Dagur - 14.05.1952, Qupperneq 5
Miðvikudaginn 14. maí 1952
DAGUB
5
Fishing News leggur 8 spurningar
fyrir íslendinga - vil! birta svörin
Flestar spurningar út í hött - og iandhelgis-
málum íslands óviðkomandi
Félag ísienzkra rithöfunda krefst
aukinnar bókmenntafræðslu
í skólum og útvarpi
Athyglisverðar ályktanir frá aðalfundi félags-
ins, sem haldinn var í lok aprílmánaðar
Hið kunna brezka fiskveiðablað
Fishing Nevvs gerir landhelgismál
íslands að umræðuefni í rit-
stjórnargrein nú fyrir skemmstu
og segir þar m. a., að þörf sé á að
fá upplýst ýmis atriði í sambandi
við landhelgina og fiskveiðar
Breta.
Segir ritstjórinn að í hverri
viku séu mörg eintök blaðsins
send íslenzkum lesendum, m. a.
til fyrirtækja og embættismanna
íslenzku ríkisstjórnarinnar. Spyr
blaðið síðan, hvort í þessum hópi
séu ekki einhverjir, sem vilji
svara spurningum þess og gefur í
skyn, að það muni gjarnan birta
svörin, enda mundu brezkir fiski-
menn teija feng að þeim. Síðan
leggur blaðið 8 spurningar fyrir
íslendinga, og eru þær þessar:
Spurningarnar.
1) Ef, eins og íslendingar
halda fram, ekkert er því til
fyrirstöðu að brezkir togarar
veiði fjær íslandsströnd (en
áður), hvert hlutfall góðs veiði-
tíma ætla þeir að togarar okkar
geti fengið miðað við.veiðitím-
ann meðan gamla línan gilti?
Er ósanngjarnt, með tilliti til
veðurfarsins við ísland, að
halda því fram, að veiðibann í
landvari muni stytta veiðitíma
skipa um a. m* k. einn þriðja?
2) Hversu mörg fiskimið við
ísland eru nú opin (fyrir brezk
skip) sem eru a) innan 100-
faðma línu og b) 200-faðma
línu?
3) Þegar frá er talin hinar
venjulegu göngur hinna ódýr-
ari fisktegunda, hvern góðfisk
geta brezk skip búizt við að
veiða utan 200 faðma dýpis?
4) Gera íslendingar í raun-
inni ráð fyrir að leit að miðum
á meira en 300 faðma dýpi sé
fjárhagslega möguleg?
5) Hverjir kenndu íslenzkum
fiskimönnum tækni við tog-
veiðar og hverjir fundu og
könnuðu meira en helming
fiskimiðanna umhverfis strend-
ur fslands?
6) Talsmenn fslendinga hafa
nýlega lýst yfir, að þeir geti, ef
þörf krefur (enda þótt þeir
byggi að verulegu leyti á brezk
um markaði) selt alla fiskfram-
leiðsluna utan Bretlands. Ef við
viðurkennum þetta mögulcgt,
hvert verð fá fslendingar þá
fyrir fiskinn á öðrum mörkuð-
um miðað við það verð, sem
þeir hafa fengið í Bretlandi?
7) Með því að Stóra Brctland
býður tvímælalaust upp á
stærsta fiskmarkað í Evrópu,
fyrir góðfisk, og þar sem það er
almennt viðurkennt, að Norð-
ursjórinn er þegar of hart leik-
inn til þess að vera vettvangur
stórútgerðar, hvar ætla íslend-
ingar að brezk fiskiskip geti
veitt það magn af góðfiski, sem
þarf til þess að fullnægja kröf-
um heimamarkaðsins?
8) Nær hin nýja lína út fyrir
hin þekktu hrygningarsvæði,
og er sanngjarnt að segja að
hún loki mörg hundruð fer-
mílna svæði, þar sem sjaldgæft
er að fá smáfisk í vörpu?
Spurt út í hött.
Þannig eru spurningar blaðsins
og munu flestar koma íslending-
ur undarlega fyrir sjónir. Þær
em raunverulega landhelgismál-
um íslands óviðkomandi flestar,
en snerta það vandamál Breta, að
afla nægilegs fisks fyrir heima-
markað sinn, þar sem það er stað-
reynd, eins og segir í blaði þessu,
að Norðursjórinn og önnur
heimamið þeirra eru þurrausin.
Þannig stefnir einnig hér við
land og það er til þess að sporna
við því, sem landhelgisreglugerð-
in nýja er sett. Landgrunnið er
akur íslenzku þjóðarinnar, sem
hún þarf að vernda og rækta, ef
hún á að geta lifað í landi sínu.
