Dagur - 19.11.1952, Side 4
1
D A G U R
Miðvikudaginn 19. nóv. 1952
DAGUR
Ritstjóri: HAUKUR SNORRASON.
Afgreiðsla, auglýiingar, innheimta:
Erlingur Davíðsson.
Skrifstofa í Hafnarstræti 88 — Sími 1166
Blaðið kemur út á hverjum miðvikudegi.
Argangurinn kostar kr. 50.00.
Gjalddagi er 1. júlí.
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Ferðamálafélag
ÞAÐ MUN NÚ orðið sæmilega hljóðbært, að
hér er verið að vinna að stofnun ferðamálafélags,
en margir spyrja að vonum: Hvað á þetta félag
að gera?
Hér verður aðeins að mjög litlu leyti reynt að
svara þessari spurningu, en þar sem brátt líður
að því, að reynt verður að halda stofnfund þessa
félags, er rétt að reyna að gera öllum almenningi
ljóst hvað í efni er.
Félög af þessari tegund munu starfandi víða um
heim, þar sem ferðamenn skipta nokkru máli.
Þau eru samtök áhugamanna og ýmiss konar fyr-
irtækja, er haft geta beina eða óbeina hagsmuni af
heimsókn ferðamanna til staðarins. Félögin beita
sér fyrir því að bæta skilyrðin til að veita ferða-
mönnum móttöku, og kynna þeim sem bezt, hvers
vænta má. Þau beita sér fyrir því, að vegir séu
lagðir til fagurra og eftirsóttra staða, aðstaðan til
að iðka vetraríþróttir, f jallgöngur eða annað sport,
sé gerð sem hagstæðust, samgöngur sem greiðast-
ar, leiðbeiningar séu við hendina og öll fyrir-
greiðsla sem hagkvæmust. Þá beita þau sér enn-
fremur fyrir ýmiss konar kynningu í auglýsingum,
fræðsluritum og myndum og hafa sambönd við
félög og fyrirtæki annars staðar, er vinna að fyrir-
greiðslu ferðamanna.
FRA NÁTTÚRUNNAR HENDI hefur Akureyri
margt til síns ágætis, er ætti að geta skapað henni
sess í hópi eftirsóttra ferðamannabæja, og ætti því
að vera verksvið fyrir félög af þessu tagi hér. Er
ástæða til að gefa skilyrðunum til að stunda vetr-
aríþróttir hér fyrst og fremst gaum, því að af
ýmsum ástæðum er eftirsóknarverðast að fá hing-
að gesti til dvalar að vetrinum. Á þessu sviði er þó
margt óunnið. Það þarf að gera aðganginn að
skíðalandinu sem greiðastan og hagnýta sem bezt
þá einstöku aðstöðu sem hér er til skíðaiðkana'
mestan hluta ársins, gera skíðabrautir og skíða-
lyftur, byggja hresingarskála, koma upp skauta-
brautum o. s. frv. Að þessu og mörgu fleiru á
ferðamálafélagið að vinna.
Allt, sem gert í þessum efnum, kemur eigi að-
eins erlendum ferðamönnum að notum, heldur
jafnframt innlendu ferðafólki, og þó fyrst og
fremst bæjarbúum sjálfum. Það verður því aldrei
unnið fyrir gíg.
Það er auðvelt að nefna og rökstyðja tölur, er
sýna hvaða hag má hafa af dvöl ferðamanna hér,
en það er örðugt eða jafnvel ógerlegt að rekja
þann hagnað til fulls, svo víða getur hann komið
við í verzlun, iðnaði og öllu atvinnulífi bæjarins.
ENGINN VAFI getur leikið á því, að ferðamála-
félög munu verða stofnuð hér á landi, svo mjög
erum við nú komnir í þjóðbraut. Fjarstæða væri
að halda að sér höndum og hafast ekki að. Akur-
eyri á að ryðja brautina og gera það með mynd-
arskap.
