Dagur - 18.11.1953, Blaðsíða 12
Baguk
12
Efnt til kynningarviku á fram-
leiðsluvörum Sjafnar
Merkar nýjungar í starfi sápuverksmiðjunnar
Hafin er kyningarvika á fram-
leiðsluvörum Sápuverksmiðjunn-
ar Sjafnar hér í bæ, en verksmiðj
an er fullkomnasta sápu- og
hreinlætisvörugerð landsins, var
endurbyggð fyrir fáum árum og
er búin ágætum vélakosti.
Kaupfélag Eyfirðinga hefur gert
sérstaka gluggasýningu af Sjafnar-
vörum í aðalverzlunarhúsi sínu í
miðbænum og auk þess hefur verk-
smiðjan nú sent sýnishorn af hinum
nýju sápuspónum, er verksmiðjan
framleiðir, á livert heimili í bænum
til þess að gefa húsmæðrum kost á
að reyna framleiðsluna.
Ragnar Olason framkvæmdastjóri
Sjafnar, hefur skýrt Degi svo frá,
að sápuspænir liafi náð liinum
miklu vinsældum sínum erlendis
sökum J>ess, að J>eir liafa reynzt
fara sérlega vel með allan við-
kvæman J>vott. Sápuspænir eru,
eins og nafnið bendir til, fyrsta
flokks sápa, sem er flísuð niður, og
er reynslan sú, að spænirnir leysist
fljótar upp en venjuleg sápa og í
J>vott.avélar eru [>eir mjög hentugir.
Sumar húsmæður hér á landi hafa
náð mjög góðum árangri í J>votta-
vélum með J>ví að blanda sarnan
Sólar-sápuspónum og Perlu-J>votta-
dufti. Ragnar kvaðst J>ess fullviss
að íslenzkar húsmæður mundu læra
að meta ]>essa nýju vöru, en í trausti
]>ess hóf Sjöfn fyrst íslenzkra sápu-
verksmiðja framleiðslu sápuspóna,
Fundur í FUF í kvöld
Félag ungra Framsóknarmanna
hér heldur fund í skrifstofu flokks-
ins í Hafnarstræti 93 í kvöld kl.
8,30. Skorar stjórn félagsins á
félagsmenn að mæta og taka með
sér nýja félaga.
sem eru, eins og önnur vara verk-
smiðjunnar, fyllilega sambærilegir
við erlenda spæni og ]>ar að auki
ódýrari.
Nýjungar í umbúðum.
Rágnár var spurður, Kváð
hclzt væri að frétta af starfsemi
Sjafnar, sagði hann, að um ]>essar
mundir væri unnið að því að fá
nýjar og fullkonmar umbúðir um
nokkrar vörutegundirnar. Hann
benti á, að flestar hreinlætisvörur
væru J>ess eðlis, að mikilsvert væri
fyrir húsmæðurnar, sem nota }>ær,
að fá þær í góðum wnbúðum. Sól-
sápan kom fyrst í nýjum umbúðum
hjá Sjöfn, og er nt'i eitt stykki í
hverjum pakka, í stað J>ess að þeirn
var áður pakkað J>rem saman.
Ragnar benti sérstaklega á ]>á
byltingu, sem orðið hefur í með-
ferðf grænsápunnar. Eyrir nokkrum
árum kont hún í döllum í búðirnar
og var tckin úr þeim með tréspöð-
um og sett í pappír. Nú cr hún
fyrst sett í plastpoka og síðan kassa
þar utan um. Eru J>etta nú hinir
þrifalegustu pakkar, sem geta staðið
í búðarhillum eða á borðum heim-
ilanna.
Sjöfn itefur staðizt
samkeppnina.
Fáar iðngreinar hafa orðið fyrir
eins harðvítugri samkeppni frá inn-
fluttum vörum og sápuiðnaðurinn.
