Dagur - 02.02.1955, Blaðsíða 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 2. febrúar 1955
Skautamóti Akureyrar lokið - Björn
Baldursson skautameistari Ak. 1955^
Fyrri hluti skautamóts Akur-
eyrar fór fram sl. laugardag og
var keppnin háð hjá Kaupangs-
bakka. Mótsstjóri Ármann Dal-
mannsson. Keppt var í fjórum
vegalengdum. Fyrst í 500 m.
hlaupi karla og urðu úrslit þessi:
Björn Baldursson
Guðlaugur Baldursson
Kristján Árnason
500 m. hlaup drengja
innan 16 ára:
Kristján Erlingsson
Birgir Ágústsson
Gylfi Kristjánsson
400 m. hlaup drengja:
Birgir Valdimarsson
Ágúst Karlsson
Þórhallur Skaftason
3000 m. hlaup karla:
Bjöm Baldursson
Ingólfur Ármannsson
Kristján Ámason
Sek.
54,9
59,0
61,0
69,8
69.8
69.9
60,2
66,2
75,2
min.
6,11
7,05
7,05,8
Brautin var mjög þung og er
tími keppenda þ.ví lélegur. Aug-
ljóst er þó, að Akureyringar eiga
allmarga efnilega skautamenn. —
Stighæstur eftir fyrri hluta móts-
ins er Björn Baldursson með 122,0
stig, Kristján Árnason með 131,9
stig og Guðlaugur Baldursson
með 132,2 stig.
Síðari hluti skautamótsins hófst
á sunnudaginn kl. 2 e. h. á sama
stað. Þá var keppt í 1500 metra
hlaupi karla, A. fl. Fyrstur varð
Björn Baldursson á 3,00,0 mín.
Annar varð Guðlaugur Baldurs-
son á 3,11,2 mín. og þriðji Ingólf-
ur Ármannsson á 3,15,2 mín.
Næst var keppt í 500 m. hlaupi
karla, B, fl.. Urslit urðu þessi:
Birgir Ágústsson 3,37,8 mín.,Gylfi
Kristjánsson 3,29,6 mín. og Ævar
Kr. Olafsson 3,50,9 mín.
í 300 metra hlaupi drengja, 10
til 12 ára urðu úrslit sem hér
segir: Skúli Ágústsson 45,5 sek.,
Bergur Erlingsson 47,5 sek. og
Friðrik Jónsson 53,1 sek.
í 5000 metra hlaupi sigraði
Björn Baldursson á 11,15,1 mín.
Annar varð Kristján Árnason á
11,47,5 mín. og þriðji varð Ingólf-
ur Ármannsson á 11,49,7 mín.
Björn Baldursson varð skauta-
meistari Akureyrar 1955 og hlaut
249,243 stig. Guðlaugur Baldurs-
son hlaut 267,473 stig, Ingólfur
Ármannsson hlaut 268,470 stig og
Kristján Árnason 268,414 stig.
Fyrsta skíðamót ársins var í Snæhól-
um á sunnudaginn var
Skíðamót íslands háð hér á Akureyri
um páskaleytið
Hið árlega Hermannsmót skíða-
manna hér var haldið í Snæhól-
um í Hlíðarfjalli sl. sunnudag og
var keppt í svigi. Er þetta fyrsta
skíðamót ársins. Snjór er nægur
þar efra og lítur vel út með
skíðafæri á næstunni.
Urslit á mótinu urðu þessi:
1. varð Skjöldur Tómasson,
KA, 2. Jón Bjarnason, Þór, 3.
Halldór Ólafsson, KA, 4. Hjálmar
Stefánsson Siglufirði, 5. Kristinn
Steinsson, Ólafsfirði.
Ákveðið er að Skíðamót íslands
verði háð hér á Akureyri um
páskana og er undirbúningur
þegar hafinn. Skíðaráð Akureyr-
ar mun sjá um mótið.
Til sölu
vegna brottflutnings:
Rafha eldavél, barnakerra
og karlmannsreiðhjól.
A. v. á.
IBUÐ
2 herbergi, eldhús og
geymsla til sölu.
Þorsteinn Viliamsson
Laxagötu 2.
HÍNAR LJÚFFENGU
Navel - appelsínur
fást ennþá hjá okkur.
KJÖT & FISKUR
Félagsráðsfundur K. E. A.
verður haldinn að Hótel K. E. A. mánudaginn 14. febr.
n. k. og hefst kl. 1 e. h.
Akureyri 26. jan. 1955
Stjórn K.E.A.
Barnastúkurnar
Félagar barnastúknanna eru
beðnir að mæta í Skjaldborg
næstkomandi sunnudag á há-
tíðisdcgi unglingareglunnar ld.
1,30 e. h. og þaðan verður far-
ið í kirkju.
Gæzlumenn.
Vartappar:
10 Amper
20 -
25 -
35 -
50 -
60 -
80 -
100 -
125 -
160 -
200 -
mjög hagstætt verð.
Véla- og biísáhaldadeild.
JEPPI
til sölu.
Afg:
r. vísar á.
Viftuofnar
1 og 2 kw nýkomnir.
Véla- og búsálialdadeild.
