Dagur


Dagur - 23.01.1954, Qupperneq 8

Dagur - 23.01.1954, Qupperneq 8
8 Bagum Laugardagirm 23. janúar 1954 Fullirúar sósíalísku flokkanna í bæjar- sljórn greiddu atkvæSi gegn fjárhags- áællun bæjarins í heild sinni! Ábyrgðarleysi einkennir afstöðu sósíalísku flokkanna Rafvirkjafélag Akureyrar felur Rafveifuna ganga á rétt fagmanna Skorar á bæjarstjórn að kjósa menn 1 raf veitunefnd „sem bera hag f agmanna og bæjarbúa almennt fyrir brjósti44 Þau tíðindi gerðust á bæjarstjórnarfundi hér 19. þ. m., þar sem fjárhagsáætlun kaupstað- arins fyrir áiið 1954 var endanlega afgreidd, að fjórir bæjarfulltrúa greiddu atkvæði gegn áætluninni í heild (ekki aðeins 1 eins og sagt var í síðasta tbl.). Var fjárhagsáætlunin og þýð- ingannesta ákvörðun bæjarstjórnar á ári hverju samþykkt með 7 atkvæðum gegn 4. Allir fulltrúar Framsóknarmanna og Sjálfstæðismanna greiddu atkvæði með áætluninni, en báðir fulltrúar komm- tinista og báðir Alþýðuflokksfulltrúarnir greiddu atkvæði gegn henni. Vilja skjóta sér undan ábyrgð. Þessi afstaða þessara fulltrúa er raunar í samræmi við aðrar aðgerðir þeirra í bæjarmálum. Minnihluti bæjarfulltrúa kýs fremur að skjóta sér undan ábyrgri afstöðu til mikilvægustu mála, sem bæjarstjórn hlýtur að afgreiða á tilsettum tíma, svo sem fjárhagsáætlun, heldur en koma fram á ábyrgan hátt og viður- kenna, eftir að umræður hafa far- ið fram og tillögur samþykktar, að meirihlutinn hlýtur að ráða að lokum. Kjörnir fulltrúar, sem þannig haga sér, hljóta að vekja þá spurningu í huga kjósend- anna, hvert erindi þeir eigi í stofnanir eins og bæjarstjórn. Og hvernig er félagshyggja og lýð- ræðisást þeirra manna, sem ekki vilja una löglegri ákvörðun meirihluta? Höfðu áður samþykkt meginatriðin. Þessi framkoma öll er enn lakari og ábyrgðarlausari þeg- ar það er haft í huga, að flokk- ar þeir, sem að þessum full- tnium standa — og sumir full- trúarnir sjálfir — höfðu þegar staðið að samþykkt meginatriða fjárhagsáætlunarinnar í bæj- arráði. En þegar allar tillögur þeirra ná Félag ungra Framsóknar- manna hafði framsóknarvist og dansskemmtun í Varðborg í fyrrakvöld og var þar húsfyllir og komust færri að en vildu. Spilað var á 50 borðum, eða eins mörgum og unnt er í sam- komusalnum á Varðborg. Har- aldur Sigurðsson íþróttakenn- ari stjórnaði samkomunni af miklum skörungsskap, en áður en vistin hófst flutti Haukur Snorrason ritstjóri ræðu. Að spilakcppninni lokinni og með- an unnið var úr gögnum um hverjir skyldu hreppa ágæt verðlaun, sem veitt voru, flutti Ásgrímur Stefánsson fram- kvæmdastjóri snjallt ávarp. Að verðlaunaafhendingu lokinni hófst dansinn og var dansað af ekki fram að ganga, snúa þeir við blaðinu, og neita fjárhagsáætlun- inni í heild. Ekki þarf að gera því skóna, að hverju er hér stefnt: Þessum fulltrúum varð fremur hugsað til kosninganna og tæki- færanna til óábyrgs áróðurs og lýðskrums en til skyldu sinnar sem kjörnir fulltrúar að koma fram á ábyrgan hátt í bæjarstjórn. En bjartsýni má það kalla, að kjósendur séu svo dómgreindar- lausir að sjá ekki í gegnum slíkan