Dagur - 23.01.1954, Side 1
KOSNINGASKRIFSTOFA
Framsóknarmanna er op-
in daglega kl. 10—12 f. h.
1—7 e. h. og frá kl. 8.30
á kvöldin
XXXVII. árg.
Akureyri, laugardaginn 23. janúar 1954
5. tbl.
Ræðumenn á lundi sluðningsmanna B-listansað Hólel KEAá morgun
Stefán Reykjalín.
Jakob Frímannsson.
Haukur Snorrason.
Þorstcinn M. Jónsson.
Guðmundur Guðlaugsson.
Enn ein nýjung í framleiðsiu samvinnuverksmiðjanna:
Gefjun hefur byrjað framleiðslu
á nýrri fegund ullargarns úr
íslenzkri ull og erlendu undraefni
Álmennur lundur stuSningsmanna
B-lisfans að Hólel KEA kl. 4 á morgun
Rætt um bæjarmálin og kosningarnar
Eins og áður er skýrt frá hér í blaðinu halda stuðningsmenn B-listans í bæjarstjórnarkosn-
ingunum almennan fund á Hótel KEA á morgun klukkan 4 síðdegis. Framsögumenn verða
efstu menn B-listans: Jakob Frímannssoh kaupfélagsstjóri, Þorsteinn M. Jónsson, skólastjóri,
Guðmundur Guðlaugsson framkvæindastjóri, Haukur Snorrason ritstjóri og Stefán Reykja-
lín byggingameistari. Síðan verða frjálsar umræður. — Skorað er á stuðningsmenn B-listans
að fjölmenna á þennan fund.
að úfvega lánsfe lil smáíbúðabygginga
26 Akureyringar hafa þegar fengið smáíbúðalán íijá rík-
inu - 9 umsóknir liggja nú fyrir og verða væntanlega
afgreiddar á j>essu ári
56 lóðum fyrir smáíbúðahús hefur verið úthlutað hér í bæ síðan byggingar samkvæmt lög-
um uin aðstoð við slíka byggingar hófust. Er risið upp nýtt hverfi á Ytribrekkum við göturn-
ar Víðimýri. Engimýri og Karlsmýri. Þegar er flutt í 33 af þessum húsum, 12 eru í smíðum,
þar af 3 Iangt komin, en bygging á 8 lóðum er enn ekki hafin að neinu ráði. Stærð lóðanna
er 400 ferm., húsin eru 80 ferm.
Síðan Gefjun var endurbyggð
og búin nýjum og nijög fullkomn-
um vélakosti hefur verið unnið
að því að endurbæta framleiðslu
verksmiðjunnar og gera hana
fjölbreyttari en áður var.
Hefur þegar náðst mjög mark-
verður árangur í þessu starfi.
Nýjar tegundir garns og dúka
eru sífellt að koma á markaðinn.
Útvarpsumræður
um bæiarmál
n. k. fimmtudag
Samkomulag liefur orðið í
milli flokkanna, sem bjóða
fram lista við bæjarstjórnar-
kosningarnar, að ekki verði
haldinn framboðsfundur íneinu
samkomuhúsi bæjarins en í
þess stað fari fram útvarpsum-
ræða um bæjarmál og hefur
Ríkisútvarpið orðið við ósk
flokkanna að útvarpa frá cnd-
urvarpsstöðinni hér norðan við
bæinn. Útvarp þetta á að hefj-
ast kl. 20.10 fimmtud. 28. þ. m.
og hefur hver flokkur 50 mín-
útur til umráða, sem skiptist í
tvær umferðir, 35 og 15 mínút-
ur. Fundarstjóri verður Jón
Sigurgeirsson kennari. Röð
flokkanna við umræðuna er
þessi: Sjálfstæðisflokkur, Al-
þýðufíokkur, Þjóðvarnarflokk-
ur, Framsóknarflokkur, Sósíal-
istaflokkur.
GriIIongarn.
