Dagur - 20.01.1954, Side 7

Dagur - 20.01.1954, Side 7
Miðvikudaginn 20. janúar 1954 D AGU R 7 FOKDREIFAR (Framhald af 4. síðu). hseft konsertpíanó, og er þetta svo mikil afturför frá fyrri tím- um, að óviðunandi er með öllu. I þessu efni þarf að verða breyt- ing hið bráðasta, og á eftir mundi koma meiri tækifæri til þess að hlýða hér á menningarlega hljóm- leika. Þá er komið að síðasta atrið- inu, sem upp var talið hér að framan, málaralistinni. Þar er autt rúm, og það þarf að skipa. Hér er enginn nothæfur sýn- ingarsalur. í MALARALIST hefur gerzt merkileg saga á síðustu áratugum á landi hér. Islenzkir málarar hafa rutt sér braut og hlotið viðurkenn- ingu fyrir íslenzka list, sem með sínum eðlilegu þjóðlegu einkenn- um skipar sess við hlið lista ann- arra þjóða með sæmd. Listasafn ríkisins hefur verið stofnað. Þar er úrval íslenzkra listaverka og sýnishorn af ágætri erlendri list. Listsýningar eru tíðar í höfuð- staðnum og njóta mikillar aðsókn- ar og þroskaðri listasmekk fólks- ins en áður var. Listamenn skipt- ast á að halda sýningar í höfuð- staðnum og fólkið fær jafnframt tækifæri til þess að glöggva skiln- ing sinn á þessum mikilvæga þætti menningarmála og auka þekkingu sína. En fram til þessa aðeins höfuðstaðarbúar. Hér á Akureyri gerizt það örsjaldan, að kunnir Hstamenn efni til sýninga hér, hvað þá heldur að hér hafi verið komið upp sýningu á vegum Listasafna ríkisins, sem þó mætti kallast eðli- legt. Hvað veldur? Áreiðanlega fyrst og fremst sú staðreynd, að hér er ekkert húsnæði nothæft fyrir listaverkasýningu. Þar krepp- ir skórinn. Ef úr því máli væri lyest, mundi hitt koma af sjálfu sér. Kunnir listamenn mundu halda hér sýningar, og úrval lista- verka mundi koma hingað til sýn- ingar fyrir almenning. Mikil vöntun í skólabæ. ÞETTA ER ekkert hégóma- mél. I skólabæ er vöntun á hæfu sýningarhúsnæði óviðunandi á- stand. Á sama tíma, sem skóla- æska höfuðstaðarins hefur æ betri tækifæri til þess að kynnast þess- um þætti menningarmála, skapa sér skoðun og auka þekkingu sína, er þessari þroskabraut nær því lokað úti á landi. Og hvað þarf til? Hæfilegt sýn- ingarhúsnæði þarf aðallega tvennt: Nægilegt veggpláss og ríkuleg of- anljós um þakglugga. Hvorugt finnst í venjulegum samkomuhús- um, sem ætluð eru til skemmtana- halds, kvikmyndasýninga o. s. frv. Veggplássið er þá mest gluggar, og skortir þá hvort tveggja það, sem að ofan getur. En það er í ýmsum tilfellum ekkert stórvirki að breyta þannig samkomusal, að hann geti orðið nothæfur fyrir hvort tveggja. í því efni má t. d. benda á samkomusalinn í Skjald- borg. Með breytingum á honum gæti hann vafalaust dugað fyrir allt í senn, kvikmyndasýningar, almennar samkomur og myndlist- arsýningar, Þarna er aðeins nefnt dæmi, og munu menn sjá, er þeir hugleiða málið, að ekki er um stórvirki að að ræða. Hitt er svo annað mál, hvort framkvæmdin er möguleg af fjárhagsástæðum o. fl. Skylda bæjarins. Hvað sem um það er, verður því ekki á móti mælt með rök- um, að það er skylda bæjarfélags- ins sjálfs að hlynna að menningar- starfsemi í bænum, og væri ekki nema eðlilegt að stuðlað væri að því, með þeim ráðum, sem tiltækileg þættu, að koma hér upp aðstöðu til þess að fólkið í bæn- um fari ekki á mis við þá ánægju og þann þroskamöguleika, sem er því samfara að kynnast góðum listaverkum, og auk þess mundi aðstaða af þessu tagi verða til upplyftingar fyrir þá listastarf- semi, sem hér þróast við hin erfið- ustu skilyrði. Það er því engin fjarstæða að ræða þetta mál og önnur skyld í sambandi við bæjarstjórnarkosn- ingar. I þessum efnum, sem öðr- um, er til farsældar leiða, ber bæj- arfulltrúunum að vera á verði og grípa til sinna ráða, þegar augljós þörf er á umbótum og möguleiki