Dagur - 25.06.1952, Síða 1
Kjósendur, sem ekki verð'a
hcima 29. júní, munið að kjósa
strax hjá bæjarfógeta!
Minningarspjöld Land-
græðslusjóð's fást í
Bókaverzl. Eddu.
XXXV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 25. júní 1952
26. tbl.
Um þá er kosið næstkomandi sunnudag
úí á Eand er lokið
Allir þátttakendur ánægðir mcð þær viðtökur,
sem „Brúðuheimilið“ hiaut hér
Ásgeir Ásgeirsson. Bjarni Jónsson. Gísli Sveinsson.
Kjör forseta Éslands hefst um fand alit klukkan 10
á sunnudagsmorguninn - talning 1. júlí
A Akureyri verður kosið í GagnÍFæðaskólanum við Laugargötu
Kosning forseta Islands fer sem
kunnugt er fram næstkomandi
sunnudag, 29. júní, og verður
kjörfundur settur uin land allt
klukkan 10 árdegis og er búizt við
jiví að kosningin standi langt
fram á kvöld eins og við almenn-
ar Alþingiskosningar.
Hér á Akureyri verður kjör-
fundur settur í Gagnfræðaskóla-
húsinu við Laugargötu klukkan
10 árdegis. Um undanfarin mörg
ár hefur kjörfundur verið í Sam-
komuhúsi bæjarins, en ógerlegt
er að nota húsið til þess, síðan því
var breytt í leikhús með föstum
sætum. í Gagnfræðaskólahúsinu
er rúmgott og ætti að vera auð-
velt að koma kjörklefum fyrir
þar, svo að vel fari.
Á kjörskrá hér á Akureyri eru
nú 4316 menn, en af þeim eru
einhverjir, sem ekki fá kosninga-
rétt fyrr en síðar á árinu. í yfir-
Þjóðarviljiiin ræður
- segir Bjarni Bene-
diktsson
Síðastl. föstudagskvöld var
Bjarni Benediktsson utanríkis-
ráðherra spnrður að því á fundi
á Selfossi, hvað ríkisstjómin
mundi gera ef Ásgeir Ásgeirs-
son yrði kosinn forseti íslands.
Hann svaraði spurningunni
þannig, að stjórnin mundi þá að
sjálfsögðu Iíta á það sem þjóð-
arvilja, sem ríkisstjóminni
hæri að beygja sig fyrir, stjórn-
in mundi því ekki scgja af sér
þótt úrslit forsetakjörsms yrði
þessi. í gær skýrir svo Alþýðu-
blaðið í Beykjavík frá því, að
það hafi borið þessi ummæli
undir utanríkisráðherrann,
hvort þau væru rétt eftir höfð,
og hafi hann staðfest að svo
væri.
kjörstjórn hér á Akureyri eru
Friðjón Skarphéðinsson bæjar-
fógeti, dr. Kristinn Guðmundsson
skattstjóri og Kristján Jónsson
fulltrúi.
í Eyjafjarðarsýslu eru 3152 á
kjörskrá. Kjördeildir verða fleiri
en ein í sumum hreppum. f yfir-
kjörstjórn eru Sigurður Guð-
jónsson bæjarfógeti, Valdimar
Pálsson hreppstjóri og Eiður
Guðmundsson hreppstjóri.
TALNING.
Ákveðið er að talning at-
livæða um land allt fari ekki
fram að kosningu lokinni eins
og venja er við Alþingiskosn-
ingar, heldur hefst hún kl. 9
árd. þriðjudaginn 1. júií og
verða úrslit væntanlega kirnn
síðdegis þann dag og í öllum
kjördæmum.
Forsetaefnin ávarpa
þjóðina í útvarpi
Annað kvöld kl. 20.30 hefst út-
varp á ávörpum frambjóðend-
anna þriggja til forsetakjörs, og
flytur hver 30 mínútna erindi.
Utvarp þetta stendur því til kl.
22 annað kvöld. Ekki er blaðinu
kunnugt um í hvajða röð fi-ara-
bjóðendurnir tala.
í fyrrakvöld var þriðja og síð-
asta sýning Þjóðleikhússins á
„Brúðuheimili“ Ibsens hér
nyrðra. Var hvert sæti skipað í
húsinu og komust færri en vildu.
En tímans vegna reyndist óger-
legt að hafa fleiri sýningar. Hin
ágæta norska leikkona Tore
Segelcke er á förum af landi
burt og þess vegna hvarf leik-
flokkurinn suður í gær. En svo
mikill viðburður þótti þessi
heimsókn í leiklistarlífi Norður-
lands, að hingað sóttu gestir langt
að, t. d. frá Sauðárkr. og Húsavík
til þess að sjá „Brúðuheimilið“.