FOKDREIFAR
Verðlag fyrr og nú.
f SKÝRSLU ÞEIRRI, sem
samninganefnd þeirra 60 verka-
lýðsfélaga, sem hafa sagt upp
kjarasamningum frá 1. des. n.k.,
efhenti atvinnurekendum í vik-
unni sem leið, eru fróðlegar sam-
anburðartölur um verðlag á
ýmsum nauðsynjavörum í októ-
ber 1947 og í október síðastliðn-
um. V erðhækkanir hafa Orðið
miklar, sem kunnugt er, og hef-
ur kaffi hækkað mest, eða um
533% skv. þessum skýrslum. En
fyrir þá, sem sífellt eru að reyna
að telja sjálfum sér og öðrum trú
úm, að engar vörur hafi hækkað
eins mikið og landbúnaðarvörur,
eru þessar upplýsingar athyglis-
verðar: Á meðan mjólk hækkaði
um 62% hækkaði ný ýsa frá fisk-
sölum um 78%, á meðan kinda-
kjöt hækkaði um 62% hækkaði
nýr þorskur um 68%, á meðan
skyr hækkaði um 67% hækkaði
harðfikur um 104% og meðan
innlend fataefni — kambgarns-
efni — hækkuðu um 117%
hækkuðu erlendu efnin um
208%. Þessar tölur minna á, að
fleiri hafa þótzt þurfa að fá meira
fyrir framleiðslu sína en bændur.
Þeir hafa samkvæmt þessum
skýrslum verið hófsamir um
verðhækkanakröfur. Þó virðist
einn vöruflokkur landbúnaðar-
vara hafa hækkað stórum meira
en aðrir. Það er hrossakjöt og
nernur hækkunin á því síðan
1947 243% og er ekki nema um
tvennt að ræða: annað tveggja
hefur verið á því verð stórlega of
lágt 1947 eða þessi hækkun er
óeðlileg miðað við verð á öðrum
landbúnaðarvörum
Gömul saga.
AUÐVELT ER að sanna að
kaup manna hafi ekki fylgt eftir
öllum þessum verðhækkunum
upp á síðkastið og nú stendur
fyrir dyrum að kippa því í lag.
Við eigum að fá fleiri krónur í
lófana til þess að borga með hin-
ar dýru vörur eftir 1. des., segja
forgöngumenn launasamtakanna,
þá verði þessi met jöfnuð. En
landsmenn hafa þegar langa
reynslu af slíkum kjarabótum,
eða hvar eru þær allar, kjarabæt-
urnar, sem knúðar hafá verið
fram á liðnum árum? Skólaganga
manna í dýrtíðarskóla hins ís-
lenzka þjóðfélags ætti þegar að
vera orðin nægiega löng til þess
að menn vissu, að enginn vei'ður
feitur á því að blekltja sjálfan sig.
Gott væri ef þjóðartekjurnar
hefðu vaxið og framleiðslan auk-
izt til þess að standa undir raun-
verulegum kjarabótum. En eftir
síldarleysið og aðra erfiðleika út-
vegsins — þar á meðal yfirstand-
andi lokun brezka markaðsins —
er synt, að um slíka raunveru-
lega aukning er ekki að ræða.
Og þá sígur í gamla farveginn
aftur, kauphækkununum fylgir
ny dýrtíðaraldra, og launþegarnir
missa „k j arabæturnar“ út um
greiparnar á sér, en þjóðarbú-
skapurinn í heild stendur verr að
vígi eftir en áður. Miklar líkur
eru fyrir því, að raunverulegar
kjarabætur til handa landsmönn-
um verði að sækja eftir öðrum
leiðum en þeim, sem tíðfarnastar
hafa verið undanfarin ár. Og
ekki er gott í efni þegar komm-
únistar þrengja sér í framvarð-
stöður í hinni nýju „kjarabóta11-
baráttu. Óhugnanlegasta sjón
þreyttra ferðalanga á eyðimerk-
um suðlægra landa, eru gamm-
arnir, sem koma á vettvang þegar
þorsti og þreyta fara að sækja
fast á, og fylgja vegfarandanum
því fastar, sem meira dregur af
honum. Kommúnistar hlakka yfir
því að þeim muni auðnast að
kroppa augun úr hinu íslenzka
lýðræðisþjóðfélagi. í þeirri við-
leitni er dýrtíðardraugurinn þeim
liðtækur bandamaður.
Erum við af hátíðlegir?
