Dagur - 16.06.1954, Side 7
Miðvikudaginn 16. júní 1954
D A G U R
7
- Landsbankahúsið nýja
Bók um norræn félags-
mál vekur athygli
hjá S.Þ.
Bókin „Freedom and Welfare“,
sem gefin er út á vegum félags-
málaráðuneyta allra NorSurland-
anna, vakti nokkra athygli í að-
alstöðvum Sameinuðu þjóðanna í
New York á dögunum. Tilefni var
það, að Asslaug Aasland, sem er
fulltrúi Norðmanna í Efnahags-
og félagsmálaráði S. Þ., gaf for-
seta ráðsins, dr. Juan Isaa::
Cooke frá Argentínu, eintak af
bókinni. Fröken Aasland, sem er
félagsmálaráðherra Noregs, krri
fram sem fulltrúi allra Norður-
landanna fimm.
Dr. Cooke þakkaði gjöfina r' -3
stuttri ræðu. Hann gat þess, að
náin samvinna væri milli Norð-
urlandanna fimm, og meðal ann-
ars væri það siður að ráðherrar
þessara nági-annaríkja kær.r:
saman við og við til skrafs og
ráðagerða. Það hefði verið á el i-
tun slíkum fundi, 1947, sagði C:
Cooke, „að íslenzki fulltrúinn
har fram þá fyrirtaks hugmync
að öll félagsmálaráðuney':
tækju sig saman og létu rita l V
um félags- og efnahagsmáleúu
Norðurlanda.
Titill bókarinnar, sagði d
Cooke, „Freedom and Welfare'
er táknrænn og eftirtektarverður
í Sameinuðu þjóðunum hefur oft
verið að því vikið, að þessi tvö
hugtök verða að fylgjast að.
Sannleikuririn er sá, sagði dr.
Cooke að lokum, að' mikið af
tíma ráðsins fer í að hjálpa þjóð-
unum til að skiljá þessi tvö hug-
tök, hvaða félagslegt og efna-
hagslegt frelsi er nauðsynlegt til
þess að stjórnmálafrelsi sé ekki
byggt á sandi.
GÓLFTEPPI
Stærð: 1.90X3.00 m. Kr. 980
og 2.40X3.50 m. Kr. 1440.00.
ATH. Nokkur stykki óseld
af hinum glæsilegu
REMO-EXTRA
ullar-gólfteppum.
Stærð: 2.50X3.50 m og
3.00X4.00 m.
Bólstruð húsgögn h.f.
Hafnarstræti 88. Sími 1491.
Sel sterkar nætur
yfir hey.
HALLGRÍMUR,
járnsmiður.
r, ....... ..... ■
(Framhald af 1. síðu).
skrifstofa, snyrting starfsfólks og
fatageymslur, ennfremur liggur
stigi úr bankasal upp á 2. hæð í
kaffistofu starfsfólks.
Bankasalurinn er klæddur ma-
hogníþiljum, og er allur annar
innbúnaður sals úr mahogní,
einnig veggir og húsgögn úti-
bússtjóra.
Loft er klætt hljóðdeyfandi
plötum.
Á afgreiðsluborði eru slípaðar,
íslenzkar grásteinshellur og ann-
aðist það verk Áræll Magnús-
son, steinsmiður, Reykjavík.
Terrasólögn í sal og á aðalstiga
hússins annaðist Kristofersen,
terrasólagningarmaður.
Á annarri og þriðju hæð er
húsrými ætlað fyrir ýmiss konar
skrifstofur, til útleigu. Nú eru á
2. hæð skrifstofur Akureyrarbæj-
ar, a 3. hæð skrifstofur Rafveitu
Akureyrar, Skattstofunnar o. fl.
í risi er rúmgóður salur með
snyrtiklefum og fatageymslum,
ennfremur smáíbúð fyrir hús-
vörð.
Fyrstu tillöguuppdrætti gerði
próf. Guðjón Samúelsson, en
hann lézt er framkvæmdir voru á
byrjunarstigi og tók þá við Bárð-
ur ísleifsson, arkitekt, er hefur
annazt alla uppdrætti síðan og
aðaleftirlit með byggingunni.
Stefán Reykjalín byggingar-
meistari var yfirsmiður bygging-
arinnar og sá um framkvæmdir á
verkinu.
Ólafur Ágústsson húsgagna-
meistari og Ágúst Ólafsson önn-
uðust smíði á öllum innbúnaði í
bankasal og herbei-gjum tilheyr-
andi honum, en uppdrætti að
þeim innbúnaði annaðist Skarp-
héðinn Jóhannsson, arkitekt.
Hita og hreinlætislögn annað-
ist Gestur Pálsson fyrir Bygging-
arvöruverzlun T. Björnssonar, en
Ben. Gröndal gerði uppdrætti.
Raflögn annaðist Elektro Co.,
Akureyri, en Jakob Gíslason raf-
orkumálastjóri gerði uppdrætti.
