Dagur - 01.10.1952, Side 7
Miðvikudaginn 1. október 1952
D A G U R
7
- Reknetaveiðin
Framh. af 1. síðu.
útbúnaður góður. Það er dýrt
spaug að halda til lands vegna
einhvers vanbúnaðar eða bilun-
ar. En það hefur sýnt sig að
auðvelt er að útbúa hin stærri
skip þannig, að þau geti með ör-
yggi haldið sig á miðunum a. m.
k. 2—3 vikur.
Hafið þið séð síld vaða á þess-
um slóðum?
Fyrst höfðum við herpinótina
með, en ekki kom til þess þá að
nota hana. Var hún látin í land í
öðrum túrnum og hefur ekki
verið tekin um borð aftur, enda
eru ýmsir erfiðleikar samfara því
að hafa bæði veiðarfærin með-
ferðis á ekki stærri skipurn. En
við höfum aðeins einu sinni séð
síld vaða á þessum slóðum og
mátti segja að það væri fremur
álitlegar torfur og hefðum við
sjálfsagt reynt að kasta á þær ef
herpinótin hefði verið með, enda
þótt ylgja væri þá í sjó. En til
þess kom sem sagt ekki.
Hefur ekki verið erfitt fyrir
ylíkur að athafna ykkur veðurs
vegna?
Þessi reknetaveiði úti í hafi er
að sjálfsögðu á ýmsan hátt erfið,
til dæmis tel eg það ekki á færi
annarra en fullhraustra manna
að stunda hana. En eg get ekki
sagt að veðrið á þessum slóðum
hafi verið neitt éi'fiðafa én'það
er oft ’nær' lándinu. Á þessum
slóðum er að sjálfsögðu ekkert
var að fá, en við höfum ekki lent
í neinurn stórviðrum, lægðirnar
virðast fara sunnan við þetta
svæði og verstu veðrin fram hjá
okkur. .Vitaskuld þarf lengri
reynslu en þepngn hálfan annan
mánuð tií þess_ að byggja á
nokkrar fullyrðingar um veður-
lag yfirleitt á þessum slóðum, en
reynsla okkar virðist ekki benda
til þess að sérstaklega illviðra-
samt sé þarna.
Og hvað ætlið þið að halda
Iengi áfram þessum veiðiskap
nú í ár?
Um það get eg ekkert fullyrt,
við tökum nú tunnur og vistir til
þriggja vikna, og má vel vera að
það verði síðasti.túrinn. Fer það
þó að sjálfsögðu eftir aflabrögð-
um og tíðarfari, en erfiðara verð-
ur að fást við vinnuna um borð
eftir því sem daginn styttir. Og
svo eftir því, hve lengi mann-
skapurinn kærir sig um að halda
áfram. En mikilsvert er, að fleiri
skip séu á miðunum og hafi
samvinnu sín í milli. Skiptast
menn þá á aflafréttum og færa
sig til um svæðið eftir því sem
reynslan sýnir að hentast er. —
Mundi veiðin sennilega reynast
tafsamari og óvissari fyrir eitt
skip heldur en mörg, sem prófa
mismunandi staði og hafa sam-
vinnu sín í milli. Hefur verið
ágæt samvinna þessara fáu skipa,
sem á þessar slóðir hafa sótt. —
Að lokum sagði Egill Jóhannsson,
að sú reynsla, sem þegar er feng-
in af reknetaveiðum Akureyrar-
skipanna, benti eindregið til þess
að það sé hægt að gera út á síld
með góðum árangri að sumrinu,
hótt síldin vaði ekki lengur uppi
Bæjakeppni í bridge var háð
milli Akureyringa og Húsvíkinga
að Reynihlíð í Mývatnssveit laug-
ardaginn 13. sept. Keppt var á 14
borðum eða 7 sveitir frá hvorum
bæ. Úrslit urðu þau, að Akureyr-
ingar sigruðu með 4i/ó vinning
gegn 2 i/o- Daginn eftir var háð
tvímenningskeppni í tveimur
riðlum. í A-riðli spiluðu 16 pör,
8 frá hvorum bæ. Úrslit urðu þau
að Akureyringar áttu þrjú efstu
sætin: 1) Ármann og Halldór
Helgasynir. 2) Björn Einarsson
og Jónas Stefánsson. 3) Jóhann
Þorkelsson og Svavar Zophónías-
son. I B-riðli spiluðu 8 pör, 4 frá'
hvorum bæ. Sigurvegarar urðu:
1) Halldór og Guðm. Hákonarson,
Hvík. 2-3) Kristján Tryggvason
og Ottó Jónsson, Ak., og Árni
Árnason og Páll Helgason, Ak.
