Dagur - 10.12.1952, Síða 1
D A G U R litprentar stærri
auglýsingar fyrir viðskipta-
vini sína, ef sérstaklega er um
það samið. Talið við afgreiðsl-
una.
Dagu
Blaðið getur látið viðskipta-
vini sína fá hentug myndamót
með verzlunarauglýsingum án
'endurgjalds, ef um það er
samið. Talið við afgreiðsluna.
XXXV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 10. desember 1952
52. tbl.
Nýtt frímerki - tekur gildi í dag
Verkfallið talið ná lil 18 þúsund manna
- ýmis lélög hafna beiðni
um samýðarvert
Strásykur kosfar kr. 4.20,
segja verkalýðsfélögin,
4.10 í KROIi 3.90 íKEA
1 tilefni af 4 ára afmæli niannréttindaskrár Sameinuðu þjóðanna, sem
er í dag, hefur þetta frímerki verið gefið út á þeirra vegum. Merkin
eru í tveimur gildum: þriggja centa (grænt) og fiinm centa. (azúr-
blátt). Myndin er af eldtungu en linattlíkan í baksýn. Umhverfis
er orðið „mannréttindi“, á hinum 5 aðalmálum Samcmuðu þjóðanna.
í dsg er mannréflindayfirlýsingar
Sameinuðu þjóðanna minnzt
um allan hinn frjálsa heim
í dag er dagur mannféttind-
anna. Um allan heim verður hans
minnst í aðildarlöndum S. Þ. —
Þennan dag fyrir fjórum árum
var almenna mannréttindáyfir-
lýsingin samþykkt. Hún skil-
greinir í 30 greinum persór.uleg,
stjórnmálaleg, borgaraleg, efna-
hagsleg, félagsleg og menningar-
leg grundvallarréttindi manna í
nútíma þjóðfélögum.
Þótt hinar háu hugsjónir, sem
í yfirlýsingunni felast, kunni oft
að vera fjarlægar hinum beiska
veruleika, þá getur verið ástæða
til nú — 4 ára afmælinu — að
benda á, að hún hefur þó haft
mikla þýðingu á ýmsum sviðum.
Hún er oft tekin til fyrirmyndar,
bæði þegar um stjórnarskrár og
almenna löggjöf er að ræða.
Mannréttindanefnd S. Þ. vinn-
ur að því að endurbæta yfirlýs-
inguna í þeim tilgangi að auka
þýðingu hennar fyrir alþjóðlega
lagasetningu. Réttindayfirlýsing-
in er fyrsta skrefið til að skapa
alþjóða sáttmála, sem ákveður
ekki aðeins réttindi og skyldur
einstaklinganna, heldur líka ríkj-
anna.
Jafnhliða þessu er unnið að því
að vekja athygli fólks á almennu
mannréttindayfirlýsingunni. Upp
lýsingastofnanir S. Þ., blöðin, út-
vörp og skólar hafa frætt fjölda
fólks um allan heim um hana.
Ný ríki hafa tekið hana sér til
fyrirmyndar, þegar þau hafa
samið stjómarskrár sínar. Má t.
d. nefna Lýbíu, Puerto Rico og
þar að aulci Eritreu, sem hefur
sjálfstjórn ,en er í sambandi við
Etíópíu. Yfirlýsingin hefur líka
haft áhrif á stjórnarskrárbieyt-
ingar í Costa Rica, Salvador,
Ilaiti, Indónesíu og Sýrlandi og
sömuleiðis á almenna lagasetn-
ingu í Kanada, Vestur-Þýzka-
landi, Svíþjóð og Bretlandi.
Menn hafa einnig haft hliðsjón
af henni, þegar milliríkjasamn-
ingar hafa verið gerðir. Þannig
má nefna sambandssamninginn
milli Hollands og Indónesíu, Ev-
rópusamninginn um vei-nd mann
réttinda og Somalilandssamning
inn.
Alþjóðasamningur, sém gerður
var í Geneve í júlí 1951, um rétt
arstöðu flóttamanna og heimilis-
lausra manna ,byggist á mann-
réttayfirlýsingunni í sambandi
við lög S. Þ. Yfirlýsingin var líka
tekin til fyrirmyndar ,þegar jap-
anski friðarsamningurinn var
undirritaður í San Francisco í
fyrra. í þessu sambandi má nefna,
að mrs. Elisabeth Gray Vining,
kennslukona japanska ríkiserf-
ingjans, segir svo frá í bók sinni
„Windows for thé Crownprince“,
að yfirlýsingin um mannréttindi
hafi verið grundvallaratriði í
kennslunni heilt miseri.