loddaraskap. Kjósendur hljóta einmitt að spyrja þennan minni- hluta — sem vissulega verður enn minnihluti á næsta kjörtímabili: — Hvert erindi eiga fulltrúar, sem þannig standa að þýðingar- mestu málum, yfirleitt í bæjar- Á almennum bændafundi, sem haldinn var í febrúar sl. ár, var ákveðið að undirbúa stofnun miklu fjöri til kl. 1. Fjórir ung- ir dægurlagasöngvarar komu fram með hljómsveit Karls Adolfssonar, þau Friðrik Blön- dal, Anna Hauksdóttir, Hannes Aðalbjörnsson og Guðný Aðal- björnsdóttir, og var þeim öll- um ágætlega fagnað og urðu að endurtaka sum lögin. Þessi skemmtisamkoma Framsóknar- manna tókst að öllu leyti ágæt- lega enda er nú meiri þróttur í starfi flokksins en oft áðui og spáir góðu um úrslit bæjar- stjórnarkosninganna. Er það mál manna í bænum, er vel fylgjast með, að Framsóknar- flokkurinn sé líklegur til þess að auka fylgi sitt verulega að þessu sinni. Fæðingardeildin á nýja spítalanum tekin til starfa Fæðingardeildin á nýja spítal- anum var tekin í notkun sl. sunnudag og er þar með enn náð merkum áfanga í heilbrigðis- og menningarmálum bæjarfélagsins. Síðan hafa allmörg börn fæðst þar á hinni nýju stofnun. Ljós- móðir fæðingardeildarinnar er Dómhildur Arnaldsdóttir, en deildin heyrir undir handlækn- ingadeildina og Guðm Karl Pét- ursson yfirlækni. x B-listinn Bændafélags Eyfirðinga og kaus fundurinn nefnd manna í því augnamiði, þannig skipaða, að tveir menn voru úr hverjum hreppi úr byggðum Eyjafjarðar. Þriðjudaginn 19. þ. m. kom svo þessi undirbúningsnefnd saman til frekari undirbúnings og ræddi um stefnu og markmið hins vænt- anlega félags o. fl. Voru allir fundarmenn einhuga um að stofna félagið. Fól nefndin síðan' fimm mönnum að ganga frá frumvarpi til laga fyrir Bændafélag Eyfirð- inga og boða til stofnfundar. Þessi fimm manna nefnd hefur nú boðað til stofnfundar þriðju- daginn 26. þ. m. kl. 1 e. h. að Hó- tel KEA, Akureyri. Jafnframt hefur hún ákveðið að taka til umræðu og ályktunar á þessum fundi eitt málefni: inn- flutning nautgripa. í nefndinni eru þessir menn: Eggert Davíðsson, Möðruvöllum, Gunnar Kristjánsson, Dagverðar- eyri, Jóhannes Laxdal, Tungu, Jón G. Guðmann, Skarði, og Árni Jónsson Gróðrarstöðinni. Húsfyllir á skemmfisamkomu Framsóknarmanna í fyrrakvöld stjórn? Sfofnfundur Bændafélags Eyfirð- inga haldinn n. k. þriðjudag Fyrsta mál félagsins verður að ræða um innflutning nautgripa Aðalfundur Rafvirkjafélags Akureyrar, sem haldinn var 20. þ. m., samþykkti áskorun á væntanlega bæjarstjórn í sambandi við kosn- ingu manna í rafveitustjórn, og jafnframt er í ályktuninni og grein- gerð, sem henni fylgir, deilt fast á Rafveituna hér fyrir að sniðganga fagmenn í rafvirkjaiðn. Blaðinu barst ályktunin og greinargerðin frá stjórn félagsins í gær, og fer hvort tveggja hér á eftir: Ályktunin. „Aðalfundur Rafvirkjafélags Akureyrar, haldinn 20. janúar 1954, samþykkir að skora á vænt- anlega bæjarstjórnarfulltrúa, að við kosningu í rafveitunefnd fyr- ir næsta kjörtímabil verði leitazt við að skipa nefndina mönnum, sem bera hag faglærðra manna og bæjarbúa almennt fyrir brjósti. R. F. A. telur, að eins og mál- um sé nú háttað hjá Rafveitu Ak- ureyrar, sé iðnlöggjöfin freklega brotin og réttur fagmanna algjör- lega fyrir borð borinn.