Dagur - 23.04.1952, Blaðsíða 1
12 SIÐUR
Framsóknarmenn! Munið árs-
hátíð Framsóknarfélags Akur-
eyrar að Hótel KEA laugard.
3. maí næstkomandi.
XXXV. árg.
Dagu
N ■
Akureyri, miðvikudaginn 23. apríl 1952
Framsóknarmenn! Munið út-
breiðslufund Framsóknarfél.
í bæ og sýslu að Hótel KEA
sunnud. 4. maí næstk. — Sjá
nánar í greinargerð í blaðinu.
17. tbl.
Áilt í einu mikill aíli á línu
á miðuir. Húsvíkinga -10 þúsynd
kíléorömm í róðri
Fréttaritari blaðsins í
Ilúsavík símar:
Lítið hefur verið farið á sjó að
undanförnu héðan frá Húsavík,
enda hefur afli verið sáralítill. En
sl. sunnudag kom m.b. Sæborg,
skipstjóri Karl Aðalsteinsson, úr
róðri með 10 þúsund kg. af ágæt-
um fiski, og er þetta meiri afli en
komið hefur á land úr einum
róðri hér um mörg undanfarin ár.
Aðrar fréttir.
Hinn 19. þ. m. var verið að losa
sat úr e.s. Hafstein við bryggju í
Húsavík. Slóst full saltskúffa í
einn verkamanninn, sem vann í
lest skipsins, Magnús Bjarnason,
Húsavík, og lærbrotnaði hann. ■—
Karlakórinn Þrymur hafði sam-
söng í samkomuhúsinu í Húsavík
laugardaginn 19. 'ápríl. Söngstjóri
var Sigurður Sigurjónsson, en við
hljóðfærið Steingrímur Birgisson.
Söng kórinn 12 lög, eftir innlend
og erlend tónskáld. Var húsfylir
á söngskemmtuninni og söngnum
ágætlega fagnað af áheyrendum.
Varð kórinn að endurtaka mörg
laganna á söngskránni. — Sunnu-
daginn 20. þ. m. sýndi leikflokkur
úr Mývatnssveit sjónleikinn
„Mann og konu“ tvisvar sinnum
í Húsavík. Leikstjóri er frú Ingi-
björg Steinsdóttir. Leiktjöld mál-
uðu Jóhannes Sigfinnsson bóndi
á Grímsstöðum í Mývatnssveit og
Jóhann Björnsson, Húsavík. Að-
sókn að leiksýningunum var ágæt
og var leiknum og leikendum vel
tekið. Mjög miklum erfiðleikum
var það bundið fyrir leikflokkinn
að komast til Húsavíkur vegna
snjóa. Síðastliðna mánudagsnótt
hélt flokkurinn heimleiðis og
komst til Skútustaða eftir 7 klst.
ferð í stórhríð á Mývatnsheiði. —
Sjötugur varð 21. þ. m. Grímur
Sigurjónsson járnsmiður í Húsa-
vík. Var gestkvæmt á heimili
hans þann dag og bárust honum
margar kveðjur og gjafir. Grímur
er vel kynntur og hinn mætasti
borgari. Kona hans er Jakobína
Kristjánsdóttir.
í dag (þriðjudag) er kominn
hér mikill snjór og samgöngur
um héraðið eru orðnar mjög erf-
iðar aftur.
Eysfeinn Jónsson ráðherra flytur
ertndi á fundi Frðimóknarfélag-
anna um aðra helgi
Árshátíð Framsóknarfélags Akureyrar
verður haldin laugardaginn 3, maí
Eysteinn Jónsson fjármálaráð-
lierra er væntanlegur í lieimsókn
til Framsóknarfélaganna í bæ og
héraði um aðra lielgi og mun
Akureyrarhær gerist
aðili að stofnun byggða-
safns fyrir Eyjaf jarðar-
liérað
Bæjarráð Akureyrar hefur lagt
til við bæjarstjórnina, að Akur-
eyrarbær gerist aðili að undir-
búningi að byggðasafni fyrir
Eyjafjörð og Akureyri, en KEA
og, sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu
hafa áður samþykkt að gerast að-
ilar að slíkum undirbúningi. —
Leggur bæjarráð til, að bærinn
tilnefni Vigfús L. Friðriksson,
Ijósmyndara sem aðalmann af
sinni hálfu í undii'búningsnefnd,
en Benedikt Steingrímsson, fyrr-
um skipstjóra, til vara.
flytja erindi um stjórnmál á sam-
eiginlegum fundi félaganna, sem
haldinn verður að Hótel KEA
sunnudaginn 4. maí næstk. kl. 4
síðdegis.
