Dagur - 12.11.1952, Side 7
Miðvikudaginn 12. nóv. 1952
D A G U R
7
TVÖ LJÓÐ
SÍÐSUMARKVÖLD A
AKUREYRI.
Hnígur, sígui'
húmið yfir bæ.
Blíður líður
blærinn yfir sæ.
Hlýleg rkýin
hverfa tungli frá.
Breytist, skreytist
báran sænum á.
Glitrar, titrar,
glampar ægisdjúp;
bærir, hrærir
bláan rökkurhjúp.
Bleikur leikur
bjarminn yfir sæ.
Þýður, blíður
þeyrinn fer um bæ.
—o—
HAUSTLJÓÐ.
Hallar nú haustrænum dögum,
húmvafin skreyta kvöld
ómar frá óskráðum lögum,
ósungin tóna fjöld.
Leika sér laufvindar þýðir,
lögst eru blóm í dá,
íannhjálmur fjallstinda prýðir,
farfuglar svífa hjá.
Þýðlegri þangblæju vafið
þrumir hið aldna land,
kólgulaust kyrrláta hafið
krýpur við ægisand.
Sæmundur G. Jóhannesson.
Til
Árnar skálds á Steðja
60 ára 1. okt. 1952
Eg veit ekki af hvers konar
völdum,
mér varð að yrkja í dag:
Óm af lindanna öldum,
en engan fossabrag,
k'em eg með að kvöldi
kæra afmælisbarn,
og þakka varmans veldi,
við þinn heima arrt :
Ei dái eg þig dýrum í óði,
drápu að fornum sið —
en dalbúans litla ljóði,
þú leggur hlustir við;
þött flytji það færra en skyldi
— færra við þinn stig;
er segja. vel eg vildi
um valinn dreng, sem þig. —
Gagnrýnendur þín geta
að góðu fjær og nær,
og frónbúans fremdir meta —
fræðiiðkanir þær,
sem þú af heilum huga
helgar þig alla tíð.
Jafnt því af dyggð að duga
við daglegt amstur og stríð.
Virt er af landsins lýði,
Ijóðagerð þín snjöll.
Hvert kvæði er kveðið með prýði,
kosti hafa þau öll,
að frumleik forms og hátta,
með fullkomið gildi sitt.
Mengi margra átta
minna á nafnið þitt.
Andstreymi ár og daga
er örðugt að standa mót.
Búmannsraun er til baga
og brautar torfæra ljót.
Allir sem andstreymi kafa,
elju lúnir við strit.
Þreklyndi þurfa að hafa,
þrautseigju, kjark og vit.
Þú hefur sigrað er situr
á sextugs leiti í kvöld.
Þótt blési um þig kylja bitur,
þér brugðust aldrei þau völd,
sem alltaf huganum orna
og ylgeisla veita lund.
Bóndinn sér blikandi morgna
og bjaríásta gleðistuhdi'
! /■/:úí; V '. y. ' /'///, / .
í náhii ér-hý d'agsskíma, • t
nýjum tengirðu hug,
GJAFIR
til minningarlunds gamla livenna-
skúlans d Laugalandi.
Páll Jónsson og dætur hans
þrjár, Aðalbjörg, Þuríður og Dag-
rún, til minningar um Sigríði Jóns-
dóttur á Stóruvöllum kr. 2000.00.
Hólmfríður Pálsdóttir og fleiri ætt-
ingjar til minningar um Jónínu
Guðmundsdóttur, Þórustöðum, kr.
500.00. Margrét Júlíusdóttir, til
minningar um Þóreyju Júlíusdótt-
ur, Munkaþverá, kr. 100.00 Mar-
teinn Pétursson og systur hans í
Holti, Glerárþorpi, til minningar
um móður þeirra, kr. 100.00. Þóra
Hallgrímsdóttir, til minningar um
Hallgr. Hallgrímsson, hreppstjóra,
Hripkelsstöðum, er var söngkenn-
ari við skólann, kr. 100.00. Þórður
Jónatansson og Katrxn Sigurgeirs-
dóttir, til minningar um Jónínu
Stefánsdóttur, Öngulsstöðum, kr.