Smíðajárnshandrið um stiga
annaðist Stefán Stefánsson járn-
smiður.
Járnuppdrætti alla gerði Steinn
Steinsen (bæjarstjóri), verk-
fræðingur.
Skreytingu á súlum gerði Ás-
mundur Sveinsson, myndhöggv-
ari í Reykjavík.
Sjálfvirkur sími er í húsinu.
Að lokum nefndi Ólafur það, að
útibúið hefði nú fengið fullkomn-
ar bókhaldsvélar, og óskaði hann
þess, að betri tæki og bættur
húsakostur yrði til þess að skapa
betri þjónustu í framtíðinni.
Nú var mönnum boðið að ganga
um og skoða húsið. Voru allir á
einu máli og dáðust að hand-
bragði öllu og smekkvísi þeirra,
sem hér hafa að unnið. Síðan var
setzt til borðs og voru bornar
fram veitingar af mikilli rausn.
Voru nú haldnar margar ræður
en stuttar, og stjórnaði Jón Marí-
asson hófinu. Meðal ræðumanna
var Steingrímur Steinþórsson,
landbúnaðarráðherra. Ræddi
hann m. a. um áður greindar
ljóðlínur Matthíasar og sagðist
vonast til þess, að fyrst stjórn
Landsbankans væri ljóst það
misræmi, sem nú væri komið á
milli landshluta, þá veitti hún
fjármagni út á land, meira en
gert væri, til þess að jafna metin.
Það kom glöggt fram í ræðum
manna, að Ólafur Thorarensen
og starfslið hans á óvenju miklum
vinsældum að fagna.
Viðstaddir voru auk þeirra, sem
áður er getið, dr. Kristinn Guð-
mundsson, utanríkisráðherra, og
þeir alþingismennirnir Bernharð
Stefánsson, Jónas Rafnar og Jón
Pálmason.
Um leið og^ Dagur árnar
Landsbankaútibúin'ú heilla með
húsið, þá vill hann taka undir þá
ósk landbúnaðarráðherra, að
meira fjármagni verði veitt hing-
að norður. Þó að Norðlendinga-
fjórðungur fylli aldrei hálft land-
ið sem fyrr, þá má hann enginn
eftirbátur vera.
- íþróttakeppni
(Framhald af 5. síðu).
100 m. hlaup.
C.-riðill.
1. Haukur Böðvarsson MA 11.8
sek.
2. Guðmundur Guðmundsson ÍR
12.1 sek.
B-riðill.
1. Höskuldur Karlss. KA 11.2 sek.
( Akureyrarmet.)
2. Unnar Jónsson ÍR 12.1 sek.
A-riðill.
1. Vilhjálmur Ólafsson ÍR 11.3
sek.
2. Leifur Tómasson KA 11.4 sek.
Kúluvarp.
Skúli Thorarensen ÍR 14.29 m.
Vilhjálmur Einarss. MA 13.59 m.
Kringlukast.
Kristbjörn Þórarinsson ÍR 36.19
Sundkennsla
Vegna Samnorrænu sundkeppninnar, hefst sundkennsla
fyrir konur um miðjan júlí ef nægileg þátttaka fæst.
Tímar eftir samkomulagi. Gjald enn óákveðið. Uppl.
í síma 1250.
ÞÓRHALLA ÞORSTEINSDÓTTIR.
m.
Hjálmar Torfason ÍR 34.59. m
Langstökk.
Vilhjálmur Einarss. MA 6,58 m.
Höskuldur Karlsson KA 6.44 m.
3000 m. hlaup.
Sigurður Guðnason ÍR 9:44.6 mín.
sek.
Kristinn Bergsson (Þór) 10:12.5
mín. sek.
Kirkjan. Hvergi messað næstk.
sunnudag vegna biskupsvígsl-
unnar í Reykjavík.
Möðruvellir í Hörgárdah Mess-
að 17. júní kl. 2 e. h. — Sóknar-
prestur.
Séra Friðrik J. Rafnar hefur
beðið blaðið að geta þess að hann
verði fjarverandi frá fimmtu-
dagskvöldi 17. þ. m til þriðju-
dagskvölds 22. þ. m. — Vottorð
verða afgreidd á skrifstofunni,
Eyrarlandsveg 16.
Hjúskapur. Síðastl. laugardag
voru gefin saman í hjónaband
Elísabet Kemp Guðmundsdóttir,
Tómassonar, Akureyri, og Har-
aldur bæ j arf ógetaskrif ari Sig-
urðsson, Haraldssonar, Akureyri.
Heimili þeirra verður í Hafnar-
stræti 90. — Séra riðrik J. Rafn-
ar vígslubiskup gifti.
Áheit til Strandakirkju. Frá
ónefndum kr. 30.
Áheit á Sjúkrahúsið frá ó-
nefndum kr. 20.00.