Eru allir Framsóknarmenn og
stuðningsmenn flokksins í bæ og
héraði velkomnir á þennan fund.
Ársliátíð laugardaginn 3. maí.
Laugardagskvöldið 3. maí n.k.
verður árshátíð Framsóknar-
félags Akureyrar haldin að Hótel
KEA og verður Eysteinn Jónsson
gestur félagsins á hátíðinni og
mun ávarpa samkvæmisgesti. —
Þótt þetta sé árshátíð Framsókn-
arfélags Akureyrar eru félagar
hinna Framsóknarfélaganna í
bænum að sjálfsögðu velkomnir á
hátíðina, svo og Eyfirðingar, sem
taka vilja þátt í þessum fagnaði
með bæjarmönnum. Nánara fyr-
irkomulag verður auglýst í næsta
blaði.
35 verkðmenn hér í bæ hafa mótmælf lögleysum
Verkamannaféfagssfjórnarinnar
Sir Stafford
Hinn kunni brezki stjórnmála-
maður og fyrrv. ráðherra, Sir
Stafford Cripps, andaðis^ í
sjúkrahúsi í Sviss sl. mánudags-
kvöld, eftir langvarandi veikindi.
Hann var einn málsnjallasti og
menntaðasti forvígismaður Verka
mannaflokksirís um langt skeið og
mikilsmetinn, eigi síður af and-
stæðingum en flokksbræðrum. —
Snjóýtur og fjöldi
verkamanna við að
halda opnum f jall-
vegiim á Vesturlandi
1 grein um samgöngur á
landi á Vesturlandi, í Tíman-
um 17. þ. m., er skýrt frá því,
að vegamálastjórnin hafi í all-
an vetur reynt að halda opn-
um veginum um Bröttubrekku
og um Kerlingarskarð, til
Stykkishóms, og hafi notað til
þess „snjóýtur og fjölda
verkamanna“. Þessar upplýs-
ingar varpa nokkru ljósi á við-
horf vegamálastjórnarinnar til
samgönguleiðarinnar hér aust-
ur yfir Vaðlaheiði. Enda þótt
einmunatíð væri hér allan
marzmánuð og snjóléít, var
engin tilraun gerð til þess að
halda opnum Vaðlaheiðarveg-
inum. Snjóskaflinn í háheið-
inni var látinn útiloka eðlileg-
ar samgöngur í milli Þingey-
inga og Eyfirðinga. Þetta ger-
izt á sama tíma og vegamála-
stjórnin ver stórfé til þess að
halda opnum fjallvegum sumi-
anlands, þar á meðal vegum
eins og Bröttubrekkuvegi og
Kerlingarskarðsvegi, og notar
til þess „snjóýtur og fjölda
verkamanna" og að sjálfsögðu
stórfé. Þessi frétt í Tímanum
sýnir ljóslega að allt annað j
viðhorf er ríkjandi gagnvart
Vaðlaheiðarvegi hjá forvígis-'
mönnum vegamála, en gagn-
vart sambærilegúm fjallaveg-
um sunnan- og vestanlands. —
Kommúnistar halda fast við ákvarð-
aiiir sínar um brottrekstraiia
Málinu verður skotið til Álþýðusam-
r
bands Islands
Þrjátíu og fimm fullgildir
félaesmenn Verkamannafélaa's
Akureyrarkaupstaðar hafa með
bréfi til félagsstjórnarinnar harð-
lega mótmæt þeim úrskurði að 18
tilteknir félagsinenn skuli fram-
vegis ekki njóta fullra réttinda í
félaginu, enda telja þeir þessar
aðgerðir félagsstjórnarinnar ský-
laust brot á lögum félagsins.
Mál þessi voru til umræðu á
sérstökum fundi í félaginu sl.
sunnudag og var þar mættur ful-
trúi frá Alþýðusambandi íslands,
Jón Hjálmarsson. Á fundi þessum
fengu kommúnistar aðgerðii' sín-
ar samþykktar með 45 atkv., en
38 greiddu atkvæði á móti.
Kommúnistar meinuðu þeim
mönnum, er þeir hafa ólögle'ga
svipt réttindum, að taka þátt í at-
kvæðagreiðslunni. Var því lýst
yfir á fundinum, að máli þessu
mundi skotið til Alþýðusambands
íslands.
Mótmæli félagsmanna.