200.00. Tvær systur, til minningar
um móður þeirra, kr. 2000.00. Þor-
gerður Jónsdóttir á Munkaþverá
(gömul námsmær) kr. 200.00. Jón-
ína Jónsdóttir, Uppsölum (gömul
námsmær) kr. 100.00. Jónína Jóns-
dóttir frá Ishóli, Bárðardal, nú á
Siglufirði (gömul námsmær), kr.
100.00. Anna Laxdal, Akureyri, kr.
100.00. Ragnh. O. Björnsson, Ak-
ureyri, kr. 100.00. Sigríður Jóns-
dóttir, Hóli, kr. 45.00. Magnea Sig-
urðardóttir, Staðarhóli, kr. 50.00.
Fanney Ingvarsdóttir, Akureyri, kr.
50.00. Sigríður Sigtryggsdóttir á
Stóra-Hamri (gömul námsmær),
kr. 100.00. Svava Skaftadóttir
kennari, til minningar um móður
sína, Bergljótu Sigurðardóttur, og
fóstru sína, Svövu Jóhannsdóttur,
kr. 1000.00.
Með þakklæti meðtekið.
Héraðsamb. eyfirzkra kvenrta.
Aths. Þess er vinsamlega óskað,
að þeir, sem senda gjafir til lunds-
ins til minningar um gamlar náms-
meyjar, láti fylgja ofurlítið ævi-
ágrip þeirra og helzt mynd, ef hægt
er. Verður æviágripið og myndin
fest inn í minningabók um gömlu
námsmeyjarnar, sem geymd verð-
ur í Laugalandsskóla. Æskilegt er
að geta fæðingardags, foreldra,
helztu dvalarstaða og starfa, gift-
ingar, barna, og dánardaga og ann-
ara upplýsinga, sem sendandi kann
að óska að geta um. Allar upplýs-
ingar um gamlar námsmeyjar,
þvort sem þeim fylgja gjafir til
lundsins eða ekki, verða þakksam-
lega þegnar, og má senda slík ævi-
ágrip til sr. Benjamíns Kristjáns-
sonar, Syðra-Laugalandi.
* Fokdreifar
(Framhald af 4. síðu).
Gagnrýni hans er dálítið öfga-
kennd, en sannleikur felst í
henni. Þeir, sem hingað koma ut-
an úr heimi, hljóta að taka eftir
því að oft er farið kæruleysislega
með bíla hér og meira sést hér af
verksummerkjum árekstra en
annars staðar. Við íslendingar
eigum orðið mikið af alls konar
vélum og tækjum, en mikið
skortir áreiðinlega á, að við för-
um nægilega samvizkusamlega og
vel með þessi tæki. Hirðuleysi og
kæruleysi eru oft áberandi. Það
er ekki nema vonlegt að útlend-
ingar reki augun í það. Ástæðu-
laust er því að reiðast slíkum
ábendingum, heldur á fremur að
íhuga, hvert sannleikskom dylst
í þeim og lagfæra það, sem lag-
færingar þarf við. í akstri og
meðferð bíla er það áreiðanlega
mikið.
nýtt viðhorf, nýja tíma,
með nýjum áratug.
Gleðji þig gróðurskrúði,
gæfan haldi yörð, ■ .
um þig.Oj* þina brúði,
þín->börn- og Bigharjörð. • •> *■>
Gunnar S. Hafdal.
BREF
Hún hefur aldrei verið strákur!
Útvarpshlustandi skrifar blað-
inu á þessa leið:
„RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTT-
IR, rithöfundur, flutti á sunnu-
dagskvöldið ferðaþátt frá stór-
borg í Bandaríkjunum. Sá hún
xar stráka gægjast fyrir húshorn
í Indíána- og kúrekabúningum,
vopnaða byssum og sverðum. —
Allir strákar í einum börgarhlut-
anum virtust vera í slíkum bar-
dagaleik, og hneykslaðist Ragn-
heiður mjög, kvað leiki þessa
bera vott um stríðsæsingar.
