Dagur - 11.08.1954, Síða 6
6
DAGUB
Miðvikudaginn 11. ágúst 1954
- Járnsíðan' og rLjósvíkingurínn'
- Samtal við Gunnar M. Magnúss -
Nýkomið
B
B
(Framhald af 8. síðu).
lín landlæknir sagði við sjúklinga
sína á sínum tíma: Farið þið til
hans Skafta járnsmiðs, þegar eg
er ekki viðlátinn — og hann sagði
það ekki í háði, eða að gamni
sínu, heldur í fullri alvöru, því að
hann treysti Skafta til ýmissa
læknisstarfa.
Járnsmiðurinn í Skagafirði
tók á móti 500 bömum —
og átti sjálfur 30 börn með
3 konum.
Einn frægasti smiðurinn varð
á þessum sviðum Jónas í Hróars-
dal. Hann tók á móti 500 börnum,
en átti sjálfur 30 börn með 3 kon-
um,og mætti af honumsegjalanga
sögu, þótt því verði að sleppa hér
að sinni, því að ekki má eg segja
lesendum Dags alla bókina, áður
en hún kemur út, — segir Gunn-
ar brosandi.
Dómkirkjuorganistinn í
Reykjavík járnaði snögg-
klæddur góðhesta kunningja
sinna, áður en hann gekk í
kirkju á sunnudagsmorgnum.
Þá voru margir járnsmiðir
kunnir á sviðum lista og bók-
mennta. — Jónas járnsmiður
Helgason varð dómkirkjuorgan-
isti í Reykjavík, stofnaði fyrsta
söngkór í Rvík, en hann söng fyr-
ir Kristján IX. 1874, þegar kon-
ungur rétti íslendingum stjórnar-
skrána. Jónas fékk orðu í barm-
inn fyrir vikið. En algengt var
það, að dómkirkjuorganistinn
sást á sunnudagsmorgnum snögg-
klæddur við að. járna góðhesta
vina sinna, sem ætluðu að nota
helgidaginh í útreiðartúr.
— Gunnar nefndi mörg fleiri
dæmi þess, að járnsmiðir ís-
lenzkir hafa verið liðtækir í fleiru
en sinni sérgrein — sannkallaðir
þúsundþjalasmiðir — þótt þau
verði ekki talin hér. — Og al-
kunnugt er það, að Skallagrímur
á Borg, faðir kraftaskáldsins og
hetjunnarEgils, var hvort tveggja
í senn járnsmiður mikill — einn
hinn fyrsti á íslandi — og skáld
gott. Og ekki má heldur gleyma
í þessu sambandi sjálfum Hall-
grími Péturssyni, sem var liðtæk-
ur vel við járnsmíðarnar, enda
lærður járnsmiður, áður en hann
gerðist prestur og sálmaskáld,
svo sem frægt er í sögum.
„Ljósvíkingurinn" lét eftir sig
heila hillu merkilegra dag-
bóka, sem nú eru geymdar í
Landsbókasafninu.
Loks spyr blaðið Gunnar M.
Magnúss, hvort rétt sé það, sem
heyrzt hefur, að hann vinni nú
einnig að ævisögu vestfirzka
draumhugans, sem varð fyrir-
mynd aðalpersónunnar í hinum
mikla sagnabálki Kiljans um Ól-
af Ljósvíking.
— Jú, eg hef undanfarið unniðað
ævisögu Ljósvíkingsins, þ. e. a. s.
Magnúsar Hj. Magnússonar, sem
Kiljan notaði sem fyrirmyrid' að
Ólafi Kárasyni Ljósvíking.
Magnús hefði orðið 81 árs gam-
all í gær, ef hann hefði lifað, en
hann lézt aðeins 43 ára að aldri,
hafði þá skrifað óhemju mikið, t.
d. dagbækur í 24 ár, um 4000 bls.
alls, auk þess safnað sögnum og
skrásett, ort nokkur þúsund
kvæði, kveðlinga og ljóðabréf,
svo að nokkuð sé nefnt af and-
legri starfsemi hans„ og hefur
sumt af því verið prentað, en þó
fæst eitt.
„Ekki allir fara á
kirkjugarðsballið.“
Dagur þakkar Gunnari fyrir
allar þessar upplýsingar og
skemmtilegu sögur. — En í þessu
sambandi rifjast það upp fyrir
okkur, hvernig Laxness skilst við
aðalpersónu sína, Ljósvíkinginn,
á síðustu blaðsíðunum í „Höll
sumarlandsins“, og er það allgott
dæmi um þetta skrítna og
skemmtilega bókmenntaverk í
heild — en það eru fjögur bindi
alls, svo sem kunnugt er: —
„Híf-opp, sagði hinn Eilífi.
Hann hafði legið veikur hjá
systur sinni í nokkra daga, en í
gærkvöldi hafði hann komist á
kreik til að fá sér hoffmanns-
dropa, og var nú aftur í sínu rétta
eðli. Hann var á leið á kirkju-
garðsballið eins og fléiri góðir
menn, og tók skáldið (þ. e. Ólaf
Kárason Ljósvíking) við arm séyr
Ef til vill voru þeir báðir dauð-
ir.