En Sjöfn hefur staðizt }>essa sant-
keppni. Salan á vörum verksmiðj-
tinnar hefur aldrel verið meiri en
síðustu tvfi ár, og eru allar horfur
á, að líðandi ár verði sízt verra. —
I>etta traust neytendanna til verk-
smiðjunnar gerir henni kleift að
halda áfram að auka fjölbreytni
frantleiðslunnar og vinna að tak-
marki sínu, sem er að tryggja þjóð-
inni fyrsta flokks viirur fyrir sem
lægst verð.
Fjölmenni heiðraði
séra Sigurð Stefánsson
á 50 ára afmæli hans
Eins og frá var greint í síðasta
blaði varð séra Sigurður Stefáns-
son prestur að Möðruvöllum í
Hörgárdal 50 ára fyrra þriðjudag.
Heimsótti hann fjöldi manna af
því tilefni, úr sóknum hans, héðan
úr bænum og víðar að. Margar
gjafir bárust frá sóknarbömum og
öðrum vinum, margar ræður voru
fluttar og kvæði. Munu á annað
hundrað gestir hafa komið að
Möðruvöllum þennan dag og þágu
allir rausnarlegar veitingar. Séra
Sigurður Stefánsson nýtur óskiptr-
ar virðingar og vinsælda í héraðinu
og kom það glöggt í ljós á þessum
merkisdegi í ævi hans.
Ærin bar 12, nóvember
Það bar til tíðinda hér í bæ
12. nóv. sl., að svört ær, er
Valdimar Arnfinnsson, Hafnar-
stræti 11 á, bar þá um daginn
og átti svarta gimbur, snoturt
lamb. Þessi sama ær bar í maí
sl. og var þá tvílembd, og gekk
hún síðan í venjulegum högum
í sumar.
- Aukin þjónusta á vegum
(Framhald af 1. síðu).
A sunnudag lögðu sex bílar á
heiðina að norðan, en sneru við,
en komust þó suður yfir um
kvöldið.
Og nú eftir helgina hefur um-
ferðin verið svipuð og umbrota-
færð haldist mest allan tímann.
Hér er um að ræða stóra vöru-
flutningabíla, sem flytja varning á
markað og vörur til héraðanna. I
öllum hreppum fjórðungsins bíður
fólk eftir að fá varning úr höfuð-
staðnum — einu innflutningahöfn
landsins — og vegna skipunar sigl-
ingamálanna, gegna flutningarnir
á bílum þýðingarmeira hlutverki i
efnahagslífi landsbyggðarinnar en
nokkru sinni fyrr. Þessir flutningar
munu fara vaxandi, er nær dregur
jólum, ef leiðin verður þá sæmi-
lega fær.
Ytur við heiðarnar.
Ráðstafanir þær, sem vegamála-
stjórnin hefur nú undirgengist eru
í aðalatriðum, að hafa tvær ýtur til
taks við Holtavörðuheiði, norðan
og sunnan heiðar, og fylgjast með
snjólaginu og möguleikum til að
halda veginum greiðfærum. Við
Oxnadalsheiði verður þriðja ýtan
staðsett og gegnir þar Sams konar
hlutverki.
Þrekraun bílstjóra.
Bílstjórar, sem aka flutningabif-
reiðunum, eru ekki í nokkrum vafa
um að þessar ráðstafanir muni
verða til mikilla bóta og til öryggis.
Þeir eru líka manna kunnugastir
því, hvað unnt er að gera til úrbóta
og hvaða ráðstafanir eru líklegar
til að koma að gagni. Annars er
vert að minnast þess, að þeir öku-
menn, sem fara þessa leið með
stóra flutningabila, leysa oft á tið-
um af hendi hina méstu þrekraun,
er þeir eru kannske heilu dægrin
að brjótast yfir heiðarnar í vond-
um veðrum. Ef þörf á þvi, ef unnt
er, að létta einhverju af þvi erfiði
af þeim, því að þetta starf má ekki
fólksins vegna falla niður.
