Dagur - 13.08.1952, Blaðsíða 8

Dagur - 13.08.1952, Blaðsíða 8
8 Baguk Miðvikudaginn 13. ágúst 1952 Harðar deiiur í milli lækna og sjúkrasamlaga í Danmörk Reyndi innbrot á 14 stöðum í bænum í fyrrinótt Sjúkrasamlögin draga úr þjónustu sinni - segj- ast ekki standa undir kostnaðinum af meðalagjöf læknanna Nú laust eftir mánaðamótin hélt samband sjúkrasamlaga í Dan- mörk ársþing sitt í Kaupmanna- mannahöfn og varð það sögulegí að því leyti, að formaður sam- bandsins, Emst Larsen, flutti þar mikla ádrepu á læknastétt landsins og hefur ræðan þegar vakið miklar blaðaumræður og deilur í Danmörk. Berklaskoðun í Siglu- firði, Grímsey og Kelduhverfi Á hverju ári er nú framkvæmd heildarberklaskoðun á einstökum svæðum á landinu, stórum eða smáum, og mun slíkum rann- sóknum haldið áfram í framtíð- inni, eftir því sem framast verð- ur við komið. Nýlokið er nú slíkri skoðun á Siglufirði, og voru þar skoðaðir nær 2500 manns. — Samkvæmt upplýsingum frá Sigurði Sig- urðssyni, berklayfirlækni, gekk skoðun þessi ágætlega, og mættu yfirleitt allir til skoðunar, sem ekki voru veikir, fatlaðir, eða höfðu önnur fullgild forföll. Mjög lítið reyndist þar um ný sýking- artilfelli. Þegar lokið var heildarskoðun þessari í Siglufirði, fór fram skoðun á íbúum í Grímsey og einnig með mjög góðum árangri. Ennfremur fór fram ein heildar- skoðun á takmörkuðu svæði í sveit, og var Kelduhverfi í Suð- ur-Þingeyjarsýslu tekið fyrir að þessu sinni. Bretar kvarta um ágang erlendra togara á bátamiðum í nýlegu Fishing News er greint frá umræðum í brezka þinginu, í spurningatíma, í tilefni af því að skozkur fiskibátur varð fyrir þeim búsfijum á heimamiðum, að erlendúr togari fór með vörpuna yfir net hans og eyðilagði þau. Þótti þessi atburður talsverðar fréttir í Bretlandi og var lagt til í þinginu, að stjórnin sæi svo um, að hart yrði tekið á slíku fram- ferði útlendinga framvegis. Yfir- gangur af þessum toga er engan veginn afsakanlegur, en þó er hann daglegt brauð á bátamiðum Vestmannaeyinga og Suðumesja- manna og fleiri fiskimanna við íslandsstrendur á vertíð hverri og munu brezkir togarar þar oft eiga mestan hlut að máli. Of margir Iæknar? Larsen hélt því m. a. fram, að offramleiðsla væri á læknum í Danmörk. Árlega bætast 150 nýj- ir læknar í hópinn, og fá ekki all- ir nóg að gera. „Þjóðfélagið hefur ekki áhuga fyrir offramleiðslu á læknum og ekki fyrir því að gera stéttina fátækari. En það verður dýrt fyrir þjóðfélagið ef þessi þróun heldur áfram. Það mun einnig fá sjúkrasamlögunum aukinn vanda að fást við í sam- bandi við samningana við lækn- ana. Ef læknarnir sjálfir eða hið opinbera beita sér ekki fyrir tak- mörkunum, verða sjúkrasamlög- in að gera það. Á komandi tím- um verður nauðsynlegt að tak- mai-ka aðgang lækna að því að starfa fyrir sjúkrasamlögin. Það er ekki víst að það sé fólkið, sem stöðugt kallar á fleiri lækna, heldur getur hitt verið, að lækn- arnir vilji stunda sjúklingana meira en þörf gerist (overbe- handle). Gagnslaus „patentmeðul“. Sjúkrasamlögin höfðu sparað saman dálitlar upphæðir með því að takmarka aðgang meðlimanna að meðulum, en ekki er þar allur vandi leystur. Yfir landið flæðir grúi af patentmeðulum, sem ekk- ert gagn er að.... Væri ekki til gagns fyrir þjóðfélagið og sjúkra- samlögin, að herða eftirlitið með patentmeðulunum ennþá meira?