Dagur - 25.06.1952, Qupperneq 7
Miðvikudaginn 25. júní 1952
D AGUR
7
MÓÐIR, KONA, MEYJA.
(Framhald af 4. síðu).
ekki hefur mátt sjást, því að það
hefur verið klippt framan af
myndinni, svo að einungis sjást
stafirnir oscow og lítið horn af
upphafsstaf, sem að líkindum
hefur verið M. Hvað var það, sem
lesendurnir máttu ekki sjá? ....”
Þannig spyrja ekki nema frómir
menn. Það var ekkert, sem les-
endurnir máttu ekki sjá, herra
tónskáld. Það var bara það, að
stafurinn M fylgdi þessum hluta
fyrirsagnarinnar í hinu ameríska
blaði og Degi fannst ástæðulaust
að láta hann fylgja myndinni eins
og hala á kú, því að enginn var
fróðari þótt hann sæi hina ensku
fyrirsögn lengri en styttri. Mynd
in var hér aðalatriðið. Þetta er
allur hinn voðalegi leyndardómur
og hinn stórkostlega blekking. Af
skrifum Áskels sést, að hann hef
ur ekki fremur en önnur ritstjórn
Verkamannsins farið að þeim ráð
leggingum Dags að lesa greinina
í heild í hinu ameríska blaði, sem
fæst í bókaverzlunum. Ef hann
hefði gert það, þurfti engar get-
sakir um blekkingar og klippta
bókstafi.
Annars er Dagur ásáttur að láta
þessu þvottasnúrumáli lokið. Það
er ekkert spaug að fást við mann,
sem er svo skyggn á hlutina, að
hann getur skrifað heila bók um
„land lífsgleðinnar" eftiv nokk
ufra daga dvöl þar. Slíkt er ekki
• % ' ' ' ‘; ,w
á færi annarra en mikilla tfú
manna. Sumir hafa veigrað sér
við því að skrifa heilar bækur um
fjarlæg lönd eftir margra ára
dvöl. Þeir hafa ekki átt trú hjart
ans á dýrðina.
Fokdreiíar
Framhald af 4. síðu)
þekkingar á bókmenntum allra
Norðurlandanna.
Sá hluti norsku þjóðarinnar
sem berst fyrir sigri hins sann-
norska máls í landinu, finnur og
veit, hvers virði íslenzkan og ís
lenzk menning er norsku þjóðinn:
í þeirri þjóðemisbaráttu. Það
væri okkur íslendingum varan-
legur orðstír, ef við vildum leggja
þeim frændum okkar lið, mæta
þeim miðra garða í þeirri þjóð-
ernisbaráttu, án þess að við
missum marks sjálfir í fræðslu
málum okkar og menntunarvið-
leitni, nema síður sé.
Mér er það ljóst ,að ýmsir agn-
úar eru á því nú hjá okkur, að
breyta skyndilega um kennslu
Norðurlandamáli í framhalds-
skólunum okkar. M. a. er það rétt
hjá höfundi Fokdreifa, að okkur
skortir kennara í nýnorsku, en úr
því yrði fljótlega bætt með hjálp
Norðmanna, ef við á annað borð
vildum breyta til, spara okkur
fúlgur fjár og mikinn tíma
tungumálanáminu og kennslunni
— og ná betri árangri. — Með
þökk fyrir birtingun. Þorsteinn
Þ. Vigiundsson.“
ÞÓTT „DAGUR“ telji að vísu
ekki ástæðu til að fara sérlega
mörgum orðum um þessa nýju
greinargerð eða rökstuðning
skólastjórans fyrir hinni nýstár
legu tillögu hans, mun þó nokkru
hánar verða vikið að þessu máli
híæsta blaði, þar eð rúm leyfir
ádfi,'"aS 'jjá’ð ^sé gefi ífð'þéSsÖ'
sinni.
Ánnast nýlagnir
ÚR BÆ OG BYGGÐ
í íbúðarhús, verksmiðjur, skip, og viðgerðir á
raflögnum og heimilistækjum.
Guðjón Eymundsson, rafvirkjameistari,
Bjarmastíg 13. — Sími 1048.
Sportsokkar
t nýkomnir
Kaupfélag Eyfirðinga
Vefnaðarvörudeild.
Til sölu
er flugskýli Flugfélags íslands h.f. á Melgerðismel-
um, ef viðunandi tilboð fæst í eignina. Tilboðum
ber að skila á skrifstofu félagsins á Akureyri fyrir
10. júlí næstkomandi.
Flugfélag íslands h.f.
Kápuefni
Rifflað flauel (5 litir)
Gabardine
Rayon Satin (í regnkájrur)
VERZLUN B. LAXDAL
Ensku
kveii-sportlnifiirnar,
úr rifflaða flauelinu, eru
þægilegustu höfuðfotin til
sumarferðalaga.