Með þeim aðgerðum, sem nú
eru ákveðnar, er stigið stórt spor í
rétta átt.
Sérstakur íuglaathug-
imardagur í næsta
mánuði
Á sl. ári gekkst Náttúrugripa-
safn rikisins fyrir því að nokkrir
einstaklingar gerðu athuganir á
fuglalífi í nágrenni sínu á sama
degi, sem var 21. des. og var mark-
miðið að afla vitneskju um fugla-
líf að vetrarlagi í ýmsum lands-
hlutum. Samkvæma frásÖgn Finns
Guðmundssonar fuglafræðings í
síðasta hefti Náttúrufræðingsins
gáfu þessar athuganir svo góða
raun, að ákveðið var að halda
þeim áfram og hefur sunnudagur-
inn 20. des. næstk. verið valinn
fuglaathugunardagur í ár. — Óskar
Finnur eftir, að allir er áhuga hafa
á þessum málum, gefi sig fram til
liðveizlu, en skilyrði er, að menn
þekki til hlítar 'islenzkar fuglateg-
undir, þvi að heimildir, sem aflað
er með slíkum athugunum, verða
að vera óvéfengjanlegar. Á sl. ári
tóku 9 menn í ýmsum landshlutum
I þátt í athugunum þessum, en hér
um slóðir aðeins einn, Kristján
Geirmundsson, umsjónarmaður
j náttúrugripasafnsins hér.
Miðvikudaginn 18.nóvember 1953
Tvö Ákureyrarskip lenlu í hrakn-
ingum í ofviðrinu um helgina
Snæfell og Súlan í vanda stödd undan Svörtu-
loftum og á Rreiðafirði
í ofviðrinu, sem geysaði um
Suður- og Vesturland, lentu
mörg skip í hrakningum og
erfiðleikum, fyrir utan það
hörmulega slys, sem varð á
Grundarfirði og annars staðar
er skvrt frá.
Meðal þessara skipa voru vél-
skipin Súlan og Snæfell héðan frá
Akureyri.
Vélbilun í Súlunni.
Vélskipið Súlan, eign Leós Sig-
urðssonar útgerðarmanns, hélt til
síldveiða á Grundarfirði, ásamt
fleiri skipum héðan, en varð fyrir
því óhappi, er 15 mílur voru
ófarnar á síldarsvæðið, að gír í
aflvélinni, er er aðeins 5 mánaða
gömul Listervél, brotnaði. Dró m.s.
Akraborg Súluna inn á Grundar-
fjörð og varð Súlan af síldveiðinni.
Var síðan samið við Utgerðarfélag
KEA að m.s. Snæfell, sem einnig
var á Grundarfirði, tæki skipið í
drátt til Reykjavíkur.
Lentu í veðrinu.
Á sunnudagsmorgun lögðu skip-
in af stað til Reykjavíkur og hafði
Snæfell Súluna í togi. En veður tók
brátt mjög að spillast og er kom
undir Svörtuloft, var ekki unnt
að halda áfram og lögðust skipin
þar. En veðrið versnaði enn og
varð ekki verið um kyrrt þar leng-
ur,enda höfðu dráttartaugar slitnað
hvað eftir annað. Var þá lagt af
stað og var ætlunin að komast til
Ólafsvíkur. En vegna veðurofsans
og erfiðleikanna að draga vélbilað
skip, var óskað eftir aðstoð björg-
unarskipsins Maríu Júlíu, og lagði
það af stað frá Reykjavík, en
komst ekki til hjálpar vegna veður-
ofsans. En Snæfell og Súlan kom-
ust heilu og höldnu til Ólafsvíkur
um miðnætti á sunnudag.
