Dagur - 01.10.1952, Qupperneq 8
8
Daguk
MiSvikudaginn 1. október 1952
Þegar kominn myndarlegur vísir
byggðasafns Eyfirðinga
Leitað ti! bæjarbúa og héraðsbúa um áframhaldandi
stuðning við málið
Eins og mörgum sýslubúum
mun kunnugt haía þeir Snorri
Sigfússon, námsstjóri og Ragnar
Ásgeirsson, ráðunautur, nýlega
ferðast hér um sveitimar við
Eyjafjörð og unnið að því að
safna saman ýmsu gömlu, sem
menningarsögulegt gildi hefur,
í þeim tilgangi að vernda það frá
frekari eyðileggingu og í von um
að unnt yrði að koma hér upp
byggðasafni fyrir sveitimar, sem
að Eyjafirði liggja. Hefur stjóni
KEA haft frumkvæði að því að
hafizt var handa um þennan tmd-
irbúning byggðasafns.
Alls hafa þeir félagar safnað
saman hátt á fjórða hundrað
munum, og hefur þeim nú verið
komið fyrir til bráðabirgða í einu
herbergi í nýja spítalanum.
Þennan árangur má telja alveg
eftir vonum, eftir þessa fyrstu
umferð og búast má við, að margt
komi í leitirnar síðar, þegar at- ^
hygli manna verður betur vakin
gagnvart þessu málefni.
Allfjölbreytt úrval.
Blaðamönnum bæjarins var
gefinn kostur á að sjá þennan
vísir að safni á þriðjudaginn var
og vissulega er þarna þegar kom-
ið allfjö’lbreytt úrval af því, sem
heyrði gömlu sveitabæjunum til.
Frá sjónarmiði byggðarsafnanna
er allt það merkilegt, sem notað
var í daglegu lífi fólksins, t. d.
hvers konar verkfæri og áhöld,
fatnaður, reiðskapur, smíðatól,
mjólkuráhöld o. m. fl. Þarna er
líka margt á hillunum, sem gam-
an er að athuga nánar.
Góður skilningur héraðsbúa.
Þeir félagar telja sig hafa mætt
ágætum skilningi fólksins hvar
sem þeir komu og fengu mjög
margt á einstökum bæjum, eins
og t. d. á Öngulstöðum og Syðra-
Laugalandi, frú Guðrúnu Sigurð
ardóttur frá Garðsá og Hannesi
Davíðssyni á Hofi, frú Þóru Stef-
ánsdóttur á Hjalteyri, Hólmgeiri
Þorsteinssyni, frá Ytri-Bakka
og mörgum fleiri bæjum og ein-
stökum mönnum, sem of langt
yrði hér upp að telja.
Góðir gripir.
Þarna eru margir gamlir rokk-
ar, hesputré, snældustólar, lárar,
stólkantar, halasnældur o. þ. h.
Ábreiður á rúm, fagurt söðul-
áklæði og gamall vaðmálspoki,
eins og bændur notuðu fyrrum
í kaupstaðarferðir; kistur eru þar,
málaðar, kistlar útskornir og
stokkar, þilkistur, og mun ein
þeirra vera útskorin af Bólu-
Hjálmari, rúmfjalir, renndir
baukar, smjörkúpa og smjör-
öskjur, sem fullyrt er að séu 200
ára gamlar. Brennivínskútar eru
þar og tréflaska (hnakkpúta).
Askar og ausur, hornspænir, all-
margir, gamlir brauðhnífar.
Þarna eru kvensöðlar, þó enginn
af elstu gerð, gjarðir með kopar-
hringjum, þófi og þófahringjur,
beizlisstengur og undirdekk út-
saumað, mannbroddar og nauta-
broddar með skinnböndum og
forláta göngustafui' með renndum
hún. Þar eru gamlar lóðarvogir
(bandvogir) og reislur með stein-
lóðum, metaskálar með tilheyr-
andi lóðum.
Forn kaffikvörn.
