Dagur - 16.07.1952, Síða 1
DAGUR
keinur ekki úí í næstu
viku vegna sumarleyfa.
XXXV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 16. júlí 1952
29. tbk
Þessa mynd tók sænski ljósmyndasmiðurinn og rithöfundurinn
Jöran Forsslund um mánaðamótin júní—júlí í fyrra. Þá var snjór í
fjöllum, en ekki samt eins mikill og nú. Þetta sumar er, það sehi af
er, miklu kaldara en síðastliðið sumar.
Erlendu samvinnumennirnir fengu
hér fsgurf veSur og hiýjar vsðtökur
Lofuðu framtak samvinnufélaga norðanlands
Fulltrúarnir á Alþjóðabingi
samvinnumanna, sem lialdið var í
Reykjavík, komu í skyndiheim-
sókn hingað norð'ur sl. miðviku-
dag og dvöldu hér fram yfir há-
degi á fimmtudaginn.
Flugvélar þær, er fluttu þá
norður, ásamt fulltrúum SÍS,
komu á Melgerðisflugvöll laust
fyrir klukkan 11 um morguninn
og voru þar mættir fulltrúar frá
KEA og SÍS hér á Akureyri. Var
ekið beint af flugvellinum í
Vaglaskóg og þar snæddur há-
degisverður í boði SÍS. Helgi Pét-
ursson framkvæmdastj. útflutn-
ingsdeildar SÍS stjórnaði hófinu
og bauð gesti velkomna, en Sir
Harry Gill, forseti Alþjóðasam-
bandsins, hafði orð fyrir gestun-
um.
Til Mývatns.
Frá Vaglaskógi var haldið til
Reykjahlíðar við Mývatn og þar
setin kaffiveizla í boði SÍS, að
gistihúsinu Reynihlíð eftir að
brennisteinshverirnir austan
Námaskarðs höfðu verið skoðað-
ir. Veður var hið fegursta í Mý-
vatnssveit og hrifust gestirnir
mjög af hinni sérkennilegu nátt-
úrufegui’ð héraðsins. Frá Reykja
hlíð var ekið í Vaglaskóg og þar
snæddur kvöldverður í boði SÍS.
Þar voru ræður fluttar -— m. a.
talaði þar Baldur Baldvinsson f.
h. K. Þ. í Húsavík. — Geysir
kom og söng nokkur lög úr utan-
fararprógrammi sínu, undir
stjórn Ingimundar Árnasonar, við
mikla hrifningu gestanna. Seint
um kvöldið var ekið til Akur-
eyrar og gistu fulltrúárnir á
Hótel KEA og í nýju heimavist-
inni.
Verksmiðjur SIS heimsóttar.
Um morguninn fóru gestirnir í
heimsókn í verksmiðjur SÍS og
fylgdu starfsmenn þar þeim um
fyrirtækin og útskýrðu allt, er
fyrir augun bar. Reyndu gest-
irnir að nota hinn stutta tíma hér
til þess að kynnast starfsemi
samvinnufélaganna og höfðu
margir orð á, að óviða mundi
samvinnustarfsemin setja svip
sinn á bæjarfélagið í jafnríkum
mæli og hér.
í boði KEA.
Um hádegi settust .fulltrúarnir
að veizluborði á Hótel KEA og
var Kaupfélag Eyfirðinga gest-
gjafinn og Jakob Frímannssön
kaupfélagSstjóri veizlustjóri. —
Bauð hann gestina hjartanlega
velkomna norður hingað og lýsti
ánægju eyfirzkra samvinnu-
manna yfir þessari virðulegu
heimsókn. Af gestanna hálfii
flutti Sir Harry Gill, forseti Al-
þjóðasambandsins, aðalræðuna,
og lýsti hrifningu sinni yfir því,
sem hér hefði fyrir augun borið
og kvað það sér og öðrum sam-
vinnumönnum til uppörfunar og
írezkt blað sskar íslendinga w landhelgisbrot
tostungur á reki
Skjálfandaflóa
Segir Suðuresjamenn krefjast enn stærri land-
helgi og togveiðar jiegar stundaðar innan nýju
landhelgislínunnar
a
Laust fyrir sl. mánaðamót
fann trillubátur frá Flatey á
Skjálfanda dauðan rostung á
reki skannnt frá eyjunni, en
með því að skepnan virtist
löngu dauð og tekin að úldna,
töldu báíverjar fundinn cinskis
. \úrði og létu skepnuna sigla
sinn sjó. En skömmu síðar kom
að rostungnum reknetabátur-
inn Víkingur frá Ilúsavík og
haíði rostunginn þá rekið í
nánd við Lundey. Reyndu bát-
verjar að ná haúsnum af dýr-
inu, en vegna erfiðra áðstæðna
tókst þeim það ekki. Tóku þeir
þá það til bragðs að saga af því
aðra tönnina, cn hin var brotin.