Flutti hún innfjálgar friðarhug-
leiðingar í því sambandi.
Þegar ég var strákur fyrir 30
árum voru helztu og skemmtileg-
ustu leikir okkar félaganna ræn-
ingja-, útilegumanna- og Indí-
ánaleikir. Glumdi þá oft í sverð-
um. Hvað um stríðsæsingar í því
sambandi?
Nei, strákar verða alltaf strák-
ar, og ólíkir leikir eru þeim eðli-
legir. Fyrirlesarinn hefur aldrei
strákur verið, og skilur ekki at-
hafna- og ævintýraþörf þrótt-
mikilla stráka. Það væri t. d.
heldur óskemmtilegt, ef íslenzkir
drengir tækju upp á því að leika
sér helzt að brúðum í mömmu-
leik.“
- Samkomur í sveitum
(Framhald af 5. síðu).
menningarleysi. Til þess að koma
þeim í sem skjótasta framkvæmd,
þarf samvinnu menntamólaráð-
herra, alþingis og forystumanna
æskulýðssamtaka sveitanna. Fái
þær ekki í aðalatriðum stuðning
sveitafólksins, verður að líta á allt
skraf þess um óviðunandi, ástand
í skemmtanalífinu markleysu eina.
Verður þá að líta svo á, að vel sé
unandi við það óorð, sem nokkrir
„rónar“ og óvarkárir unglingar, er
lent hafa í óhollum félagsskap,
setja á samkomur þess, við hrind-
ingar og pústra í samkomusölum,
við meiðingar á friðsömum og
reglusömum borgurum, við há-
reysti og hróp að ræðumönnum,
söngmönnum og söngkórum og
annað það, er setur svip á skemmt-
anir í sveitum. Hljóti þær ekki
fylgi þeirra, sem fara með löggjaf-
arvald og réttargæzlu, verður og
að líta svo á, að þeir leggi blessun
sína yfir ástandið. Fari hins vegar
svo, að sveitafólkið, og þá einkum
margs konar félagssamtök þess,
sjái í þeim möguleika til úrbóta
og vilji ekki láta sitja við orðin
tóm, en fái ekki nægilegan stuðn-
ing löggjafarvalds, dómsvalds og
annarra opinberra aðila, verður að
grípa til annarra ráð. Mun ég, ef
til kemur, hafa aðrar tillögur fram
að færa, sem byggðar verða ó þeim
málefnagrundvelli, reynist hann
fyrir hendi.
Hvítafelli við Laugaskóla,
29. október 1952.
Páll H. Jónsson.
Til nýja sjúkrahússins. Gjöf frá
Aðaldælahreppi kr. 5000.00. —
Gjöf frá U. M. F. Geislg, Aðaldal,
kr. 1200.00. — Gjöf fra E. Þ. kr.
100.00. — Áheit frá N. N. kr.
100.00. — Með þökkum móttekið.
Guðm. Karl Pétursson.
Frá bókasafni Kristneshælis. —
Nýlega hafa borizt tvær bóka-
gjafir til bókasafns sjúklinga í
Kristneshæli, önnur frá Jóhann-
esi Kristjánssyni deildarstjóra, 9
bindi, góðar bækur, og hin frá
Jakob Kristinssyni, erl. og ísl.
bækur, alls 23 bindi. Sjúklingarn
ir biðja blaðið að flytja þessum
mönnum beztu þakkir fyrir þess-
ar myndarlegu bókagjafir.
Guðspekistúkan „Systkinaband-
ið'* heldur fund þriðjudaginn 18.
'þ. iir- á - venjulegum stað og tíma.
Erindi. — Kaffikvöld.
i/Jp lœ oa é
□ Rún 595211127 = 2.:
I. O. O. F. = 134111481Ú =
I. O. O. F. — Rbst. 2 —
10111128V2
Messað í Akureyrarkirkju
sunnudaginn 16. nóv. kl. 2 e. h.