Ferð þessi var hin ánægjulegasta,
móttökur hótelanna í Reynihlíð
og Reykjahlíð voru svo sem bezt
verður á kosið. Á heimleiðinni
kvöddust flokkarnir á vegamót-
unum hjá Breiðumýri með söng
og stuttum ávörpum og þeirri ósk,
að keppni sem þessi mætti verða
fastur árlegur viðburður.
Sextugur er á sunnudaginn
Þorbjörn Kaprasíusson, Brekku-
götu 43 hér í bæ.
- Þátttaka norðlenzku
iðnfyrirtækjanna
Framh. af 1. síðu.
verksmiðjunnar komið fyrir með
nýstárlegum hætti. Gestir fá að
taka með sér sápusýnishorn, og
fljúga þau út, sagði Arnór. Þátt-
taka Sjafnar vekur athygli á gildi
innlendrar sápuframleiðslu og,
brautryðjandós’ttn'f'r ‘‘ fe'jhinar á
þeim vettvangi.
NORÐLENZKIR IIÚSGAGNA-
SMIÐIR FRAMARLEGA
Auk deilda KEA- og SÍS-verk-
smiðjanna hér, eru á Iðnsýning-
unni deildir frá Fjórum eyfirzk-
um fyrirtækjum, Súkkulaðiverk-
smiðjunni Li'ndu h7f., Velsmiðju
Steindórs h.f., Húsgagnaverk-
stæðinu Valbjörk s.f. og Hösk-
uldi Steindórssyni. — Eru allar
þessar deildir athyglisverðar, en
ekki er hallað á neinn, þótt sagt
sé, að húsgögnin frá Valbjörk
veki sérstaka athygli fyrir létt og
nýstárlegt útlit og haglega gerð.
Munu þau verða á úrvalssýningu
húsgagna, sem ætlunin er að
Stúlka
óskast í vetrarvist.
Sigurður O. Björnsson,
Þingvallastr. 18, Akureyri.
Sími 1370.
2 herbergi
óskast til leigu í sama húsi.
Afgr. vísar á.
Atvinna
Okkur vantar stúlku til
skrifstofustarfa nú þegar.
Æskilegt að liún geti vél-
ritað. — Umsóknir, ásamt
sýnishorni af eiginhandar-
rithönd sendist fyrir 5. þ.
m., merkt
Skóverksmiðjan Iðunn.
Skólðvörur:
Stílabækur, kr. 1.50 og 1.80.
Reikningsbækur, kr. 1.85 og 3.00.
Reikningshefti, kr. 0.75.
Risshefti, kr. 0.25, 0.45 og 0.75.
Blýantar, kr. 0.60 og 1.00 (marg-
ar tegundir).
Skrúfblýantar, frá kr. 10.50.
Blý í skrúfblýanta, kr. 2.00 og
3.50 túban.
Litir, kr. 3.25 og 5.00.
Strokleður, kr. 0.45 og 0.75.
Teikniblokkir, kr. 1.50.
Lindarpennar frá kr. 42.00.
Skólatöskur, úr leðri, kr. 72.Ö0.
Þerripappír, kr. 0.25 örkin.
Blek, kr. 2.25, 3.25, 3.50 og 4.85.
Pennar, kr. 0.15.
Litabækur, kr. 9.00 og 10.00.
Prófarkir, kr. 0.30.
Gráðubogar kr. 1.50 (tvær teg.).
Reglustikur, kr. 1.00, 1.50, 4.00,
5.75 og 8.25.
Líin í túbuni, kr. 1.25 og kr. 1.50.
Mislitur pappír, kr. 1.00 örkin.
Litniyndir (glansmyndir) 10 st. á
kr. 0.75.
Þcrrivaltarar, kr. 3.50.
OG ÓTAL MARGT FLEIRA!
Akureyri — Sími 1334.
Bókaverzl. EDDA h.f.
Stúlka
□ Rún: 59521017 — Fjárhst.
Afg.
I.O.O.F. = 1341038i/o.
Kirkjan. Messað vérður í Ak-
ureyrarkirkju kl. 5 e. h. — Hvað
er leyfilegt að gera á sunnudegi
og hvað ekki? — P. S. — Mess-
að í Lögmannshlíð n.k. sunnud.
kl. 2 e. h. — F. J. R.