Náðu þeir tönninni og höfðu
heim með sér, en skepnan flaut
burt og hefur ekki sést síðan.
Tönn þessi cr 13J/3 tomma að
lengd, mjög falleg. Mjög sjald-
gæft mun að rostungar komi á
bessar slóðir og liefði verið
fengur að því fyrir náttúru-
gripasafnið að fá þótt ekki væri
nema liausinn af dýrinu. Lílc-
legt má telja að dýrið reki ein-
livers staðar á Norðausturlandi
og ætíu þeir, sem yrðu varir við
það, að láta forstöðumenn
safnsins vita, eða sniia sér ti'
Kristjáns Geirmundssonar hér
á Akureyri.
hvatningar. Hann kvað þeim tíma
hafa verið vel varið, sem farið
nefði til Norðurlandsfararinnar
og mundi hún sér og öðrum gest-
um seint úr minni líða. í sama
streng tóku fulltrúar frá Sovét-
Rússlandi, Búlgaríu, Tékkóslóva-
kíu og Hollandi og svo Helgi Pét-
ursson, framkv.stj. hjá SÍS, sem
þakkaði KEA rausnarlegt boð og
alla fyrirgreiðslu hér. Stigu full-
trúarnir síðan í bifreiðar og óku
suður, með viðkomu í Bifröst í
Borgarfirði, þar sem Vilhjálmur
Þór forstjóri beið þeirra og sátu
þeir þar kvöldverðarboð SÍS, en
komu til Reykjavíkur um nótt-
ina.
Merkileg heimsókn.
Þessi fyrsta heimsókn fulltrúa
samvinnumanna í ICA tókst
giftusamlega og varð landi og
þjóo til sóma. Ber þar fyrst og
íremst að þakka SÍS, sem sá um
móttökurnar hér og gerði þær
mýndarlega og smekklega úr
garði. En við hér nyrðra getum
vel unað við ckkar hlut og er
óhætt að fullyrða ,að Norðurland
eignaðist marga nýja aðdáendur í
þessari för og starfsemi KEA og
SÍS hér aukna viðurkenningu.
Seint í síðar.tliðnum mánuði
birti brezka íiskveiðatímaritið
Fishing News svohljóðandi fyrir-
sögn yfir þvera forsíðuna:
Disturbing Ruinours from Ice-
land — eða, Iauslega útlagt:
Truflandi sögusagnir frá íslandi.
í forustugrein, sem á eftir fer,
segir, að brezkir togaraskipstjór-
ar flytji þær fréttir heim, að
Suðurnesjamenn séu þegar farnir
að krefjast enn meiri útfærzlu
landhelginnar og íslendingar séu
þegar farnir að veiða með botn-
vörpu á því svæði, sem bannað
hafi verið skipum allra þjóða með
nýju landhelgisreglugerðinni.
Vondir Suðurncsjamenn.
Ritstjórnargrein þessi er á þessa
leið í lauslegri þýðingu:
— Skipstjórar, sem nýlega eru
komnir heim til Hull og Grimsby
skýra svo frá, að þeir hafi heyrt í
útvarpinu íslenzka frásögn af
því, að íslenzkir grunnmiða-
fiskimenn héldu fast fram kröfum
um að svæðið frá stað, sem er
fjórar mílur frá yztu skerjum
Eldeyjarboða til staðar fjórar
mílur undan Stálbergi, verði
lokað. Og þeir vilja að erlendum
skipum vprði bannað að veiða á
svæði innan línu frá Eldeyjar-
boða til Vestmannaeyja. Flestir
þeir fiskimenn, sem krefjast
þessarar útfærzlu eiga heima á
strönd Reykjanesskagans.
