga. Skaði
var að fleiri bæjarbúar áttu þess
ekki kost að hlýða á erindi Hall-
gríms Björnssonar. Þótt hann sé
hlynntur málinu komu ekki fram
í erindi hans neinar órökstuddar
fullyrðingai' um framkvæmda-
möguleika, heldur leitaðist hann
við að útskýra hina tæknilegu
möguleika og aðstöðu alla á
fræðilegan hátt. Þannig er líka
sjálfsagt að vinna að þessu máli.
Fundur þessi fór hið bezta fram.
Fundarstjóri var Stefán Karlsson
menntaskólakennari, form. Stú-
dentafélagsins.
* Hin nýja 5 kw endurvarpsstöð,
sem ríkisútvarpið hefur ákveðið
að kuma upp hér í nágrenni Ak-
ureyrar til þcss að bæta hin
slæmu hlustunarskilyrði hér um
slóðir, kom til bæjarins með e.s.
Brúarfossi sl. mánudag.
Er hér um að ræða ca. 100 kassa
og tók Grímur Sigurðsson, for-
stöðumaður útvarpsviðgerðar-
innar hér, við sendingunni.
Verður reist við Skjaldarvíkur-
veginn.
Ákveðið er að stöðin verði reist
við afleggjarann, sem liggur af
þjóðveginum hér norðan bæjar-
ins til Skjaldarvíkur. Upphafiega
var ráðgert að reisa stöðina vest-
an Akureyrar, og var fengin lóð
til þess lijá bænum. En athugpn
leiddi í ljós, að skilyrði væru
betri fyrir stöðina norðan bæjar-
ins og verður hún því sett upp
skammt frá Skjaldarvík, sem fyrr
segir. Á sl. sumri var ekkert gert
til að undirbúa byggingar þar,
þótt vonir stæðu til þess, og verð-
ur að hefja það verk frá grunni í
vor. Byggja þarf íbúð fyrir stöðv-
arstjóra, auk stöðvarhússins
sjálfs. Má því ætla að langur að-
dragandi verði að stöðin komist í
notkun, enda þótt hún sjálf sé
hingað komin, sem fyrr segir. —
Virðist einkennilegt, að uppsetn-
ingin skuli þurfa að dragast
vegna ónógs undirbúnings af
hálfu útvarpsins hér heima.
Bætt hlustunarskilyrði.
Vonir standa til, að endurvarjis-
stöðin stórbæti hlustunarskilyrði
hér, enda er þess mikil þörf. Um
leið er stigið fyrsta skrefið til
þess að koma hér upp aðstöðu til
útvarps, er hægt væri að fella inn
í dagskrá ríkisútvarpsins. Verður
það næsti áfangi í endurbættum
útvarpsmálum, að koma þeirri
aðstöðu upp hér og víðar.
Togararnir fiska fyrir
Bretlandsmarkað
„Kaldbakur“ seldi 3463 kit í
Grimsby sl. laugardag fyrir 11843
sterlingspund. „Harðbakur“ fór á
veiðar í fyrradag. „Svalbakur“ er
væntanlegur af veiðum seint í
þessari viku og siglir þá til Bret-
land. „Jörundur“ hefur nýlega
byrjað veiðar fyrir Bretlands-
markað.