Dagur - 14.05.1952, Síða 2
2
DAGUR
Miðvikudaginn 14. maí 1952
116 börn luku barnaprófi - 776 börn
í Barnaskóla Akureyrir sl. vetur
Laugardaginn 10. maí var
Barnaskóla Akureyrar slitið.
Skólastjóri Hannes J. Magnússon
flutti ræðu og gaf ítarlega skýrslu
um starf skólans á skólaárinu.
Alls höfðu 776 börn stundað nám
í skólanum, og skiptust þau í 30
deildir, en auk þess 118 börn í
smábamaskóla, er starfar á veg-
um skólans undir stjórn Hreiðars
Stefánssonar. Bamaprófi luku
116 börn og af þeim fengu 14
ágætiseinkunn. Heilsufar hefur
verið gott í skólanum, enda
hefur fjöldi barna notið þar ljós-
baða og um 500 börn hafa neytt
lýsis í skólanum í allan vetur.
Tekin var upp kennsla í bast-
vinnu í 5. bekk og fullunnu börn-
in um 500 muni yfir veturinn.
Frá Barnaskóla
Húsavíkur
Barnaskólanum var slitið 30.
apríl s.l. 143 börn stunduðu nám
í skólanum í vetur, í sex deild-
um. 15 börn luku barnaprófi. í
skólaslitaræðu sinni gat skóla-
stjóri þess meðal annars, að Kven
félag Húsavíkur hefði gefið skól-
anum vönduð ljóslækningatæki,
skömmu eftir áramótin. Voru
þau tekin j n'otkun .18. febrúar og
starfrækt til skólaloka. Alls nutu
^85 börn Ijóslækninganna.
Skólinn tók upp þá nýbreytni
í vetur að efna til skíðamóts, þar
sem^verðlaun voru veitt fyiir
beztan árangur. Á þessu fyrsta
verðlaunamóti skólans voru veitt
þrenn verðlaun (bækur) fyrir
beztan árangur samanlagðan. En
framvegis er ráðgert, að nem-
endur keppi í fjórum flokkum
og þá veitt þrenn verðlaun í
hverjum flokki, (falleg, áletruð
spjöld), og auk þeirra litlir far-
andbikarar, eða skildir. Skólinn
væntir, að þetta stuðli að aukn-
um áhuga bama og ungmenna
hér fyrir hinni hollu og fögru
skíðaíþrótt, sem enn er of lítið
•Stunduð, bæði hér og víðar.
Þá tók skóhnn einnig upp þá
nýbreytni að heilsa sumri með
samkomu í samkomuhúsinu.
Skólastjóri flutti ávarp, kórar
skólans sungu mörg lög og tíu
börn lósu upp vor- og sumarljóð.
Síðan voru sýndar kvikmyndir
og dansað.
Eins og kunnugt er, var hafin
sundlaugarbygging hér í Húsá-
vík í ágúst síðast liðið sumar.
Skólabörn og kennarar héldu
tvær hlutaveltur í vetur til styrkt
ar því þarfa fyrirtæki. Alls söfn-
uðust tæpar 3.000 krónur.
Hinar venjulegu samkomur
skólans, sem haldnar eru um
mánaðamótin febr. og marz, til
styrktar ferðasjóði bamanna, tók
ust vel og fengu ágæta dóma.
Bamastúkan, sem starfrækt er
af öllum föstum kennurum skól-
ans, og sem nær öll bömin. taka
þátt í, starfaði vel í vetur, eins
og undanfarið. Einn fjölsóttur
foreldrafundur var haldinn á
vegum heimar.
Að loknum skólaslitum, kl. 16,
var opnuð sýning á handavinnu,
teikningum, skrift og vinnubók-
um nemenda. Var þar margt at-
hyglisvert að sjá. Sýningin var
opin í tvo daga, eins og undan-
farin ár, og vel sótt að vanda.
Vorskólinn hófst 3. maí. Hann
sækja nú 76 börn. Sundnámskeið
hófst á Laugum 5. maí og sækja
það 27 börn frá Húsavík.
í lok ræðu sinnar ávarpaði
skólastjóri hina brautskráðu nem
endur og lagði áherzlu á gildi
vinnunnar fyrir einstaklinginn og
hamingju hans. Margt gesta var
við skólaslitin.
Sunnudaginn 4. maí hafði skól-
inn sýningu á handavinnu nem-
enda, svo og teikningum og
vinnubókum, og sótti hana mikill
fjöldi bæjarbúa.
Innlimun Glerárþorps
áftur á dagskrá
Méirihluti bæjarráðs Akur-
eyrar hefur nú samþykkt að
verða við óskum Glerárþorpsbúa
um sameiningu við kaupstaðinn
ef nokkur skilyrði verða uppfyllt.
Vill meirihluti að jarðirnar Ytra-
Krossanes pg Kífsá og allar jarðir
þaðan og að Glerá vei'ði lagðar
undir lögsagnarumdæmi Akur-
eyrai\. Ennfremur að fyrir liggi
yfirlýsing’ vegámálastjórnar að
þjóðvegurinn frá nýju Glerár-
brúnni upp á aðalveginn verði
kostaður af ríkinu og ríkið greiði
eftir’sém áður helmirig kostnaöíu-
við stníði 'GléYárbrúarinnar.