Ekki söguburður einn.
— Eg hef (segir ritstj. Fishing
News) rannsakað gaumgæfilega
fregnir þessar og hef komizt að
þeirri niðurstöðu, að ekki sé rétt
að hafna þeim sem óraunhæfum
söguburði. Það er svo langt frá
því að ísland hafi komið á sam-
komulagi við brezku útgerðina
að líklegra er að innan tíðar verði
brezkum skipum bannað að veiða
á öllum (leturbr. brezka blaðsins)
beztu fiskimiðunum.
Aðdróttun um landhelgisbrot.
Enn segir ritstj. Fishing News:
— Til þess að gera málið enn
verra viðfangs, er svo það, að
ýmsir brezkir skipstjórar halda
fast við þá fullyrðingu, að íslend-
ingar séu þegar farnir að stunda
togveiðar á því svæði, sem bann-
að er togurum allra þjóða. Mér
bykir ekki fýsilegt að taka þess-
ar fregnir sem góða og gilda vöru
án frekari sannana — afleiðing-
ai-nar eru of skaðlegar til þess að
^ hægt sé að staðfesta þær af frá-
sögn nokkurra skipstjóra — en
j jafnfráleitt er að láta sem þessar
sögusagnir séu ekki til. Ef brezka
ríkisstjórnin getur sannað, að ís-
lendingar stundi togveiðar innan
hins friðlýsta svæðis, verður það
til þess að styrkja mjög málstað
Breta ef — og þegar — málið
verður lagt fyrir alþjóðadómstól-
inn í Haag....
í lok greinarinnar sendir ritstj.
svö þeim brezkum þingmönnum
kveðju, sem hafa leyft sér að
nefna að íslendingar vinni að því
að vernda fiskistofn sinn, og spyr
hvort þeir herAr haldi, að fiskur-
inn syndi með vegabréf og vís-
umáritun. ,,Ef nokkur vara er í
raun og sannleika alþjóðleg, er
það uppskera hafsins,“ segir hann
að lokum.
Verður þessum skrifum
ekki mótmælt?
í grein þessari er þannig á mál-
um haldið, að ærin ástæða virðist
til þess að af íslands hálfu sé slík-
um skrifum mótmælt. Aðdrótt-
anir blaðsins eru í senn ógeð-
felldar, ósannar og ókurteislegar.
Og ekki launa brezkir togara-
skipstjórar laklega margs konar
fyrirgreiðslu, er þeir hafa notið
og njóta hér við land, er þeir bera
slíkar sögur heim og þylja þær
fyrir tortryggna og hvatvísa rit-
stjóra.
Síldveiðin erni lítil —
Akraborg hæst
Síidveiðin er sáralítil það sem
af er vertíðinni og miklu minni en
i fyrra. Sl. laugardagskvöld var
bræðslulsildaraflinn orðinn aðeins
17.874 mál, en í fyrra á sama
tíma 61.146 mál. Þá var einnig
búið að salta í tæplega 16 þúsund
tunnur, en nú nær ekkert, en að-
eins um 3 þús. tunnur farið til
frystingar og í niðursuðu. Aðeins
11 skip hafa nú fengið 500 mál
eða meira, en voru 60 um sama
leyti í fyrra. Aflahæst er Akra-
borg frá Akureyri, með 1442 mál
og tunnur.
IVæturíerðir milli Akur
eyrar og Rvíkur haínar
Hingað var væntanlegur nú í
morgun fyrsti næturáætlunarbill-
inn, og er þar með náð nýjum á-
fanga á áætlunarbílleiðum lánds-
ins. Hinn nýi svefnvagn Norður-
leiða h.f. er stórt stökk fram á við
tæknilega séð í íslenzkum áætlun-
arbílabyggingum, og eru miklar
vonir tengdar við þetta nýja skipu-
lag á bílferðum á þessari fjölförnu
leið. Líklegt er, að 2—3 nætur-
ferðir verði í viku hverri i sumar.