Dagur - 27.10.1954, Blaðsíða 12
12
Bagur
Miðvikudaginn 27. október 1954
Byggrækfin gaf góoa raun á
Dagverðareyri
Heimaræktað korn í brauði og slátri. Vel fram-
ræst mýri sparar áburð. Vaxtartími byggsins
var 4 mánuðir
Gunnar bóndi Kristjánsson á
Dagverðareyri, mun nú vera eini
bóndinn við Eyjafjörð, sem rækt-
ar bygg. í sumar hafði hann það
í 2 ha. lands. Þroskaðist það mjög
sæmilega. Síðastliðinn mánudag
var Gunnar að þreskja það síð-
asta. Á hann góða þreskivél
(Dania) og lætur dráttavélina
snúa henni.
Til byggsins var sáð 4. maí í
vor, og er það góður sáðtími. Um
sáningu byggs til þroskunar, má
yfirleitt segja, að því fyrr sem
sáð er, þess betra, því að ekki
virðist saka þótt nokkuð frjósi á
eftir.
Byggið var á tveimur stöðum.
Nokkur hluti á magurri móajörð
en hitt á vel framræstri mýri er
þurrkuð var fyrir 5 árum síðan.
Auðlegð mýranna.
Á mýrlendið bar hann engan
köfnunarefnisáburð, en 120 kg. af
þrífosfati og 140—150 kg. af kalí,
50%, miðað við ha.
Byggið bar það með sér, að þa^'
skorti þó ekki köfnunarefni. Á
mójörðina var borinn sami
skammtur, auk þess 150 kg. af
kalkammon-saltpétri. — Styður
þetta óneitanlega þá skoðun fjöl-
margra ræktunarmanna, sem
haldið hafa fram, næstum óþrot-
legri auðlegð mýrai-jarðvegsins.
Bj'ggið þroskaðist að þessu sinni
á 4 mánuðum. Það var slegið um
mánaðamótin ágúst-september.
Nokkuð af bygginu er notað til
manneldis heima. Er það malað í
kornmyllu KEA. Það er notað í
margs konar brauð og einnig í
súpur og grauta. Ennfremur er
það notað í slátur og þykir ágætt.
Ekki er blaðinu kunnugt um
aðra staði hér nærliggjandi en
Dagverðareyri, á heimili Gunn-
ars bónda Kristjánssonar, þar
sem heimaræktað korn er í veru-
legum hluta af daglegu fæði fjöl-
skyldunnar.
Kosnin«in varð ekki lösmæt
Ö c
Prestskosningin á Akureyri fór
svo, að.séra Kristján Róbertsson
hlaut flest atkvæði, cða 1063, séra
Birgir Snæbjörnsson hlaut 1040
atkvæði, séra Jóhann Hlíðar 823,
séra Þórarinn Þór 264 og séra
Stefán Eggertsson 150.
á kjörskrá voru 4916, en alls
kusu 3361. 17 seðlar voru auðir
en 1 ógildur.
Ekki lögmæt.
Kosningin er ekki lögmæt, þar
eð enginn frambjóðenda hefur
hlotið hclming greiddra atkvæða.
Hins vegar var kosningin gild að
því leyti, að mun fleiri en helm-
ingur gi-eiddi atkvæði. Kirkju-
málaráðherra mun nú skipa ein-
hvern frambjóðendanna í prests-
embættið við Akureyrarkirkju.
Prófastur Eyjafjarðar-
prófasts(íæmí<?
Skólastjóri Barnaskóla Ákureyrar leggur til að
skóli verði byggður á Oddeyri
Séra Sigurður Stefánsson, sókn-
arprestur að Möðruvöllum i
Hörgárdal, var nýlega skipaður
prófastur Eyjaf jarðarpófastsdæm-
is, frá 1. nóv. næstk. að telja.
Iliísnæðismál bamakennslunn-
ar hér á Akureyri hafa um nokk-
urt skeið verið á dagskrá meðal
borgara og bæjárstjórnar enda
Ijcst fyrir alllöngu að núverandi
barnaskólahús er orðið allt of lít-
ið. Fer ástandið hríðversnandi
með hverju ári.
Bréf skólastjórans.