fyrir hendi að framkvæma þær með aðstoð bæjarfélagsins sjálfs á einn eða annan hétt. Bæjar- stjórnir geta hér, sem í öðrum löndum, gert meira en að hugsa um brýnustu nauðþurftir. Ráðhús erlendra bæja, listaverkasöfn og margt fleira af því tagi, sem kom- ið hefur verið upp með sameig- inlegu átaki, votta, að víða er þessi skilningur á hlutverki bæjar- stjórna fyrir hendi. Það er ekki ósennilegt, að þegar árin líða, mundi það verða talin eins merk- ur minnisvarði um þá hina nýju bæjarstjórn, sem nú á að kjósa, að hún hefði greitt fyrir fögrum listum í okkar bæ, þótt hún kæmi í framkvæmd sumum þeim atrið- um, sem sett hafa verið á óska- lista nokkurra stjórnmálaflokka. - Bárður Daníelsson (Framhald af 5. síðu). störfum í starfstíma sínum hjá hinni opinberu stofnim og gyllt boðið með „ókéyþis Ieiðbein-; ingum“, sem stofnunin greiddi honum fyrir að veita. En kjósendur ættu að gera það upp við sig, hvort það eru menn með slíkan ,,heiðarleika“, sem þeir tclja líklega til að uppræta spillingu í opinbcru lífi eða yfirleitt kqmazt til mciri opinbcrra trúnaðarstarfa. Þjóðvarnarflokkurinn ætti að vera lágværari í skrumkröfum sínum um opinberan heiðar- lcika eða líta sér nær. Meðan Bárður Daníelsson og aðrir honum líkir skipa þar hæsta sess, veröur slíkt tal aðeins ncfnt einu nafni: Hræsni á há- stigi. Bárðarmál hin seinni — í gær. Fljótlega eftir að Tíminn hafði birt þessa frásögn, þótti Þjóð- varnarliðum ljóst ,að ekki yrði stætt á framboði Bárðar í Reykja- vík. Afturkallaði hann því fram- boð sitt, og flokkurinn birti yfir- lýsingu þess efnis, að hann væri samþykkur því að Bárðar drægi sig í hlé. Til yfirbreiðslu er svo talað um „opinbera rannsókn“. Virðist ekki mikið að rannsaka. Bréfið — ósamt eiginhandarund- irskrift — hefur verið birt. Dóm- ur almenningsálitsins er þegar fallinn. 1 herbergi og eldhús, eða eldunarpláss, óskast fyrir miðjan febrúar. Til- boðum sé skilað á skrifstofu blaðsins fyrir mánaðamót. Vandað útvarpstæki, — Marconi — lil sölu. fyrir sanngjarnt verð. Haraldur Sigurgeirsson Braunsverzlun. - Sameinaðir stöndum vér (Framhald af 4. síðu). hlotið traust né gengi. Hugðust jeir gera tilraun upp á eigin spýtur og stofnuðu hér Pöntun- arfélag, með góðum stuðningi íhaldsins. En frækornið féll ekki í góða jörð, enda hvorki hlúð að dví af trú né kærleika. Það visn- aði því smátt og smátt. KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA hefur frá upphafi átt því láni að fagna að framsýnir athafnamenn hafa jafnan staðið við stýrið. Hafa þeir á hverjum tíma skilið kröfur og þarfir félagsmanna og hagað starfsemi félagsins eftir jví. Einnig hefur S.Í.S. reist hér umfangsmikil fyrirtæki, sem veita hundruðum manna atvinnu. Eins og fyrr er getið, var Fram- sóknarfl. frá upphafi ætlað, að vera sverð og skjöldur samvinnu- hreyfingarinnar, það hlutverk hefur hann rækt af kostgæfni, enda marga hildi háð og hlotið sigur. Samvinnumenn verða allir sem einn að taka höndum saman gegn þeim öflum, sem á hverjum tíma, leint eða ljóst, vinna gegn samvinnuhreyfingunni. SAMVINNA er stefna fram- tíðarinnar, sem stöðugt verður beitt með betri og betri árangri gegn hvers konar böli, arðráni og ógnum. Við erum sjálf okkar gæfusmiðir. Látum ekki áróður sundrungarmarina verða okkur að fótakefli! Sýnum nú einu sinni í fullri alvöru hvers samvinnan er megnug. Framsóknarfl. hefur einn flokka staðið heill og óskiptur um sam- vinnuhreyfinguna og mun rækja það hlutverk í framtíðinni. Það er skylda okkar að gera aðstöðu hans sem stérkasta, jafnt í bæj- armálum sem landsmálum svo að samvinnuhreyfingin geti óhindr- uð haldið áfram að plægja akur- inn, til hagsbóta og heilla bæjar- félaginu og öllum landslýð. Sameinaðir stöndum vér og