“ Lækknamir svara. Formaður danska læknaféags- ins, dr. Charles Jacobsen, hefur svarað árásum Larsens og m. a. bent á, að í stað þess að um of- framleiðslu á læknum sé að ræða, skorti sífellt aðstoðarlækna við spítala og lækna út umland.Hann vísar á bug fullyrðingum Larsens um „overbehandling“ og segir, að læknar hafi hver um sig engra fjárhagslegra hagsmuna að gæta í sambandi við það. Ummæla áhorfanda. Ollu fróðlegra en að lesa ræður sækjanda og verjanda í máli þessu er að kynna sér ummæli áhorfenda, í þessu tilfelli blað- anna sjálfra. Til dæmis er þessi ritstjórnargrein í Berl. Tidende um málið, nú fyrir fáum dögum: „Ræða formanns sjúkrasamlag- anna, hr .Larsens, nú á dögunum, minnir á, hversu mjög aðstæð- umar hafa breytzt á þessum vett- vangi síðasta mannsaldurinn. Hvað voru sjúkrasamögin upp- haflega? Þau voru félög innan bæjar eða héraðs, sem hvert á sínu starfssvæði, og með litlu fjármagni og undir stjórn ólaun- (Framhald á 7. síðu). í gærmorgun snemma handtók lögreglan hér 18 ára pilt úr Reykjavík, er hér er gestkomandí í sumarleyfi á prívatbíl. Hafði hann um nóttina gert tilraun til innbrota á hvorki meira né minna en 14 stöðum í bænum. Hann var drukkinn, er hann vann þessi verk. Nokkrar skemmdir urðu á hurðum og læsingum,rúður braut hann að auki ög tók svo nokkuð af sígarettum, ávöxtum í dósum og sælgæti, en allt náðist það aft- ur. Hann hóf för sína sunnarlega í miðbænum, hjá Ásgrími gull- smið, og hélt svo út eftir bænum með viðkomum við Járn- og glervörudeild KEA, Jerúsalem, Pósthúsinu, Verzl. London, hjá Konráð Kristjánssyni, í skrifstof- um við höfnina, hjá Tryggva og Eyjólfi, gullsm., og svo í nokkr- um bifreiðum í bænum. Pilturinn játaði greiðlega á sig verknaðinn og bíður nú dóms. Áfengissala fer minnkandi á Akur- eyri og í Rvík Samkvæmt upplýsingum frá áfengismálaráðunaut ríkisins og heimildum Áfengisverzlunar rík- isins hefur áfengissala á Akur- eyri verið um 70 þús. kr. minni á fyrra misseri þessa árs en á sama tíma í fyrra, en ærið mikil samt, eða kr. 2.364.239.00 í ár, þar af fyrir kr. 1.375.540.00 frá 1. apríl til 30. júní. í Reykjavík minnkaði áfengissala á sama tíma um 465 þús., og var samtals kr. 23.891.024.00. I öðrum kaupstöð- um jókst áfengissalan á þessu tímabili, á ísafirði um 44 þús. (626.400.00), Seyðisfirði um 27 þús. (406.009.00), Siglufirði um 19 þús. (771.558.00) og Vest- mannaeyjum um 188 þús. (1.534.008.00). Skrifíinnska tefur framkvæmclir á íslandi - segir Newsweek Hið víðkunna ameríska viku- blað Newsweek segir svo frá nú nýlega, að enda þótt amer- íski herinn hafi dvalið á annað ár á Islandi samkvæmt varn- arsáttmálanum séu engar framkvæmdir hafnar þar á vegum hans, enginn flugvöllur hafi verið gerður og ekki komið upp nægum húsakosti fyrir herinn og starfslið hans. Segir blaðið þetta allt vera að kcnna skriffinnskunni í Was- hington og hafi þessi málefni öll drukknað þar. Hann uppsker fyrirlitningu Rauði djákninn í Kantaraborg, dr. Hewlett Johnson, er þarna að sýna „sönnunargögnin“ fyrir því að Bandaríkjamcnn hafi ástundað sýklahernað í Kóreu! Sönnunin er yfirlýsing frá kínvcrskum kommúnistum, riíuð