Handkvarnir eru þarna, ein
frá Öxnafelli í tilheyrandi stokk
og önnur minni upprunalega frá
Þórðarstöðum í Fnjóskadal, úr
hraungrýti höggvin. Einhver
skemmtilegasti gripurinn var
gefinn frá Þúfnavöllum, kaffi-
kvörn, íslenzk, líka úr hraun-
grýti, vafalaust mjög gömul.
Kaffi fór fyrst að flytjast hingað
um 1750 og má vízt ætla, að
kvöi-nin sé litlu yngri. Þarna er
allt, sem heyrir til neftóbaks-
brúkunar, tóbaksfjöl, járn og
brýni, pungur og ponta og heljar
stórar munníóbaksdósir utan úr
Svarfaðardal. Fátt eitt er þarna
af bókum, og flestar eru þær
guðsorðabækurnar, Mest ber á
einu ágætu eintaki af Veysen-
húsbiblíu í samtíma bandi.
Sum áhöld horfin.
Sum áhöld, sem notuð voru
■ almennt fyrir nokkrum áratugum
virðast alveg horfin t. d. kláfar
og krókar. Af hákarlaveiðarfær-
um er von um að fá nokkuð, en
þarna gefur þó að sjá einn mik-
inn hákarladrep frá útgerð Hav-
steens á Akureyri. Og þar er líka
gríðarstór hákarlaífæra frá Hóli
í Svarfaðardal. Munu þeir hafa
verið miklir hákarlamenn að
dæma eftir gamalli vísu:
Allar gjafir eru frá
æðstum himna Drottni.
En hákarlinn, sem Hólsmenn fá,
hann er neðan frá botni.
Þarna eru heynálar og torf-
krókar úr járni og hreindýrs-
horni, hrosshárs- og ólarreipi.
Leitað til Eyfirðinga og
Akureyringa.
Verst gekk að fá áhöld frá
mjólkurvinnslunni, önnur en
bullustrokka, trog, byttur o. þ. h.,
sem nú er víðast fallið í stafi á
bæjunum. Þeir sem enn eiga
slíkt gerðu vel í að halda því til
haga og hugsa til safnsins, sem
þarf nauðsynlega á þessum hlut-
um að halda. Nú standa yfir
miklir breytingatímar hjá okkar
þjóð og atvinnuhættir eru mjög
breyttir frá því sem áður var.
Allir þeir Eyfirðingar, sem piga
gömul tæki, sem komin erU úr
notkun, gerðu vel ef þeir vernd-
uðu þau frá glötun, með varð-
veizlu þeirra í byggðasafni fyrir
auga. Enn er óráðið um fram-
tíðarfyrirkomulag slíkrar stofn-
unar hér, en fyrst af öllu er að
safna því saman, sem enn kann
að vera til, í þeirn tilgangi að
varðveita það í héraðinu.
Þeir Eyfirðingar og Akureyr-
ingar, sem kynnu að eiga slíkt í
fórum sínum og vildu láta slíka
stofnun njóta þess, gerðu vel í að
snúa sér til Snorra Sigfússonar,
Vigfúsar Friðrikssonar eða Helga
Eiríkssonar á Þórustöðum, sem
skipa byggðasafnsnefndina.
Litli söngvarinn heitir amerísk
kvikmynd, sem Skjaldborgarbíó
sýnir um þessar mundir og leik-
ur og syngur „litli söngvarinn"
Bobby Breen aðalhlutverkið. Er
söngur þessa unga drengs hríf-
andi og fágaður. Efni myndarinn-
ar er geðþekkt. Þetta er sérlega
ánægjuleg barnamynd.
Vígsiu knattspymuvallarins
nýja varð að fresta sl. sunnudag
vegna veðurs. Verður næstk.
sunnudag ef veður leyfir.
Nokkrar líkur fyrir því, að flug-
braut á nýja flugvellinum verði
nothæf veturinn 195354
Allar áætlanir um gerð flugvallarins hafa staðizt
til þessa, segir flugvaílarsfjóri
Kommunistar
töpuðu Iðju
Úrslit fulltrúakjörsins á Al-
þýðusambandsþingið í Iðju, félagi
verksmiðjufólks, urðu þau, að
kommúnistar biðu mikinn ósigur.
