Dagur - 18.12.1954, Blaðsíða 14

Dagur - 18.12.1954, Blaðsíða 14
14 DAGUR Laugardaginn 18. desember 1954 Fataverksmiðjan HEKLA á Akureyri hefur frá öndverðu notið mikiila vinsælda um land allt fyrir framleiðsluvörur sínar, hvort sem það hafa verið vinnuföt, undirföt kvenna úr prjónasilki, sokk- ar, sportföt ýmiss konar eða peysur. Mestum vinsældum hafa þó HEKLU PEYSURNAR náð ,enda eru þær aðalframleiðsla verk- smiðjunnar. Hafa peysurnar nú verið fluttar út, m. a. til Finn- lands, og þar sannað, hversti samkeppnisfærar þær eru, auk þess sem þær hafa verið sendar sem gjafir víð um heim. HEKLU PEYSURNAR eru prjónaðar eftir mynstrum, sem sér- fræðingar verksmiðjunnar sjálfir gera, og koma svo til á hverju ári ný mynstur, ný tízka. Fylgizt með Heklu peysunum og reynið þær. Þær eru bæði hlýjar, þægilegar og fallegar. Það er ekki að ástæðu- lausu, að sama fólkið biður aftur og aftur um HEKLU peysur. Gleðileg jól! Gleðileg jól! . I i . 4 HEKLA framleiðir peysur sínar tir ýmiss konar ullargarni. Sumar gerðir eru úr íslenzku ullinni og hafa alla hina ágætu kosti hennar til að bera. Aðrar peysur, ekki sízt kvenpeysurnar, eru einnig prjónaðar úr erlendu garni, margar úr fínasta frönsku garni. — HEICLA hefur ýmsar gerðir prjónavéla til þess að fá fram fínt prjón, venjulegt eða gróft, eftir því hvers óskað er í hverja peysu. Peysurnar eru fyrir unga og gamla, karla og konur og af ýmsum gerðum. Fylgizt með því, þegar næsta kaupfélagsverzlun eða önn- ur verzlun, sem hefur HELU vörur á boðstólum, fær sendingu af peysum. Þær standa venjulega ekki lengi við í búðinni og úrval- ið er því mest fyrst. Fataverksmiðjan HEKLA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.