Dagur - 18.08.1954, Page 1
GERIST ASKRIFENDUR!
Sími 1166.
Dagur
ÁSKRIFTARSÍMI
blaðsins er 1166. Gerizt
óskriíendur!
XXXVII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 18. ágúst 1954
36. tbl.
Ivær blómarósir frá Akureyri hiufskarpasíar í fegurðar-
samkeppninni í Tivoli - Ragna Ragnars fegurðardrotfn-
r
ing Islands 1954, fær Parísarför í verðiaun
Marga siði höfum við íslend-
ingar tekið upp eftir erlendum
fyrirmyndum á síðari árum. Eitt
af því sem líklegt er að verði ár-
leg venja hér, er samkeppnin um
nafngiftina: Fegurðardrottning
íslands. Slík samkeppni er ekkert
óþekkt fyrirbrigði, því að blöð og
útvarp hafa frætt okkur og sýnt í
myndum fegurðardrottningar
margra landa.
Fegurðardrottning Reykjavík-
ur hefur verið valin fyrirfarandi
ár, en í þetta skipti náði sam-
keppnin yfir allt landið.
Norskír sjómenn kljást
við Grímseyinga
Frétzt hefur, að norskir sjó-
menn hafi fyrr í sumar gerzt all-
miklir fyrir sér í Grímsey. Sagt
er, að hreppstjóri þeirra eyjar-
skeggja hafi skorizt í bað mál og
fengið bætur greiddar fvrir rúðu-
brot af þeirra völdum þar í eynni
og jafnvel fleiri spjöll. Mun einn
sjómannanna t. d. hafa ráðizt inn
í hús í óþökk húsbændanna, eða
gert tiliaun í þá átt. Meiddist
húsbóndinn nokkuð og föt hans
voru skorin í þeirri viðureign, er
hann snerist til varnar gegn hin-
um óboðna gesti.
Héðan frá Akureyri fóru tvær
yngismeyjar, þær ungfrú Ragna
Ragnars, Þingvallastræti 27, og
ungfrú Ms/la Jónsdóttir, Brekku
götu 19.
Ragna Ragnars var kjörin feg-
urðardrottning ársins 1954, en
María Jónsdóttir fékk önnur
verðlaun. Má því segja, að þessir
fulltrúar héðan að norðan hafi
ekki farið erindisleysu.
Ragna mun bráðlega fara til
Parísar og dvelja þar um viku-
tíma. En slíkum verðlaunum var
fegurðardrottningunni heitið.
Einnig fær hún í frönkum jafn-
gildi 1000,00 króna íslenzkra og
auðvitað fríar ferðir og dvöl í
París.
Blaðið hafði tal af ungfrú
Rögnu um leið og hún kom í bæ-
inn á mánudag. Lét hún hið bezta
af ferðinni. Móttökur voru hinar
ágætustu og fyrirgreiðsla þeirra
stallsystra í bezta lagi.
Atkvæðagreiðslan um val feg-
ui'ðardrottning'arinnar fór fram á
laugardaginn í Tivoli, að við-
stöddum nær 10 þús. manns. —
114 stúlkur tóku þátt í fegurðar-
samkeppninni. — Á sunnudags-
kvöld kcmu fegurðardísirnar
þrjár aftur fram í Tivoli, að við-
stöddum mörg bús. manns.
(Framhald á 7. síðu).
Minkur að verki?
;6.€ P-&ÍI fl C >i® M e. r tt- ii «■ f ;1 ' * •
Fyrir nokkrum dögum bar það
til tíðinda á Tréstöðum í Glæsi-
bæjarhreppi, að öll hænsnin, að
hananum og einni hænu undan-
skilinni, lágu dauð í hænsnahús-
inu einn morguninn, þegar að var
komið. Var þeim raðað upp, og
ekki ósmekklega frá þeim gengið.
Litlir áverkar sáust á þeim, nema
tannaför á hálsi þeirra allra.
Líklegt þykir, að hér hafi
minkur verið að verki. — Ekki
hefur heyrzt, að minks hafi orð-
ið vart þarna að undanförnu. —
Hins vegar hefur heyrzt, að neð-
ar við Hörgá hafi fyrir nokkru
síðan sézt greinileg ummerki
minks.
Mun bændum þykja það ill tíð-
indi, ef svo reynist, að hér hafi
minkur verið á ferð. En því
miður bendir margt til þess, að
svo hafi verið.
Sliíinn jarðsímastrengur
í Glerárþorpi
Símstjórinn á Akureyri, Gunn-
ar Schram, hefur tjáð blaðinu
eftirfarandi:
Vegna bilunar á jarðstreng í
Glerárþorpi urðu nokkrar síma-
truflanir á símasambandi héðan
til Suðurlands. — Viðgerð á jarð-
strengnum er nú lokið, og síma-
sambandið því aftur komið í eðli-
legt horf.
Hreppakeppni
Hreppakeppnin í Samnorrænu
sundkeppninni, sem áður hefur
verið getið um hér í blaðinu,
stendur nú þannig:
Öxnadalur með 29,6%, Skriðu-
hreppur með 17,3%, Arnarnes-
hreppur með 17,2% og Glæsibæj-
arhreppur með 16,3%.
Alls hafa 409 manns synt 200
metrana í sundlauginni að
Laugalandi í Hörgárdal.
Kærkomin veðurbreyt-
ing á Norðurlandi
Um síðustu helgi brá til sunn-
anáttar hér nyrðra og hefur verið
góður þurrkúr þessa dagar.a. —
Bændur hafa bjargað geysimikl-
um heyjum, enda vel notaður
hinn langþráði þurrkur. Gjör-
brevtir þetta hinu ískyggilega út-
liti, sem orðið var í þessu efni og
horfa menn vonbetri fram á leið.
