Dagur - 11.08.1954, Page 8

Dagur - 11.08.1954, Page 8
8 Baguk Miðvikudaginn 11. ágúst 1954 tslenzkir jarnsmiðir slunduSu oft lækn ingar og IjósmóSurslörl í hjáverkum „Járnsíða44 - bókin um þróun járniðn- aðarins - er í smíðum Fyrirmynd Kiljans að Ólafi Kárasyni Ljósvíking skildi eftir sig dagbók upp á 4000 síður Gunnar M. Magnúss rithöfundur dváldi hér í bænum um síðustu helgi þeirra erinda að safna hér heimildum að bók þeirri um hina stórstígu þróun jámiðnaðarins hér á landi, sem hann vinnur að um þessar mundir og gefin verður út í haust. — En Gunnar er kunnur fyrir álík yfirlitsrit, sögulegs eðlis, svo sem Virkið í norðri, Sögu alþýðufræðslunnar á ís- landi o. fl., og er auk þess þekkt skáld og bamabókahöfundur. Samtímis jámiðnaðarsögunni vinnur hann einnig áð ævisögu Vestfirðingsins, sem Hálldór Kiljan Laxness notaði sem fyrir- mynd að aðalpersónu hins mikla sagnaflokks síns um Öláf Kárason Ljósvíking. Helgi bóndi Jónasson á Gvendarsíöðum í Kinn athugar gróðurfar í Strandasýslu - Var 4 daga á leiðinni vestur og jafnlengi heim - Skoðaður legstaður tEöIlskessunnar Kleppu í Trékyllisvík Gunnar M. Magnúss átti nú um hélgina önnur erindi við frétta- mann Dags ,en blaðið greip þá tækifærið að eiga við hann stutt samtal um ritverk þau, sem hann hefur nú í smíðum, og hafði hann margt skrítið og skemmtilegt að segja í því sambandi. Spurði blajíjið fyrst efdr bókinni um sögu járniðnaðarins íslenzka. Mennirnir við steðjann — frá Rauða-Birni og Skálla- grími til vorra daga. Bókin á að heita Járnsíða segir Gunnar, — og er afmælisrit Fé- lags járniðaðarmanna í Reykja- vík, og á að koma út fyrir jólin, enda fyrsti hluti bókarinnar kominn í prentsmiðjuna. Það varð að ráði, að eg skrifaði ekki eingöngu félagsmálasöguna, héld- ur safnaði fróðleik frá fyrri öld- um um mennina við aflinn og steðjann, eftir því sem tök væru á, allt frá Rauða-Birni og Skalla- grími til okkar daga, en nú skipar járniðnaðurinn eina öndvegis- Bæjarstjórn krafin skaðabóta fyrir aur- slettur á húsum vegna umferðarinnar! Ónefndur húseigandi hér í bæ hefur krafizt af bænum skaðabóta fyrir skemmdir á málningu á húsi sínu vegna forarsletta frá bílaum- ferð um veginn framan við húsið. Bæjarráð vildi ekki sinna þessari kröfu, og bæjarstjórn mun vera sömu skoðunar. Krafa þessi mun vera allóvenjuleg, og má vera, áð einhver brosi að henni. En eftir á að hyggja: Satt er það, að ástandið á götunum er hvergi nærri gott, og má vél vera, að það sé sums staðar allsendis óforsvaranlegt, svo að engin fjar- stæða sé að krefja ráðamenn bæj- arins reikningsskapar fyrir spjöll þau, sem stafa af þeirri ráðs- mennsku. En hætt er við því, að slík skaðabótamál reyndust ærið mörg og af ýmsu tagi, ef þetta „prufumál“ yrði unnið. grein iðnaðarins í landinu, með mörgum stórum vélsmiðjum, allt upp í 200 manna fyrirtæki, t. d. vélsm. Héðinn í Reykjavík, sem mun vera stærsta iðnfyrirtæki landsins — a. m. k. á þessu sviði. „Galdramaðurinn með kaldabrasið“ frægur í þjóðsögum, hraktist frá Akureyri og fyrirfór sér vestur :í Húnaþingi á jóladags- morgun. Hér á Akureyri er mikill og ágætur járniðnaður og vélsmiðj- ur margar. Hér hafa einnig áður verið kunnir og ágætir smíða- snillingar. Má nefna Sigurð Sig- ursson, sem þekktur var sem ágætur borgari og merkur maður á mörgum sviðum. — Fyrir miðja 19. öld var hér galdramað- úrinn með kaldabrasið, Baldvin Hinriksson, sem ýmsar þjóðsögur hafa spunnizt um. Hann er enn sá íslendingur, sem hefur hand- fjallað hið margumtalaða