Krabbameinsfélag >
sloínað
Stofnfundur Krabbameinsfél-
ags Akui-eyrar var haldinn á
föstu^agskvöldiS var og mætti
próf. Níels Dungal á fundinuiri,
flut,t;..mÍQg -fr.óðlegfc --erindi um
- uíxiiC Uxuiijil KJfX
krabbamein og lækningu þess óg
sýri'di ‘ ákuggamyndir. Var að þyí
búpu ákveðið ,að. sitofpa Krabbá-
meinsfélag og skráðu sig 50 féí-
agsmenn. Þeim Jóhanni Þorkels-
syni héraðslækni Jakob Fri-
mannssyni framkv. stj. og Stef-
áni Guðnasyni lækni, var falið að
kalla saman fvamhaldsstofnfund.
Félagsstofnun þessi er þess
verð að menn gefi henni gaum.
Þörf er. á að ráenn styrki það
stóra mál, sem krabbameinsvai-n-
ir eru og gangi i félagið. ■
Bygging endurvarps-
stöðvarinnar að hef jast
Jónas Þorbergsson útvarps-
stjói-i var hér á ferð í vikulokin
til þess að semja um byggingu
stöðvarhúss endurvarpsstöðvar
innar nýju, sem reisa á skammt
frá Skjaldarvík í Glæsibæjar-
hreppi. Vélar stöðvarinnai- eru
hingað komnar sem fyrr er frá
greint hér í blaðinu og mun
bygging stöðvarhússins í þann.
mund að hefjast. Sér Guðmund-
ur Maguúson byggingameistari
um þær fi*amkvæmdir. Stöðin
mun væntanlega geta tekið til
starfa á öndverðu næsta ári.
UR
tapaðist sl. sunnudag í Nýja-
Bíó (svölunum). Finnand'i
skili því vinsamlegast á af
greíðsTu T)ags.'
Fyrsta flokks
ávextir!
RÚSÍNUR
í pk. og lausri vigt
KÚRENNUR
í pökkum
SVESKJUR
í pk. og lausri vig't
ÞURRKUÐ EPLI
í lausri vigt
APRICÓSUR
í lausri vigt
BLANDAÐIR ÁVEXTIR
í lausri vigt
GRÁFÍKJUR
í lausri vigt
DÖÐLUR
í pk. og lausri vigt
SUCCAT
góð tegund
APPELSÍNUR
væntanlegar
Vöruhúsinu hi.
Hreinlæfis-
vörur
Flestar tegundir til
hreingerningar
fást nú í
Vöruhúsið h.f.
Yítis-sódi
nýkominn
D.D.T. SKORDÝRAEITUR
einnig sprautur.
GERMIDIN „V“
sótthreinsunarvökvi <,
er nú fyrirliggjandi.
Vöruhúsið h.f.
Gummislöngur
%” og 1”
fyrirliggjandi
Verðið mjög lágt!
Vöruhúsið h.f.
Gummistígvél
Lágt verð!
Vöruhúsið h.f.
Skæri
Hnífar
HJARTANS ÞAKKLÆTI sendi eg öllum þeim, sem
| sýndu mér vinarhug á sjötugsafmœli mínu.
Guð blessi ykkur öll!
Dóróthea Þórðardóttir, Þórunnarstr. 106.
INNILEGT HJARTANS ÞAKKLÆTI mitt til barna
minna, tengdabarna, venzlafólks og vina, fyrir heim-
sóknir, gjafir, skeyti og blóm á 70 ára afmœli mínu, 4.
þessa mánaðar.
Óska ykkur öllum gleði og farsœldar á komandi
árum.
Ytra-Gili, 7. maí 1952.
Kristján Pálsson Skjóldal.
TILKYNNING
Frá og með laugardeginum 17. maí verða bifreiða-
verkstæði vor og smurstöðvar opin eins og undanfarin
sumur á laugardögum.
B. S. A. verkstœði h.f.
Bifreiðaverkstæðið Þórshamar h.f.
Bifreiðaverkst. Jóhs. Kristjánssonar h.f.
Lúðvík Jónsson & Co.
Bílaverkstœðið Víkingur.
Sumarkjólaefni
mjög fjölbréytt úrval.
Verð frá kr. 28.50 metrinn
Vöruliúsið h/f
Damask
LÉREFT, hvítt og mislitt
LAKALÉREFT
STOUT
LÉREFT, röndótt og rósótt
Vefnaðarvörudeild.
BURSTAR:
Fataburstar
Baðburstar
Handburstar
Skóburstar
Áburðarburstar
Klósettburstar
Ofnburstar
Glasaburstar
Hestaburstar
Fiskburstar
Uppþvottabwrstar
Þveglar
Handskrubbar m. teg.
Gólfsópar
Gólfskrubbar
Götukústar
Rykkústar
Kalkkústar
Jám- og giervörudcild.
Sandalar
með leður- og hrágúmmí-
sólum, hvítir, rauðir og
brúnir, nýkomnir.
Skódeild KEA.
Skódeild KEA.
Knattspyrnuskór
nr. 38—nr. 44.
Skódeild KEA.