Dagur - 20.01.1954, Síða 1
KOSNIN G ASKRIFSTOF A
Framsóknarmanna er op-
in daglega kl. 10—12 £. h.
1—7 e. h. og frá kl. 8.30
á kvöldin
AGU
B-LISTINN
er Iisti Framsóknar-
manna.
XXXVII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 20. janúar 1954
4. tbl.
Á 50 ára afmæli fluglistarinnar, í sl. mánuði, flugu þrýstiíoftsflug-
\ clai' yfir minnismerki því, sem reist hefur verið á hæð þeirri í Norð-
ur-Karolinufylki I Bandaríkjunum, er Wright-bræður lyftu sér upp
frá í fyrstu flugtilraun sinni, er heppnaðist. Þeir flugu þá 120 fet,
á 12 sek. Þrýstiloftsfiugvélarnar flugu með 700 mílna hraða á klst.
Minnismerki um fyrsta vélflugið
Bændaklúbburinn ræddi dagskrá
úfvarpsins á fyrsta fundi þessa árs
Síðasti fundur Bændaklúbbsins
og sá fyrsti á þessu ári, var hald-
inn að Hótel KEA 12. þ. m.
Ólafur Jónsson sýndi kvik-
myndir frá starfsemi Sameinuðu
þjóðanna og tvær stuttar og
skemmtilegar myndir af dýra-
lífi, skógrækt, skógarvörslu,
skógarhöggi og timburvinnslu
hinna víðáttumiklu skóga á vest-
urströnd Bandaríkja Norður-
Ameríku.
Umræður um daginn og veginn.
Á eftir hófust umræður um
daginn og veginn m. a. um dag-
skrá Ríkisútvarpsins. Þar var
málshefjandi Stefán bóndi Stef-
ánsson á Svalbarði. Lýsti hann
nokkuð hljómleikum er hann var
á í Glasgow, sem aðeins einn
maður — að vísu 3 álnir og 2
þumlungum betur — hélt. Það
var Skoti. Taldist fróðum mönn-
um svo til að hann væri a. m. k.
fimm íslenzkra tónlistarmanna
maki. Hljóðfæri hans var af ein-
kennilegri gerð, Stefáni áður ó-
kunnri.
—o—
í sambandi við fyrirspurnir
um endurvarpsstöðina í Skjald-
arvík, skýrði Davíð Árnason,
stöðvarstjóri, tæknilega aðstöðu
hennar til móttöku og endurvarps
og ráðlagði mönnum, er ekki lík-
ar hljómur í tónum og tali frá
endurvarpsstöðinni að stytta eða
jafnvel taka úr sambandi loftnet-
in. Færi það þó að sjálfsögðu
eftir gerð tækja og fjarlægð frá
stöðinni hvernig loftnet hentuðu
bezt.
Þennan fyrsta Bændaklúbbs-
fund sóttu rúmlega 60 manns.
Ákveðið var að halda fund n. k.
þriðjudag og verður hann nánara
auglýstur í næsta blaði, á laug-
ardaginn kemur.
FUF hefir Framsóknarvisf og dans-
skemmfun í Varðborg annað kvöld
Nýjir dægurlagasöngvarar koma fram
Félag ungra Framsóknar-
manna heldur framsóknarvist
og dans að Varðborg annað
kvöld kl. 8.30 e. h. Haraldur
Sigurðsson stjórnar vistinni og
er þess vænst, að spilað verði
af fjöri á mörgum borðum.
Ágæt spilaverðlaun verða veitt.
Að lokinni Framsóknarvistinni
verður dansað og leikur hljóm-
sveit Karls Adolfssonar fyrir
dansinum. Með hljómsveitinni
syngja nokkrir af hinum nýju
dægurlagasöngvurum héðan úr
bænum, sem mikla athygli hafa
vakið síðustu dagana. Aðgangs-
eyri er mjög stillt í hóf. Öllum
er heimill aðgangur, en sér-
staklega skorað á stuðnings-
menn B-listans að fjölmenna
á þessa skemmtun.
Útgerðarfélag Akureyringa li.f. liefur
sótt um aukið hjallapláss til bæjar-
stjórnar - hyggst Siengja upp 1000
lestum iiieira í vor en í fyrra
Horfur eru á því að verkun voru hengdar upp 1000 lestir, en
Uppfræðslan
í einræðislandi
j Askrifendur að stóru rúss-
nesku alfræðiorðabókinni, sem
I út er gefin af útgáfustofnun
;j ríkisins, fengu nýlega bréf frá
;' útgefandanum með þessari
j! leiðbeiningu: „Útgáfustofnun
I; vísindarita mælir með því að
j! bls. 21, 22, 23 og 24 í V. bindi
!; verði teknar burt, ásamt með
!; myndinni sem er í milli bls.
!; 22 og 23. í þeirra stað verði
;j látnar meðfylgjandi bls. með
nýjum texta. Blaðsíður þær,
j! er að ofan getur, má klippa úr
'! bindinu eða skera þær burtu
!; með rakbláði....“
!; Nýju blaðsíðurnar voru
!; meðal annars mynd frá Ber-
;;ing-hafi, en nýji textinn átti
;j að koma í stað eyðu í BER
;! deild alfræðiorðabókarinnar, í
j! stað blaðsíðna, sem á var
!! prentuð ævisaga Beria og
!| mynd af honum.