EKKI FÁUM við íslendingar
mikið orð fyrir það með öðrum
þjóðum að vera skemmtilegir,
enda munum við lítið hafa til
þess unnið. Okkur hættir til að
hafa hátíðlegt og þunglamalegt
snið á hlutunum.V ið höfum þungt
og virðulegt form á mannfundum
okkar, og þyrftum að kippa þeim
upp úr þeim farvegi. Fjöldi
manna er hættur að sækja fundi,
enda þótt þeir séu skilvísir félags
menn í mörgum félögum. Er ekki
grunlaust, að ein ástæðan sé sú,
að fundir eru oft þrautleiðinlegar
samkomur.
HÁTÍÐLEGHEITIN setja líka
svipmót sitt á blöðin. Þau eru að
vísu lítið hátíðleg í orðbragði á
stundum, en skammirnar eru oft-
ast leiðinlegar. Við eigum marga
snjalla hagyrðinga, sem geta ett
hugsun sína skemmtilega fram í
stöku, en fáir eru þeir, sem geta
komið saman skemmtilegri
blaðagrein. Eitt af því, sem veld-
ur þessu, er, að við veljum okkur
oft of hátíðleg viðfangsefni. Menn
skrifa í heimspekilegum tón um
hversdagslegustu hluti og þó er
lakara, að mörgum finnst hvérs-
dagslegir hlutir umtalaðir með
hversdagslegum orðum eigi ekki
erindi á síður blaða og bóka.
Þeir, sem lesa að staðaldri erlend
blöð, komast eldii hjá því að sjá,
að æði oft er þar tekið léttari og
Ijðlegri tökum á málefnum en
hér. Virðulegir leiðarahöfundar
sumra erlendra stórblaða bregða
sér stundum á leik eins og kálfar
á vordegi, taka niður hina lands-
föðurlegu og hátíðlegu grímu og
tala við lesendurna eins og
kunningi við kunningja.
Væri það hægt hér?
MUNDI HUGLEIÐING SÚ,
sem hér fer á eftir,hafafengiðinni
á ritstjórnarsíðu íslenzks blaðs?
Hún birtist undir ritstjórnarhaus
hins virðulega stórblaðs
„Cinncinnati Post“ í Bandaríkj-
unum nú fyrir nokkrum dögum:
„Hinir fornu Rómverjar, sem
voru þjóða bezt mannaðir,
iklæddust víðum, skósíðum
skikkjum. Arabar og vitringar
Indlands og annarra Austur-
landa klæðast enn í dag slíkum
kyrtlum. En hér hjá okkur
girða afkomendur landnem-
anna sig þröngum buxum,
vestum, flibbum, hálsbindum
og þröngum skóm. Og þessum
meinlætum linnir ekki þótt
komið sé í rúmið, því að menn-
ingin hefur þröngvað þeim í
náttföt, ókarlmannlega upp-
finningu, sem hvorki er fögur
né þægileg.
En vonin lifir þó enn. Skoð-
anakönnun meðal vefnaðar-
vörukaupmanna leiðir í Ijós, að
gamli góði náttserkurinn á sér
enn áhangendur og þeim virð-
ist fara ört fjölgandi Kannske
eru hér að verða þáttaskil í
menningarsögu þjóðarinnar. —
Tímabil náttserksins var líka
gullaldartímabil í sögu þjóðar-
innar. Mennirnir, sem sváfu í
nattserk, namu hin ókunnu
vesturhéruð landsins, sköpuðu
iðnaðarveldi ríkisinn og létu
ekki bjóða sér neina ósvífni,
hvorki frá konum né tízku-
herrum.
Þar við bætist, að. góður
náttserkur ætti að endast hverj
um manni í mörg ár.“
Og líkegast hefur þessi virðu-
legi leiðarahöfundur lög að mæla.
Ekki munu þeir hafa sofið í nátt-
fötum, Egill Skallagrímsson og
Skarphéðinn Njálsson.
Á að taka upp þráðinn
frá í fyrra?
í bréfi, sem ritstj. kvennadálksins, frú Anna S.
