Dagur - 10.12.1952, Blaðsíða 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 10. desember 1952
ÚR BÆNUM:
Svipazt um í verzlunum eítir
hentugri jólagjöf
Á SUNNUDAGINN var jóla-
stemning í miðbænum, einkum í
kringum Kaupvangstorg. Jólasýn-
ingar voru í flestum verzlunarglúgg-
um og birtan frá jólastjörnunni,
sem KEA hefur látið koma fyrir við
Kaupvangstorg, lýsti upp þennan
miðdepil bæjarlífsins. Gjallandi
músík bergmálaði um nágrennið, og
fjöldi bæjarmanna var á rjátli um
aðalgöturnar til jiess að líta á
dýrðina. Mikið bar á börnunum,
bæði stálpuðum, sem horfðu hug-
fangin á ýmsa útstillingarmuni, og
óvitum í kerrum og barnavögnum,
sem feður og mæður ýttu á undan
sér. „Mikil lifandi ósköp eru af
börnunum," varð einum vegfar-
anda að orði, um leið og hann
smeygði sér fram hjá barnavagni á
gangstéttinni. Og satt var það. Það
er vottur heilbrigðrar þróunar —
þrátt fyrir allt — og góðrar lífsaf-
komu þjóðarinnar nú hin síðari ár,
að börnin eru fleiri en fyrrum.
Þannig á það líka að vera. Það er
nóg að gera á íslandi fyrir alla í
fyrirsjáanlegri framtíð.
EN ÞETTA átti ekki að vera
spjall um barneignir heldur um
jólagjafir og búðarvörur. Eg var
enn á ferðinni á suiinudaginn að
skoða • gluggasýningarnar, og á
mánudaginn að líta í búðirnar. Ef
eg ætti að veita verðlaun fyrir beztu
útstillinguna á sunnudaginn var, þá
mundi cg yelja Blómabúð Kl\A.
Þar var. faljegúr bfónnjgarðiir, með
útspriinguum bfóiúuin ven ýmsunr
munum smekklega fyrir komið í
kring. Eg lýsti nokkrum lrlutum,
sem eg 'sá þar, í síðustu viku. Eg
sá núna, að til eru þar Ijómandi
fallegar blómstrandi pottaplöntur,
íyrir viðráðanlegt verð, t. d. Alpa-
fjólur, en að öðru leyti vísa ég til
þess, sem ég sagði í síðasta þætti.
En fleiri útstillingar vorti mjög svo
skemmtilegar. Til dæmis þótti niér
mjög fallega gengið frá nýlendu-
vörudeilcl KEA. Sú búð er jafnan
ein hin snyrtilegasta í bænum.
Menn leita þangað til að kaupa
nauðsynjar fremur en jólagjaíir,
enda er þar mikið úrval af alls
konar matvöru, er til jólanna þarf,
og ýmsar tegundir svo ódýrar ,að
erfitt mun að benda á sambærilegt
verð annars staðar á landinu. En
ýmsar vörur m áþó sjá þar, sem
vel koma til mála sem jólagjafir.
Til dæmis konfektöskjur, sem kosta
frá kr. 15.00 til 75.00, ágæt fröiisk
ilmvötn, sem kosta frá kr. 25.00 til
115.00 glasið, skrautkerti, alls kon-
ar, og úrval af snyrtivörum, ekki
sízt fyrir karlmenn. Ef verkfallið
leysist í tæka tíð, fyllist búðin auk
þess af alls konar suðnenum ávöxt-
um, en fyrir eru þar ótal tegundir
af sælgæti til þess að setja í jólapok-
ana.
ÞEGAR EG leit inn í véla- og
varahluladeild KEA á mánudaginn
var, var þar marga eigulega hluti
að sjá, en ílestir kosta nokkra fjár-
niuni. Eigulegustu hlutirnir eru
heimilisvélarnar, sem ekki verða
yfirleitt gelnar í jólagjöf, nema að
fjölskyldan slái sér saman og gefi
sjáifri sér eitt myndarlegt tæki í
stað þess að hver og eiini sé með
gjöf. Þetta er líka hægt að gera, t. d.
ef íjölskykluineðlimir eru nokkrjr
fullorðnir. Af smærri tækjunum
koma lielzt til greina rafmagns-
vöíílujárnin, sem eru liin mestu
þarfaþing. Kosta þau frá kr. 244.00
upp í 515.00, og eru þau síðar
nefndu sjálfvirk og mjög fullkóm-
in. Bntuðrist'ar' kust.«I'kú. .2<f6,Ofer *- d*
lítlar og handhægar, og stærri,
sjálfvirkar, kr, 436.00. Þá eru hræri-
vélar, ryksugur, strauvélar og svo
framvegis, cn þetta eru allt dýrari
tæki. Af öðrum rafmagnstækjum
má nefna ameríska borð- og stand-
lampa með nylonskermi og svokiill-
uð „fluorescent" ljósarör, sem ryðja
sér til rúms til að lýsa t. d. bað-
lierbergi og eldhús. Þar á meðal
svokallað sólargler, scni ætlað er
fyrir baðherbergi og á að verka sem
Ijósalampi á þann, sem í baðkerinu
cr. Af smærri hlutum, sem mcr leizt
bezt á þarna og nota mætti sem
jólagjöf, man ég helzt eftir raf-
magnsvindla- og vindlingakveikj-
urum, sem eiga að standa á borði
og vera til taks, þegar á þarf að
lialda. Þarf ekki annað en að halla
þeim, til að fá glóð, sem kveikir í
vindli eða vincllingi á augabragði.
