Dagur - 18.12.1954, Side 14
14
DAGUR
Laugardaginn 18. desember 1954
Fataverksmiðjan HEKLA á Akureyri hefur frá öndverðu notið
mikiila vinsælda um land allt fyrir framleiðsluvörur sínar, hvort
sem það hafa verið vinnuföt, undirföt kvenna úr prjónasilki, sokk-
ar, sportföt ýmiss konar eða peysur. Mestum vinsældum hafa þó
HEKLU PEYSURNAR náð ,enda eru þær aðalframleiðsla verk-
smiðjunnar. Hafa peysurnar nú verið fluttar út, m. a. til Finn-
lands, og þar sannað, hversti samkeppnisfærar þær eru, auk þess
sem þær hafa verið sendar sem gjafir víð um heim.
HEKLU PEYSURNAR eru prjónaðar eftir mynstrum, sem sér-
fræðingar verksmiðjunnar sjálfir gera, og koma svo til á hverju ári
ný mynstur, ný tízka. Fylgizt með Heklu peysunum og reynið þær.
Þær eru bæði hlýjar, þægilegar og fallegar. Það er ekki að ástæðu-
lausu, að sama fólkið biður aftur og aftur um HEKLU peysur.
Gleðileg jól!
Gleðileg jól!
. I i . 4
HEKLA framleiðir peysur sínar tir ýmiss konar ullargarni. Sumar
gerðir eru úr íslenzku ullinni og hafa alla hina ágætu kosti hennar
til að bera. Aðrar peysur, ekki sízt kvenpeysurnar, eru einnig
prjónaðar úr erlendu garni, margar úr fínasta frönsku garni. —
HEICLA hefur ýmsar gerðir prjónavéla til þess að fá fram fínt
prjón, venjulegt eða gróft, eftir því hvers óskað er í hverja peysu.
Peysurnar eru fyrir unga og gamla, karla og konur og af ýmsum
gerðum. Fylgizt með því, þegar næsta kaupfélagsverzlun eða önn-
ur verzlun, sem hefur HELU vörur á boðstólum, fær sendingu
af peysum. Þær standa venjulega ekki lengi við í búðinni og úrval-
ið er því mest fyrst.
Fataverksmiðjan HEKLA