Dagur - 29.10.1952, Qupperneq 6
6
D A G U R
Miðvikudaginn 29. október 1952
!Hin gömlu kynni I
Saga eftir JESS GREGG
2. dagur.
(Framhald).
Boston var á fyrstu árum aldar-
innar. Wrenn hljópst á brott með
konu þingmanns borgarinnar. —
Útkoman var hjónaskilnaður,
sem meira var um skrafað en
nokkurt annað slíkt mól í marga
áratugi, en þau létu allt slíkt sem
vind um eyrun þjóta og giftu sig,
hvað sem hver sagði. Mér hefur
alltaf fundzt að þarna vœri efni í
skemmtilega bók, ef hægt væri að
grafa upp nógu margar stað-
reyndir og einhverja áreiðanlega
vitneskju. En enginn nema ekkjan
getur þar orðið að liði og hún
hefur hingað til neitað að eiga
nokkra samvinnu við okkur.“
Elísabet var fljót í varnarstöðu
fyrir ekkjuna. „Þú getur ekki á-
fellzt hana, þótt hún kjósi ekki að
draga einkamál sín út á götu,“
sagði hún.
„Nei, en hún komst nú ekki hjá
því hvort eð var,“ svaraði Mellet.
„Hún var ævinlega efniviður í stór-
ar blaðafyrirsagnir, þetta var glæsi-
leg kona, rík og af góðu fólki, þrí-
gift, — og það er eitt næg saga til
næsta bæjar í Boston, — enda
gekk mikið á í hvert sinni.“ Hann
þagnaði, en ekki nefna 'andartak, og
hélt svo áfram: „Hún er komin aft-
ur hingað til lands eftir langar
fjarvistir erlendis, — er búin að
vera hér þrjá mánuði.“
Elísabet leit rannsakandi á hann.
Allt í einu rann það upp fyrir
henni, að vitaskuld var það vegna
viðskiptanna og starfsins, sem
hann hafði kallað á hana, allt ann-
að var draumórar.
„Komdu með það, Harry,“ sagði
hún lágt, og vonbrigða kenndi í
röddinni, „hvað er það, sem þú
hefur á bak við eyrað?“
Hann hló við. „Hvorki mikið né
merkilegt,“ sagði hann. „Ekkert,
nema það, að ég talaði við ekkjuna
í vikunni sem leið. Eg get varla
sagt, að ég nefndi Wrenn á nafn.
Lagði alla áherzlu á hana sjálfa,
persónuleika hennar og sögu. Hún
hefur alla ævina verið að berjast
við að draga úr athyglinni, sem hún
hefur vakið, og gera sem minnst
úr bæjarslúðrinu og hneykslissög-
unum. Henni hefur tekizt þetta
furðuvel — en ég held, að hún hafi
týnt lífsgleðinni í leiðinni, og nú er
hún einmana orðin, og ég lék eink-
um á þessa strengi í samtalinu.
Bókin ætti að minna heiminn á,
hver hún er, og gera það þannig,
að það veki samúð — í þetta sinn.“
„Og hvað meira?“
„Lítið meira. Hún getur auðvit-
að ekki skrifað æviminningarnar
sjálf — kann engin tök á slíku, —
ég varð því að lofa því að leggja
til rithöfundinn — sem gæti skrif-
að alla söguna eftir frásögn hennar
og blásið lífsanda í efnið.“ Hann
leit spurnáraugum á hana. „Kemur
þér nokkur líkleg persóna í hug?“
spurði hann,
„Nei, ekki lifandi sál,“ svaraði
hún.
„Hvað um sjálfa þig?“
„Mig? Hvers vegna ertu að
hugsa um mig í þessu sambandi?“
„Eg þarf á skáldkonu að halda,
konu, sem á innsæi skálds og til-
finningasemi kvenmannsins. Þetta
er bók, sem þarf að vera lifandi
— þarf að eiga hjarta, sem slær!“
„Já, en hvers vegna ertu að tala
um mig. Þú hefur völ á fjölda
manns, sem eru líklegri en ég.“
„Það má vel vera, en persónu-
lega hef ég mesta trú á þér.“
Hún roðnaði lítið eitt, opnaði
veskið sitt, en smellti því strax
aftur. Henni var órótt. „Þetta
mundi þýða, að ég mundi þurfa að
búa í Boston þennan tíma. Það
get ég alls ekki.“
„Hvers vegna ekki? Er einhver,
sem bindur þig hér?“
„Nei!“
„Nú, hvað heldur þá í þig?“
Rödd henriar skalf lítið eitt af
reiði er hún svaraði: „Var þetta
allt erindið, er þú bauðst mér hing-
að í dag? Vár alltaf ætlunin að
taka mig í yfirheyrslu? Eg get
sagt þér, að ég kæri mig ekki um
þetta starf og sé'-enga ástæðu til
þess að gefa þér é því nánari skýr-
ingar.“
„Þá það,“ sagði hann og yppti
öxlum.