Fengu lýðræðissinnar fulltrú-
ana kjörna með 138 atkv., en listi
kommúnista fékk 115 atkv. Féll
þar með formaður félagsins og
formaður fulltrúaráðs verklýðs-
félaganna hér, Jón Ingimarsson.
Lista lýðræðissinna skipa: Ingi-
mar Davíðsson, Karólína Stefáns-
dóttir og Adam Ingólfsson.
Við sömu atkvæðagreiðslu var
fellt með 203 atkv. gegn 30, að
segja upp gildandi kjarasamning-
um frá 1. nóv. n. k.
Góðtemplarareglan hér á Ak-
ureyri hefur keypt stórhýsið
Hótel Norðmdand hér í bæ og
hyggjast templarar gera húsið að
miðstöð fyrir Starfsemi reglunn-
ar og koma þar á stofn ýmiss
konar æskulýðsstarfsemi. Þessi
starfsemi mun þó ekki hefjasí
fyrr en að ári, því að fyrri eig-
endum hefur verið leigt húsið til
eins árs, eða til 1. október 1953
og munu þeir reka liúsið með
svipuðu sniði og áður þetta eina
ár, en þó með því skilyrði, að vín-
veitingar verði þar aldrei um
hönd hafðar.
Forráðamenn templara hér
skýrðu blaðamönnum frá þessu
síðdegis í gær og höfðu Stefán
Ág. Kristánsson, formaður hús-
ráðs templara, og Hannes J.
Magnússon, skólastjóri, orð
fyrir þeim.
Æskulýðshallarbyggingu frestað,
Þeir minntu á, að þegar templ-
arar fengu leyfi til bíóreksturs,
hafi þeir undirgengist að verja
ágóða af rekstri bíósins til æsku-
lýðsstarfsemi í bænum. Fengu
stúkurnar litlu síðar góða lóð,
sem liggur að Hótel Norðurlandi,
og var ætlunin að hefjast þar
handa um byggingu veglegrar
æskulýðshallar strax og unnt
væri. Nú eru hins vegar horfur
á því að dýrtíð og fleiri erfiðleik-
ar hafi girt fyrir byggingu stór-
hýsis í bráðina og var því horfið
að því ráði að festa kaup á hótel-
inu og freista þess að endurbæta
skemmtanalíf ungmennanna í
bænum og koma á laggirnar ein-
hverri þeirri starfsemi þar fyrir
ungt fólk, sem líkleg væri til
þess að forða því frá óreglu og
rækta há því menningarlegt hug-
arfar. Tilhögun starfseminnar að
Hótel Norðurlandi hefur þó ekki
verið ákveðin og mun það mál
verða undirbúið á því ári, sem
líða mun unz templarar taka
Flugvallarstjóri ríkisins, Agn-
ar Kofoed-Hansen, var hér á
ferð fyrir helgina ásanit aðstoð-
armönnum sínum til þess að at-
huga framkvæmdir við gerð nýja
flugvallarins í Eyjafjarðarhólm-
um og átti blaðið stutt samtal við
rekstur þess í sínar hendur.
Skjaldborg væntanlega seld.
Templarar hafa í hyggju að
selja Skjaldborg eða leigja strax
og þeir flytja með starfsemi sína
í hótelið, en bíóreksturinn mun
verða áfram í Samkomuhúsi
bæjarins a. m. k. meðan samn-
ingur templara við bæinn um
þau afnöt er í gildi, eða þrjú ár
enn.
Umráð yfir stóru samkomuhúsi.
Talsmenn góðtemplara minntu
á á þessum fundi með blaðamönn
um, hverja þýðingu það hefði
fyrir bindindis- og menningar-
félagsskap, að hafa umráð yfir
stóru samkomuhúsi, sem fjölsótt
væri, hversu miklu betri tæki-
færi slíkur félagsskapur hefði til
þess að hafa áhrif á skemmtana-
lífið til batnaðar. Annars mun
hótel verða rekið áfram í húsinu
eftir að templarar taka við því og
veitingasala hvers konar, en frá
og með deginum í dag — en þá
ganga eigendaskiptin í gildi —
er áfengi bannlýst í salarkynnum
Hótel Norðurlands og nýtt tíma-
bil hefst í sögu hússins og góð-
templarareglunnar á Akureyri.