“ Ályktuninni fylgdi svohljóðandi greinargerð: „Rafveita Ak. hefur um lengri tíma haft i þjónustu sinni, nær eingöngu, ófaglærða menn og látið þá annast þau störf, sem samkvæmt landslögum eru ein- göngu ætluð faglærðum mönn- um. Stjórn R. F. A. hefur á ýmsum tímum og með mörgu móti leitazt við að fá þetta lagfært. Alltaf hef- ur þetta mætt eindreginni mót- spyrnu rafveitustjóra og annarra forráðamanna Rafv. Akureyrar og eru helztu rök þeirra þau, að rafvirkjar kunni mjög lítið til hinnar sérstöku línuvinnu og strengtenginga, og að til þeirra starfa þurfi meira líkamsþol en til rafvirkjavinnu almennt. En hvað hafa forráðamenn rafveit- unnar gert til þess að þjálfa raf- virkja í þessum störfum? Haust- ið 1952 var í Rvík haldið nám- skeið í kabaltengingum og feng- inn erlendur, sérmenntaður mað- ur til kennslunnar. Þangað var Rafv. Ak. boðið að senda menn. Hún sendi og menn. Tvo gerfi- menn er lítið sem ekkert höfðu unnið að þessum störfum. Nú skildu menn ætla að faglærðum mönnum hefði verið boðin þátt- taka í téðu námskeiði, á eigin kostnað. Því fór víðs fjarri, enda þótt forráðamönnum rafveitunnar væri fullkunnugt um að hópur rafvirkja héðan úr bænum væri staddur í Reykjavík á þeim tíma sem námskeiðið stóð yfir. Eftir þetta hafa þátttakendur frá R. V. A. ekki snert á strengtengingum, hafa sömu gerfimennirnir sem fyrr, annast þær og virðist því ár- angur af þessu námskeiði hafa orðið ærið vafasamur fyrir Raf- veitu Akureyrar. Okunnir mættu nú ætla að þarna kæmi fram lofsverð sparn- aðarviðleitni forráðamanna þess- ara mála. Þessir gerfimenn eru fastlaunaðir og hafa því sem næst fullkomið fagmanna kaup. Það er því auðsætt að ekki er haldið á þessum málum með hagsmuni bæjarbúa fyrir augum. Vér telj- um því kröfu vora mjög sann- gjarna, en hún er' sú að R.V.A. (Framhald á 7. síðu). Agæt listakona sjötug í dag í dag er frú Svava Jónsdótt- ir leikkona sjötug. Hún er barnfæddur Akureyringur, dóttir Jóns Chr. Stephansson- ar timburmeistara og Krist- jönu Magnúsdóttur konu hans. Hún gekk ung á kvennaskóla hér heima, síðan stundaði hún nám erlendis, starfaði við kennslu um hríð, en giftist ár- ið 1903 Baldvin Jónssyni verzlunarstjóra hér í bæ. Frú Svava er þjóðkunn leikkona. Eru nú liðin 54 ár síðan hún hóf að leika hér í bænum og alla tíð síðan, unz hún fluttist héðan fyrir nokkrum. árum, helgaði hún leiklistinni krafta sína. Hún mun hafa leikið hér fleiri hlutverk og oftar en nokk- ur önnur leikkona og naut mik- illa vinsælda fyrir ýmis afrek sín á leiksviði. Leikur hennar ein- kenndist af eðlilegri og látlausri framkomu, ágætri framsögn góðum skilningi á hlutverkunum. Utan bæjar kom hún einnig oft fram, m. a. í höfuðstaðnum, og jafnan við góðan orðstír. — Frú Svava dvelst nú í Bandaríkjun- um, hjá Ottó syni sínum, í Marl- borough, New Hampshire.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.