TIL SOLU:
Saumavél fótstigin Nekkhi,
þvottabali úr tré, hakkavél
og kaffikanna, einnig 2 not-
aðir jakkar á 11 ára dreng.
Uppl. í Hafnarstræti 84
að vestan.
Tilkynning
Vantar mann eða konu 2
tíma tvisvar í viltu eftir
kl. 5.
Eyþór H. Tómasson
Tréskurður
Vinn að tréskurði, sérstak-
lega á húsgögn, um stuttan
tíma. — Hef vinnustofu að
Varðborg, efstu hæð.
Hannes Vigfússon
Æskufólk að hagnýtu starfi á
námskeiðum í Varðborg 1
Frá námskeiði í leirmótun, er nú stendur yfir í Varðborg.
Á þessu nýbyrjaða ári er rétt
að geta stofnunar einnar hér í bæ,
sem vinnur á nýjum vettvangi
hér á landi. Er það Æskulýðs-
hcimili tcmplara í Varðborg, sem
nú hcfur starfað í rúmlega citt
ár.
Víða erlendis eru slík heimili
rekin með miklum blóma, með
hjálp almennings, svo að ekki sé
talaS um ríkis- og bæj-
árs.tjórjúiy.vinna.. mjög - að.
eflingu slíkra unglingaheimila og
æskulýðshalla.
Starfsemi Æskulýð^heimilisins
í Varðborg hefur aðallega verið
tvenns konar. Annars vegar eru
rekin ýmis verkleg námskeið, en
hins vegar starfræktar leikstofur
með ýmsum skemmtilégum leik-
tækjum.
Námskeið haldin.
Námskeið þau, er farið hafa
fram á vegum Æskulýðsheimilis-
ins eru: útskurðarnámskeið, mo-
delsmíði, bast- og tágavinna,
þjóðdansar, föndur, útvarpsvirkj-
un og nú stendur yfir námskeið í
Icirmótun, þar sem kennari er
Jónas Jakobsson myndhöggvari.
Námskeið þessi hafa verið mjög
vel sótt að undanteknu einu, sem
komst ekki á vegna þátttökuleys-
is, en þar átti að kenna nemend-
um hjálp í viðlögum og biuna-
varnir. Slíkt námskeið sem þetta,
þar sem hver og einn getur, fyrir
lágt gjald og jafnvel ekkert, lært
fyrstu hjálp um meðferð sjúkra
og slasaðra, svo og þar sem menn
geta kynnzt hinum margvíslegu
brunavörnum og undirbúið sig að
vera viðbúnir hvenær sem er, ef
eldsvoða ber að höndum, ætti að
vera vel sótt, vegna þess hversu
nauðsynleg slík námskeið eru. —
Vonandi verður komið á slíku
námskeiði í næsta mánuði og
ættu foreldrar að hvetja börn sín
til að afla sér vitneskju um svo
mikilsverð mál sem slíkt nám-
skeið getur veitt. f vetur hefur
starfsemi Æskulýðsheimilisins
hingað til beinzt meir að nám-
skeiðunum og þar af leiðandi ver-
ið tekið nokkuð af leikstofunum
undir starfsemi þeirra og mun
svo vera út þerrnan mánuð.
Ný námskeið undirbúin.
Ymis námskeið eru í undirbún-
ingi, sem ráðgert er að halda í
vetur, og má þar nefna útsaums-
námskeið, modelnámskeið (óá-
kveðið hvaða rnodel verða tekin),
námskeið í þjóðdönsum og starfs-
íþróttum (nánar kynnt síðar) og
jafnvel annað námskeið í föndri,
þar sem svo mörg börn þurftu frá
að hverfa því' HáffíSkelði, sem
haldið var fyrir jól í vetur.
Eins og fyrr getm'ertr Ifeikstof-\
urnar annar aðalþátturínn í starf-
sehii *Æákúlýðfeheimilisins. Þær
eru sjö talsiní og erú sek þöirra
með leiktækjum- eins og borð-
tennis, knattborði, bobum, keilu-
spilurn, töflum og þíluskífum. Ein
stofa er svo með bókasafn heimil-
isins, en því hefur nú aukizt
m j ög. bókakostúr “ö’g'skiþtEfbæk -
ur þess nú mörgum hundruðum, „
í næsta mánuði mun starfsemi
leikstofanna verða aukin og þær
opnar vissa tíma í viku fyrir
unglinga. Bókasafnið mun þá
einnig verða cpið a. m. k. einu
sinni í viku og lesstofa í sam-
bandi við það.
Skjaldborgarbíó greiðir kostnað.
í vetur hefur unglingum gefist
kostur á að koma og vera í leik-
stofum heimilisins endurgjalds-
laust, og er í ráði að svo verði
áfram í vetur, þótt starfsemin
verði aukin, en eins og nú er
stendur Skjaldborgarbíó straum
af reksturskostnaði Æskulýðs-
heimilisins í Varðborg.
Oddeyringur.
Barnavagn
sem nýr til sölu.
Uppl. í síma 2113
BIFREIÐ
Plymuth 1942 í ágætu lagi
til sölu. — Skipti á jeppa
koma til greina.
A. v. á.
Prjónavél
til sölu, 155 nálar á hlið.
Uppl. í síma 2148