Snorradóttir, skrifar frá Kaupmannahöfn nú fyrir
nokkrum dögum, segir m. a. á þessa leið:
„Lömunarveikisfaraldur gekk hér yfir í haust, og
var ægilegur vágestur, enda hinn versti, sem hei
hefur komið. Mikill fjöldi fólks tók veikina án þess
að lamast, og margir fengu lömun, sem aðeins stóð
stutta stund, og náðu þeir kröftum aftur er veikin
rénaði. En sagan er ekki öll þar með sögð. Svo foi,
að margir lömuðust illa, og hefur öundunarfæi’a"
lömun verið töluverð og hafa margir dáið. Her i
Vangeleddet (í nágrenni Kaupmannahafnar) óo
lítið barn og í næta húsi við okkur vissi eg um
27
ára heimilisföður, sem var fluttur á sjúkrahus i
öndunartækjum. Það eiga margir um sái't að binda
í sambandi við þessa veiki nú í haust. Nú kom sei
vel fyrir Dani að hafa öflugan félagsskap starfandi,
sem stóð í náinni samvinnu við félögin í Svíþjóð og
Noregi. Norðmenn og Svíar lánuðu öll tseki, sem
þeir gátu misst, og voru sum flutt í herflugvéluni til
Danmerkur. Eg átti í fyrra tal við eina af nuddkon-
unum, sem stunduðu ísl. sjúklingana frá 1949, og
var hún þá nýkomin til Danmerkur fra Noregi, en
þar hafði þá gengið lömunarveikifaraldur og lan"
uðu Danir þá allt, sem þeir gá.tú, þæði tæki og
hjúkrunarfólk. Nú fá þeir það endurgreitt og þann-
ig hafa þessar þjóðir mikla samvinnu sín í rnilh og
hjálpa hver annarri þegar á þarf að halda og unnt
er. Og mikill er munurinn og miklu er auðveldai a
fyrir slík félagssamtök að biðja um hjálp heldur en
einstaklinga, hvort heldur er um lækni eða sjukling
að ræða. Ef eg væri heima núna, mundi ég vilja
beita mér fyi’ir félagsstofnun af þessu tagi. Vaið
aldréi neitt úr tilrauninni í fyrra? . ...“
Spurningu frú Önnu má svai'a bæði játandi og
neitandi. Reykvíkingar komu á stofn félagsskap hja
sér og er hann nú byrjaður að starfa af miklum
myndai'brag. Hann hefur hafizt handa um fjáröflun
til stax-fsins — og sýnt þar hugkvæmni og dugnað —‘
og hefur þegar sett sig í samband við hliðstæðan
félagsskap erlendis m. a. með tilliti til þess að koma
hjúkrunai’fólki í þjálfun. Var birt fróðlegt viðtal við
foi-mann félagsins um byrjunarstai’fið í einu sunn-
anblaðanna nú fyrir nokkrum dögum.
En hér hjá okkur er aðra sögu að segja, því mið-
ur, og er ekki vanzalaust að þurfa að viðurkenna
það. í fyrrá voru gerðar tvær tilraunir til þess að
koma á stofn Akureyrardeild í þessum félagsskap-
Eftir rækilegar ábendingar og auglýsingar hei 1
blaðinu, var boðað til stofnfundar, en of fáir msettu
þar til þess að unnt reyndist að stofna deildina og 0
fáir létu ski'á sig á félagslista til þess að félagið yi ði
stofnað. með sæmilegum myndai’brag. Hefur rnáhð
legið niði’i síðan. Reynlan ætti þó að hafa kennt
okkur, hver nauðsyn er að bæta aðstöðu þá, selT1
lömunarsjúklingar hafa hér átt við að búa. Engmn
veit, hvort framtíðin ber í skauti sér hörmungm a
borð við þær, sem mæddu á þessum bæ 1948, en
andvaralaust er að gera ekki ráð fyrir því og veia
betur búinn -undir að mæta því en þá var. í
stöndum við litlu betur að vígi hér en 1948. Stai
félagsins í Reykjavík er að vísu að búa í haginn, en
léleg frammistaða verður það að teljast, að geia
ekki veitt því stuðning héðan einmitt með þvl a
hafa hér stai'fandi myndai’lega deild. Vilj a menn tak ^
upp þráðinn frá í fyrra? Menn geta enn látið skia
sig félagsmenn á skrifstofu blaðsins. Ef nógu maig1
gefa sig fram, mætti boða til stofnfundar fljótlega
hefja raunhæft starf.