á þetta blað. Fullyrðingar diáknans hafa vakið mcgna reiði í Bretlandi. Oll ensku blöðin hafa fordæmt athæfi hans, er hann hefur tekið undir lygaáróður konunúnista án þess að geta lagt fram nokkur sönnunargögn, því að þegar á herti, játaði hann að hann hefði ekki með höndum neinar óhrekjandi sannanir, cn trúgirni hans sjálfs er viðbrugðið. Ekkert enskt blað tók máli hans nema kommúnistablaðið Daily Worker. Frjálslynd blöð á borð við Manchester Guardian, fordæmdu atliæfi djáknans með sterkari orðum en löngiun sjást í brezkvun blöðum. Mælingamenn á öræfum gáfu kallað á hjálp gegnum sendifæki Bíll festist í sandbleytu í Fosskvísl - atvik, er sýnir nauðsyn þess að öræfafarar fái að hafa senditæki meðferðis Sigurjón Rist vatnamæiinga- maður kom hingað til bæjarins sl. föstudag úr leiðangri*suður á öræfi til hjálpar mælingamönn- um er kallað hötðu á aðstoð er þeir voru strandaðir á bíl sínum í Fosskvísl, 200 km. suður í óbyggðum. Blaðið hitti Sigurjón á laugardaginn og spurði hann um förina. Við hallaniælingar á Þjórsá. Atvik eru þau, að fjórir ungir mcnn eru um þessar mundir við hallamælingar á Þjórsá fyrir raf- orkumálaskrifstofuna. Er Stein- grímur Pálsson sýsluskrifara Einarssonar á Akureyri fyrir leiðangrinum og með honum Geir Jónsson Geirssonar læknis, Ak- ureyri, og tveir Reykvíkingar. — Þeir höfðu farið um Mýri í Bárð- ardal og suðui Sprengisand á Dodge-truck og höfðu fylgd til Sóleyjarhöfða, en héldu eftir það förinni suður sjálfir. í Fosskvísl, sem er við Búðarháls, í tanga, sem myndast í milli Tungnaár og Þjórsár sunnan jökla, 200 km. suður í óbyggðum, festu þeir bíl- inn illa í sandbleytu og komust ekki úr kvíslinni með nokkru móti. Utbúnað höfðu þeir góðan, tjöld og vistir nægar, en erfitt hefði reynst að komast til byggða fótgangandi, 200 km. leið norður á bóginn, en sunnar króa vötn af í Sultartanga. Höfðu senditæki. En leiðangurinn hafði fengið eyfi til að hafa senditæki í bíln- um og á öðrum degi tókst þeim að ná sambandi við loftskeyta- stöðina í Gufunesi og biðja um aðstoð. Sigurjón Rist var þá staddur á Möðrudalsöræfum við vatnamælingar, og var hann beð- inn að fara á bíl sínum suður eft- ir og freista þess að draga bílinn úr festunni með spili, sem er á ,,truck“ þeim, er hann hefur til ferðalaga sinna. Lagði Sigurjón síðan upp frá Mýri í Bárðardal fyrra mánudag ásamt Friðrjk Jónssyni frá Sandfellshaga í Ox- arfirði. Vegur er mjög ógreiðfær á þessum slóðum, einkum við Svartá. Komusl þeir félagar á áfangastað við Fosskvísl kukkan 4 á þrjðjudaginn og urðu mæl- ingamennirnir haiia fegnir að hitta þá. Tókst g' eiðlega að draga bílinn upp úr k'.iksyndinu eftir nokkurn undirbúning, og komust þeir félagar eftir það klakklaust yfir Fosskvísl oc héldu ferð sinni áfram suður á bóginn til Sultar- tanga. Munu þeir dvelja á þessum slóðuin nokki-a daga. Sigurjón sncri aftur r.orður og kom að Mýri á miðvikudagskvöld. Nauðsyn sendistöðva á aræfafcrðum. Atvik þetla sýnir vel hver nauðsyn er að menn geti átt þess kost að hafa afnot sendistöðva í öræfaferðum. Hefur verið nokkur tregða á því af hálfu vfirvalda, eð leyfa slík afnot, og má hún heita lítt skiljanleg öllum al- menningi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.