íslendingar geta ekki fórnað
framtíð bama sinna af ímyndaðri
góðsemi við Breta. Við eigum því
ekki að vísa skipum þeirra á
fiskimið né heldur eigum við að
ábyrgjast þeim ákveðið magn af
góðfiski, þótt slíkt gæti verið
heppilegt fyrir fiskimarkaðinn
þar í landi. Landhelgislínan nýja
er byggð á réttindum fslands til
grunnsins hið næsta landinu. Þar
eru uppeldisstöðvar fisksins, sem
afkoma þjóðarbúsins hvílir á. —
Ránveiði á þessum slóðum stefnir
þessari undirstöðu í voða og hef-
ur miðað augljóslega í þá átt að
undanförnu.
Umhugsunarefni fyrir Breta.
Spurningar Fishing News eru
tilvalið íhugunarefni fyrir brezka
útgerðarmenn, en þær eru ís-
lendingum að mestu óviðkom-
AÐALFUNDUR Félags ís-
lenzkra rithöfunda, sem haldinn
var 27. apríl s.l. skoraði á fræðslu
málastjórnina, að fyrirskipa strax
á næsta skólaári meiri kennslu
í skólum landsins í bókmenntum
þjóðarinnar, fornum og nýjum.
Ennfremur skoraði fundurinn
á forráðamenn ríkisútvarpsins,
að bókmenntakynning og bók-
menntafræðsla verði þar aukin
frá því sem nú er, og loks var
skorað á stjórnir allra félaga-
samtaka, að þær beittu sér fyrir
því, að íslenzkar bókmenntir fái
meira rúm sem skemmti- og fróð
leiksefni á fundum þeirra og
samkomum en almennt hefur
tíðkast.
Ályktanir Félags íslenzkra rit-
höfunda fara hér á eftir orðrétt-
ar:
„Félag íslenzkra rithöfunda
lítur á það sem óyggjandi stað-
reynd, að bókmenntir vorar hafi
gert þjóðina þess megnuga að
varðveita tungu vora og menn-
ingu á liðnum öldum og fram
á þennan dag. Vér teljum og víst,
að íslenzk tunga og menning' fáí
því aðeins iifað ög blómgast í
framtíðinni, þrátt fyrir náin og
sívaxandi samskipti við erlend-
ar stórþjóðir, að bókmenntirnar
verði Islendingum framvegis
sami andlegi lífgjafinn og verið
hefur hingað til. — Vér teljum
því mjög mikilvægt, að þjóð vor
hafi í heild sem allra nánust
kynni af bókmenntunum, forn-
um og nýjum, og að lifandi áhugi
á vexti þeirra og þróun verði
glæddur eftir föngum.
Af framáhgreíndum ástæðum
Sundnámskeið fyrir börn, sem
í 6. 5., og 4. bekkjum Bamaskóla
Akureyrar á síðastliðnum vetri
og ekki hafa enn lokið sundprófi
barnafræðslunnar fer fram í sund
laug bæjarins alla virka daga til
30. maí n. k. Tilhögunin er sem
hér segir:
Kl. 8—8.30 6. bekkir.
Kl. 8.30—9 5. bekkur úr 2. st.
og 5. bekkur úr 15. stofu.
Kl. 9—9.30 5. bekkur úr 7. st.
Kl. 9.30—10 5. bekkur úr 6. st.
andi. Þær byggjast á þeim stóra
misskilningi, að brezkir togarar
hafi rétt til þess að stunda rán-
veiði i skjóli framandi stranda,
enda þótt slík veiði stefni í voða
afkomu þeirra þjóða, sem hin
fjarlægu lönd byggja. Spurningar
sem þessar hefðu verið skiljan-
legri á öldinni sem leið, þegar
máttur en ekki réttur, gilti
í samskiptum þjóða. En það er a.
m. k. von frjálsra manna alls
staðar, að sá hugsunarháttur sé
ekki ráðandi á þessum hjara
heims á sjötta tug tuttugustu ald-
arinnar.
hefur Félag íslenzkra rithöfunda
samþykkt á aðalfundi sínum 27.
apríl, 1952 eftirfarandi áskorun:
1) Félagið skorar hér með á
fræðslumálastjórnina að fyrir-
skipa þegar á næsta skólaári
meiri kennslu í skólum lands-
ins en hingað til hefur verið í
bókmenntum þjóðarinnar, forn-
um og nýjum, og að lestur ís-
lenzkra bókmennta verði stór-
um aukinn. í framhaldsskólum
verði enn fremur fluttir fyrir-
lestrar um íslenzkar bókmennt-
ir og skáld, rithöfundar og leik-
arar verði fengnir til bókmennta
kynningar.
II. Félagið skorar á ráðamenn
Ríkisútvarpsins, að bókmennta-
kynning og bókmenntafræðsla
verði þar mjög aukin frá því
sem nú er. — Ennfremur, að ís-
lenzkir textar verði samdir við
þau erlend dægurlög, sem flutt
eru í útvarp.