Þótt yfirlýsingin sé ekki nema
fjögurra ára gömul, þá hefur hún
þó haft mikla þýðingu fyrir al-
þjóðlega samvinnu. En mikið er
þó ógert áður en mönnum verða
tryggð þau réttindi ,sem hún set-
ur reglur um. Þetta ætti að vera
okkur örvun til að leggja kapp á
að framkvæma þær hugsjónir,
sem í henni felast, eins og
Tryggve Lie framkv.stj. S. Þ.,
sagði á mannréttindadaginn í
fyrra.
í skýrslu þeirri, er verka-
lýðsfélögin gerðu um verðlags-
málin í landinu og sendu at-
vinnurekendum sem rökstuðn-
ing fyrir hækkuðu kaupgjaldi,
— og byggt er á meðaltalsút-
reikningi Hagstofunnar — segir
að meðalverð á kg. af strásykri
í Reykjavík sé kr. 4,20 pr. kg.
Nú er upplýst í einu dagblað-
anna í höfuðstaðnum að
KRON selji þesa vöru á kr.
4,10 hvert kg. og geti launþeg-
ar fengið sér nokkra kjarabót
með því að beina verzlun sinni
til félagsins með þessa nauð-
synjavöru og aðrar. I auglýs-
ingu, sem birtist í síðasta tbl.
Dags, er upplýst, að þessi
sama vara kostar kr. 3,90 í ný-
lenduvörudeildum KEA hér á
Akureyri. Er því um að ræða
30 aura mismun á kg. frá því
verði, sem verkalýðsfélögin
reikna með. Sjálfsagt virðist
fyrir launþega, hvar í flokki
sem þeir annars standa, að at
huga þessa hlið kjarabótamál-
anna betur en þeir gera nú.
Strásykur mun ekkert eins
dæmi um slíkan verðmismun
hvorki hér í bæ né Reykjavík
Þá er þess að minnast, að
verzlun við kaupfélögin veitir
rétt til endurgreiðslu um ára-
mót, og drýgir það enn hverja
krónu í hendi Iaunþega.
Stjórnmálanámskeiði
F. U. F.lokið
Stjórnmálanámskeiði Félags
ungra Framsóknarmanna hér á
Akureyri var slitið sl. sunnudag
með sameiginlegri kaffidrykkju
að Hótel KEA. Tómas Árnason
stjórnandi og leiðbeindi nám
skeiðsins flutti ræðu. Þá talaði
einnig Þorst. M. Jónsson skólastj
og Vilhjálmur Þorláksson.
Skráðir þátttakendur í nám-
skeiðinu voru samtals 27. Haldnir
voru átta fundir og flutt fimm er-
indi um stjórnmál. Á fundum
námskeiðsins voru fjörugar um-
ræður.
Mikil verðmæti íiggja irndir skemmd-
iim í skipom í höfn - ríkisstjórain
skipar sáttanefnd
Samtímaskák á föstu-
dagskvöldið
Júlíus Bogason skákmeistari
hér í bæ teflir samtímaskák á
vegum Skákfélagsins í Verka-
lýðshúsinu næstk. föstudags-
kvöld kl. 8.30. Utanfélagsmönn-
um er heimilt að taka þátt í
skákinni meðan húsrúm leyfir.
Oskað er að menn hafi með sér
tafl.
Verkfallið, sem hófst um mán-
aðamótin, nær nú til 49 fagfélaga
og til um 18 þúsund manna, að
því talið er. Er verkfallið um-
fangsmest í Reykjavík, en mun
minni þátttaka í því úti á landi.
Hér í bæ hefur verkfallið ekki
enn komið að ráði við daglegt líf
borgaranna, en að því mun reka
innan tíðar. Samgöngur allar á
sjó eru stöðvaðar, liggja strand-
ferðaskipin öll í Reykjavík bund-
in við bryggjur og að auki nokk-
ur skip Eimskipafélagsins og tvö
skip SÍS. Samgöngur á landi
haldast enn meðan tíð helzt og
benzín endist, en geta stöðvast
fyrirvaralítið. Samgöngur í lofti
liggja að verulegu leyti niðri. Þó
mun gert ráð fyrir að flogið verði
2—3svar enn fyrir jól að óbreytt-
um aðstæðum.
