Dagur - 09.12.1953, Blaðsíða 12
12
Bagub
Miðvikudaginn 9. desember 1953
Brjóstlíkan af Snorra Sigfússyni
afhjúpað 1 Barnaskólanum í gær
Akureyrarbær lét gera myndina - afhendir
Barnaskólanum til varðveizlu
í gær var afhjúpuð í Barna-
skóla Akureyrar brjóstmynd úr
eir af Snorra Sigfússyni fyrrv.
skólastjóra. Gerði Ríkharður
Jónsson myndhöggvari myndina,
en Akureyrarbær réði listamann-
inn til þess og á myndin að varð-
Teitast í Bamaskólanum.
Við athöfnina í gær voru mætt-
ir, auk Snorra Sigfússonar, kennar-
ar skó.lans, Fræðsluráð bæjarins,
forseti bæjarstjórnar og ýmsir
gestir. Formaður Fræðsluráðs,
Brynjólfur Sveinsson mennta-
skólakennari, bauð gesti velkomna
og lýsti tilefni þess, að myndin var
gerð og uppsett í Barnaskólanum.
Fór hann viðurkenningarorðum
um starf Snorra Sigfússonar fyrir
skólamál bæjarins. Þá tók til máls
Þorsteinn M. Jónsson, forseti bæj-
arstjórnar. Avarpaði hann heiðurs-
gestinn og þakkaði honum langt og
ágætt starf í þágu Barnaskólans og
skólamála almennt. Lýsti hann
því, að bæjarstjórn hefði ákveðið
að votta Snorra Sigfússyni þakkir
sínar og virðingu með því að láta
gera eirlíkneski þetta og afhenti
hann það síðan Barnaskólanum til
varðveizlu. Hannes J. Magnússon
Glæsibæjarhreppi
úrskurðaður hluti af
útsvari togaranna
Yfirskattanefnd Akureyrar og
Eyjafjarðar úrskurðaði á fundi
sínum 1. okt. sl., að útsvör Ut-
gerðarfélags Akureyrar h.f. og
Guðmundar Jörundssonar út-
gerðarmanns fyrir árið 1951
skuli skiptast þannig í milli Ak-
eyrar og Glæsibæjarhrepps, að
hreppurinn fái 35000 kr. af út-
svari Ú. A. og 12000 kr. af útsvari
Guðmundar. Á fundi sínum -5. f.
m. ákvað bæjarráð að áfrýja úr-
skurði þessum til ríkisskatta-
nefndar. Mál þetta mun sprottið
af viðskiptum togaranna við
Krossanes á árinu 1951.
skólastjóri veitt gjöfinni móttöku
fyrir hönd skólans og flutti um leið
þakkir samstarfsmanna og stofnun-
ar til Snorra Sigfússonar fyrir starf
hans og alla samveru. Að lokum
kvaddi sér hljóðs Snorri Sigfússon
og þakkaði þann heiður, er honum
var sýndur, og minntist skólans
og hlutverks hans í bæjarlífinu.
Að athöfninni* og afhjúpuninni
lokinni bauð skólinn til kaffi-
drykkju og voru þ’ár einnig ræður
fluttar.
Snorri Sigfússon gegndi skóla-
stjórastarfi hér á Akureyri frá 1930
til 1947, en hefur síðan verið néms-
stjóri í Norðlendingafjórðungi.
100 ára afmælisrit
Akureyrar
Akureyrarkaupstaður á 100 ára
afmæli árið 1962 og var ákveðið
á bæjarráðsfundi 26. f. m. að
leggja til að bæjarstjórn kjósi 4
manna nefnd, ólaunaða, til að
vinna að undirbúningi og sjá um
ritun sögu Akureyrar, er verði
það snemma tilbúin að hún geti
komið út á 100 ára afmæli bæjar-
ins. Sé nefndinni og falið að safna
myndum af mönnum, mannvirkj-
um og atburðum úr sögu bæjar-
ins.
