Dagur - 30.01.1954, Qupperneq 6
D A G U R
Laugardaginn 30. janúar 1954
KULDAÚLPUR
JAKKAR og STAKIÍAR
á börn og fullorna. — Fjölbreytt úrval.
V ef mðarvönideild.
PRJONAFATNAÐUR
PEYSUR
ullar og bómullar, á börn
og fullorðna.
Smábarnafatnaður
miklu úrvali.
Vefnaðaruórudeild
NÝR LAUKUR
Nýjar Rauðrófur utl.
Iíjötbúðir
og útibúin
Miðstöðvavörur
Eftir komu „Dcttifoss“ höfum við allar tcg. af
miðstöðvarvörum 14”—4” og vatnsrör 14”—114”
Miðstöðvadeild KEA.
Skákþing Norðlendinga
hefst á Akureyri mánudaginn 15 febrúar.
Teflt er í öllum flokkum. — Væntanlegir
þátttakendur gefi sig fram við stjórn fél-
agsins fyrir 10. febr. — Skákfélagið mun
greiða fyrir utanbæjarmönnum er sitja vilja
þingið.
STJÓRNIN
Málningavörur allskonar
nýkomnar svo sem:
Olíumálning innanhúss
Olíumálning utanhúss
Olíumálning á skip
Plastmálning
Grunnmálning
Lökk alls konar
Fernis Þurkefni
Terpentína Grænolía
Byggingavörudeild KEA.
r
- Uívarpsumræðurnar um bæjarmál í fyrrakvöld
(Framhald af 1. síðu).
Framsóknarmenn veittu Lax-
árvirkjuninni margháttaða fyrir-
greiðslu. Þessi stœrsta fram-
kvœmd á kjörtímabilinu veitir nú
ómetanleg fyrirheit um aukinn
iðnað og bætta afkomu fyrir bæj-
arbúa og héraðsbúa.
Þá rakti ræðumaður afskipti
Framsóknarmanna af málefnum
Utgerðarfélags Akureyringa allt
frá því að þeir beittu sér fyrir því
að það rekstursform, sem nú
gildir, var upp tekið og bæjarút-
gerðarkröfum sósíalísku hersing-
arinnar hafnað. Hann minnti á,
að það segði nokkuð um afstöðu
samvinnumanna hér til togaraút-
gerðar, að Kaupfélag Eyfirðinga
væri, í gegnum Útgerðarfélag
sitt, lang stærsti hluthafinn í tog-
araútgerðinni, fyrir utan bæjar-
sjóð, og hefði verið frá upphafi.
Ræddi síðan um kaup Harðbaks
og Sléttbaks og sýndi fram á, að
meira en vafasamt væri að þessi
skip hefðu komið hingað ef ekki
hefði notið forgöngu fulltrúa
Framsóknarflokksins.
Þá ræddi hann um flugvallar-
málið, sem jafnan hefur notið
óskoraðs stuðnings fulltrúa
Framsóknarfl., og byggingasjóð
bæjarins, sem var stofnaður að
tillögu Jakobs Frímannssonar. í
umræðunum reyndu Sjálfstæðis-
menn að eigna bæjarstjóranum
heiðurinn af því, en það er nú
i
■upplýst, að hugmyndin að þessari
þarfastofnun var komin frá Jak-
ob Frímannssyni, enda flutti
hann tillöguna um sjóðstofnunina
fyrst í bæjarráði.
Þá ræddi Jakob Frímannsson
um Krossanesverksmiðjuna og
rekstur hennar, um úrbætur í
skólamálum bæjarins og ýmis
fleiri framkvæmdamál.
Framtíðarverkefnin.
Framtíðarverkefni næstu bæj-
arstjórnar taldi hann tvö helzt:
byggingu hraðfrystihúss, ef
rannsókn sýndi að fært væri fyr-
ir Útgerðarfélagið að ráðast í
slíkt fyrirtæki með fulltingi bæj-
arins, og dráttarbraut fyrir tog-
arana, og byggingu hafnarinnar
á Oddeyri. Dráttarbrautarmálið
væri eitt hið mest aðkallandi
framkvæmdamál bæjarins.