Aftur á móti virðast vonir manna
um síldveiðar ætla að bregðast.
sveifanna við Eyjafjörð
áfram 00 effir áæfiun
Hátt á amiað hundrað bæir og býli í béraðinu
fá væntanlega rafmagn frá Laxárvirkjun
í sumar, eða á öndverðum vetri
Vinnuflokkar frá Rafmagnsveitum ríkisins vinna nú að þvi
að leggja raflínur um sveitirnar vestan Eyjafjarðar. Mun
Rræklingahlíð, Skriðulireppi og Arnarneshreppi ætlað að fá
rafmagn beint frá aðalspennubreytistöð hér á Akureyri, en
bæir á Arskógsströnd fá hins vegar raforku sína úr Dal-
víkurlínunni, en þangað var háspennulína lögð í fyrra-
liaust, og munu flest heimili í þorpinu þegar Iiafa fengið raf-
magn. Stendur til, að flestir — eða jafnvel allir — hæir í Dal-
víkurhreppi verði afgreiddir að þessu leyti nú í liaust.
Línulögnum hraðað eftir föngum.
Byrjað var á línulögnum utan
frá í þetta sinn og haldið inn
Arnai'neshrepp og Kræklingahlíð.
Munu staurar þegar hafa verið
settir upp á þeirri línu allt inri að
Garðshorni í Kræklingahlíð, en
ekki eru vírar enn komnir á
staurana alla þá leið. Rafveitur
ríkisins sjá um spénnubreyti-
stöðvar á hverjum bæ, þar sem
þess þarf við, og annast um
heimtaugar og inntök í húsin. en
þar taka rafvirkjar í þjónustu
bændanna sjálfra við.
Fjöldi býla fær rafmagn á
þessu ári.
Blaðinu hefur verið tjáð, að
fyrirhugað sé, að bæir í héraðinu
fái rafmagn á þessu ári sem hér
segir: í Glæsibæjarhreppi (eink-
um í Kræklingahlíð) 27 bæir, auk
7 býla í Glerárþorpi, sem hafa þá
sérstöðu, að þeim mun ætlað að fá
rafmagn frá Rafveitu Akureyrar.
Má vera, að ráðagerðir um hugs-
anlega sameiningu Akureyrar og
Glerárþórps valdi þar einhverju
um. — 1 Öngulsstaðahreppi (fram
að Laugalandi) 17 bæir; í
Skriðuhreppi 8, Arnarneshreppi
32 og á Xrskógsströnd 40 bæir.
Þá mun og fyrirhugað, að
nokkrir bæir á Svalbarðsströnd
fái rafmagn í sumar frá ríkisveit-
unum.
Raflagnadeild KEA annast
vcrulegan hluta framkvæmdanna,
eftir að inn úr húsvegg er komið.
Eins og kunnugt er, stofnaði
Kaupfélag Eyfirðinga sérstaka
raflagnadeild sl. vetur. Forstöðu-
maður deildarinnar, Ingvi Hjör-
leifsson rafvirkjameistári, átti er-
indi inn í skrifstofur Dags í gær.
Greip blaðið tækifærið að spyrja
hann frétta af þessum fram-
kvremdum, sem rnunu senn
breyta verulega lífsháttum og
menningarskilyrðum fólksins í
héraðinu allt umhverfis okkur,
þótt við bæjarbúar höfum þegar
alllengi að þeim gæðum búið.
Flestar upplýsingar þær, sem
blaðið hefur enn náð í um þetta
mikilsverða mál, eru frá þessu
spjalli við Ingva runnar að þessu
sinni. Sagðist deildarstjóranum
svo frá m. a., að Raflagnadeildin
legði allt kapp á að hraða þessum
framkvæmdum á sínu verksviði,
en nokkur skortur væri sem
stendur á lærðum rafvirkjum til
þess að annast verkið. Þó miðaði
því vel áfram eftir vonum, væri
t. d. lokið að mestu i Kræklinga-
hlíð, vinnuflokkar teknir til starfa
í Skriðuhreppi og haldið út Ár-
skógsströnd innan tíðar. Hefðu
rafvirkjarnii' fram að þessu farið
á milli bæjarins og vinnustöðva
sinna kvölds og morgna, en nú
væru fjarlægðir teknar að gerast
fullmiklar til þess að halda þeim
hætti yfirleitt, og vinnuflokkarn-
ir því farnir að „liggja við“ í
tjöldum eða gista á annan hátt. —
Ingvi kvað'Raflagnadeildina hafa
lagt mikla stund á að afla sér sem
fullkomnastra vinnutækja, afla
efnifanga til vinnunnar á sem
hagstæðustu verði og gera bænd-
(Framhald á 7. síðu).
Eldur í hlöðu á Rútsstöðum
í Eyjatirði
Laust eftir miðnætti aðfaranótt
mánudagsins gerði stúlka, sem
leið átti um veginn hjá Rútsstöð-
um í Öngulsstaðahreppi í Eyja-
firði, heimilisfólkinu þar viðvart,
að eldur mundi uppi í heyhlöðu
þar á bænum. Sagt er, að tæpum
stundarfjórðungi fyrr hafi maður
átt leið um þennan sama veg fram
hjá bænum, og hafi hann þá
einskis elds né reyks orðið var.
Hefur þarna mjóu munað sem
oftar. — Slökkvilið frá Akureyri
var kvatt á staðinn og tókst því
að slökkva eldinn, áður en hann
breiddist út til annarra húsa.
Töluverðar skemmdir munu hafa
orðið þarna á heyi af völdum elds
og vatns.
Bóndinn á Rútsstöðum heitir
Hjalti Guðmundsson.