kalda- bras, setti saman brotna málm- hluti á svipstundu,ánþessaðsjóða járnið saman eða verma það hið minnsta. Það var svo sem engin furða, þótt um slíkan mann mynduðust undrasögur. Hann lærði í Þýzkalandi, var hér á Ak- ureyri milli 1830—’40, vildi fá að byggja smiðju og helzt einnig stofna verzlun hérna inni í „Fjör- unni“, en þrátt fyrir ítrekaða beiðni var honum synjað um þetta. Hann hvarf þá suður, reisti smiðju í Reykjavík 1843. Hann var drykkjumaður, vanheill á geðsmununum og fyrirfór sér á jóladagsmorgun, er hann var staddur í Húnavatnssýslu hjá bróður sínum, er var prestur á Bergsstöðum í Svartárdal. Ut af sjálfsmorðinu hafa einnig mynd- azt sagnir, sem kunnar eru. — Sækið þið járnsmiðinn, ef eg er ekki viðlátinn — sagði landlæknirinn. Vafalaust kennir margra grasa í fróðleiknum um járniðnaðar- mennina fyrr á dögum. Það er t. d. eftirtektarvert, hversu margir járnsmiðir voru læknar og yfir- setumenn. Eg get nefnt a. m. k. 10 kunna járnsmiði á 19. öld, sem stunduðu lækningar með góðum árangri, voru sóttir til sængur- kvenna og voru stundum aðstoð- armenn lærðra lækna. Margir smíðuðu þeir fæðingartengur, þeg ar á þurfti að halda. Jón Hialta- (Framhald á 6. síðu). Hvað fafði úthlutun inn- flufriingsleyfa fyrir vörubíla? Tíminn skorar á MorgunJ blaðið að gefa afdráttarlaust svar. Morgunblaðið heldur áfram að skamma Tímann fyrir það að hafa krafizt þess undanfarná mánúði, að ekki yrði dregið leng- ur að úthluta innflutningsleyfum fyrir vörubíla. Telur Mbl. að eðlilegar ástæður hafi valdið því, að ekki var hafizt handa um út- hlutun. — Morgunblaðið hefur þó ekki gert gréin fyrir því enn þá, hverjar þessar „eðlilegu" ástæður voru. Voru þær kannske þær, að Sjálfstæðismenn vildu leggja skatt á vörubílana, eins og fólks- bílana, og töfðu úthlutnina í því trausti að geta knúið fram þá skattlagningu. Tíminn hefur skor að Morgunbl. að gefa skýr og afdráttarlaus svör við þessari spurningu og telja fram hinar ,,eðlilegu“ ástæður sínar. (Framhald af 1. síðu). landi og þátttöku fslands í Atl- antshafsbandalaginu, segir hið brezka blað. — Og þar sem Rúss- ar séu nú orðnir hinir einu sönnu vinir íslendinga, að þeir sjálfir telja, ætlast þeir auðvitað til þess í sambandi við öll þessi viðskipti og vináttu, að íslendingar láti sig ekki muna um það, að sparka í endann á Bandaríkjamönnum og reki sem snarlegast slíkan lýð af höndum sér. Enda hefur það far- ið svo, segir blaðið, — að undir- róðurinn gegn verndarliðinu í Keflavík hefur magnazt mjög síð- asta misserið. Setur greinarhöf- undur komu Ismay lávarðar hingað til lands fyrir skemmstu í beint samband við allt þetta ástand og bollaleggur um það á ýmsa lund. Loks klykkir hann út grein sína — sem hér hefur aðeins verið endursögð lauslega, og í stórum dráttum —- á þessa leið: — „Allir, sem eg átti orðastað við á fslandi, fullvissúðu mig um það, að ríkisstjórnin mundi halda fast við samninga þá sem Hélgi Jónasson bóndi á Gvend- arstöðum í Kinn í Suður-Þing- eyjarsýslu, er nýkominn úr ferðalagi í Strandasýslu, þar sem hann safnaði plöntum og athug- aði gróðutfar. Náði blaðið tali af honum á (laugardagsmorguninn, en þá var hann rétt kominn til bæjarins og var á heimleið. Þar sem telja má til tíðinda, að bóndi taki sig upp á miðjum slætti og fari grasafræðileiðangur í annan landshluta, var hann inntur frétta að vestan. ;Helgi áleit ekki skynsamlegt að segja blaðamanni mikið, en rif jaði þó í stórum dráttum upp ferða- söguna, eftir að hafa fengið loforð um að engu