Dagur - 18.11.1953, Page 5
Miðvikudaginn 18.nóvember 1953
D A G U R
5
Siuff sendibréf fii Sveinbjarnar skáids é Draghálsi
Heill og sæll, Sveinbjörn bóndi!
Þú sæmir mig alúðlegu bréfi á
opinberum vettvangi (Dagur, 58.
tbl. þ. á.), og þakka ég þcr fyrir það.
Er skylt, að ég geri þér söniu skil.
Þú ert mér „ekki sannnála um
allt scnr ég nefni“ í ummælum
mínum um Bragfræði þína og
Háttatal. Svo hefur löngum verið,
að „sínum augum lítur hver á sillr-
ið,“ og verður sérhver, er birtir
skoðanir sínar, að sætta sig við það.
En það cr mannlegur háttur að
leitast við að styðja og árétta ntál
sitt gegn andmælum, og ætla ég að
íylgja þeim liætti með þvf að fara
örfáunt orðum um nokkur hcl/tu
andmæli þín. Verð ég þá að tilfæra
eftir þér nokkrar vafasamar setn-
ingar frá nn'nu sjónarmiði og segja
nokkur orð um hvert atriði fyrir
sig:
„Eg taldi hentugra að hafa þessa
bragfræði stutta, liélt hún yrði nógu
leiðinleg samt.“
Að vísu er ritgjörð þín of stutt
til þess að gerð verði í henni „glögg
grein til bragar" eins og Snorri
kemst svo vel að orði. Hitt er þó
lakara, að hún er ekki nógu skipu-
leg. Að ytra útliti sýnist hún aðeins
vera í einum kafla. En vitanlega
bar að hafa afmarkaðan kafla fyrir
hvert höfuðatriði bragfræðinnar. —
Leiðinleg —? Hvort ritgjörð verður
leiðinleg, fer ekki eftir því, hvort
hún er stutt eð'a löng. Þar ræður
mestu um, hvernig hún er rituð.
Enginn skyldi setja það efni á
prent, hvorki langt né stutt, er
hann heldur sjálfur, að verði lcs-
endum leiðinlegt.
„Eg vikii íorðast allt málfræði-
stagl, það tr sanu ílóg af slíku til
Iirellingar og plágu.“
Þessi uunnæli eru samboðnari á-
hugalitlutn skólastrák en þér og
þínum líkum. Vel riluð málfræði
verður aldrei stagl. Okkur Islend-
ingum á að þykja vænt um okkar
dýrmætu málfræði. íslenzk tunga
verður aldrei þróuð og vcrnduð án
liennar. — Aiinárs er mér ekki ljóst,
livers vegna þú þurftir að óttast of
mikið „inálfræðistagl“ í alþýðlegri,
íslenzkri bragfræði, '
„Velja ngttti betra orð en hver-
legi til að sýna þnliö í fornháttum,
en Jietta er nú samt þríliður, smbr.:
„Kerlögur Biilverks er reiddur í
sterklegum liornum." (Jón Hclga-
son).“
Á þetta að vera röksemd? Þú
hlýtur að sjá, að í vísuorðum Ey-
vindar:
Meðan hans ætt
í liverlegi,
hlýtur hverlegi að vera tveir liðir
(enda valið samsett orð); i er for-
liður, og auk forliðar getur vísuorð
í fornyrðislagi aldrei verið styttra
en tveir bragliðir. Enda þckkti Ey-
vindur ekki liugtakið þriliður. Þrí-
liðaháttur var þá enginn til í nor-
rænu bragarmáli. Dr. Jón Helgason
yrkir aftur á móti kvæði sitt undir
þrlliðahœtii, og þar er auðvitað
hvert [jvíkvætt orð lientugt í þrí-
lið, kerlögur sem livert annað. Orð-
ið hverlegi mætti að sjálfsögðu
einnig nota scm þrílið i þriliða-
hcelti. Það hetði Eyvindur skálda-
spillir skynjað, ef liann liefði nú
verið uppi.
„Þér hefur missýnzt nokkuð um
það, sem ég scgi um þríliðanotkun
í rínium. Þú heldur, að ég vilji una
við slík dæmi, sem nefnd eru á bls.
16.
Ekki er svo, að mér hafi missýnzt.