8 ungir dægurlaga-
söngvarar vekja
athygli liér
Um s. 1. helgi hafSi hljómsveit
Karls Adolfssonar og Varðborg
skemmtanir í Varðborg og komu
þar fram 8 ungir dægurlaga-
söngvarar héðan úr bænum og
fluttu einsöngva og dúetta með
hljómsveitinni. Hafði unga fólk-
ið æft nokkrum sinnum undir
þessar skemmtanir. Unga fólkið
vakti mikla athygli og var hús-
fyllir bæði laugardags- og sunnu-
dagskvöld. Þessir söngvarar
komu fram: Guðný Aðalbjörns-
dóttir, Anna Hauksdóttir, Óðinn
Valdimarsson, Hannes Aðal-
björnss., Friðrik Blöndal, Hauk-
ur Jakobsson, Jón Stefánsson og
Óli Fossberg. Nokkrir þessara
ungu söngvara munu koma fram
með hljómsveitinni á skemmti-
samkomu, sem FUF heldur í
Varðborg annað kvöld og aug-
lýst er annars staðar í blaðinu í
dag.
Stofnun bændafélags
í gær komu nokkrir bændur
saman til fundar hér í bænum til
að undirbúa stofnun almenns
bændafélags eyfirzkra bænda. —-
Var ákveðið að boða til stofn-
fundar þriðjudaginn 26. þ. m.
skreiðar hér nyrðra eigi mikla
framtíð fyrir sér. Hér er um
nýjung í fiskverkun að ræða hér
um slóðir og var fyrst hert veru-
legt magn af fiski hér á s. 1. vori,
er Útgcrðarfélag Akureyringa lét
hengja upp um 1000 Iestir af fiski
og nokkrir aðrir aðilar talsvert
magn að auki.
Sunnanlands var mjög mikið
verkað af skreið.
Betri vara frá Norðurlandi.
Nú þegar reynsla er fengin af
því að selja vöruna á erlendum
mörkuðum hefur komið í ljós, að
varan frá Norðurlandi — og ekki
sízt héðan úr Eyjafirði — stenzt
ágætlega kröfur kaupenda, en
lakara orð hefur sunnlenzka
skreiðin fengið. Hér veldur miklu,
að veðrátta hér nyrðra er betur
fallin til slíkrar verkunar. Hér er
einna þurrviðrasamast á landinu
og aðstaða til þessarar fiskverk-
unar því ágæt. Þá munar og um
það, að togarafiskurinn er á ýms-
an hátt betur fallinn til þessarar
verkunar en vertíðarfiskur sunn-
anlands, sem talsvert hefur verið
látinn til herzlu. Að öllu saman-
lögðu virðist það samdóma álit
þeirra, sem bezt fylgjast með
þessum málum, að skreiðarfram-
leiðsla hér eigi mikla framtíð fyr-
ir sér og góð verkun skreiðar hér
ó s. 1. ári sé góð undirstáða til að
byggja á í markaðslöndunum.
Aukning framleiðslunnar hér.
Þessi reynsla hefur nú orðið
til þess að Útgerðarfélag Akur-
eyiinga er að undirbúa mikla
aukningu á skreiðarframleiðslu
sinni. Félagið hefur sótt um að fá
á leigu landssvæði á Gleráreyr-
um norðan Glerár og hyggst
koma þar upp hjöllum til viðbót-
ar við þá, sem félagið lét gera
sunnan Glerár á s. 1. ári. Á félag-
ið hér nokkurt hjallaefni sem til
þessa verður tekið og að auki
mun félagið nú útvega meira efni
því að ætlunin er að koma upp
sem fyrst hjöllum sem geta tek-
ið a. m. k. 3000 lestir af blaut-
fiski til herzlu. Með þeim fram-
kvæmdum sem eru ráðgerðar
þegar í vor mun verða hjallapláss
fyrir a. m. k. 2000 lestir. í fyrra
í haust um 1400 lestir og er nú
hafin vinna við að taka þann fisk
niður og flytja í geymslur.
Mikil atvinna við skreiðarfram-
leiðsluna.
Reynslan hefur sýnt, að mjög
mikil atvinna skapast í landi við
skreiðarframleiðslu og eru horf-
ur á nð hún fari vaxandi á þessu
ári. Þá er og þess að geta, að er
togarar veiða fisk til herzlu, gæti
verið hagkvæmt fyrir félagið að
láta bezta hluta farmsins hverju
sinni í hraðfrystihús og styðja
því fyrirætlanir félagsins um
aukna skreiðarframleiðslu hrað-
fiystihússmálið, sem nú er í
höndum félagsstjórnarinnar. Síð-
an félagið eignaðist fjórða skipið,
er svigrúm þess til framkvæmda
af þessu tagi meira en áður. Má
því segja, að með komu fjórða
skipsins hafi möguleikar til auk-
innar atvinnu hér á vegum tog-
araútgerðarinnar mjök aukist og
reynslan sýnir þegar, að þau
kaup voru hin þýðingarmesta
framkvæmd fyrir atvinnulíf bæj-
arins enda þótt allir kæmu ekki
augá á það í upphafi.
Prófessor
Ásmundur Guðmundsson
kjörinn biskup
S. 1. föstudag voru atkvæði í
biskupskosningunni talin og var
Ásmundur Guðmundsson pró-
fessor kjörinn biskup og hlaut
löglega kosningu með 68 og
2/3 atkv., sem er meira en 3/5
atkv., sem til þurfti. Næstur varð
Magnús Jónsson, fyrrv. form.
Fjárhagsráðs, hlaut 45 atkv., og
þriðji próf. Sigurbjörn Einarsson,
hlaut 19 atkv. Alls hlutu 34 menn
atkvæði í kosningunni. Hinn ný-
kjörni biskup er 65 ára gamall,
þjóðkunnur kennimaður og rit-
höfundur.
DAGUR
Vegna vélbilunar í prent-
smiðjunni kcmur þetta blað út
nokkru seinna en vcnja er.
Næsta blað kemur út á laug-
ardaginn kemur.