yrði á sig eða aðrá logið. Seinfarið vestur á Strandir. Hélgi fór að héiman 15. júlí og tók far méð Skjaldbreið til Djúpavíkur. Tók ferðin 4 daga — með viðkomu á Raufarhöfn, og þótti honum heldur seint ganga. Aðra 4 daga tók heimferðin, og fóru því 8 dagar í ferðalagið fram og til baka. :Frá Djúpuvík til Norðurfjarðar. Gestrisni og fyrirgreiðsla með ágætum. Frá Djúpvík var haldið inn í Reykjarfjörð. Þaðan til Naust- víkur. Þá var farið frá Naustvík gerðir voru við Atlantshafs- bandalagið fyrir fimm árum. Má vera, að svo reynist og, cn ef.til vill hafa Hull og Grimsby gert henni fremur erfitt fyrir að þessu Ieyti.“ „Öðruvísi mér áður brá.“ Greinin í „Fishing News“ verð- ur ekki rakin hér nákvæmlega í þetta sinn. En þar er vitnað mjög rækilega til forustugreinar, er „Tíminn" birti fyrir skömmu, þar sem máistaður okkar íslendinga í landhelgismálinu og löndunar- deilunni er túlkaður mjög skelegg lega. Birtir hið brezka blað marg- ar orðréttar tilvitnanir — þýdda kafla — úr þeirri grein, án þess að hreyfa nokkrum andmælum af sinni hálfu, eða draga úr áhrif- um greinarinnar á nokkra lund. Allt þetta bendir síerklega í þá átt, að Bretar séu nú teknir mjög að ugga um sinn hag í sambandi við deilu þessa, þyki nú orðið að henni lítil fremd, enda geti hún jafnvel haft miður þægileg stór- pólitísk eftirköst fyrir þá sjálfa og bandamenn þeirra. til Trékyllisvíkur og alla leið til Norðurfjarðar. Var á þessari leið ýmist ferðast á hestum eða bátum, þegar ekki var farið fótgangandi. Gat Helgi þess, að fyrirgreiðsla hefði verið með ágætum og viðtökur alls staðar framúrskarandi hjá Strandamönnum. Tíminn var notaður eins vel og verða mátti til rannsókna á gróð- urfarinu, og plöntum safnað. Ekki kvaðst hann hafa 'fundið nýjar jurtir þar vestra, en nokkrar, er eigi hafa fundizt þar áður. Væri þetta þó ekki fullrannsákað. Ennfremur fann hann þó nokkrar plöntur mjög sjaldgæfar, t. d. skrautpunt, stinnasef, o. fl. Gott að bjargast á Ströndum. Votheysverkunin kemur sér vel í ár. Þó að Helgi sé grasafræðingur, og ferðin væri gerð til grasa- fræðirannsókna, er hann þó fyrst og fremst bóndi að atvinnu, og fóru búnaðarhættir Stranda- manna ekki fram hjá honum. Votheysverkun er algeng þár vestur frá, og kemur hún að góð- um notum, þegar þurrkar eru litlir eins og nú í sumar. Aftur á móti varð hann ekki var við súg- þurrkun á bæjunum. Efnahagur sýndist honum að betri mundi þar en víðast annars staðar þar sem hann hefur komið. Byggingar yfirleitt góðar og tún í örum vexti. Spretta allgóð á tún- um, en engi í tæplega meðallagi. Allvíða er fyrri slætti ekki lokið og hey meira og minna hrakin. Margir spurðu um nöfn á plöníum. Ekki kvaðst Helgi hafa hitt neina grasafræðinga þar vestra, þó að vel gætu þeir .verið til, en margir, bæði ungir og gamlir, spurðu hann óspart um heiti á hinum ólíkustu plöntum. Er lík- legt, að Strandamenn hafi með nokkurri undrun og forvitni um- gengizt hinn þingeyska bónda, sem um hásláttinn helgar visind- (Framhald á 5. síðu). Sfcyldu þær fara í verkfall? „Vísir“ skýrir svo frá, að gléði- konur í bæ einum í Tyrklandi hafi gengið á fund yfirvaldanna og krafizt kauphækkunai og kjarabóta! Ekki fylgir það sög- unni, hver málalokin hafi orðið, en nú hlýtur viðskiptavinum þein-a að þykja nokkurs um vert, hvort portkonurnar muni fylgja kröfu sinni eftir með verkfalli, ef með þarf, svo sem lenzka er ann- ars í slíkum málum. - Brezk blöð ræða löndonarbannið

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.