Vígsla nýja skírnarfontsins. Séra
Pétur Sigurgeirsson prédikar, en
vígslubiskupinn vígir fontinn,
sem verður afhentur af gefend-
unum. í tilefni af 12 ára afmæli
kirkjunnar verða merki seld á
sunnudaginn.
Messað í Glerárþorpi kl. 5 e. h.
næstk. sunnudag. F. J. R.
Möðruvallakl.prestakall. Mess-
að á Bægisá sunnud. 16. þ. m. kl.
2 e. h. og á Bakka sunnud. 23. þ.
m. kl. 2 e. h.
Guðsþjónustur í Grundarþinga-
prcstakalli: Kaupangi, sunnudag-
inn 16 .nóv. kl. 2 e. h. — Munka-
þvex-á, sunnudaginn 23. nóv. kl.
1.30 e. h. — Hólum, sunnudaginn
30. nóv. kl .1.30 e. h. — Saurbæ
unnudaginn 7. des. kl. 1.30 e. h.
Sjónarhæð. Sunnudag. Sam-
koma kl. 5 e. h. Sæmundur G.
Jóhanness. talar. Allir velkomnir.
Sunnudagaskóli kl. 1. Öll börn
velkomin.
Brúðkaup. 8. nóv. voru gefin
saman í hjónaband ungfni Hekla
Eiríksdóttir og Sigurður Stefáns-
son bifvélavirki. Séra Friðrik J.
Rafnar vígslubiskup gaf brúð-
hjónin saman.
Séra Ragnar Fjalar Lárusson
talar á samkomu í kristniboðs-
húsinw Zíon • næstk. sunnudag.
ki. 8.30‘é: h.-
Fíladelfía. Almennar samkom-
ur í Luridargötu 12 sunnudaga og
fimmtudaga kl. 8.30 e. h. Ræður,
söngur og hljóðfæraleikur. —
Stundvísi æskil. Allir velkomnir
— Sunnudagaskóli hvern sunnu-
dag kl. 1.30 e. h. — Telpnafundir
(saumafundir) hvern miðvikudag
kl. 5.30 e. h.
Námshópar Verkaniannafélags
Akureyrarkaupstaðar. Kennsla í
ensku og esperanto hefst á vegum
Aðalfundur Skautafélag Akur-
eyrar verður haldinn í kvöld kl.
8.30 í íþróttahúsinu.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú Sig-
urlína Pétursdóttir, Glerárgötu 2,
og Eyvind Splidt, Grund, Glerár-
þorpi.
Áheit á Strandarkirkju. Kr. 12
frá R .R. — Mótt. á afgr. Dags.
Félagsvist og dans, til ágóða
fyrir nýja sjúkrahúsið, heldur
Austfirðingafélagið að Hótel
KEA finuntudaginn 13. þ. m.,
kl. 8.30 síðdegis (amiað kvöld).
Inngangseyrir kr. 10.00. —
Styðjið gott málefni. Allir vel-
komnir.
Nátúrugripasafnið í nýju
slökkvistöðvarbyggingunni er op
ið á hverjum sunnudegi kl. 2—4.
Þar er m. a. að sjá allar íslenzkar
fuglategundir auk margs annars.
Upplýsinga- og hjálparstöð I.
O. G. T. og áfengisvarnanefnd-
anna á Akureyri, fyrir drykkju-
sjúka menn og aðstandendur
þeirra, verður framvegis opin á
hverjum föstudegi kl. 6—7 síð-
degis í herbergi nr. 66 á Hótel
Norðurlandi.
Suðurnesjamenn eru byrjaðir
liáhymingsveiðar á vopnuðum
vélbát, en háhymingar hafa
gert mildnn usla í netum fiski-
báta að undanförnu. Er veiði-
skapur þcsi bæði til þess að
spyma gegn netatjóni og í
ágóðaskyni, því að háhymingur
gefur talsvcrt af sér. Eru
skepnurnar skutlaðar, líkt og
tiðkast hefur á hrefnuveiðum
hér á Eyjafirði um langan ald-
ur, enda er skyttan á Kcflavík-
urbátnum enginn annar en Páll
Pálson, Akurcyringur, sem
Icngi hefur tundað hrcfnu- og
hnísuveiðar hér á Eyjafirði og
Skjálfanda.