Hagur heildarinnar.
í lok ræðu sinnar sagði Jakob
Frímannsson m. a. „Vinna mín 1
bæjarstjórn þessi þrjú kjörtímabil,
sem eg hcfi starfað Jiar, hcfur aldrei
miðast við flokksfylgi. Eg hefi aldrei
vcrið mikill pólitíkus eða ofstækis
fullur flokksmaður. Störfin hefi cg
leyst af hcndi eftir því sem sam-
vizka mín og sannfæring hafa sagt
mcr að licilladrýgst væri fyrir þetta
bæjarfélag. Hefur vafalaust ráðið
mcstu sú lífsskoðun mín, að framar
bcri að líta á framtíðarhag heild-
arinnar cn augnablikshag cinstak-
lings eða félags...."
í lok ræðu sinnar drap Jakob
Frímannsson á árásir Sjálfstæðis-
manna á Kaupfélag Eyfirðinga og
bcnti á nokkrar hclztu veilurnar í
Jtcim málflutningi. í seinni umfcrð
lirakti hann mcð sterkum rökum
ýmsar ádeilur andstæðinganna á
Framsóknarflokkinn hér og störf
hans. Var allur málflutningur hans
riikfastur og prúðmannlegur og
veigamcsta framlagið í þessum um-
ræðum í heild.
Rætt um kjörorð íhaldsins.
Þorsteinn M. Jónsson skólastj.
flutti mjög rökfasta og góða ræðu.
Hann hóf mál sitt á því að ræða
um kjörorð íhaldsins í Jiessum
kosningum, en Jiaö er: Burt með
KEA! Sýndi Þorsteinn fram á, hváð
slíkt kjörorð mundi gilda fyrir af-
komu bæjarfél., ef fram næði að
ganga. Flann leiddi rök að þvf, m.
a. með sögulegum dæmum úr öðr-
um landshlutum, að vöxtur bæjar-
ins hér væri að mestu leyti sprott-
inn af hinum miklu framkvæmdum
samvinnufélaganna. Ef samvinnu-
stefnan hefði ekki náð hér fótfestu
og aðstöðu til að dafna, mundi allt
liér með smærra sniði en í dag. Þá
rakti liann störf bæjarstjórnar og
vcrkefni framtíðarinnar, t. d. í
menningarmálum í helztu atriðum,
og ræddi síðan Jtá blekkingu, að
þeir flokkar, sem vilja koma öllum
atvinnurckstri undir ríki og annað
opinbcrt vald, væru vinstri flokkir.
Loks ræddi hann um þróunina í
búsetu landsmanna og hættuna,
sem stafar af fólksflútningum til
Faxaflóa. Til Jtess að standa gegn
henmi væri bezc treýstandi 'átökum
isarrrvirinufélágsskaþarins'‘ í ' fr'ain-.
kvæmdamálum og ábyrgri og um-
bótasinnaðri stefnu Frafnsóknar-
manna yfirleitt. Var ræðan öll hin
skörulegasta.
Máttur samtakanna.
í ræðu sinni ræddi Guðmundur
Guðlaugsson aðallega unt Krossa-
nesverksmiðjuna og sýndi fram á,
að ef tillögur Framsóknarmanna
um samvinnu bæjar og útgerðar-
manna um rekstur hcnnar liefðu
náð fram að ganga 1946, mundi
verksmiðjan nú skuldlaus eign, og
útvegsmenn hafa haft ntikinn hag
af. Annars staðar í blaðinu í dag
eru aðalatriði ræðu hans um Jjctta
efni birt.
Blckkingar um skattamál.