Heimili og skóli, 2. hefti þessa
árs, er komið út. Það flytur meðal
annars grein með mynd af hinum
nýja biskupi landsins, herra Ás-
mundi Guðmyndssyni prófessor,
eftir H. J. M., Sparifjársöfnun í
skólum eftir Snorra Sigfússon,
Minningargrein um Ármann
Halldórsson, námsstjóra, eftir H.
J. M., Kvikmyndirnar og börnin
eftir Ellen Siersted, Sigurður
Gunnarsson skrifar um drengja-
skólann við Trönulæk. Auk þess
eru í ritinu nokkrar þýddar
greinar.
Freyr, júlíheftið, er komið til
kaupenda.,5r-.bann. P?'þessu sinni
!helgaður súgþurrkuninni. En um
hana ritar Páll Sigurðsson.
Margar myndir fylgja greininni
og munu bændur telja sér mikinn
ávinning að henni í blaði sínu.
Til nýja sjúkrahússins. Áheit
frá Kristínu Aðalsteinsdóttur kr.
100.00. — Áheit frá A. kr. 100. —
Áheit frá Þorgerði Jónsdóttur kr.
100. — Áheit frá S. J. kr. 25. —
Áheit frá M. . kr. 50. — jöf frá V.
M„ kr. 800. — Gjöf frá gömlum
sjúklingi kr. 100. — Gjöf frá T.
G. kr. 200. — Gjöf frá Kristni
Sigurgeirssyni kr. 100. — Með
þökkum móttekið. G. Karl Pét-
ursson.
Golfkennarinn á vegum Golf-
klúbbs Akureyrar kemur hingað
á morgun, 17. júní. Þeir, sem hafa
í huga að fá kennslu, snúi sér til
Jóhanns Þorkelssonar eða Sigur-
björns Björnssonar.
Orðsending. Félagar í Bílstjóra-
félagi Akureyrar og Bílstjórafél.
Val, sem dvelja vilja í sumarbú-
stað félaganna, Tjarnargerði, í
sumar, snúi sér með umsóknir
sínar til Björgvins Bjarnasonar.
Staðurinn er nú í fegursta sum-
arskrúða og bíður eftir dvalar-
gestum. Búið er að gróðursetja í
landið um 7 þús. trjáplöntur. —
Utvarp og sími í húsinu. Bátur-
inn vaggar sér á vatninu og sil-
ungurinn vakir við ströndina. —
Tj arnargerðisnef nd.
Síðasta gróðursetningarferð
Skógræktarfgél. Eyjafjarðar og
U. M. S. E. verður næsta laugar-
dag að Miðhálsstöðum í Öxnadal.
Gert er ráð fyrir þátttöku frá Ak-
ureyri, Skriðuhr: og úr Öxnadal.
Lagt verður af stað frá Akureyri
kl. 3.20 e. h. frá Hótel KEA.
Athyglisverð sýning á gömlum,
handunnum munum, flestum 50
—200 ára, verður haldin í Hús-
mæðraskólanum á Akureyri um
næstu mánaðamót. Verða þar til
sýnis ýmis áhöld, tóskapur, silf-
ursmíði og fl. frá gamalli tíð. —
Mun mörgum þykja þar fróðlegt
um að litast.
Dánardægur. Elín Aradóttir,
húsfreyja á Jódísarstöðum, and-
aðist að heimili sínu 12. þessa
mánaðar, 87 ára að aldri. —
Elín var kona Kristjáns Jóhann-
essonar pósts, sem flestir eldri
menn a. m. k. kannast við, og
systir Steingríms Arasonar. —
Kristján og Elín bjuggu lengi að
Jódísarstöðum og gerðu jörðina
að stórbýli og þar andaðist Elín
hjá börnum sínum, sem þar búa
nú. Hún var annáluð atorkukona
og vel ern fram á síðustu stund.
Utför hennar verður gerð frá
Munkaþv-erárkirkju 18. þessa
mánaðar.
Slysavarnarfélagskonur, Akur-
eyri. Slysavarnarfélagskonur frá
Akranesi koma í heimsókn til
okkar dagana 24.—27. júní. —
Deildarkonur þær, sem góðfús-
lega vilja aðstóða við móttökurn-
ar, gjöri svo vel að gefa sig fram
við stjórnina.
Barnavagn
notaður til sölu. — Uppl. í
síma 1543 eftir kl. 7 e. h.
Fólksbíll
eldri gerð til sölu. Tæki-
færisverð.
Afgr. vísar á.
& Hugheilar þakkir til vina minna og vandamanna nær %
| °S ííær-> sem heimsóttu mig, sendu mér heillaskeyti og f
? gáfii mér gjafir á sextugsafmæli mínu, 10. júní s. 1.
STEFÁN RAND VERSSON. f
I
I *
b-X vfc'X v'iSX v'nS- O'E vf’Á' ® ^ 't- 13
N
ALLAR FÁANLEGAR
málningavörur
utan og innan húss.
SENDUM HEIM.
Axel Kristjánsson h.f.
Málning & Járnvömr
Brekkug. 1 — Sími 1356