VERZLUN B. LAXDAL
Um næstu helgi:
Fallegir Gabardinefrakkar
og breið lakkbelti í mörg-
um litum (ný Parísartízka).
VERZLUN B. LAXDAL
Ódýrt! - Ódýrt!
Sportdragtir úr sterkum
efnum. Kr. 400.00
Flauelskápur kr. 600.00.
Fermingarkápur kr. 380.00
VERZLUN B. LAXDAL
Nýkomið:
Bifreið til sölu
MORRIS-bifreið, módel
’47, nýstandsett, til sölu.
fjpplýsingaa,' 'í sírna 1285 eðal
1651.
Frá N. F. L. Á.
Þeir félagsmenn, er óska
eftir að fá skammt af
HUNANGI
vitji þess næstu daga í
Vöruhúsið li.f.
Nýlon-garn
Ullargarn
Bómullargarn
Ásbyrgi h.f.
Karlmannajakkar
úr riffluðu flaueli.
VERZLUN B. LAXDAL
Gabardineföt
Karlmannaskyrtur
Hálsbindi.
Fjölbreytt úrval.
VERZLT N I!. L.4XDAI;
Enskar dragtir
með sólplisseruðuin pilsum.
Nýjasta tízka.
VERZLUN B. LAXDAL
Kirkjan. MessaS í Akureyrar-
kirkju næstk. sunnudag kl. 2 e.
. — F. J. R.
Áheit á Akurcyrarkirkju. Kr.
100.00 frá H & H. Þakkir Á. R.
Áheit á Strandarkirkju. Kr. 100
frá S. J. Mótt. á afgr. Dags.
Gjöf til nýja sjúkrahússins á
Akureyri, frá kvennadeild Slysa-
varnafélagsins á Ak., fyrir kaffi-
sölu á sjómannadaginn, kr.
1424.07.
Áheit á Strandarldrkju. Kr. 25
frá N. N. Mótt. á afgr. Dags.
Sólhehnadrengurinn. Kr' 50 frá
Friðbirni. Mótt. á afgr. Dags.
Til Strandarkirkju. .Rr. 10.00
frá Birnu Friðriksdóttur. Mótt. á
afgr. Dags.
Golfklúbbsfélagar! .— Upphaf
ShelIolíubikarRep"þhinnar fimmtu
daginn 25, þ. m. kl. 8 e. ih.
Keppni um Mickeyscup lauk
laugardaginn 21. þ. m. Sigurveg-
ari varð Jakob Gíslason.. 2. Ágúst
Ólafsson.
Fundur verður í Iðnaðarmanna-
félagi Akureyrar miðvikud. 25.
júní kl. 8.30 e. h. í Gagnfræða-
skólanum. Fundarefni: Hækkun
iðgjalda og fleira. — Stjórnin.
Frá Kvenfél. Hlíf. Gjafir til
Pálmholts: A. M. kr. 100.00, J. P.
kr. 100:00, M. S. kr 0000, tvö
veggteppi frá R. O. Björnsson. —
Kærar þakkir. Stjórnin.
Frá Skyndihappdrætti Þórs. -
Eftirtalinna vínningsnúmeiia, he{
ur enn éldci -vfefi&-vkjájíí 'Vhirt-
ingur nr. 28 kom upp á nr. 1050
nr. 4 á nr. 1214, nr. 49 á nr. 2829
nr. 48 á nr. 4609, nr. 24 á nr. 4724
nr. 39 á.m-, 8864, nr. 6 á nr. 40416
nr. 7 á nr. 10396, nr. 42 á nr,
10860, nr. 35 á nr. 10879, nr. 41 á
nr. 11791, nr. 14 á nr. 11930.
Vinninganpa • sjí;' vitjað íil, JóAs
Kristinssðnai” ra'k&raméistara.
(Birt án ábyrgðar).
Minningarlundúr Bólu-Iljálm
ars. Unnur Sveinsdóttir, Hafnan
stræti 88, kr. 20.00. — Svéinborg
Sveinsdóttir, Hafnarstr. 88, kr
25.00. — Ingvar Eiríksson, Norð-
urgötu 19, kr. 50.00. — Brynjlóf-
ur Sveinsson, Skólastíg 12, kr.
50.00. — Anna Helgadóttir,
Munkaþverárstræti 33, kr. 20.00.
— Friðrik Jónsson, Laxagötu 2,
kr. 25.00. — Rósfríður Guð-
mundsdóttir, Strandg. 5, kr. 50.00.
— Lilja Sigurðardóttir, Strandg.
33, kr. 50.00. — Halldóra Jónsd.,
Strandg. 49, kr. 25.00. — Valgerð-
ur Jóhannsd., Helgamagrastræti
44, kr. 30.00. —' Ingimar Þorkels-
son, Gránufélagsg. 39, kr. 50.00.
— Guðrún Eiríksdóttir Gránu-
félagsg. 39, kr. 25.00. — Guðrún
Árnadóttir, Oddeyrargötu 36, kr.
50.00.