Rithöfundakvöld
í Varðborg
Að tilhlutan félagsheimilis
templara var efnt til rithöfunda-
kvölds í Varðborg s. 1. sunnudags-
kvöld og komu þar fram skáld og
rithöfundar úr bænum. Heiðrekur
Guðmundsson las frumort kvæði,
Guðmundur Frímann las frumort
ljóð og þýðingar, Einar Kristjáns-
son las smásögu og Baldur Eiríks-
son fór méð stökur og ljóð. Því
miður var samkoma þessi lakara
sótt en skyldi því að allt, sem flutt
var, var harla athyglisvert og sumt
ágætt, og skörulega flutt.
Frumsýning annað kvöld
Eigi varð af því að frumsýning
á ameríska gamanleiknum „Fjöl-
skylda í uppnámi“ yrði um sl.
helgi eins og ráðgcrt hafði verið,
en nú er frumsýningin ákveðin
annað kvöld.
Leikstjóri er Guðmundur
Gunnarsson. Síðan verður leik-
urinn sýndur á laugardags- og
sunnudagskvöld, en vafasamt að
fleiri sýningar verði fyrir jól.
Blaðið hefur verið beðið að
vekja athygli fastra frumsýning-
argesta á því, að þeir þurfa að
vitja aðgöngumiða sinna í Bóka-
verzl. Eddu í dag ,ella verða mið-
arnir seldir öðrum. Aðgöngumiða
má panta í síma 1906 kl. 10—12 f.
h., en aðgöngumiðasalan í Sam-
komuhúsinu er opin frá kl. 5 e. h.
leikdagana.
Ráðgerf aS reisa íslenzka krisfni-
boðsstöð í Eþíópíu
Kvikmynd frá landi og þjóð sýnd hér í tilefni af
20 ára afmæli kristnihoðshússins Zíon
Á morguu mun Ólafur Ólafsson
kristniboði sýna nýja kvikmynd
frá Eþíópíu í kristiboðshúsinti
Kvikmynd sú, sem hingað er
komin, lýsir .landi * og þjóð og
Verðlaun fyrir beztu
j
íslenzka stíla á
barnaprófi
Bókaverzlun POB hér í bæ hef-
ur heitið þrennum bókaverðlaun-
um fyrir beztu íslenzku stílana,
sem fram koma á barnaprófum
(lokaprófum) frá Barnaskólanum
hér. Verða verðlaun þessi afhent í
fyrsta skipti á næstkomandi vori.
Ágæt söngskemmtun
Kvennakórs Slysavarna
félagsins
Kvennakór Slysavarnafélagsins
hafði söngskemmtun í kirkjunni sl.
miðvikudagskvöld, til ágóða fyrir
orgelsjóð kirkjunnar. Áskell
Snorrason var söngstjóri, en frú
Þyri Eydal lék undir á píanó. A
söngskrá voru m. a. þrjú lög eftir
söngstjórann. Kvennadeild Slysa-
varnafélagsins hér er einhver at-
hafnasamasti félagsskapur í bæn-
um og vinnur mikið og gott starf
fyrir ýmis mannúðarmál. Það má
kallast þrekvirki að koma upp jafn
ágætum söngkór innan þessa
félagsskapar. Söngskemmtunin bar
þess vott, að kórinn er mjög vel
þjálfaður af söngstjóranum, radd-
irnar vel samstilltar og voru lögin
flutt af smekkvísi. Þessi söng-
skemmtun var kórnum, söngstjór-
anum og félagsskapnum öllum til
sóma. Hefðu áheyrendur mátt vera
fleiri.
Zíon hér í bæ í tilefni af 20 ára
afmæli hússins og til þess að
minna á kristniboðsstarfið, sem
nú er hafið á vegum íslenzku
kristniboðsfélaganna í Eþíópíu.
Eru íslenzku kristniboðarnir
Felix Ólafsson og Kristín Guð-
leifsdóttur nú um það bil að taka
við starfi sínu í Konsóhéraði.
Kristniboðshús verður byggt.
Ólafur Ólafsson skýrði blaðinu
svo frá, að ákveðið væri að byggja
íslenzkt kristniboðshú? í Konsó
eins fljótt og við verður komið.