Nýjasta dæmið um þetta er, að
nú er komið á markaðinn svo-
nefnt Grillon-garn frá verk-
smiðjunni. Þetta garn er úr ís-
lenzkri ull, sem er blönduð með
svissneska undraefninu Grillon
og er nýja garnið bæði mýkra og
mörgum sinnum sterkara en
venjulegt ullargarn.
Gefjun hefur undanfarið gert
margvíslegar tilraunir með blönd
un hinna nýju efna, sem nú ryðja
sér til rúms víða um heim, við ís-
lenzku ullina. Það virðist ætla að
verða niðurstaðan um notkun
þessara efna, svo sem nylon, ray-
on og fleira, að þau séu hentugust
í blöndun við ull, enda haldist
betzu eiginleikar beggja í blönd-
unni. Þessar tilraunir hafa leitt
til hins nýja Grillon-ullargarns,
sem komið er á markaðinn.
Svissnesk uppfinning.
Grillonefnið er svissnesk upp-
finning, og hefur það alla kosti
nylons, nema hvað það er öllu
sterkara. Auk þess tekur Grillon
venjulega ullarliti, sem nylon
gerir ekki, og er það mikill kost-
ur. Af hinu nýja Grillon-Gefjun-
argarni eru þegar komnir á
markaðinn 14 litir. Þetta nýja
garn, og flíkur, sem úr því verða
prjónaðar, hafa alla kosti íslenzku
ullarinnar: sterkar, hlýjar og
hrindir vel frá sér. Auk þess bæt-
ast nú við kostir Grillonsins sem
gera garnið og flíkurnar mýkri
og sterkari. Hefur reynzla þegar
sýnt, að hið nýja garn er sérstak-
lega hentugt í peysur og sokka.
Þetta nýbyggingahverfi er norð-
an Hamarstígs, vestan Byggða-
vegar og eru aðeins fáar lóðir þar
eftir nú. Þá er og búið að úthluta
nokkrum lóðum sunnan Hamar-
stígs og vestan Byggðavegar, og
eru þar stærri hús, ca. 80—120
ferm., og lóðirnar 600 fermetrar.
Þarna eru enn eftir nokkrar lóð-
ir ,en líklegt að um þær verði
sótt fljótlega, því að miltill hugur
virðist í mönnum að byggja og
eru smáíbúðalán ríkisins þar
veruleg hvatning, auk þess sem
byggingalánasjóður bæjarins hef-
ur orðið að miklu liði, en hann
verður með ári hverju öflugri og
þýðingarmeiri fyrir byggingamál
bæjarmanna.
Framsóknarnienn sáu mn að
Iögin væru framkvæmd.
Sjálfstæðismenn hafa reynt að
þakka sínum mönnum smáíbúða-
lánastarfsemina ,og nýlega var
„ísl.“ að tala um „málaefna-
hnupl“ Framsóknarmanna í því
sambandi. Segir blaðið að Sjálf-
stæðismenn hafi flutt málið á
þingi og hafi frumvarp þeirra
orðið að lögum árið 1948. En
hvers vegna hófust ckki Iánin
fyrr en á árinu 1952?
Hvers vegna skýrir íslending-
ur ekki þennan langa drátt? —
Það er ofur skiljanlegt. Smá-
íbúðafrv. var frá hendi Sjálfstæð-
ismanna eins undirbúið og lögin
um aðstoð við byggingar í kaup-
stöðum, sem nýsköpunarflokk-
arnir samþykktu á nýsköpunar-
árunum, en aldrei var ’ fram-
kvæmt.
vegna þess að ekket var
hirt um að útvega fé til
þess.
Það var fyrst eftir að Framsókn-
armenn höfðu tekið málið að sér,
að nokkuð var gert til þess að
gera lagabókstafinn raunhæfan.
í tíð fjármálaráðherra Sjálfstæð-
isflokksins var ekkert fé lagt til
þessara mála.
Það er fyrst eftir að Eysteinn
Jónsson liafði komið fjármálum
ríkisins á kjöl eftir margra ára
(Framhald á 3. síðu).