En hitt er satt, að ég veit ekki vel,
livað ég á að halda um liug þinn
til dæmanna. Þú tilfærir þarna þrjú
dæmi með'.röngum áherzlum, cr þú
getur þó ekki iim, en segir á cftir:
„Ekki fer vel á þessu,“ en lieldur
síðan ál'ram og segir, að annað
dæmið sé „beira“ en liitt — og í
bréfi þínu: að þú hefðir þar átt að
segja „skárra". Slík unnnæli í brag-
fræði virðast mér ótæk. Þar á að
segja afdráttarlaust, hvað sé rétt og
hvað sé rangt, hvað hccfl og hvað
óhccft. Þar stoðar ekki að krympa
sér við að grípa á kaununi góö-
skáldanna. Þau hafa ekki öll verið
næsta bragfróð. En sum þcirra liafa
annan sprettinn að engu haft ís-
lenzkar bragreglur; og í slóð þeirra
fara nú „atómskáldin". Góður á-
vöxtur getur ekki sprottið af illu
sæði.
„Að telja höfuðstafina með stuðl-
um cr’ ekki mín uppfinning, al-
menningur gerir þetta, og Jón pró-
fessor Helgason mælir með því
Þar scm ég þekki til hefur al-
menningur stundum kallað alla
rímstafina hlióðstafi (en ekki
stuðla). Enda talar alþýða utn
stuðla og höfuðstafi, eins og ég hef
áður bent á. Hér er ekki um neitt
að villast: Stuðull er stuðull og höf-
uðstafur er höfuðstafur að vitni
Snorra-Eddu og allra fróðra fvrri
manna. Umbylting á því á engan
rétt á sér, hvort sem tillaga um
hana kemur frá almenningi eða
prófessori.
Rangt er hjá þér, að hv í vísu-
brotinu úr KormákssÖgu cigi að
stuðla við kv; þarna á aðeins að
vera einn stuðull í frumlínu. Það
sýnir framhald bögunnar:
Góðr þykkir soðinn mörr
syni Ögmundar."
Hvaða röksemd er þetta? Og
hvaðan er þér runnin sú staðhæf-
ing, að þetta sé rangt hjá mér? —
Fyrst og fremst segi ég hvergi, að
hv í vísuorðinu eigi að stuðla við
kv, heldur sagði ég, að þetta hv
mundi stuðla við k í orðinu ketils.
Um þetta sýnir „framhald bögunn-
ar“ ekkert. Ef við, þú og ég, yrkt-
uni saman vísu með fornyrðislagi,
þá væru víst báðir óbundnir um
það, hvort við hefðum i frumlínu
einn stuðul eða tvo. Sama máli hcf-
ur efalaust gegnt um þá Kormák
og Narfa. Og sízt þurfti Kormákur
skáld að apa sönm stuðlun eftir
Narfa, sem hann metur auðsjáan-
lega lítils, sbr. áframhaldið til
Narfa:
Hvat skalt, orfa Ali,
ófróðr of mat ræða,
— þér vas þeirar kerski
þörf eng við mik, Narfi.
„Ekki var það rétt af Snorra að
krefjast þess, að einn stuðull væri
í frumlínum fornyrðislags. Þetta er
ýniist í fornum kvæðum, svo sem
Völuspá, og réttlætist þannig.“
En ég tel óvit að ætla sér að
knésetja Snorra í þessu etiii. Haun
mun hafa þekkt eðli og skipun
fornyrðisíags miklu betur cn við.
Honum er einnig miklu kunnugri
Völuspá en okkur og veit vel, að í
Völuspá er stuðlað ýmist mcð stuðl-
un fornyrðislags, bálkarlags eða
starkaðarlags. En hann cr að semja
bragfræði, er hann skrifar Eddu,
og seiur fram reglur sínar fyrir því,
hvcrnig eigi að kveða. Hann veit,
að Völuspá cr engin braglræði, né
önnur einstök fornkvæði.
„Eg breytti háttarnafninu Hrynj-
andi í Draghent vegna þess, að orð-
ið hrynjandi liefur öðru verkefni
að sinna en að vera nafn á bragar-
hætti."
Eg vil láta Árna skáld Böðvars-
son um nafnið á hættinum. Það er
algengt í íslenzku máli, að eitt orð
liafi tvær eða fleiri merkingar, og
verður því, liéðan af, varla brevtt.
Eða vildir þú, að við legðum niður
orðið hamar sem heiti á tóli, af því
að það þýðir einnig standbjargt —
Auk þess hygg ég, að Árni liafi
skoðað þetta háttarnafn sitt sem
karlkynsorð, og svo vil ég að það
sé. En hrynjandi sú, er þú scgir að
„liafi öðru verkefni að sinna“, er
kvenkynsorð, og er sá kynferðis-
munur næg skilgreining á orðunum
og merkingum þeirra.
