Dagur - 14.05.1952, Page 8
8
Dagur
Miðvikudaginn 14. maí 1952
Árásarmennirnir frá 30. marz 1949
hafa hlotið dóma í Hæsfaréffi
Fengu allt að árs fangelsi og sumir sviptir
kosningarétti og kjörgengi ævilangt
Hæstiréttur hefur kveðið upp
dóma yfir árásarmönnunum, er
stóðu fyrir óeirðunum við al-
þingishúsið 30. marz 1949 og
hlutu þeir ajlþunga dóma enda
þótt flestir dómarnir væru eitt-
hvað léttir frá því í undirrétti.
Alls voru ákærðir 24 menn en
af þeim voru 4 sýknaðir. í undir-
rétti voru 3 sýlmaðir. Tveir menn
voru dæmdir í 12 mánaða fang-
elsi, þrír í sjö mánaða fangelsi,
þrír í sex mánaða fangelsi og
einn í fimm mánaða f angelsi.
Einn var dæmdur í 30 daga varð-
hsdd og tveir í fésektir aðeins.
Sumir dómanna eru skilorðs-
bundnir. Átta hinna ákærðu voru
sviptir kosningarétti og kjörgengi
ævilangt.
Þessir hlutu dóm: Stefán Ög-
mundsson, 12 mán., Alfons Guð-
mundson 12 mán. skilorðsbundið,
Jón K. Steinsson, 7 mán., sviptir
kosningarétti og kjörgengi til op-
þnberra starfa. Magnús Jóel Jó-
hannsson, 7 mán., sviptur réttind
um. Stefnir Óláfsson 7 mán., svipt
ur réttindum. Jón Múli Árnason,
6 mán., sviptur réttindum. Magn-
ús Hákonarson, 6 mán., skilorðs-
bundið, Stefán Sigurgeirsson, 6
mán. sviptúr réttindum. Garðar
Halldórsson, 5 mán., skilorðs-
bundið. Kristján Guðmundsson,
4 mán., Ólafur Jensson 4 mán.,
Jóhann Pétursson 3 mán. Skil-
orðsbundinn dóm, fangelsi 3 mán.
hlutu: Árni Pálsson, Gísli ísleifs-
son, Guðmundur Helgason og
Páll Theódórsson.
Hálfdan Bjarnason hlaut 30
daga varðhaldsdóm, skilorðsbund
inn. Hreggviður Stefánsson var
sýknaður, en hafði verið dæmdur
í 3 mán fangelsi í undirrétti.
Fésektir hlutu Stefán Magnús-
son og Guðmundur Jónsson. Allir
hinir sakfelldu eiga heima í
Reykjavík.
Sr. Friðrik Friðriksson
væntanlegur til
bæjarins
Dr. theol Friðrik Friðriksson
er væntanlegur til Akureyrar
n. k. föstudagskvöld með e.s.
Esju. Kemur hann til að heim-
sækja hið nýstofnaða K.F.U.M.
á Akureyri.
Allir drengir frá 9 ára aldri,
piltar og ungir menn verða vel-
komnir á fundi félagsins n. k.
sunnud. í kristniboðshúsinu Zion
þar sem hann mun tala.
K.F.U.M. mun einnig halda
almenna samkomu á sama stað
á sunnudagagskvöldið kl. 8.30.
Foreldrar drengja og pilta í
K.F.U.M. eru sérstaklega hvattir
til að sækja samkomuna.
Sakborningunum var gert að
greiða allan kostnað af rekstri
málsins, en ríkissjóður greiðir
kostnað vegna þeirra, er sýknað-
Norður-Þingeyingar
gefa myndarlega til
sjúkrahússins
' Á meðal góðra gjafa, sem sjúkra-
húsinu nýja hafa borizt nú nýlega
og yfirlæknirinn kvittar fyrir ann-
ars staðar í blaðinu í dag, eru kr.
15.450.00 frá íbúum Presthóla-
hrepps og kr. 7.375.00 frá íbúum
Öxarfjarðarhrepps 1 Norður-Þing-
eyjarsýslu.
Þá nemur söfnun í Skriðuhreppi
í Eyjafjarðarsýslu kr. 5.920.00.
Aðrar nýlegar gjafir: Verzlunar-
mannafélagið á Akureyri kr. 5000,
Kven félagið í Húsavík og Verka-
kvennafélagið þar kr. 4000.00, söfn-
un í Tjörneshreppi kr. 1240.00,
hlutafélagið Hansa í Reykjavík kr.
500.00.
Frá fundi Framsóknarmanna síðastliðinn sunnudag
Myndin er frá fundi Framsóknarmanna á Hótel KEA s.l. sunnud. Eysteinn lónss. ílytur ræðu.