Möðruvallakl.prestakall. Mess-
að í Gæsibæ sunnud. 5. okt. kl. 2
e. h. og að Bægisá sunnud. 12.
okt. kl. 2 e. h. Safnaðarfundur á
báðum stöðum.
Hónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú Rann-
veig Valdimarsdóttir frá Teigi í
Vopnafirði og Jón Ágútsson,
bóndi, Auðnum, Svarfaðardal.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína Arnfríður A.
Gunnarsdóttir, Sólborgarhóli,
Glæsibæjarhreppi, Eyjafirði, og
Þoi-geir Guðmundsson, Mel-
rakkanesi, Álftafirði, Suður-
Múlasýslu.
Hjúskapur. Laugard. 27. sept.
voru gefin saman í hjónaband á
Möðruvöllum í Hörgárdal ungfrú
Jónína Árnadóttir cand. phil. frá
Hjalteyri og Sigurbjörn Péturs-
son stud. dent. sama stað.
Parakeppni. Þriðjudaginn 23.
sept. efndi Bridgefélagið til para-
keppni, þar sem kvenmaður og
kaylmaður spiluðu -saman. Þátt-
takendur voru aðeins 16. Keppni
'þésari lauk sl. sunnudag, og urðu-
úrslit þessi: 1) Guðrún Guð-
mundsdóttir og Þórir Leifsson.
2) Lilja Sigurðardóttir og Karl
Friðriksson. 3) Birna Guðmunds-
dóttir og Jónas Stefánsson.
Tónlistarskólinn verður settur
að Lóni n.k. föstudag, kl. 5 e. li.
Daníel Kristinsson afgreiðslu-
maður í nýlenduvörudeild KEA,
varð fimmtugur sl. mánudag'. —
Vinir og samstarfsmenn fjöl-
menntu til hans á afmælisdaginn
og bárust honum góðar gjafir. M.
a. heimsóttu félagar úr Karlakór
Akureyrar Daníel og heiðruðu
hann með söng. Daníel er for-
maður kórsins.
Kantötukór Akureyrar. Söng-
æfing á föstudagskvöldið kl. 8.30
í kirkjukapellunni.
Brúðkaup. Þar^n 26. sept. sl.
voru gefin saman í hjónaband
ungfrú Jóhanna Sigurðardóttir,
Gránufélagsgötu 39, Akureyri, og
Arnbjörn Vigfús Kristinsson, bif-
reiðastjóri frá Kópaskeri. Heimili
brúðhjónanna er að Snartarstöð-
um við Kópasker. — Þann 27.
sept. sl. voru gefin saman í hjóna
band í Reykjavík Jón Ragnar
Steindórsson, flugnemi, Víðivöll-
um 18, og ungfrú Auður Alberts-
dóttir. Heimili brúðhjónanna er
að Grenimel 2, Reykjavík.
Frá Skákfél. Akureyrar. Æf-
ingar hefjast föstud. 3. október.
Teflt verður í Verklýðshúsinu
tvisvar í viku, miðvikudaga og
föstudaga.
Kappróður Æskulýðsfélagsins
verður á Pollinum laugardaginn
4. okt. næstk. — ef veður leyfir.
Hefst róðurinn kl. 5 e. h. og
verður róin svipuð vegalengd og
í fyrra. Fyrst róa sveitir yngri
drengja, en þar á eftir eldri
drengir.
Sunnudaga-
skóli Akur-
eyrarkirkju.
Á sunnudag-
inn kemur kl.
10.30 f. h. Yngri börnin ,5—6 ára,
í kapellunni. Eldri börnin, 7 ára
og eldri, í kirkjunni. — 13 ára
börn eru beðin um að mæta kl.
10 f. h.
Æskulýðsfélag
Akuróyrar-
kirkju. Fyrsti
fundur hjá mið
deild (þeirri
(deild, sem var
ý’ngsta deild í fyrra, er næstk.
sunnudagskvöld í kapellunni kl.
Til nýja sjúkraliúsins. Afhent
af oddvita Raufarhafnarhrepps:
Frá kvenfélaginu Freyju, Rauf-
arhöfn, kr. 1000.00. — Frá Verka-
mannafélagi Raufarhafnar kr.
2000.00. — Frá Raufarhafnar-
hreppi kr. 5000.00. Með þökkum
móttekið. G. Karl. Pétursson.
Áheit á nýja sjúkrahúsið. Kr.
20.00 frá H. E. — Kr. 50.00 frá R.
H. B. Móttekið á afgr. Dags.
Strandarkirkja. Áheit frá N. N.
kr. 20.00. Mótt. á afgr. Dags.