„Fráhendu vildi ég ekki slíta frá
ferskeyttum liætti, vegna þess m. a.,
að í öllum víxlrímuðum bragættum
er til fráh., cn ófært að slíta þær
allar sundur þess vegna.“
„Þetta skil ég ekki vel. Ég álít, að
þú hefðir ekkert „slitið", þó að þú
liefðir farið að dæmi sr. Helga og
haldið Fráhendunni í sérstakri ælt.
Til þess er hún bcrsýnilcga nógu
frábrugðin öllum öðrum bragætt-
um: Fyrsta og þriðja vísuorð, livort
fyrir sig, sér um innrhn, cn helm-
ingarnir aðeins skeyttir saman með
endarími í öðru og fjórða vísuorði.
Ég kýs enga nýja undantekningu
frá því, að ferskeyttur háttur sé
víxlrímaður með endarími. Og þó
að fráhend dæmi kunni að finnast
innan um fornar rímur með fer-
skeyttum hætti, þá kalla ég það
enga sönnun fyrir réttri ættfærslu.
Þetta cru þá einkum athugasemd-
ir mínar út af bréfi þínu. Vona ég,
að það verði okkur ekki að kunn-
ingsskaparslitum, þó að ég vilji
framfylgja skoðunum mínum. Það
er eins og [ni segir, að við þyrftum
að geta ræðzt við. Líklega eigum
við nóg sameiginlegra liugðarefna,
og nóg ágreiningsefna til þcss
að tognað gæti úr tali okk-
ar. En sannarlega þykir mér helzt
til langt að bíða sanifunda okkar
þangað til „í sjöunda himni“. Hitt
væri mér skapfelldara, að við hitt-
umst þegar hér „í holdsvistinni" —
annaðhvort á Oddeyrartanga eða
undir Draghálsi. — Auðna ræður
því sem öðru.
Eiri þér og unni
íslands vættir
heilsu, langlífis,
hróðurs og frama.
Sittu lieill og sæll
með sauðahjörð
í búsælum
Borgarfirði.
Konráð Vilhjálmsson.
Svefnbeddi
sem nýr, til sölu. Tæki-
færisverð.
Uppl. í Ránargötn 19.
(niðri).
Eldri-dansa-ldúbburinn
í Skjaldborg n. k. laugardag
21. þ. m. Hefst kl. 10 e. h.
STJÓRNIN.
Lítill trillubátur
til sölu. Bátur og vél í ágætu
standi.
Afgr. vísar á.
WILLYS JEEP
Viðgerðir
V a r a h 1 u t i r
umboð á Akureyri.
Lúðvík Jónsson & Co.
SÍMI 1467.
BÍöðin „Þjóðviljinn" í Reykja-
vík og■ „Verkamaðurinn" á Akur-
eyri hafa þ. 13. þ. m. birt lesendum
sínum stórorðar og feitletraðar æs-
ingagreinar, þar sem stjórn Sam-
bands Nautgriparæktarfélaga Eyja-
fjarðar (S. N. E.) cr <borin þcim
sökum, að liafa nú nýlega sagt upp
starfsmanni sínum, Bjarna Arasyni,
vegna stjórnmálaskoðana lians. --
Bæði blöðin segja, að þessi starfs-
maður hafi daginn áður, ásamt
fleirum, stofnað svokallað „Þjóð-
varnarfélag Akureyrar“. Þessa þátt-
tiiku starfsmanns síns í framan-
greindu félagi hafi stjórn S. N. E.
ekki getað þolað, og því sagt lion-
um upp starfi sínu þá þegar. En
með þessari uppsögn mánnsins
telja blöðin að liafi verið framið
pólitískt ofbeldisverk og muni mega
vænta fleiri slíkra óhæfuverka hér
um slóðir að undirlagi Framsóknar-
manna.
Þar sem skrif þessara blaða, mál-
færsla þeirra öll og fullyrðingar hér
að lútandi eru að flestu lcyti svo
fjarri sanni, en öll málsmeðferð
þeirra sýnilega gerð í þeim tilgangi
að gera þennan umgetna starfs-
mann að eins konar pólitískum
píslarvotti og jafnframt reyna til
að vekja óánægju og sundrung inn-
an félagssamtaka S. N. E., þá tclur
stjórn S. N. E., að því miður verði
ekki hjá því komizt að skýra þetta
mál í opinberu blaði, og vill því
taka fram eltirfarandi:
1. 1 liinum almennu og algengu
vinnusamningum á milli vinnu-
þiggjenda og vinnuveitenda hefir
hvor aðili um sig rétt til uppsagnar
starfssamnings með þar til greind-
um uppsagnarfresti, svo sem kunn-
ugt er. í liinu umrædda tilfelli liefir
Bjarna Arasyni verið sagt upp starfi
sínu með sex mánaða. fyrirvara í
samræmi við áður gcrðan sanming.