Fjöldi manna sótii samkomur Framsóknarmanna
m síMiiia helgi
Nokkrir nýir félagar bættust Framsóknarfélagi
Akureyrar á fundinum á sunnudaginn
Hinar fýrirhuguðu samkornur | laugardagskvöldið, og var hún á-
Framsóknarmanna i btc og hi'-raöi | gætlcga sótt, eftir því sem gerist um
um sl. helgi urðu mjög fjölmennar
°g sýndu glöggt, að menn láta sig
boðskap Framsóknatf lokksins miklu
skipta og leggja eyru við lillögum
hans í þjóðmálum.
ÁRSHÁTÍÐIN
Árshátíð Framsóknarfélags Akur-
eyrar var haldin að Hótel KEA á
Athyglisverf starf í verknámsdeild
í Gagnfræðaskóla Ákureyrar
Mjög myndarleg handavinnusýning skólans
Handavinnusýning Gagn-
fræðaskóla Akureyrar var
opin almenningi til sýnis á
sunnudaginn var, og kom
fjöldi gesta í skólann til þess
að skoða handavinnuna.
Á sunnudagsmorguninn bauð
Þorst. M. Jónsson skólastjóri frétta-
mönnúm, bæjarstjóra, þingmanni
kaupstaðarins og fleiri gestum, þar
á meðal Eysteini Jónssyni fjármála-
ráðherra, er hér var staddur, að
skoða sýninguna. Flutti hann við
það tækifæri erindi um verknám í
skólum og reynsluna af starfi verk-
námsdeildar í Gagnfræðaskólanum
á liðnum árum.
Það kom fram í ræðu skólastjór-
ans, að hann taldi aukið verknám í
skólum hina merkustu nýjung í
uppeldismálum og rétt stefnt að
auka verknámið eítir því sem á-
stæður leyfa, svo sem gert hefur
verið hér. Hann taldi reynsluna
sýna', að ekki þyrfti síðður góðar
gáfur og hæfileika til að stunda
verknám en bóknám, svo að í lagi
væri. Vaxandi áhugi virtist og vera
fyrir verknámi, eftir því sem að-
staða til kennslunnar batnaði, t. d.
með útvegun nýrra kennslutækja o.
s. frv. Þá skýrði skólastjórinn ýtar-
lega frá verknámskennslunni í skól-
anum og afrekum nemenda. í verk-
námsdeild pilta voru 56 nemendur
Kennarar voru Guðmundur Frí-
mann og Guðmundur Gunnarsson.
Námsgreinar voru trésmíðar og bók-
band. Kennslustundir samtals 42 á
viku. Verkefni pilta urðu alls 588, einna lengst á rekspöl í jressu efni.
bundnar bækur og smíðisgripir.
Vinnuverðmæti pilta, mjög hóflega
metið af kennurunum er 22 þús. kr.
1 verknámsdeildinni nutu 66
stúlkur kennslu og 59 í bóknáms-
deild handavinnukennslu. Verkefni
voru 802 og vinnuverðmæti mjög
lágt metið til peningaverðs 81 þús.
kr. Kennarar stúlkna voru Freyja
Antonsdóttir, Kristbjörg Kristjáns-
dóttir og Bergþóra Eggertsdóttir.
Vakti skólastjóri athygli á því,
að vinnuverðmæti fiemenda (efni
ekki talið með) væri eins mikið
og laun allra handavinnukennar-
anna. Mest vinnuafrek. hafði Val-
gerður Frímann sýnt. Unnið fyrir
1725.00 kr.
Handavinnumununum var kom-
ið fyrir til sýnis í mörgum skóla-
stofum, og vakti sérstaka athygli
kjólasaumur og hvítsaumur stúlkna
og bókband og húsgagnasmíði pilta.
Var líkast því að koma inn í vel
birga kjólaverzlun að koma inn í
sýningarstofuna. Auk kjólanna var
þarna alls konar arin'ar fatnaður og
margs konar hannyrðir og hjá pilt-
um ýmsir smíðisgripir og bundnar
bækur. Virtist mönnum vinna <>11
vönduð og bera vott um hæfni og
smekkvísi kennara ög nemenda.
Þetta mun mesta handavinriusýn-
ing, sem sézt hefur í skóla hér, enda
er verknámsdeild Gagnfræðaskólans
sífellt að færa út kvíarnar og þoka
starfi deildarinnar í það horf, sem
fyrirhugað var með riýju fræðslulög-
unum. Mun þessi skóli kominn
slíkar samkomur. Voru gestir á ann-
að hundrað talsins. Félagið bauð tíl
samkomunnar þeim Eysteini Jóns-
syni, ráðherra, og Sigurjóni Guð-
mundssyni, framkv.stjóra flokksins,
og eftir að veizlustjóri, Jóhann Frí-
mann, skólastjóri, formaður félags-
ins, hafði ávarpað samkomuna und-
ir borðum og boðið heiðursgestina
velkomna, flutti Eysteinn Jónsson
snjallt og mjög adivglisvert erindi
um Framsóknarflokkinn og bæina
og nauðsyn jress, að frjálslynt fólk
og andvígt öfgunum til hægri og
vinstri, stæði saman í flokki og ynni
í sameiningu að framkvæmd frjáls-
lvndrar umbótastefnu, sem miðuð
væri við þjóðina alla en ekki ein-
staka hópa. Var gerður mjög góður
rómur að ræðu ráðhérrans.