Þau héldu áfram göngunni. —
Hvorugt sagði orð um hríð.
„Ertu reiður við mig?“ spurði
hún eftir drykklangá stund.
„Nei, hreint ekki, en aðeins ofur-
lítið undrandi á því, hversu þú
varst áköf að neita mér.“
„Ef að það er þér undrunarefni,
að ég hefi tilfinningar, skil ég ekki
hvernig þér gat dottið í hug að fá
mig til þess að skrifa ástarsögu.“
Hann stanzaði, sneri sér snöggt
að henni. „Þú segir alveg satt, má-
ske mér hafi skjátlazt þar.“
(Framhald).
PERLON-
dráttartaugar
ættu að vera í öllum
bílum. — Fást í
Véla- og varahlutadeild.
Saumur
V alls konar
fyrirliggjandi.
Byggingavörudeild KEA
Forstofuherbergi
til leigu í
Norðurgötu 50.
Sími 1991.
F ordson-dráttar vél
til sölu, ásamt sláttuvél.
U ppl ýsi ngar gefur
Rögnvaldur Rögnvaldsson,
Brekkugötu 19.
Stúlka
óskast á sveitaheimili um
óákveðinn tíma. Mætti hafa
barn með sér.
Afgr. vísar á.
Herbergi
til leigu í
Munkaþverárstræti 34.
Halldórsstaðir
í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði
eru til scilu, e£ viðunandi boð
fæst. Tilboðum sé skilað til
undirritaðs eiganda jarðarinn-
ar fyrir 15. des. n. k. Hey-
skapur a. m. k. 500 hestar,
þar af um fullur helmingur
kúgæft. Tún og engjar að
mestu véltækt. Hlöður fyrir
400 liesta.
Akureyri, 28. okt. 1952.
Sigtryggur Guðlaugsson,
Norðurgötu 47.
Toilefpappír
Kaupfélag Eyfirðinga
N ýlenduvörudeild
og útibú
Hreinlæfisvörur
Þvottalögur
Ræstiduft
Gólfklútar
Fægilögur
Sólsápa
Blámasápa
Þvottasódi
Kaupfélag Eyfirðinga
N ýlendu vörudeild
og útibú
Ung, reglusöm stúlka
óskast nú þegar til heimil-
isstarfa. Skrifið í pósthólf
105, Akureyri.
Bílakaup
Hef nýlegan landbúnaðar-
jeppa til sölu. Bíllinn er
lítið keyrður og vel með
farinn. — Skipti koma til
greina á Chevrolet-vörubíl,
þó ekki eldra mé)del en
194G. — Uppl. gefur
Aðalsteinn Björnsson,
Eiðsvallagötu 22,
næstu kvöld kl. 6—8.
Til sölu
Vökvaámokstursvél fyrir traktora. Dodge Weapon bif-
reið, með 10 manna farþegahúsi, Fordmótor, 110 hest-
afla, ásarnt gírkassa, Fordson afturöxlar og fjaðrir og.
Landbúnaðarjeppi, nýupptekinn og yfirfarinn. — Allar
vélarnar eru til sýnis í dag og á morgun.
Bifreiðaverkstæðið Þórshamar h.f.
Akureyri.
Willjfs Jeep varahlutir
jafnan fyrirliggjandi.
Öll þjónusta fljótt og vel af hendi leyst.
Önnumst og viðgerðir á öllum lanbúnaðar-
vélum og tækjum.
Umbjóðendur fyrir Willys Jeep.
Bifreiðaverksfæðið Þórshamar h.f.
Sími 1353.
Gaslugtir
200 og 300 kerta.
GLÖS - NET - NÁLAR - SPISSAR
og margt fleira til þeirra.
•c$*“*■
■» '
■ > f 'iíKvKt ‘A> i
Járn- og glervöru deiid.
Akureyringar! - Eyíirðingar!
!
Hérmeð tilkynnist heiðruðum viðskiptayinum
vorum, að frá og með 1. nóvember ,1.952 véfðúr
Litlubílastöðinni lokað um óákveðinn tíma.
Gísli Eiríksson.
Aðalsteinn Bjömsson.