Um nóttina herti veðrið enn, og
slitnaði Súlan þá upp og rak út á
Breiðafjörð. Hélt Snæfell fljótlega
á eftir henni, enda þótt veðurofsi
væri þá mikill. Hafði skipið fengið
lánaða dráttarvíra úr m.s. Selfossi,
sem lá á Ólafsvik. Tókst að koma
þeim í Súluna og draga hana til
Ólafsvskur og var komið þangað
um kl. 2 á mánudag. Voru skipin
úti á Breiðafirði, er mesti veðurofs-
inn gekk yfir á mánudagsnóttina
og mánudagsmorguninn og munu
hafa lent í miklum erfiðleikum.
1 þessum hamförum missti Súl-
an báða nótabátana, en nótin var
í lest og hafði aldrei verið tekin
þaðan. Þá mun yfirbyggings skips-
ins hafa brotnað. Snæfell mun hafa
laskast eitthvað, en ekki alvarlega.
Er vafalaust, að útivistin í óveðri
þessu hefur verið hin mesta þrek-
raun fyrir skipshafnir beggja skip-
anna. Skipstjóri á Súlunni er Björn
Baldvinsson, en á Snæfelli Bjarni
Jóhannesson, báðir búsettir hér í
bæ og alkunnir garpar og dugnað-
armenn. Má samfagna þeim og
skipshöfnum þeirra með giftusam-
leg endalok þessarar erfiðu raunar.
Súlan mun verða dregin frá Ól-
afsvík til Reykjavíkur strax og
veður leyfir.
Hin árlega bókavika
Bókaverzl. Edda efnir um ]>essar
mundir til hinnar árlegu bókaviku,
sem ýerzlunin og ýmsir bókaútgef-
endur gangast fyrir, og verða nú,
að venju, mjög margar bækur á
boðstólum við tækifærisverði.
Vaxandi aðsókn að
æskulýðsheimili
templara
Forstöðumaðlif æskulýðsheimilís
templara að Varðborg, Hermann
Sigtryggsson, hefur skýrt blaðinu
svo frá, að aðsókn unglinga að
æskulýðsheimilinú sé vaxandi. Fá
]>eir aðgangsl^ort að lesstofum og
leikstofum og öðru, er }>ar fer fram,
til þriggja mánaða í senn, fyrir vægt
gjald, og hafa þegar á annað hundr-
að unglingar keypt slík kort. Er
jafnan fjölmenni 1 salarkynnum
þeiip, sem þessari starfsemi er ætluð
í Varðborg, og sagði forstöðumað-
urinn að umgengni væri góð og allt
útlit fyrir að þessi starfsemi nyti
velvildar og vinsælda hjá æskulýð
bæjarins.
Síldveiðin á Akureyrar-
polli orðin 2300 mál
í gær var síldveiði hér á Akur-
eyrarpofli og í grennd orðin 2358
mál og byrjaði Krossanesverk-
smiðjan að bræða í gærmorgun. —
Engin síldveiði hefur verið síðustu
2 dagana vegna óhagstæðs veðurs.
Aflinn skiptist þannuig á skipin:
Gylfi 291 mál, Garðar 973 mál,
Hannes Hafstein 286 mál, Bjarmi
154 mál, Björgvin 243 mál, Von
315 mál og Þorsteinn 86 mál.
Síðustu fréttir af vega-
málunum
í gær voru tvær ýtur komnar að
starfi á Holtavörðuheiði með þeirn
árangri, að bílar fóru yfir lieiðina á
2 klst., sem cr margfalt skemntri
tími en áður var. I>á var og ýta
komin til starfs á Öxnadalsheiði.
Ætti vegurinn til Reykjavíkur því
senn að verða greiðfær flestum
stærri bílum.
Komið er út nýtt hefti af Félags-
tíðindum KEA. — E| þar m. a.
greint frá breytíngu á skipulagi
og starfsem fræðsludeilda félags-
ins, birt greinargerð um horfur í
mjólkursölumálum, rætt um
nauðsyn þess að selja neyzlu-
mjólk einvörðungu í flöskum,
grein um byggðasafnsmálið,
gróðurhús félagsins o. fl.