Miðar hægt í samkomulagsátt.
Lítið — ef nokkuð — hefur
miðað í átt til samkomulags
þessa síðustu daga. Viðræður
þær, sem fram hafa farið, munu
einkum hafa snúist um að fá svör
við fyrirspurnum um áhrif ým-
issa aðgerða á dýrtíð og kaup-
mátt launa, mun t. d. hafa verið
rætt um möguleika farmgjalda-
lækkunar, tollalækkunar o. s.
frv. Allar slíkar athuganir taka
nokkurn tíma og virðist verk-
fallsforustan ekki hafa gert sér
fullnægjandi grein fyrir því,
hvers hún óskar í þessum efnum
áður en til verkfallsins kom.
Sýnir þetta glöggt, að mjög
misráðið var að verða ekki við
tilmælum ríkisstjórnarinnap um
að fresta verkfallinu meðan slík
athugun færi fram.
Ríkisstjórnin hefur nú skipað
sáttanefnd til að starfa með
samninganefndum deiluaðila og
var fyrsti fundur hennar og full-
trúa deiluaðila í gær. Ekki var
vitað til þess í gærkvöldi í Reykja
vík, að neitt nýtt lægi fyrir í
verkfallsmálinu.
Ýmis félög neita.
Ymis félög hafa þegar neitað að
verða við tilmælum Alþýðusam
bandsstjórnarinnar um samúðar-
verkfall. Auk Iðju hér á Akur-
eyri hefur Hið ísl. prentarafélag
hafnað slíkum tilmælum, enn-
fremur Bílstjórafélag Húsavíkur,
Bílstjórafélagið Hreyfill í Rvík
og Sjómannafélag Reykjavíkur
og einhver töf virðist vera orðin
á því að bílstjórar hér efni til
samúðarverkfalls og er helzt að
heyra að úr því muni ekki verða
í bráð. Ekki eru hér talin öll þau
félög, sem hafnað hafa verkfalls-
beiðni. '
Mikið verðmæti undir
skemmdum.
í höfninni í Reykjavík liggur
m.s. Arnarfell með fleiri hundruð
smálestir af suðrænum ávöxtum
á jólaborð landsmanna og liggja
seir nú undir skemmdum, auk
ress sem tvísýnt fer að verða að
koma þeim út um land héðan af.
í Gullfossi eru öll jólatré lands-
manna, einnig undir skemmdum.
í öllum millilandaskipunum er
póstur til landsins og fæst ekki
afgreiddur, og vekur sú ráðstöfun
furðu, svo að ekki sé meira sagt.
Þá eru togarar og bátar bundnir
hver af öðrum og framleiðslan
fer dagminnkandi,
Akureyrartogurunum lagt.
Togurum Útgerðarfélags Ak-
ureyringa verður lagt jafnótt og
þeir koma að landi. Kaldbakur
kom inn um helgina með saltfisk-
farm og var skipshöfnin afskrráð
(Framhald á 7. síðu).
]ón Ferdinantsson
frá Birningsstöðum
látinn
í gær andaðist hér á sjúkrahús
inu Jón Ferdinantsson bóndi á
Birningsstöðum í Fnjóskadal,
rösklega sextugur að aldri, kunn-
ur bóndi og vinmargur um
byggðir Þingeyinga og Eyfirð-
inga.
Mislingafaraldur
bænum
22% fjarvistir í Barna-
skólanum
Mislingafaraldur hefur geys-
að í bænum að undanfömu og
virðist nú vera að ná hámarki.
Tekur veikin aðallega börn,
enda hafa flestir eldri fengið
mislinga hér um slóðir. Miklar
fjarvistir hafa verið í Barna-
skóla Akureyrar síðustu daga
vegna veikinnar og voru mest
sl. föstudag, en þá vantaði 190
böm, eða um 22% af skóla-
börnum. Voru þétta aðallega
börn úr yngri deildum skólans,
sem og cðlilegt er. í sambandi
við veiki þessa er rétt að minna
foreldra á, að fara varlega með
hörnin og láta þau ekki fara út
og í skóla of snemma. Nokkuð
mun hafa borið á því að undan-
förnu að börnum hefur slegið
niður og munu forföllin að
nokkru leyti stafa af því. Misl-
ingar eru ekki hættuleg veiki
á börnum yfirléitt, en þó eru
þeir varasöm veiki og sjálfsagt
að gæta fyllstu varúðar vegna
möguleika á eftirköstum.