Dagur - 16.07.1952, Page 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 16. júlí 1952
Baldur Guðlaugsson
endurskoðandi
Styrkir úr
Sáttmálasjóði
Dagskrármál landbúnaðarins:
Nýjar rannsóknir varðandi
Fæddur 30. ágúst 1912 — Dáinn 24. júní 1952
MINNINGARORÐ
Baldur Guðlaugsson, gjaldkeri
hjá bæjarfógetanum á Akureyri
og löggiltur endurskoðandi var til
grafar borinn laugardaginn 5.
júlí. Hann andaðist á Jónsmessu-
daginn, öllum óvænt og í fullu
fjöri. Hann var að aka heim í
bílnum sínum frá störfum dags-
ins, er hann hné örendur.
Mér hefur aldrei borizt óvænt-
ari frétt en andlát Baldurs.
Nokkrum stundum áður höfðum
við ekið saman í bílnum hans,
báðir glaðir og reifir. Við höfð-
um ýmsar ráðagebðir á prjónun-
um, er snertu framtíðina og hina
líðandi stund. Okkur fannst allt
slétt og fellt eins og við vönduð
reikningsskil og hví ætti mér að
hafa dottið í hug, að einmitt hjá
Baldri skyldi dauðinn gera „strik
í reikninginn"?
Kunningskapur okkar Baldurs
byrjaði 1929 eða fyrsta árið er eg
dvaldi á Akureyri. Við vorum þá
nágrannar úr Innbænum. Hann
var þá nemandi minn. Síðar urð-
um við samstarfsmenn hjá KEA
og kunningsskapur okkar varð
nánari. Eftir það vann Baldur í
mörg ár með mér að skattstörf-
um, unz hann fyrir 2 árum setti
upp skrifstofu og fékk löggild-
ingu sem endurskoðandi. Hinn
23 ára kunningsskapur okkar
Baldurs var fyrir löngu orðinn að
vináttu. Þessi fáu kveðjuorð mín
eru því saknaðarorð eftir góðan
vin genginn. Eg hafði svo oft leit-
að til Baldurs með aðstoð og
hjálp og nú sakna eg hans því
meir, því betur sem eg fæ metið
störf hans.
Hinn 30. ágúst næstk. hefði
Baldur orðið fertugur. Var eg í
gamni og alvöru búinn að lofa
honum skálaræðu.
„Má ei maður
í moldar-fjötrum
fram yfir líf líta.“
Baldur gegndi mjög umfangs-
miklu og ábyrgðarríku starfi sl.
6 ár. Er mér kunnugt, að hann
rækti það starf með slíkum ágæt-
um, að á betra varð ekki kosið.
Hann átti létt með að vinna, var
lipur í afgreiðslu og röskur.
Hann var vinnuglaður og átti_
óvenjulétt með að umgangast töl-
, ). , r . . ,
ur rett. Þ.vi/var sýp .gott að>vinúa
með honum. Fyrir utan aðalstarf
var Baldur sístarfandi. Má segja,
að honum félli aldrei verk úr
hendi. Hann gerði miklar kröfur
til sín sjálfs, slæptist ekki og
stundaði ekki óreglu. En hann
gerði miklar kröfur til lífsins á
móti og hann naut þess innilega
að fá hið bezta út úr tilverunni.
Oll tilvera Baldurs var mótuð af
hraða og röskleika. Hann fór
ungur út í hringiðu lífsins og ók
hratt lífsbraut sína, sem reyndist
styttri en öll rök stóðu til. Eg sé
nú líf Baldurs fyrir mér sem leik-
þátt ,efnisríkin og hraðan, unz
tjaldið fellur.
Baldur var nýbúinn að eignast
nýtt heimili. Hugur hans dvaldi
öllum stundum við að gera það
sem fegurst og vistlegast. Var
gott að koma þar heim. Framtíðin
var skipulögð og virtist brosa við.
Fjölskyldan treysti á örugga for-
ustu góðs heimilisföður.