Nánar mun verða að þessum mál-
um vikið síðar.
Lambaflutningunum
að verða lokið
Lambaflutningunum miklu til
Suðurlands er nú að verða lokið
og hafa flutningamir sjálfir
gengið að óskum þegar frá er
talið hið hörmulega slys, er einn
af starfsmönnum flutninganna,
Kolbeinn bóndi í Eyvík í Gríms-
nesi, féll af bíl og beið bana. Eru
fjárkaupamenn farnir suður,
sömuleiðis umboðsmaður bænda
hér, Guðmundur Guðmundsson á
Efri-Brú. Hins vegar mun eftir
nokkur samtíningur af lömbum,
sem flutt verða suður með norð-
lenzkum bilum nú í vikunni.
hann áður en hann hvarf suður
aftur.
Áætlanir standast.
Hann sagði að vinnan við flug-
völlinn hefði gengið eins vel og
vonir stóðu til og sanddæla sú, er
keypt var til verksins, hafi komið
að góðu gagni, hins vegar væri
komið í ljós, að skipta þyrfti um
aflvél í dælunni og fá stærri vél.
Mundi það gert í vetur og yrði
dælan þá afkastameiri næsta
sumar.
Leitað til bæjarius.
Flugvallarstjóri kvaðst skilja
það vel að Akureyringar væru
óþolinmóðir að fá nýja flugvöll-
inn i gagnið, því að erfiðleikar
við að nota Melgerðisflugvöll í
snjóþungum vetrum væri miklir.
Hann vildi því fullvissa blaðið og
aðra, sem áhugasamir væri um
þessi málefni, að flugmálastjórn-
in legði á það hina mestu áherzlu,
að hraða verkinu. En menn
mættu ekki gleyma því, að hér
væri um mjög kostnaðarsamar
framkvæmdir að ræða ,en fjár-
veitingar til allra flugvallanna á
landinu hins vegar takmarkaðar
og þótt bróðurparturinn af fénu
gengi hingað meðan flugvöllur-
inn væri í byggingu, væri hætt
við að ýmsum fyndist hægt miða
samt. Eins og sakir stæðu væri
fé það, sem handbærtfer á þessu
ári, uppurið, og leitaði flugmála-
stjómin því til bæjarins um fjár-
framlög til bráðabirgða, svo að
verkið þyrfti ekki að stöðvast.
Yrði slík aðstoð endurgreidd af
fjárframlögum til flugvallarins á
næsta fjárhagsári. Taldi flugvall-
arstjóri góðar horfur á því að
þetta mál yrði leyst nú í haust
með góðri samvinnu bæjarins og
flugmálastjórnar. Þannig hefðu
aðrir bæir flýtt flugvallargerð hjá
sér, til dæmis hefði Sauðárkrókur
lagt á sig þungar byrðar til þess
að hrinda málinu áleiðis.
Flugvallarstjóri kvaðst gera sér
vonir um, að flugvallargerðinni
yrði það langt komið um þetta
leyti næsta ár, að búið væri að
ganga frá undirstöðum einnar
flugbrautar og mundi hægt að
nota hana um veturinn eftir að
jörð væri orðin frosin.
Kviknar í heyi
í sl. viku urðu tvær íkviknanir
í heyi í héraðinu, á Möðruvöllum
í Hörgárdal og á Moldhaugum. —
Missti bóndinn á Moldhaugum,
Þorst. Jónsson, um kýrfóður af
heyi, en minna tjón mun hafa
orðið á Möðruvöllum. Um sjálf-
íkveikjur mun hafa verið að ræða
í báðum tilfellum.
Góðfemplðrareglan hefur keypt
Hótel Norðurland
Æflar að hafa þar miðsföð reglunnar hér í bæ og efna
íil æskulýðsstarfsemi - faka við húsinu effir ár