NÝ BÓK
eftir Margit Ravn
Nýlega er komin út á forlagi
Þorst. M. Jónssonar 24. bók hinn-
ar vinsælu norsku skáldkonu
Margit Ravn. Heitir bók þessi
Elín í Odda og er að efni ekki
ólík fyrri sögum höfundar,
skemmtileg til lestrar og túlkar
hollar lífsskoðanir. Bókin er
prentuð í Prentverki Odds
Bjömssonar og er mjög vönduð
að öllum frágangi. Bókin er 187
bls. að stærð.
fýlgja henni ágætar skýringar á
íslenzku. Má ætla að marga fýsi
að kynnast þessu fjarlæga landi
og þjóðinni, sem það byggir, og er
ágætt tækifæri til þess í Zíon á
morgun.
Vegleg búð opnuð í stór-
hýsi Kr. Kristjánssonar
Síðastl. laugardag var opnuð ný
verzlun hér í bænum, er Bílasalan
h.f. rekur. Er búðin í hinu nýja
stórhýsi Kr. Kristjánssonar við
Geislagötu, og er mjög stór og
smekklega úr garði gerð. Þarna
eru á boðstólum alls konar bif-
reiðavarahlutir, heimilisvélar og
tæki, skrifstofuvéiar o. s. frv., auk
þess stillt út heilum bifreiðum og
er það nýlunda hér í bæ.
Bændaklúbbsfundur
n. k. þriðjudag
Bændaklúbburinn heldur fund
næstk. þriðjudagskvöld á Hótel
KEA. Gísli Kristjánsson ritstjóri
mætir á fundinum og ræðir um
ný viðhorf í nautgriparæktarmál-
um Eyfirðinga.
V innumiðlunarnef nd
„Ættum við ekki að neita líka?“
telur 80-90 mönnum
þörf á bæjarvinnu
Á fundi bæjarráðs 19. nóv. var
rætt um álit vinnumálanefndar
þess efnis, að þurfa mundi vinnu-
miðlun í milli 80—90 manna sam-
kvæmt umsóknum um bæjar-
vinnu, er fyrir liggja og upplýs-
ingum um fjölda manna í bæjar-
vinnu úr miðjum nóv. Upplýst
var á fundinum að vegafé væri
fyrir hendi til að hafa 15 manna
flokk í vegagerð til jóla. Enn-
fremur að hægt væri að koma
öðrum hóp fyrir í vinnu hjá
Vatnsveitunni. Bæjarráð ákvað
að heimila vinnumiðlunarnefnd
að miðla vega- og vatnsveitu-
vinnu til 30—40 manna fyrst um
sinn. Verkamannafélagið hefur
með erindi 2. des. óskað að fjölg-
að verði við bæjarvinnuna upp í
80 manns til jóla og var erindinu
vísað til vinnumiðlunamefndar
til umsagnar.
1
1
)
Þorsteinn Valdimarsson
í Hrísey fimmtugur
Hinn 3. des. sl. varð kunnur
Eyfirðingur, Þorsteinn hreppstj.
Valdimarsson í Hrísey, fimmtug-
ur. Verður hans nánar minnst hér
í blaðinu innan skamms.
Fangaskiptamálin í Kóreu vekja sífellt mikla athygli. Það sannast
nú, að þúsundir manna, sem sendir voru út í stríð af kommúnistum,
eru alls ófúsir að hverfa heim aftur. Er það einsdæmi í sögu seinni
alda og varpar Lirtu á sljórnarhætti og kúgundarástandið í konun-
únistaríkjunum. Skopteiknari VVashington Post birti þessa mynd
nýlega. Fortölumenn kommúnista ræðast við eftir að hvcr fanginn af
öðrum hefur neitað að hverfa heim, og segir annar: „Ætli að ekki sé
vissast fyrir okkur að neita líka?“ Á skrifborðinu er mynd af æðsta-
presti kommúnista um þessar mundir, Malenkov hinum rússneska.