Baldur var kvæntur Önnu
Bjömsdóttur úr Olafsfirði. Börn-
in eru 5, 2 synir 17 og 15 ára,
annar í 5. bekk og hinn í 3. bekk
menntaskólans. Dæturnar 3, sú
yngsta á 1. ári. Guðlaugur, faðir
Baldurs, dvelur einnig á heimilr
inu, nú 76 ára, og á hann nú á bak
að sjá báðum sonum sínum.
Þung byrði er lögð á herðar frú
Önnu. Stendur hún nú ein uppi
með barnahópinn. En hún hefur
tekið andstreyminu æðrulaust.
Framtíðarvonin eru synirnir
tveir, vel gefnir og efnilegir.
Baldur var vinsæll maður í
þessum bæ. Jarðarför hans var
fjölmenn og hátíðleg. Sól, sumar
og blómaangan hvíldu yfir síð-
ustu för hans suður í kirkjugarð-
inn.
Eg er Baldri þakklátur fyrir
samveruna og samstarfið. Hann
fór héðan beint frá starfi dagsins.
Eg vona það, að þegar hann kom
á „lífsins land“ þá hafi hann
fengið nýtt starf og fái nú „meir
að starfa guðs um geim“. Iðju-
leysi væri honum ekki að skapi.
Friður sé með sálu hans. Blessun
guðs sé með fjölskyldu hans.
K. G.
Barnareiðhjól
(Þríhjól)
fyrir 4—6 ára,
Verð kr. 300.00.
N ý k o m i ð !
VERZLUNIN VÍSIR
Strandgötu 17 — Sími 1451
Fordbíll
til sölu. Tækifærisverð. —
Upplýsingar hjá
Guðmundi Jónassyni,
sími 1301
Frá sendiráði Dana í Reykjavík
hefur blaðinu borizt eftirfarandi:
Á fundi mánudaginn 9. júní
1952 úthlutaði hin danska deild
Sáttmálasjóðs eftirfarandi styrkj-
um til eflingar dönsk-íslenzku
menningarsambandi. Styrkirnir
verða greiddir á tímabilinu júní—
desember 1952:
María H. Ólafsdóttir til náms
við listháskólann 300 kr. — Ólöf
Pálsdóttii' til náms við listháskól-
ann 300 kr. — Bragi Ásgeirsson
til náms við listháskólann 300 kr.
— Ragnar Björnsson til náms við
tónlistarskólann 200 kr. — Soffía
Guðmundsdóttir til náms við tón-
listarskólann 300 kr. — Guðrún
Kristinnsdóttir til náms við tón-
listarskólann 200 kr. — Ólafur
Eiríksson til náms við iðnskóla
300 kr. — Gunnar Bjarnason til
náms við iðnskóla 300 kr. — Egill
Marteinsson til náms við iðnskóla
200 kr. — Anna Viggósdóttir til
náms við tannsmíðar 300 kr. —
27 kennaraskólanemendur í
Reykjavík til ferðalaga í Dan-
mörku 2700 kr. — Agnete Loth til
ferðalaga á íslandi 2500 kr. —
Dansk organist- og kantorsam-
fund af 1905 til ferðalaga á ís-
landi 1000 kr. — Else Hansen
styrkur til farkennslu á íslandi
4ÖÓÖ kr. — Samtals 29000 kr.
kynákvöröun
Fyrir stiittn síðan birtist grein
í danska búnaðarblaðinu „Uge-
skrift for Landmænd“, eftir A.
Th. Riemann, dýralæknir, sem
hann kallar: Er hægt að hafa
áhrif á kyn afkvæmanna í sam-
bandi við gerfisæðingu?
Hér á eftir verður getið nokk-
urra atriða úr grein þessari.
Fram til þessa tíma hefur það
yfirleitt verið talið að kynákvörð-
un væri erfðafræðilegt atriði í
sambandi við kynsbogteinana. —
Hingað til hafa menn ekki þekkt
nein vísindaleg ráð til að hafa
áhrif á kyn afkvæma manna né
æðri dýra, enda þótt þekkt séu
mörg húsráð í því efni, bæði
varðandi menn og skepnur, sem
vísindin hafa þó ekki gert mikið
með. Það eru þó þekkt ýms
dæmi hjá lægri dýrum, að fyrir
utanaðkomandi áhrif, hefur verið
hægt að, ákveða og ráða hvort
karl- eða kvendýr fæðast.