í bréfi hinna 35 félagsmanna til
félagsstjórnarinnar, segir svo:
„Við undirritaðir fullgildir
meðimir í Vei-kamannafélagi Ak-
ureyrarkaupstaðar mótmælum
algerlega sem lögleysu þeirri
ákvörðun félagsins, er tekin var á
fundi 23. marz sl., um að víkja 18
meðlimum úr félaginu. Byggjum
við mótmæli okkar á þeim for-
sendum, er nú skal greina:
í 5. grein félagslaganna eru
greinileg og tæmandi ákvæði um
það, undir hvaða kringumstæð-
um menn geti ekki haldið áfram
að vera meðlimir félagsins, en sú
grein hljóðar þannig: „Enginn má
vera í félaginu, sem er atvinnu-
rekandi eða verkstjóri í það stór-
um stíl ,að hann geti haft áhrif á
kaupgjald eða lengd vinnutíma."
— Engin önnur ákvæði eru í lög-
unum, sem takmarka rétt manna
til að vera í félaginu, nema þeir
hafi gerzt brótlegir við félagið
skv. 10. grein. Þegar svo greini-
lega er tekið fi-am í lögum félags-
ins hverjir geti ekki verið full-
gildir meðlimir þess, þá segir sig
sjálft að þeir meðlimir, sem ekki
koma undir þau ákvæði nefndrar
greinar, geta verið í féláginu með
fullum réttindum samkv. núgild-
andi lögum þess.“
Allt lannþegar.
Enn segir svo í bréfinu: „Hin
tilfærða ástæða fyrir brottvikn-
ingu þessara 18 manna er sú, að
þeir hafi hætt verkamannavinnu
um lengri eðu skemmri tíma og
tekið upp vinnu i annarri starfs-
grein Þessi ástæða varðar á eng-
an hátt við lög félagsins og er því
haldlaus með öllu. Aðrar ástæður
fyrir brottvikningu hafa engar
verið tilgreindar. Ekki hafa hinir
umræddu 18 menn verið sakaðir
um nein brot gegn lögum félags-
ins, og að einum undanskildum,
sem rekur bifreiðastöð, eru allir
þessir menn algerir launþegar.
Af þessu sést að brottrekstur
þessara manna úr Verkamanna-
félaginu er með öllu óheimill."
Nefndarálitið var tillaga til
lagabreytingar.
Að lokum segir svo í bréfi
þessu: „Það er svo annað mál, að
nefnd sú, er kosin var á síðasta
aðalfundi og gera átti tillögur um
það, hvaða stöðu þeir menn skuli
framvegis njóta innan Verka-
mannafélagsins, sem nú eru hætt-
ir að stunda verkamannavinnu,
hefur nú skilað áliti sínu. Álit
nefndarinnar er bersýnilega til-
laga til breytingar á lögum fé-
lagsins, enda er það skýrt tekið
fram í sjálfu nefndarálitinu. Það
er skilyrðislaus ’kiafa okkar, að
með tillögu nefndarinnar verði í
einu og öllu farið samkvæmt lög-
um félagsins, og ailar aðgerðir,
sem í sambandi við álit nefndar-
innar hafa verið hafnar, verði
afturkallaðar nú þegar, þar sem
tillagan hefur enn ekki hlotið lög-
lega afgreiðslu. Vei'ði þetta ekki
gert, krefjumst við þess að félags-
fundur verði haldinn svo fljótt
sem við verðui' komið, og eigi síð-
ar en að 5 dögum liðnum og verði
þetta mál aðalaefni fundarins.“ —
Þannig hljóðar bréf það, er 35
félagsmenn sendu félagsstjórn-
inni í sl. viku.
Fundurinn.
Fundur só, er þeir kröfðust að
haldinn væri, kom saman á
sunnudaginn. sem fyrr segir, og
úrskurðuðu kommúnistar í félags
stjórninni, að þeir menn, sem
félagsstjórnin hafði svipt rétt-
indum, skyldu ekki fá að greiða
(Framhald á 8. síðu).
Ingibjörg
Steingrifflsdóttir
heldur söngskemmtuii
Ingibjörg Steingrímsdóttir söng-
kona heldur söngskemmtun í
Nýja-Bíó hér í bæ næstk. föstu-
dagskvöld kl. 9 e. h. og leikur dr.
Urbancic undir a píanó. Þetta eru
fyrstu hljómleikar ungfrúarinnar
hér heima eftir að hún lauk námi
erlendis, en hún hefur áður hald-
ið hljómleika í Reykjavík og á
ísafirði.
Styrktarfélag fatlaðra og lani-
aðra. Vilja ekki fleiri stuðla a<5
því að koma slíkum félagsskap á
stofn? — Áskriftarlisti liggur
frammi á skrifstofu Dags.