Haukur Snorrason ræddi aðallega
blekkingar íhaldsmanna um skatta-
mál kaupfélaga, er rakin hafa ver-
ið hér í blaðinu að undanförnit, og
er Jtví ekki Jtörf að endurtaka Jtað
hér. Þá benti hann á hvert stór-
virki samvinnufélagsskapurinn
hefði unnið fyrir bæjarfélagið með
því að starfa að alhliða framförum
í sveitunum. Viðskiptin við sveit-
irnar eru ein af meginstoðum verzl-
unar og atvinnulífs í bænum.
í ræðu allra Frámsóknarmanna
var grunntónriirin, áð'sótt yrði fram
á næsta kjiirtímabili til aukinnar
atvinnu, efnahagslcgs sjálfstæðis
borgaranna-og félagslégrá fram'fara
‘í ériir váxandi mæli.
Akureyringar hættu við að senda
keppendur á skíðaheimsmótið
r
Aðeins Isfirðingar senda keppendur, 7 talsins
Á síðasta skíðaþingi 1953. var
stjórn S. K. í. falið að hefja und-
irbúning að þátttöku Islands í
heimsmeistaramóti á skíðuni, er
fara á fram í Svíþjóð 13. febr. til
7. marz næstk.
Stjórn S. K. f. var frá upphafi
ljóst, að þar sem tekjur sam-
bandsins byggjast einungis á lág-
um félagsgjöldum meðlima þess,
væri því algjörlega um megn að
greiða kostnað af þátttöku í þessu
mikilvæga móti. Sambandið gaf
því öllum skíðaróðum og héraðs-
samböndum innan þess vébanda
kost á að senda keppendur, ef
þau treystust til að bera kostnað
af því, og tilnefndir keppendur
hefðu tilskilda þjálfun fyrir slíka
keppni. Þá sótti sambandið til í.
S. í. um styrk úr utanfararsjóði
til fjárhagslegs stuðnings við
keppendur, en það er eini aðilinn,
er S. K. f. getur sótt til um fjár-
hagslegan stuðning. Er það mál í
athugun hjá stjórn í. S. f.
Aðeins fsfirðingar trcystust
til þátttöku.
ísafjörður, Akureyri og Siglu-
fjörður óskuðu þegar eftir að
koma til greina með að senda
keppendur, og síðar kom sams
konar beiðni frá Ásgeiri Eyjólfs-
syni, Reykjavík. Sú varð svo
ranin, að aðeins fsáfjörður gat
sent keppendur til mótsins og
samþykkti stjórn S. K. f. þátttöku
eftirtalinna kvenna og karla í
mótinu:
Keppendur í svigi ,bruni og
stórsvigi: Martha B. Guðmunds-
dóttir, Jakobína Jakobsdóttir,
Haukur Ó. Sigurðsson, Jón K.
Sigurðsson, Steinþór Jakobsson.
Keppandi í 15 km .og 330 km.
göngu: Oddur Pétursson.
Allir þessir keppendur hafa
dvalið við æfingar í Svíþjóð und-
anfarið.
Svíar sjá um mótið.
Aljnjóða skíðasambandið fól
skíðasambandi Svíþjóðar að sjá
um heimsmeistaramótið. Hefur
verið lögð mikil vinna í undir-
búning þess, enda munu allir
færustu skíðamenn heimsins
mæta þar til keppni. Virðist all-
ur undirbúningur vera með
ágætum undir öruggri stjórn
Sigge Bergman. Mótið hefst í
Falum, en ]jar fer fram keppni í
norrænum keppnum, og stendur
yfir frá 13.—21. febrúar. í Áre fer
svo fram keppni í alpagreinum
og stendur hún yfir frá 27. febr.
til 7. marz.
Taka þátt í Holmenkollenmótinu.
Hátíðlegar setningarathafnir
fara fram bæði í Falum og Áre
og verða fánar keppandi landa
bornir fyrir keppendum. En 25
þjóðir úr 3 heimsálfum hafa til-
kynnt þátttöku.
Allir ofangreindir íslendingar
munu væntahíegá táka þátt í
Holmenkollenmótinu í Noregi.