Þetta mun vera það eina, sem satt
er Sagt frá í frásögn umgetinna
blaða varðandi þetta mál.
2. Þjóðviljinn og Verkamaður-
inn hafa í skrifum sínum túlkað
þessa uppsögn sem atvinnukúgun
eða atvinnuofsókn á hendur stjórn-
málalegum andstæðingi og telja, að
ef til vill muni fleiri slíkra ofbeldis-
verka að vænta af hendi Framsókn-
armanna. Máli sínu til stuðnings
segja blöðin, að liinn umræddi
starfsmaður hafi verið rekinn frá
starfi af þeiin ástæðum, að hann
hafi verið einn af stofnendum hins
svokallaða „Þjóðvarnarfélags Akur-
eyrar“ og gerzt ábyrgðarmaður að
blaði [icss.
Ef þetta sjónarniið hefði legið til
grundvallar lyrir starfsuppsögn
mannsins, þá virðist, að legið hefði
beint íyrir að sú uppsögn liefði
komið fram strax, er hann gerðist
þingmannsefni Þjóðvarnarflokksins
sl. vor.
Fullyrðingar þessar og illkvittnis-
legar getgátur í þessu sambandi eru
fjarri öllum sanni, því að öll þau
ár, sem S. N. E. hefir starfað, hafa
ráðunautar þess og aðrir starfsmenn
talið sig til hinna ýmsu stjórnmála-
flokka í landinu, enda hefir aldrei
verið spurt um pólitískar skoðanir
þeirra, þegar þeir liafa verið ráðnir
til starfs.
Eins og kunnugt er, er S. N. E.
samband bænda við Eyjafjörð, og
stofnað og starfrækt til eilingar í
búfjárrækt og framleiðslu og þar
með til bættra afkomumöguleika
bænda. I þessu samstarfi hefur þess
aldrei gætt, þótl pólitískar skoðanir
félagsmannanna væru ólíkar. Og
hjá stjórn S. N. E. hefir það sjónar-
mið eitt ráðið við val starfsmanna,
að lnin teldi mennina störfunum
vaxna og að Jieir ynnu þau jafn-
an af áhuga og skyldurækni.
3. Bjarni Arason, sem S. N. E.
hefir í nokkur ár haft í þjónustu
sinni sem ráðunaut í búfjárrækt og
frainkvæmdarstjóra fyrir sæðiiigar-
stöðina, er að okkar dómi vel gerð-
ur maður að mörgu leyti og ljúf-
menni í allri umgengni. En við
tcljum, að störf hans og áhugamál
hafi að undanfönu, í vaxandi mæli,
beinzt til annarra og óskyldra við-
faiigsefna, er dragi það mikið úr
starfsgetu hans og áhrifum í jiágu
starlsins fyrir S. N. E., að við teljum
nauðsynlegt að fá annan mann í
hans stað, sem geti óskiptur gefið
sig við því starfi.
Ráðunautsstörf hjá S. N. E. hafa,
ekki sízt á síðari árum, orðið það
margþætt og umfangsmikil, að
stjórnin telur óhugsandi, að þessi
þýðingariniklu störf verði rækt svo
vel sé, ncma að sá ntaður, sem til
starfans er valinn hverju sinni,
vilji af heilum liuga og óskiptitr
vinna því máli allt það gagn, sem
hann getur.
4. Framangreindar ákvarðanir
liefir stjórn S. N. E. tekið að mjög
vel athuguðu máli, og munum við,
sem stjórnina skipa, vera reiðubún-
ir, hvenær sem er, til að standa
S. N. E. og félagsdeildum þess
reikningsskap gerða okkar í þessu
máli sem öðru, er félagssamtökin
varðar. — Hins vegar er það ekki
ætlun okkar að taka þátt í deilum
eða svara illkvittnislegum getsökum
frá einstaklingum eða blaðamönn-
um varðandi þetta mál.
í stjórn S. N. E.
Halldór Guðlaugsson.
Ketill S. Guðjónsson.
Jónas Kristjánsson.
Skemmtiklúbburinn
ALLIR EITT
Dansleikur í Alþýðuhúsinu
laugard. 21. þ. m. ld. 9 e. h.
Fclagsskírteini afgr. á laugar-
dagskvöldið frá lcl. 8—9 á sama
stað. — Borð ekki tekin frá.
STJÓRNIN.
JEEP!
varahlutir — viðgerðir,
Umbjóðendur á Akureyri
ÞÓRSHAMAR h.j.
Sími 1353