sigrum! Orri. íbúð til sölu Efri hæð húseignarinnar Spítalavegur 19 er til sölu. Laus til íbúðar í vor. Ólafur Guðmundsson. Sími 1315. A t v i n n a Stúlka vön saumaskap get- ur fengið atvinnu nú þegar. Saumastofa Björgvins Friðrikssonar s.f. Sími 1596 Ný fata- og dragtarefni tekin upp í hverri viku. Saumastofa Björgvins Friðrikssonar s.f. Sími 1596 * □ Rún — 59541207 — Frl.: I. O. O. F. = 13512281/z — 0 Sunnudagaskóli Akureyrar- kirkju er á sunnudaginn kemur kl. 10.30 f. h. Yngri börnin, 5—6 ára í kapellunni. Eldri börnin, 7 —13 ára í kirkjunni. Æskulýðs- blaðið kemur út. Fundur fyrir allar deildir kl. 5 e. h. í kapellunni næstk. sunnudag. Litmyndir frá Bandaríkjunum og Canada verða sýndar frá kl. 5 til 5.30 á sunnudaginn að Sjónar- hæð, samkoma á eftir. Sunnu- dagaskólinn er kl. 1. Oll börn og unglingar velkomin. Kvennasam- koma kl. 8.30 á miðvikudags- kvöld. Samkoma ungra stúlkna á fimmtud. kl. 6. Drengjasamkoma kl. 5.30 á laugardag. Komið og eigið ánægjulega stund á þessum samkomum. Skemmtiklúbbur Templara heldur skemmtikvöld í Varðborg föstud. 22. þ. m. kl. 8.30 e. h. Til skemmtunar: Félagsvist og dans (söngur með hljómsveitinni: Óð- inn, Jón og Óli). Ný aðgangskort, sem gilda að 3 næstu skemmti- kvöldum, verða seld í Varðboi'g fimmtudaginn 21. þ. m. milli kl. 6 og 7. Ákveðið að veita auðaverð- laun fyrir flesta slagi eftir 6 næstu spilakvöld. S. K. T. . Áheit á Strandarkirk.ju. Kr. 50 frá N. N. — Kr.250 fra G. S. — Kr. 50 frá ónefndum. — Mótt. á afgr. Dags. Fjölmenni heimsótti Pál Magn- ússon afgreiðslumann, Oddeyrar- götu 10, á sextugsafmæli hans 15. þ. m. og mörg heillaskeyti bárust og víða að. Sjötugur er á morgun Bolli Sig- tryggsson á Stóra-Hamri, kunn- ur bóndi í héraðinu og mikils metinn. — í tilefni afmælisins kemur söngkór Munkaþverár- kirkju — en Bolli er form. hans — og fleiri vinir hans — saman að Laugalandi í kvöld. Lögreglan hefur tjáð blaðinu, að svo virðist, sem það fari í vöxt, að hjólreiðamenn vanræki að hafa ljós á stighjólum sínum. Er slík vanræksla háskaleg og getur valdið stórslysum. Verður framvegis reynt að koma í veg fyrir þennan ósóma og þeir, sem af sér brjóta, sóttir til sekta. Hjónaefni. Nýlega hafa opin- berað trúlofun sína ungfrú Halla Benediktsdóttir, Hvassafelli, og Björgvin Runólfsson, Litla-Sand- felli, Skriðdal, S.-Múlasýslu. — Ungfrú Björk Guðjónsdóttir, af- greiðslumær í KEA, og Guð- mundur Þórhallsson, Reykjavík. — Ungfrú Gunnhildur Björgúlfs- dóttir frá Húsavík og Helgi Pálmi Árnason frá Húsavík. — Ungfrú Guðný Magnúsdóttir, hjúkrunar- kona, Akureyrarspítala, og Val- garður Haraldsson, kennari, (verkam. Þoi-valdssonar), Hóla- braut 15 hér í bæ. Hesíamannafél. Léttir sýnir kyikmynd um hestinn fyrir félaga og gesti í Ásgarði, Hafnarstræti 88, í kvöld, miðvikudaginn 20. janúar kl. 9 e. h. Skemmtinefndin. * © -5- I & I I i I l | i HINSTA KVEÐJA til JAKOBS LILLIANDALH frá nokkrum vinum hans Nú horfinn ert þú af heimsins sviði, vér hyggjum að því en skiljum trautt. Hví öxin er lögð að lifsins viði svo limið græna er þegar dautt. Varst gæfumaður til gleði borinn þó gleggst má telja þinn lifsins merg að orð þín stóðu sem stafur skorinn í stál eða íslenzkt f jallaberg. Vér þökkum störfin þín vaski vinur og vinarþelið og glaða lund. Við óskum kærleikans — kæri hlynur — þig kraftur styrki frá lífsins mund. t VK í- H. B. © 1 * <■ ? <r t t © <- i © 4- æ <■ © 4- <■ Nýjar mjaltavélar til sölu, tækifærisverð, nýr rafmótor viðeigandi getur fylgt. A. v. á. Hjólastóll til sölu. Ódýr. Afgr. visar d. Rafmagns-Guitar og vandaður söng-mikra- fónn til sölu. Upplýsingar i sima 1383 JERSEY-PILS JERSEY-KJÓLAR SA UMASTOFAN GRÁNUFÉLA GSG. .11

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.