Síðar um kvöldið sungu nokkrar
ungar stúlkur létt lög við gítarund-
irleik. Nefna þær sig „Leiksystur"
óg eru að verða mjög vinsæll
skemmtikraftur í bænum. Var jreim
ágætlega fagnað.
Síðan var fluttur ,,útvarpsþáttur“
frá Akureyri, eftir hinn góðkunna
húmorista Baldur Eiríkssoii, og
vakti hann mikinn lilátur, enda
bráðsnjall og fyndinn.
Síðan var stiginn dans til kl. ,2.
af miklu fjöri, við undirleik liljóm-
sveitar José Riba.
Voru allir samkomugestir á einu
máli, að þessi árshátíð hefði tekizt
vel og orðið til uppörvunar og
skemmtunar íyrir Jjátttakendur..
FUNDURINN
Framsóknarfélögin i bæ og sýslu
stóðu að fundinum að Hótel KEA
á sunnudaginn kl. 4. Var hann á-
gætlega söttur. Voru fundarmenn á
Jrriðja hundrað talsins.
Eftir að formaður Framsóknarfé-
lags Akureyrar hafði sett fundinn
og tilnefnt Þorstein M. Jónsson
skólastjóra til fundarstjóra, flutti
Eysteinn Jónsson ráðherra mjög
ýtarlegt og fróðlegt erindi um
stefnu Framsóknarflokksins í Jsjóð-
málunum. Var Jrað bæði sögulegt
og fræðilegt yfirlit um stefnu og
störf flokksins, og brá ráðherrann
upp mynd af því þjóðfélagi, sem
flokkurinn vill koma hér á, þjóðfé-
lagi, sem hefur samvinnuhugsjón-
ina og sannvirðisgrundvöll vinnu
og afraksturs að leiðarsteini.
Var máli ráðherrans ágætlega
tekið af fundarmönnum.
Heimsókn ráðherrans og lunda-
höld Jressi hafa orðið til styrktar
og uppörvunar fyrir flokksstarfið
hér, og kunna Framsóknarmenn
honum beztu þakkir fyrir komuria.
Söngmót að Laugum 22. júní í sumar
Kirkjukórarnir í Suður-Þing-
eyjarprófastsdæmi undiríiúa nú
söngmót, sem fyrirhugað er að
Laugum 22. júní næstkomandi.
Samband kirkjukóranna var
stofnað sumarið 1950, og hélt það
fyrsta söngmót sitt að Húsavík þá
um haustið, við mikla þátttöku
og almenna hrifningu. — Þetta
verður því annað í röðinni. í sam-
bandinu eru alls 11 kirkjultórar.
Tóku 8 kórar þátt í söngmótinu
að Húsavík með samtals nálega
200 félögum. Allt útlit er fyrir, að
þátttaka verði ekki minni í mót-
inu í sumar. Eru því líkur til, að
þar syngi 200 manna blandaður
kór allstóra söngskrá, auk þess
sem kórarnir syngja sérstaklega.
Fulltrúi söngmálastjóra þjóð-
kirkjunnar í prófastsdæminu er
Jónas Helgason söngstjóri að
Grænavatni. Hefur hann í vetur
heimsótt allmarga af kórum sam-
bandsins og verið á æfingum hjá
þeim.
Stjórn Kirkjukórasambands
Suður-Þingeyjarprófastsdæmis
skipa nú: Páll H. Jónsson söng-
kennari, formaður, séra Friðrik
A. Friðx-iksson prófastur, ritari,
Sigurður Guðmundsson gjald-
keri, Jónas Helgason söngstjóri
og Finnur Kristjánsson kaupfél,-
stjóri.
Kii-kjukórasambandið gerðist
aðili að stofnun Kii'kjukórasam-
bands Xslands á sl. sumri.
„Fást“ í bíó
Skjaldboi'garbíó er um þessar
mundir að sýna kvikmyndina
„Faust“ sem gerð er eftir heims-
frægu leiki'iti Goethes og söngv-
um Gounods. Myndin er ítölsk-
amerísk fx-amleiðsla, skipuð ágæt
um ítölskum söngvurum, og eins
og að líkum lætur hin merkasta
kvikmynd. Myndin verður sýnd
aðeins í örfá skipti enn.