Þið, sem ætlið úr bænum á
sunnudaginn, munið að kjósa
áður en þið farið. Utankjör-
staðarkosning alla daga á bæj-
arfógetaskrifstofunni.
Gjöf til Æskulýðsfclagsins. Kr.
100.00 frá N. N. Kærar þakkir. —
P. S.
Húsfreyja í miðbænum hefur
beðið blaðið að spyrja bæjaryf-
irvöldin að því, hvenær þau
ætli að hefjast handa um að
gera leikvöll þann þar, sem
þegar er búið að samþykkja að
gera og mikil þörf er fyrir. —
Blaðið beinir spurningunni til
réttra aðila.
Togararnir: Svalbakur kom inn
í fyrradag með um 200 tonn af
saltfiski eftir skamma útivist.
Veiddi hann hér við land. Kald-
bakur er á heimleið af Græn-
landsmiðum með góðan afla.
Harðbakur er á Grænlandsmið-
um.
Áheit á nýja sjúkrahúsið á Ak-
ureyri. " Kr. 25.00 frá N. N. og
áheit á Lögmannshlíðarkirkju kr.
25.00 frá N. N. Mótt. á afgr. Dags.
Fyrstu síldveiðiskipin eru farin
út. Eru það Særún og Ingvar
Guðjónsson frá Siglufirði. Ekki
hafði frétzt um veiði hjá þeim í
gær. En bátar eru farnir að fá
lítilsháttar af síld í reknet. Akur-
eyrarskipin húast á veiðar. „Jör-
undur“ mun væntanlega fara út á
morgun og svo hin hvað úr
hverju.
Stórt herbergi
til leigu. — Afgr. vísar á.
Uppþvottavél
tiTsölu.
V >, * Bx-flgi £Ívk.SSQ>ls
Sími 1612.
Hcstamannafélagið „Léttir“ bið-
ur þá, sem ætla að fara á Fjórð-
ungsmótið á Sauðárkróki þ. 6.
júlí, að gefa sig fram við undir-
ritaða fyrir næstk. sunnudag, og
þá um leið láta vita, hvort þeir
ætla á hestum eða bílum. Þétta er
áríðandi að gert verði fyrir ofan-
greindan tíma, vegna fyrir-
greiðslu á leiðum og á mótstaðn-
um. Bjarni Kristinsson, Ingólfur
Ármannsson, Júlíus Pétursson,
símar 1080 og 1279. — Ath. Þá eru
þéir, sem ætla að setja hesta á
kappreiðarfiar, beðnir að tilkynna
það fyrir næstk. • laugardag ;til
Páls Jónssonar, Túngötu 6, sími
1558, eða til Vilhelms Jensen,
Gránufélagsgötu 41, sími 1985.
Til þrastahjónanna: Kr. 10.00
frá Guðmundi.: — Kr. 10.00 frá
Frímanni. — Kr. 10.00 frá Gunn
afi. — Kf.TO.OÖ !fará Jenny. -
Kr. 25.00 fr: E. S.
- Brúðuheimili Ibsens
(Framhald af 5. síðu).
reyridist það svo hér og nú sem
þar og ætíð áður. En eg get þó
ekki stillt mig um að geta að
endingu — og alveg sérstaklega
— um leik Haraldar Björnssonar
í hinu ömurlega en þó áhrifa-
rika og vandasama hlutverki
ógæfumánnsins — jafnvel mann-
hraksins, í heimsins augum —•
Krogstads málaflutningsmanns.
Slíka hlutverk virðist ekki gimi-
legt né liklegt til frægðar og vin-
sælda. En í mínum augum lagðist
þar alt á eitt, gervið og leiksnilld-
in, að meitla úr þessu harða bergi
enn eina þeirra ógleymanlegu
mynda, sem við eignumst stund-
um, þegar bezt tekst til, í leik-
húsinu — mynda, sem standa,
þegar ýmsar hinna glæsilegri og
gleðilegri svipmynda slíkra
stunda eru löngu fölnaðar, upp-
litaðar eða\að fullu gleymdar.
Mér þótti sem Haraldur hefði
með list sinni leitt mig inn í þetta
hrjúfa,kalda og ömurlega berg og
sýnt mér í nýju og-skjæru ljósi,
að inn í klettinum sló heitt og
viðkvæmt mannshjarta, slegið
ógn og skelfingu þeirrar verald-
ar, sem heimurinn getur vissu-
lega breytzt í, þegar atvik og ör-
lög kreista fastast, og til forherð-
ingar, hvern brest, sem finnast
kann þó í hverri mannssál, þegar
öllu er á botninn hvolft.
Leikhúsgestir munu vissulega
kunna Þjóðleikhúsinu og öllu
leikfólkinu hinar beztu þakkir
fyrir komuna norður hingað. —
Farið heil og komið fljótt aftur
með nýtt snilldafverk og nýja
snillinga í handraðanum!
Leikhúsgestur.