Ymsai' kenningar hafa verið
uppi um, að ýmiss konar ytri
áhrif gætu haft á áhrif kynákvörð
unina. Er þar m. a. nefnt: veðr-
átta, vindátt, loftþrýstingur, loft-
raki, afstaða tunglsins o. fl. Þá er
það og einnig ekki óalgeng skoð-
un, að því sé haldið fram, að ung-
ir feður eignist fremur stúlku-
börn, en aftur á móti gamlir feður
sveinbörn. Kvígur eiga oftar naut
en kvígukálfa. Feitar mæður eiga
oftar kvenkynsafkvæmi, en aftur
á móti eiga magrar mæður oftar
karlkynsafkvæmi. — Á stríðsáu-.:
únum fæddust tihölulega fleiri
sveinbörn en stúlkubörn í þeim
löndum, sem harðast voru úti í
stríðinu, þar sem næringarskort-
ur var mikill. Enda þótt þessi
atriði, sem hér hafa verið nefnd,
hafi í vissum tilfellum stoð í
veruleikanum, þá hefur þó ekk-
ert þeirra reynst öruggt í sam-
bandi við kynákvörðun.
Eins og kunnugt er frá erfða-
fræðinni, er um að ræða tvenns
konar sæðisfrumur hjá spendýr-
um, aðrar sem innihalda X og
aðrar Y. Kynákvörðunin er því
erfðafræðilega séð, háð því hvor
þessara tegunda af sæðisfrumum
sameinast eggfrumunni. Samein-
ist X-frumurnar eggfrumu verð-
ur afkvæmið kvenkyns, en sam-
einist Y-fruma eggfrumu verður
afkvæmið karlkyns. Vísindamenn
og jafnvel stjórnmálamenn hefur
dreymt um, að einhvern tíma
fyndist aðferð, sem gerði það
kleyft, að hafa hemil á því hver
sæðisfrumutegundin sameinaðist
eggfrumunni hverju sinni.
Rannsóknir hafa leitt í ljós, í
sambandi við smásjárskoðun, að
Y-sæðisfrumurnar eru um 1/1000
mm. minni en X-sæðisfrumurnar.
Þessar uppgötvanir gefa tilefni til
hugleiðinga um að einhverjir
möguleikar muni finnast innan
tíðar, til að aðskilja þessar frum-
ur á einn eða annan hátt og verði
það hægt, er fundin leið til að
ráða kyni í sambandi við gerfi,-
'sæðingu búfjárins. Bændur gætú
þá, um leið og þeir panta sæðing-
armann, pantað sér naut eða
kvígu.
Áfengissala fyrir 66,5 milljónir
króna á síðastliðnu ári
Frá Stórstúkuþingi í fyrra mámiði
Þing Stórstúku íslands I. O. G.
T. hófst í Reykjavík hinn 20. f.
m., og var slitið mánudaginn 23.
júní. Stórstúka íslands er nú 66
ára að aldri og var þetta 52. þing
hennar, því að fyrst í stað var
þing ekki haldið nema annað
hvort ár.
Hagur Góðtemplarareglunnar
á íslandi er með svipuðum hætti
og verið hefur. Hér eru nú starf-
andi 43 undirstúkur, 60 barna-
stúkur og 8 þingstúkur. Alls eru
félagar Reglunnar um 10.500.
Þingið var ekki jafn fjölsótt og
oft hefur verið áður, en þó voru
þar um 80 fulltrúar, þegar flest
var.
Erfiður fjárhagur.
Stórstúkan berst enn í bökkum
fjárhagslega, því að þótt ríkis-
styrkurinn hafi heldur hækkað,
vegur hitt upp á móti, hvað verð-
gildi peninga hefur rýrnað.