Nú hefur skólastjóri barna-
skólans, Hannes J. Magnússon,
ritað bæjarstjórninni bréf um
húsnæðismál skólans og er þar
gerð grein fyrir því vandræða-
Fegrunarféiagið veilir verðlaun
Fagurt bæjarstæói og skrautlegir skrúðgarðar
koma í stað listasafna og stórbrotinna
minnismerkja
ástandi, er nú ríkir, og bent á,
að það verði enn verra á næsta
hausti. Gerir skólastjórinn tillögu
um byggingu nýs barnaskólahúss
á gamla barnaleikvellinum á
Cddeyri. Bréf skólastjórans fer
hér á eftir:
„Sumarið 1952 skrifaði ég hátt-
virtri bæjarstjórn og vakti á því
athygli, að húsnæði barnaskólans
væri þá að verða svo ófullkomið,
að brýna nauðsyn bæri til að
hefjast þegar handa um aukningu
þess. Leiddi ég rök að því með
tölum, að fjölgun í skólanum
yrði svo mikil næstu ár, að til
vandræða horfði, ef ekki væri
þegar farið að undirbúa nýja
skólabyggingu. Ekki lagði ég þó
fram neinar ákveðnar tillögur í
málinu, en vænti þess að háttvirt
bæjarstjórn tæki málið fyrir.
Á síðustu fjárhagsáætlun bæj-
arins voru áætlaðar 150 þúsundir
til nýbyggingar skóla, en annað
mun ekki hafa verið gert til að
undirbúa þessar framkvæmdir.
Nú á þessu hausti vantar raun-
(Framhald á 11. síðu).
Verðlaun og viðurkenningar.
Stjórn Fegrunarfélags Akur-
eyrar bauð fréftamönnum, eig-
endum fegurstu skrúðgarða bæj-
arins og nökkrum öðrum, að
vera nærstaddir við afhendingu
verðlauna og viðurkenninga, fyr-
ir fegurstu skrúðgarða bæjarins
á árinu 1954.
Sigurður Pálsson menntaskóla-
kennari, formaður félagsins, bauð
gesti velkomna með ræðu og af-
henti síðan verðlaunin.
Verðlaun fyrir fegursta skrúð-
garð Akureyrar 1954 hlutu Sig-
urður Guðmundsson og Guðrún
Karlsdóttir fyrir garðinn við
Helgamagrastræti 50. Var það
áletraður bikar.
Viðurkenningu hlutu: Guð-
mundur Gíslason og Jónína Jóns-
dóttir, Ægisgötu 27. Pálmi
Jónsson og Sveinbjörg Björns-
dóttir, Ægisgötu 23, Ragnar Jó-
hannesson og Margrét Jóseps-
dóttir, Helgamagrastræti 21, Ás-
kell Snorrason og Guðrún Krist-
jánsdóttii', Rauðumýri 22, og Sig-
ríður Oddsdóttir og Páll Sigur-
geii'sson, Eyrarlandsvegi 24. —
Voru það áletruð skjöl, mjög
smekkleg og skrautrituð af Jóni
Norðfjörð.
(Framhald á 5 síðu)
Semenísverksmiðjan
Samkvæmt síðustu fréttum,
er vinna hafin við sements-
verksmiðjuna. Ekki cr þó byrj-
að ó byggingú sjálíra verk-
smiðjuhúsanna, hcídur á vinnu
skálum og verkfærageymslum.
Verksmiðjan er reist á Akra-
nesi, svo sem kunnugt er.
Söngsigur Guðrúnar Á.
Símonar í Oslo
Guðrún Á. Símonar fór utan
fyrir stuttu og var ferðinni heitið
til Norðurlandanna alli'a. Ætlar
hún að halda sjálfstæðar söng-
skemmtanii' í höfuðboi'gum þess-
ai’a landa. Hefur hún þegar sung-
ið í Osló og lilotið þar óvenjulega
góða dóma allra helztu blaða
borgarinnar, undantekningar-
laust.
Guðrún mun einnig syngja í
útvai'p í öllum höfuðboi'gunum.
Heim kemur hún um mánaðam.
nóv.—des. og byrjái’ þá æfingar
í aðalhlutverki óperunnar Caval-
leria Rusticana, sem frumsýnd
vei'ður í Þjóðleikhúsinu annan
jóladag.
Hinar stóru bílaverksmiðjur vestan hafs hafa þcgár hafið framleiðslu bíla, sem bera árgangsheitið 1955. Meðal þeirra er Chevrolet-fólksbifreiðin frá General Motors.
Myndum af þcssu::: nýja bíl cr slillt út í sýningarglugga Véla- og varahlutadeildar KEA liér í bæ um þcssar niundir.