Og eg sem var búinn að yrkja
eftir þig erfiljóð, sagði skáldið.
Hinn Eilífi nam staðar á veg-
inum til að faðma skáldið áð sér
sérstaklega fyrir slíkt véglyndi.
Hversu margir verða ekki að láta
sér lynda að deya nú á dögum án
þess að fá erfiljóð. Svo beygðu
þeir inn í þinghúströðina. Tveir
menn. Og þó í rauninni sami
■maðurinn. Sálin. Það lagði á
móti þeim hressandi kaffilykt frá
kirkjugarðsballinu. Hinn Eilífi
sýndi skáldinu í budduna sína,
hann átti bæði krónupenínga og
tveggjakrónupenínga. Þeir stóðu
leingi í bjarmanum frá gluggan-
um og hlustuðu hugfángnir á
saunglistina og fótatakið af dans-
inum, áður en þeir voguðu sér
leingra.
Haldið ún Gróa hafi skó
hafi skó hafi skó
þá held ég hún verði þvengjamjó
þegar hún fer að trallalla,
hafi skó hafi skó
trallara rallara rallalla —
Ekki allir fara á kirkjugarðsballið
í haust sem hlökkuðu til þess í
vor.
Eftir allt saman var það Ólafur
Kárason Ljósvíkingur sem fór á
kirkjugarðsball, að vísu ekki í
þeim stíl sem ákveðið var í sum-
ar, heldur í nýu lífi, eftir að höll
sumarlandsins er brunnin.“
Og svo lendum við líklega í
málaþrasi við „Stef“ út af því, að
við höfum leyft okkur að birta
þerinan stutfa niðurlagskafla án
leyfis skáldsins eða vitundar!
H0LLYR00Ð
golftreyjur.
H0LLYR00D
peysur.
margar gerðir og litir.
H0LLYR00D
pliseruð ullarjersey-pils.
4 litir.
Verzlunin DRÍFA
Sími 1521.
Afhugið!
Við getum nú boðið yður
þýzka vandaða og ódýra
Vatnskrana
crómaða
Vatnskrana
kopar
Stoppkrana
Skotventla
Gufukrana
Kontraventla
Blöndunartæki
. *. f. bað
Blöndunartæki
f. vaska
Auk þess margar tegundir
miðstöðvarofna
og katla.
Efni til *
vatnslagna og
hreinlætistæki
Rör
Fittings o. fl.
Sendum gegn póstkröfu.
Miðstöðvadeild KEA.
Hringið í síma 1700.
ÍBÚÐ,
2 herbergi og eldhús, óskast
1. október. Þrennt fullorðið
í heimili. Reglusemi heitið.
Húshjálp eða einhver ræst-
ing kemur til greina.
Upplýsingar í síma 1847.
RAFCEYMAR
6 vatta, tvcer stærðir.
RAFGEYMAR
12 vatta, tvœr stærðir.
Véla- og búsdhaldadeild
Barnafatnaður
Sportsokkar,
frá nr. 2—10
Perlonsokkar,
tvær tegundir
ÍBÚÐ
2 herbergi og eldhús óskast
til leigu nú þegar, eða í
haust.
Afgr. vísar á.
V innufatnaður
Gúmmíhanzkar
Sportjakkar 6666
Drengjastakkar
Drengjapeysur
Ásbyrgi h.f.
TILKYNNING
frá Vatnsveitufélagi Glerárþorps
Að gefnu tilefni, og vegna þeirra, er kynnu að vilja
byggja hér í þorpinu, viljum við hér með tilkynna, að
vegna stöðugs vatnsskorts í mörgum húsum hér, getum
við alls eigi, að svo stöddu, leyft fleirum, en þegar hafa
byggt, vatnstöku frá vatnsveitu okkar.
Glerárþorpi, 9. ágúst 1954.
Stjórn Vatnsveitufélagsins.
S'lMl 1998.
og olíugeymar til húsakyndingpr jafnan fyrir-
liggjandi., — 0tvegurn olíukynta katla, elda-
vélar og hvers konar önnur olíukynditæki
með stuttum fyrirvara.
Olíusöludeild KEA.
' Til sölu
er húseign mín við Austurveg, Hrísey, ennfremur tún
í góðri rækt, 1 hektari að stærð. Fylgir því steinsteypt
hlaða og fjárhús.
Tilboð í ofangreindar eignir sendist fyrir 25. þ. m.
til undirritaðs, er gefur allar nánari upplýsingar. Réttur
áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna
öllum.
GÍSLI JÓNSSON, Hrísey.
Hundur,
svartur, með hvítar lappir
og bringu, loðinn, gegnir
nafninu Lappi, tapaðist á
Akureyri. — Finnandi vin-
samlegast geri mér aðvart.
lngólfur Kristjánsson,
Jódísarstöðum.
Masta-reykjarpípur
í mjög fjölbreyttu úrvali.
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeildin.
Veggjadúkur, plast
ýmsir litir, fyrirliggjandi.
Byggingavörudeild KEA.