Mundi margt vera ógert af því,
sem koma þurfti í framkvæmd,
ef Reglan hefði ekki haft happ-
drætti á árinu og fengið nokkrar
tekjur af því. Er nú í mörg horn
að líta að styðjá þau fyrirtæki,
sem Reglan stendur að, svo sem
sjómannastofui' á fjórum stöðum
á landinu, fangahjálp, blaðaút-
gáfu o. s. frv. Dýrar húsbygging-
ar eru og hafnar eða standa fyrir
dyrum og má þar nefna hið veg-
lega hús Reglunnar í Vestmanna-
eyjum, sem nú er komið vel á
veg, og höfuðstöðvar, sem reisa
þarf í Rykjavík.
Áfengissala og fangelsanir.
Áfengissala í landinu nam árið
sem leið 66 milljónum 566 þús. kr.
og er það rúmlega 5,6 millj. meira
heldur en árið 1949. Slíkur fjár-
austur sýnir glögglega að þjóðin
er hér á villigötum. En af þessu
leiðir fleira, til dæmis 3000 yfir-
sjónir unnar í ölæði í Reykjavík
og 248 fangelsanir á Akureyri, en
kunnugt er að óspektir hafa orð-
ið víða um land vegna ölvunar og
margar skemmtisamkomur farið
út um þúfur þess vegna. Hér er
því sannarlega þörf á að reyna að
reisa rönd við þessum þjóðar-
ósóma. Var mikið um það rætt á
þinginu, hvernig þjóðin ætti að
hrinda af sér slíkri ómenningu og
nokkrar samþykktir gerðar í þá
átt.
Annars var þingið stórtíðinda-
laust.
t», —-o—
Ýmsir vísindaiiienn halda því
fram, að sýrustig í fæðingarveg-
inum sé mjög mikilvægt í sam-
bandi við kynákvörðun. Þýzkur
læknii' heldur því fram, að slím-
himnur fæðingarvegsins hjá ung-
um stúlkum sé lítið eitt lút-
kenndur (bacisk), en sýrist eftir
því sem konan eldist. Þessi lækn-
ir bendir á, að algengast sé að
hjón eigi fyrst dreng, en aftur á
móti síðar stúlkur.
Rússneskur vísindam. (Schröd-
er) hefur reynt að aðgreina sæð-
isfrumurnar með rafstraum í
gegnum vökva með sæðisfrumum
og hefur hann notað kanínur til
þessara tilrauna. Hann hafði sæð-
ið í sérstakri upplausn með vissu
sýrustigi. Nokkur hluti sæðis-
frumanna safnaðist. að plúspóln-
um en nokkur hluti að mínus-
pólnum. Schröder gerði svo til-
raunir með þetta tvenns konar
sæði á kanínum og árangurinn
varð sá, að hann fékk um 80% af
því kyni, sem óskað var. Er hér
urn 6 ára samfelldar tilraunir að
ræða. Á þessum árum rakst þó
Sehröder á margar kanínur, sem
ómögulegt reyndist að hafa áhrif
á kyn afkvæma þeirra.
Þýzkur vísindamaður (Unter-
berger) hefur sett fram þá kenn-
ingu, að lítið eitt basiskur vökvi
hafi örfandi áhrif á hreyfingu Y-
sæðisfrumanna, þannig, að hreyf-
ing þeirra verði meiri en X-
frumanna ,en aftur á móti hafi
lítið eitt súr vökvi örfandi óhrif
á X-frumurnar, en gagnstæð
áhrif á Y-frumurnar.
Þökkum af alhug aðsýnda samúð við fráfall og jarðarför
mannsins míns, föður okkar og sonar,
SIGURÐAR PÁLSSONAR, forstjóra.
Framar öllu færum við starfsliði Gcfjunar þakkir fyrir sér-
stakan hlýhug og vináttu. //
Gígí Jónsdóttir og bijrn. Vilhjrimíná Þór:
—o—
Ilér að framan hefur verið get-
ið helztu atriða úr grein Rie-
manns, því að enginn efi er á því,
að búfjárræktarmenn hafa mik-
inn áhuga fyrir þessum málum,
en ennþá virðist þó ekki fundin
örugg leið til að hafa áhrif á
kyná.kvörðun afkvæma, en. e. t.
v. eivu vísindamenn ekki langt frá
því að leysa þá þraut. Á. J.