Þetta litla áhald kostar kr. 68.30.
Loks má nefna, að þarna er margt
að íinna, sem gengur í augun á
þeim, sem eiga bíl.
EF MAÐUR yfirgaf Kaupvangs-
torg á sunnudaginn — sem þá var
skemmtilegasti hluti miðbæjarins —
og rölti út á Ráðhústorgið, var líka
þar sitt hvað að sjá, flestar verzlan-
ir með jólavarning í gluggunum og
ýmsar skreytingar til þess að minna
á árstíðina. Þó. var ekkert slíkt utan
dyra. Eiiin bjartasti og skemmtilcg-
asti glugginn var í liinni riýju verzl-
un Axéls. Kristjánssonar h.f., sem
vetzlar, incð alls konar málningar-
og járiniirur ■ og sitt hvjtð fleira.
Þessi búð' hfefur fjölbréýttan varn-
ing að bjóða og augsýnilega í þjón-
ustu sinni smekkvísa menn, sem
hafa íág á að gera búðina aðíað-
andi. Kannske læt ég verða af því
að líta þar inn — og í íleiri búðir —
áður en vikan er liðin.
Einn úr liópníim.
Ljósmyndastofan
er opin frá 1—6 alla virka
daga.
G. Funch-Rasmussen,
Gránufélagsgötu 21.
Trúlofunar-
hringar
alltáf fyrirliggjandi.
Sigtryggur og Eyjólfur,
gullsmiðir,
Skipagötu 8, Akureyri. ■
Sími 1524. — Pósthólf 116.
Tómas Árnason
lögfrœðingtir
Hafnarstæti 93, 4. hæð.
Sími: 1443, 1628.
Viðtalstími: Kl. 1.30—3.30.
Laugardaga kl. 10—12.
Fimm manna fólksbifreiö
í ágætu lagi ,til sölu. Verðið
mjög hagstætt.
A fgr. vísar á. <::
BORÐSTOFUSETT
úr eik, birki og níahogny.
Einstök
BORÐSTOFUBORÐ
og stólar.
SKRIFBORÐ
úr birki og eik.
SÓFABORÐ
úr eik, birki og hnolu.
STOFUSKÁPAR
úr birki.
BÓKAHILLUR
úr .eik óg birki.
SKATTHOL
úr birki, mahogny og hnotu.
VERKSTÆÐI ÓLAFS ÁGÚSTSSONAR & CO.
- Sími 1120 -
M.s. Snæfell kom hingað í gær
frá Þýzkalandi og Bretlandi. —
Skipið flutti koks til Þórshafnar
og Raufarhafnar.
Lítið notuð dökk föt
til SÖlll.
Jón G. Sólnes.'
Radíógrammofónn
Frá Húsmæðraskóla Akureyrar
Seljum heimabakaðar kökur fyrir jólin.
Húsmæður, notið tækifærið og sendið pantanir!
i t
★ ★ ★
Námskeið í niatreiðslu, ijtsaum og fatasaum byrja
aftur eftir áramótin.
*
Valgerður Árnadóttir.
Á mánudaginn:
Svartar
modelkápur
VERZLUN B. LAXDAL
Olíukyndingarfæki
Vegna breytinga á npphit-
nn er olíukyndingartæki í
góðu lagi til sölu með tæki-
HOSIERY
Grkn.s/>loaA. (IcjmfaA/Siockn^,
vandaður, amerískur, 10
lampa, til sölu. Bylgjusvi'ð
13—2000 m. Tekur a
skipabylgjur. Nánari t
lýsingar gefur
Viðgerðarstofa útvarpsi.
Ka upvangsstræti.
færisverði.
Vitið þér hvers vegna
Afgr. vísar á.
Nýkomin dönsk
Barna-þríhjót
fyrir.2—6 ára.
Verð 250-300 kr.
Reiðh jólaverkstœði
Hanncsar Halld ó.rssonár,
Hólabraut 19.
Stemin-sokkar
eru mest notaðir á íslandi?
Þeir eru fallegri, enclingarbetri og ódýrari
en aðrir sokkar.
GANGIÐ 1 STERNIN-SOKKUM!