III. Félagið skorar á stjórnir
allra félagssamtaka, sem hafa
einhvers konar fræðslu og
skemmtistarfsemi með höndum,
að vinna að því, að íslenzkar
bókmenntir fái meira rúm sem
skemmti- og fróðleiksefni á fund
um þeirra og samkomum en al-
mennt hefur tíðkazt hingað til.
IV. Félagið skorar á íslenzka
bóksala að vanda sem bezt val
á starfsfólki sínu og taka upp
þá reglu, sem gildir víða erlend-
is, að einungis það fólk, sem hef-
ur nokkra bókfræðilega og bók-
menntalega þekkingu til að bera,
verði ráðið til staraf í bókaverzl-
unum“.
Kl. 10—10.30 5. bekkur úr 8. st.
og 4. bekkur úr 3. stofu.
Kl. 10.30—10.45 4. bekkur úr
4. stofu.
Kl. 10.45—11 4. bekkur úr 13.
stofu.
Kl. 11—11.15 4. bekkur úr 1. st.
Kl. 11.15—11.30 4. bekkur úr
10. stofu.
Kl. 1.30—2 5. bekkur úr 2. st.
og 5. bekkur úr 15. stofu.
Kl. 2—2.30 5. bekkur úr 7. st.
Kl, 2.30—3 5. bekkur úr 6. st.
Kl. 3—3.30 5. bekkur úr 8. st.
og 4. bekkur úr 3. stofu.
Kl. 3.30—4 4. bekkur úr 4. st.
K1 4.30—5 4. bekkur úr 1. st.
Kl. 4—4.30 4. bekkur úr 13. st.
Kl. 5—5.30 4. bekkur úr 10. st.
Það skal tekið fram að á laug-
ardögum eftir hádegi fer engin
sundkennsla fram, og börn fá þá
ekki aðgang að lauginni.
Vegna þrengsla í klefum er
nauðsynlegt að bömin hraði sér,
er þau afklæðast og gangi vel frá
fötum sínum.
Börnin verða að mæta stund-
víslega og mega alls ekki slæpast
við sundlaugina að loknu sundL
H V Ö T
Er víkingar sigldu að sólríkri ey
var sumar í lofti og angan af landi.
Þeir höfðu ekki annað en ferðlítið fley,
er fannönnum urðu þá tíðum að grandi.
Island þá nefndu þeir eyjuna þessa
við elskuin það nafn og það munum við blessa.
Nú eigum við gangmikil glæsileg fley
með gufuafl, talstöð og hlaðin af vörum,
Er sigla um höfin að sólfagri ey
með syni vors lands, sem eru í förum.
Guð blessi för okkar fámennu þjóðar
til farsældar leiði þau, hollvættir góðar!
Hér grænkaði skógur úr fjöru til fjalls
er frumbyggjar komu og námu hér landið.
Þeir hjuggu ’ann og brenndu og unnu til alls
er aðeins var til þess áð veita ’onum grandið.
En svona var hugsunin áður á öldum,
að eyða því fagra, þess sárlega gjöldum.
Nú glitrar hvert blómstur á grænkandi hól
í góðviðri vorsins um friðsælar nætur.
Það lifnar að nýju, sá kvistur er kól
ó, komið og reisið hið máttvana á fætur!
Um heiðloftin kvakandi söngfuglar sveima,
þeir sækja okkur heim, til að elska og dreyma.
Hvar er nú, æska, J)ín árvakra hönd?
Því ísland þig kallar til starfa og dáða.
Og frjómoldin angar frá fjalli að strönd,
þín fyrirhöfn borgast við akrana sáða.
Þú vormaður fslands, á verði skalt standa,
sérð vonirnar rætast við störf þinna handa.
Því landið það virðir hvert vel unnið starf
ef verðu því líf þitt hvert einasta dægur.
En niðjarnir taka það aftur í arf,
því æskan er máttug ef viljinn er nægur. —
Guð blessi landið á ókomnum árum
og auðgi þann gróður er liggur í sárum.
Hvar sem þú ferðast tim framandi lönd
mun farsæld þín bíða í landinu heima.
O lát ekki, viniu- minn, bresta þau bönd
við brjóst þeirrar móður, er enginn má gleyma.
Þín verkefnin bíða til sjávar og sveita,
þeir sofa ekki á verði, er hamingju leita.
Ó bindist þið samtökum, sáið í reit
á sólríku vori í hlíöinni heima!
Því þá verður fögur og frjósöm hver sveit,
þín framtök mun sagan að eilífu geyma.
Þá gróandi skógur og grundimar mætast,
mun gullöld að nýju, ef vonimar rætast.
HALLDÓR JÓNSSON frá Gili.
Sundnámskeið fyrir efri bekki Barna
skólans hefst í dag