Áheit á Sólheimadrenginn. Kr.
50.00 frá A. Mótt. á afgr. Dags.
hefjist upp úr lokun Iðnsýningar-
innar, en þess er að vænta, að
aðalsýningunni ljúki fyrir miðjan
þennan mánuð.
Eigendaskipti að
„Lindinnf'
Nýlega hafa orðið eigenda-
skipti að veitingahúsinu Lindinni
hér í bæ. Hinir nýju eigendur eru
Viktor Aðalsteinsson og Jón Ól-
afsson. Stjórnar Viktor daglegum
rekstri veitingahússins. Starf-
rækslan verður með svipuðu
sniði og áður, en þó mun völ á
nokkru fjölbreyttari veitingumen
áður var, m. a. fást nú einstakar
máltíðir með litlum fyrirvara.
Hinir nýju eigendur leggja kapp
á góða umgengni og skjóta fyrir-
greiðslu.
í landsteinum. En til þess þarf
breytta tækni og vilja tií þess'áð
læra af reynslunni.
óskast til heimilisstarfa. Upp-
lýsingar í síma 1259 eða 1473.
LÁN
20 þúsimd króna lán óskast
gegn góðri tryggingu og háum
vöxtum. Tilboð merkt „Þag-
mælska“ leggist iim á afgr.
Dags.
Lítið herbergi
óskast strax. — Afgr. vísar á.
Kven-armbandsúr
tapaðist þriðjudaginn 23. sept.
sennilega á leiðinni Samkomu-
hús—Ytri brekkan. Vinsamlega
skilist á afgr. Dags gegn fund-
arlaunum.
Trillubátur
til sölu með tæki'færisverði ,ef
samið er strax. — Afgr. vísar á.
Frá Amtsbókasafninu. Safnið
verður opið til útlána í vetur frá
2. okt. þriðjud., föstud. og laug-
ardaga kl. 4—7 e .h. — Lesstofan
opin á sama tíma alla virka daga.
— Fyrir utan bæjarmenn innan
Eyafjarðarsýslu, sem eiga óhægt
með að sækja safnið á útlánstíma,
verður safnið opið til útlána kl.
1.30—3 e. h. alla föstudaga.
Fíladclfía. Almennar samkom-
ur eru í Lundargötu 12 sunnu-
daga og fimmtudaga kl. 8.30 e. h.
Sunnudagaskólinn byrjar sunnu-
daginn 5. okt. kl. 1.3 0 e. h. Öll
börn vélkomin meðan húsrúm
leyfir.
I. O. G. T. Stúkan ísafold-
Fjallkonan nr. 1 heldur fund n.k.
mánudag, 6. okt., kl. 8.30 í
Skjaldborg. — Venjuleg fundar-
störf. Kosning embættismanna. —
Rætt um vetrarstarfið. — Sagðar
fréttir af Stórstúkuþingi. —
Kvikmynd o .fl.
Guðspekistúkan Systkinaband-
ið heldur fund á venjulegum stað
þriðjudaginn 7. okt. n. k., kl. 8.30
eUh. Fundarefni: Úr ritum Mar-
tinusar. ..
Áheit á Akureyrarkirkju. Kr.
200.00 frá ónefndum og gjöf kr.
170.00 frá J. R. — Kr. 100.00 frá
S. M. — Þakkir Á. R.
Til Hamrafólksins. Kr. 100.00
frá Stefáni Benediktssyni ,Akur-
eyri. Mótt. á afgr .Dags.
Áheit á Strandarkirkju. Kr. 20
frá N. N. Mótt. á afgr. Dags.
Sunnudagaskólinn í Zíon byrj-
ar sunnudaginn 5. okt., kl. 10.30
f. h. Almenn samkoma um kvöld-
ið kl. 8.30 (Fórnarsamkoma).
Sunnudagaskólinn á Sjónarhæð
byrjar aftur á sunnudaginn kl. 1
e. h. Nýjar skuggamyndir. Öll
börn velkomin. Samkoma fyrir
fullorðna kl. 5 e. h. Allir vel-
komnir.
Minningargjöf. Glæsibæjar-
kirkju hafa nýlega borizt fimm
hundruð krónur að gjöf til minn-
ingar um hjónin Málmfriði Pét-
ursdóttur og Jóhann Jónsson, er
lengi bjuggu í Garðshorni í
Kræklingahlíð á síðustu áratug-
um aldarinnar sem leið. Gefand-
inn vill eigi láta nafns síns getið.
Beztu þakkir. — Sóknarnefndin.