Fyrirlestur verður haldinn í
kvöld, miðvikudaginn 12. nóv., kl.
9 í salnum í Túngötu 2. Efni:
Munu trúarbrögðin leysa úr
vandamálum heimsins? Ræðu-
verkamannafélagsins nú á næst- maður: Qliver A. Macdonald. -
nnni VíPntnnmcfiv hoHtnb-on/^in* _
unni. Væntanlegir þátttakendur
eru beðnir að mæta til viðtals í
Verkalýðshúsinu næstk. sunnud.
kl. 4 síðdegis.
Hcimilsiðnaðarfélag Norðurl.
heldur hálfsmánaðar kvöldnám-
skeið í kven- og barnafatasaum.
Námskeiðið hefst laugardaginn
22. nóv. Símar 1488 og 1026.
Fundarboð. Fundur verður
haldinn í Stúdentafélaginu á Ak-
ureyri fimmtudaginn 13. nóv.
1952, kl. 20.30, í Rotarysal KEA.
Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga.
— 2. Árni Kristjánsson, mennta-
skólakennari: „Breyting á lögum
nr. 21/1936 um Háskóla íslands“.
Fi-jálsar umræður. — 3. Önnur
mál. — Stjórnin.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú Heið-
björt Björnsdóttir frá Laugalandi
og Tryggvi Gunnarsson skipstjóri
frá Brettingsstöðum Flateyjardal.
Sunnudaga-
skóli Akur-
eyrarkirkju.
Á sunnudag-
inn kemur kl.
10.30 f. h. Börn, sem ekki hafa
náð skólaskyldualdri (5 og 6 ára)
í kapellunni, en börn 7—13 ára í
kirkjunni. — Bekkjarstjórar eiga
að vera mættir tíu míúntur yfir
tíu.
Æsltulýðsfélag
Akureyrar-
líirkju. Fund-
ir á sunnudag-
inn kemur: —
Mið-deild kl.
8.30 e. h. í kapellúnni.
Þetta efni var aðalræða á al-
þjóðamóti Votta Jehóva í Wemb-
ley Stadium, London, fyrir einu
ári. Vox-u þar viðstaddir 36,000
áheyi-endur. Aðgangur í kvöld er
ókeypis og allir eru velkomnii'.
Eldri borgari kom að máli við
blaðið og sagði: Hafið þið aldrei
heyrt getið um hrævareld? f
minu ungdæmi þótti það vita á
mildan vetui', ef hrævareldur
sást á haustdegi, en aldrei
heyrði eg fyrirbæri þetta nefnt
í sambandi við heimsóknir frá
öðrum hnöttum. Eru ekki
„fljúgandi diskar“ niítímans
sama fyrirbærið? f gamla daga
var ekki kostur að senda frá-
sagnir af slíkum fyrirbærum í
fréttaskeytum landshornanna í
milli. Þær voru skráðar í ann-
ála og geyinast þar.
Utför frú Guðrúnar Bjai-na-
dóttui', eiginkonu Magnúsar Pét-
urssonar kennara, fór fram sl.
laugai'dag að viðstöddu fjölmenni.
Frú Guði'ún lézt að heimili sínu
hér í bænum 4. þ. m. eftir þunga
legu. Hún var húnvetnsk að ætt,
en hafði búið hér öll sín fullorð-
insár. Þessarar mætu konu verð-
ur minnst hér í blaðinu síðar.
I. O. G. T. Stúkan ísafold-
Fjallkonan heldur fund næstk.
mánudag kl. 8.30 e. h. í Skjald-
borg. — Venjuleg fundai'störf.
Inntaka nýrra félaga. Ýmis mál.
Yngri embættismenn stjóina
fundi og yngri hagnefnd sér um
fræðslu- og skemmtiatriði, svjp
sem-leikþátt-o. fl. Allir á fund. —
Nýir félagar alltaf velkomnir.