ÁNÆGÐIR MEÐ FÖRÍNA.
Guðlaugur Rósinkranz Þjóð-
leikhússtjóri sagði blaðinu á
mánudagskvöldið, að hann væri
mjög ánægður með þessa för,
hversu vel hún hefði tekizt og
hverjar móttökur leikarar hefðu
fengið hér. Leikararnir, sem
blaðið ræddi við, tóku undir
þessi orð.
Frú Tore Segelcke sagði, að sér
hefði þótt það ákaflega ánægju-
legt að fá tækifæri til þess að
heimsækja Norðurland og sjá
meira af íslandi en höfuðstaðinn.
Koman. norður hefði orðið sér og
þeim hjónunum báðum til mik—
illar gleði. Þau hafa ferðast hér
um nágrennið og þykir hér fagurt
um að litast og neita því eindregið
að hér sé kalt. Hvað er orðið um.
karlmennsku íslendinga? spurði
maður frúarinnar, dr. Anton
Raabe, glettnislega. Okkur Norð-
mönnum þykir ekki kalt hér. Við
gætum vel hugsað okkur að búa
hér! Annars sagði dr. Raabe að
hann hefði hér nyrðra séð perlu,
sem sér þætti stórmerkileg og
með engu móti mætti glatast
komandi kynslóðum, en það væri
gamli Laufásbærinn, arfur frá
horfinni tíð, sem við gætum verið
stolt af. Dr. Raabe veit hvað hann
syngur um þessi efni, því að hann
er kunnur áhugamaður um forn-
leifar og þjóðminjar í heimalandi
sínu. Frú Tore Segelcke sagði að
hér á Akureyri hefði verið gott
„publikum" að leika fyrir og hún
var ánægð að finna og heyra, að
fólk almennt skildi norskuna
prýðisvel og naut leiksins í rík-
um mæli.
GOTT LÍTIÐ LEIKHÚS.
Ummæli annarra leikara voru
á svipaða lund. Frk. Amdís
Björnsdóttir sagði að þetta hefði
verið ánægjuleg heimsókn, verst
að sýningar gátu ekki orðið
'fleiri. Móttökur hér hefðu allar
verið ágætar. Haraldur Björnsson
kvað sér það jafnan ánægjuefni
að koma til sinnar gömlu Akur-
eyrar og hér væru góðir áhorf-
endur og áheyrendur sem fyrr-
um. Hann harmaði einnig, að
einnig að sýningar væru ekki
fleiri, en óviðráðanlegar orsakir
valda. Sunnlenzku leikararnir
hafa flestir komið hér áður og
leikið , en þó ekki fyrr en nú
síðan leikhúsinu var breytt og
létu þeir af því, að mikill væri
munurmn og mætti telja þetta
ágætt lítið leikhús.
GÓÐIR GESTIR.
Það er ástæða til að þakka
stjórn Þjóðleikhússins og leikur-
um öllum þessi ummæli og
komuna. Leikhúsgestir hér fagna
því að hafa fengið þetta einstaka
tækifæri til þess að sjá ágæta
ieiklist í glæsilegum búningi. í
ræðu þeirri er þjóðleikhússtjóri,
Guðl. Rósinkranz, flutti að aflok-
inni frumsýningu, minnti hann á,
hverja þýðingu það hefði fyrir
Þjóðleikhúsið að treysta tengsl
sín við fólkið allt. Það var vel
mælt og drengilega og vafalaust
j er, að forráðamenn leikhússins
hafa fullan hug á að halda þessari
starfsemi áfram. Veri leikflokkar
Þjóðleikhússins jafnan velkomnir
hingað, og meðtaki liinir ágætu
leikarar allir, er nú gistu þennan
bæ, heila þölck fyrir komuna!
Þessi mynd var tekin hér á leiksviðinu sL mánudagskvöld, er lokið var þriðju og síðustu sýningu Ieik-
fiokks Þjóðleikhússins á Brúðuheimili Ibsens. Á myndinni, taiið frá vinstri: Haraldur Björnsson (Krog-
stad), Bryndís Pétursdóttr (þjónustustúlka), Valur Gíslason (Helmer), Tore Segelcke (Nóra), Guð-
iaugur Rósinkranz Þjóðleikhússtjóri, Arndís Björnsdóttir (Kristine), Indriði Waage (dr. Rank), Þóra
Borg (barnfóstra), Baldvin Halldórsson leiksviðsstjóri, Torfhildur Baldvins hárgreiðslumær og Guð-
mundur Gunnarsson, formaður ^eikfélags Akureyrar. (Ljósm.: Kristjan Hallgríinsson).