Dagur - 06.04.1955, Side 7

Dagur - 06.04.1955, Side 7
Miðvikudaginn 6. apríl 1955 DAGUB 7 - Tilboð Brunabótafél. (Framhald a£ 2. síðu). kastið en umboðsmaðurinn hér á Akureyri. Sjálfur forstj. Bruna- bótafélagsins. Stefán Jóhann Stefánsson, birti grein um þetta efni í Alþýðublaðinu 29. marz, og eins og vert var og skiljanlegt, endurprentaði Morgunblaðið greinina. Enda hefur það blað reynst forstjóranum og liðsmönn- um hans geysihagleg geit í deil- unni um einokunarkerfið. Eins og kunnugt er samþykkti Al- þingi nýlega lög um Brunabóta- félag íslands. Er þar að nokkru leyti afturkallað frelsisfyrirheitið frá í fyrra og reynt að halda í einokunarkerfið eftir mætti. Er Ijóst. að sums staðar á landinu jafngildir lagasetning þessi því, að einokunin standi sem áður. Milliþinganefnd vann að því að semja frumvarp þetta, að því talið var. og fór það í gegnum þingið fyi'ir órofasamvinnu Sjálfstæðis- manna, kommúnista og flokks- manna forstjóra Brunabótafé- lagsins. Landsmenn munu því hafa talið. að milliþinganefndin hafi samið frumvarpið, en nú er Ijóst, að fleiri hafa þar lagt í pottinn. í fyrrnefndri grein upp- lýsir forstjóri Brunabótafélagsins, að hann sé faðir ákvæðisins um fulltrúaráð Brunabótafélagsins og þeirrar breytingar á skipulagi þess, sem á að duga sem dúsa handa landsfólkinu til þess að það sætti sig betur en ella við ein okunina. Hér nyrðra héldu menn, að helzti talsmaður frv., Jónas Rafnar alþm., og aðrir Sjálfstæð' ismenn, hefðu af hyggjuviti sínu fundið^ þessi ákvæði upp. Röddin, sem t£d^ðj..'fy4'ir-'þeim á þingi, var vissulégk’-.'rÖddáþeirra. En sam- kvæmt frasogn forstjóra Bruna bótafélagsins, var höndin, sem stýrði penna þeirra. höndin hans. Er ekki ófróðlegra að litast um á kærleiksheimilinu . ..nýja eftii; þessar upplýsingar. ERLÉND TÍÐINDI (Framhald af 4. síðu). allt á huldu um þetta. Um mán- 'aðamótin síðustu vissi enginn vestan járntjalds, hvort Rússar og leppríkin mundu senda full- trúa á Rómar-ráðstefnuna eða ekki. En meðal vestrænna fiski- veiðaþjóða, var ráðstefnan undir- búin af kappi. íslendingar munu veita henni mikla athygli. Hún fjallar um málefni, sem eru þýð- ingarmeiri fyrin íslenzku þjóðina en aðrar þjóðir. Lítil íbúð 1—2 herbergi og eldhús óskast til leigu 14. maí n. k. Afgr. vísar á. Svart flauel Verlunin SKEMMAN Saumlausir nylonsokkar NÝ GERÐ. Verlunin SKEMMAN KAPUR NÝKOMNAR. KÁPUEFNI DRAGTIR DRAGTAEFNI JERSEY KJÓLAR MIIvIÐ ÚRVAL. BARNAKÁPUR DRENGJABUXUR 3-8 ára kr. 59.00 ★ SKARTGRIPIR KJÓLABLÓM MARKAÐURINN SÍMl 1261 TILKYNNING Að gefnu tilefni vilja undirritaðir aðilar að yfirstand- andi kaupdeilu við Verkakvennafélagið Einingu, vekja athygli á því, að verkakvennafélaginu hafa, þegar eftir að það setti fram kröfur sínar, verið bornir sömu samn- ingar og verkakvennafélögin í Reykjavík og llafnar- firði vinna nú eftir. . f: : . .... /u-Ul! : , 1 ) Vimrumálasaniband Samvinnuféhganna. ' VmnuvéítehdafélUg Akureyrar. NY VERZLUN Opnum í dag nýja verzlun undir nafninu EIERRA- BUÐIN í Strandgötu 23. Fjölbreytt úrval af herra- og drengjavörum. — Nýjasta tízka! Gjöið góð kaup fyrir páskana. HERRABÚÐIN Strandgötu 23. Sími 1238. F ermingarg j afir fáið þið hentugastar og beztar Vefnaðarvörudeild. P á s k a e stór og smá. Kaupfélag Eyfirðinga Nýlenduvörudeildin og útibúin. Guðsþjónustur. Messað á skír- dag í Akureyrarkirkju kl. 5 e. h. Altarisganga. Sálmar: 305, 136, 596, 599 603, og 232 — P. S. Messað í skólahúsinu í Glerár- þorpi á föstudaginn langa kl. 1 e. h. Sálmar: 159, 156, 174 og 484. — P. S. — Messað í Akureyrar- kirkju, fyrir íþróttamenn, kl. 10 f. h. Sálmar: 166, 169, 1174 og 151. — Sama dag kl. 2 e. h. Almenn messa í Akureyrarkirkju. Sálm- ar: 170, 159, 169, og 174. — K. R. Páskadagur. Messað í Lög- mannshlíð kl. e. h. Sálmar: 176, 187, 186 og 184. — K. R. — Akur- eyrarkirkja. Messað kl. 2 e. h. Sálmar: 176,187,185, 181. — P. S. Annar páskadagur. Messað kl. 2 e. h. í skólanum í Glerárþorpi. Sálmar: 176, 187, 185, 186. — P. S. —í Akureyrarkirkju kl. 2 e h. Sálmar: 179, 188 222 og 184. K. R. I. O. G. T. Stúkan Brynja, — Næsti fundur í Skjaldborg þriðjudaginn 12. apríl á venjul. tíma. Vígsla nýliða. Innsetning embættismanna. Reikningar. — Kosið í húsráð. — Hagnefnd skemmtir. Skógræktarfél. Eyf. auglýsir í blaðinu trjáplöntur til sölu eins og undanfarin ár. Er fólk hér með áminnt um að senda pantanir sem fyrst. Upplýsingar verða gefnar í síma 1464. „Dagur neitaði... . “ í Alþ.m. í gæi\ er fullyrt, að Dagur hafi neitað að birta grein um bruna trýggingamál eftir umboðsmann Brunabótafélagsins hér. Fylgir þessari frásögn engin skýring. — Grein þessi barst blaðinu svo $éint sL þMðjuda!g,; að- ekki 'var unnt að konia'-.'henni*'! blaðið á miðvikudag. En hún birtist í ísl.’a miðvikudaginn. Hefur það blað því væntanlega móttekið ritsmíð- ina fyrr en Dagur. Með því að þetta blað er ófúst að endur- prenta upp úr bæjarblöðunum éfni, sem ætla má að æði margir lesendur hafi þegar séð, var höf. tilkynnt, að greinin mundi ekki tekin, úr því að hann hefði kosið að birta hana í öðrum bæjarblöð- um. Hins vegar mundi hún hafa verið birt í síðasta tbl. Dags, ef hún hefði ekki þegar verið komin á prent annars staðar. Fíladelfía Lundargötu 12. — Páskasamkomur okkar verða þannig: Á skírdag, Safnaðarsam- koma kl .8.30 e .h. — Föstudaginn langn: Almenn samkoma kl. 8.30 e. h. Jónas Jakobsson talar. — Páskadag: Almenn samkoma kl. 5 e. h. Jóhann Pálsson talar, — 2. páskadag: Vitnisburðarsamkoma kl. 8.30 e. h. — Sóngur og hljóð- færasláttur. Allir velkomnir. Páskasamkomur Hjálpræðis- hersins. — Skírdag kl. 8.30 e. h.: Getsemanesamkoma. — Föstud. langa kl. 4.30: Sameiginleg sam- koma í Varðborg. Kl. 8.30: Sam- koma í sal Hjálpræðishersins. — Laugardag kl .8.30: Útisamkoma. — Páskadag kl. 8 f. h.: Upprisu- fagnaðarsamkoma. Kl. 4: Her- mannavígsla. Kl. 8.30: Samt-igin- leg samkoma í Nýja-Bíó. — Nýi deildarstjórinn, major H. Gul- brandsen, stjórnar og talar á páskasamkomunum. (Saumakass inn kom upp á no. 40). Frá Leikfélagi Akureyrar. — Næstu sýningar á sjónleiknum „Mýs og menn“ verða í kvöld, miðvikud. 6. apríl, og annan páskadag kl. 8. — Aðgöngumiða- sími 1639, milli kl. 1 og 2 daglega. Aðgöngumiðasalan í afgreiðslu Morgunblaðsins kl. 4.30—6 leik- dagana og í leikhúsinu milli kl. 7 og 8 síðd. — Bannað börnum inn- an 14 ára. Samkomur verða í Zíon föstud. langa og páskadag kl. 8.30 síðd. Olafur Olafsson talar. Augnlæknirinn í bænum, Helgi Skúlason, verður sennilega fjar- verandi frá miðjum apríl til miðs maí næstk. Guðspekist. Systkinabandið. — Fundur verður haldinn næstk. þriðjudag kl. 8.30 e. h. á sama stað og áður. Erindi. 18 þátttakendur 1 skíða- móti liér s. 1. sunnudag Síðastl. sunnudag fór fram svig- keppni í Hlíðarfjalli. Voru þátt- takendur 18 talsins, úr öllum flokkum. Meðal þeirra tveir Sigl- firðingar og einn Olafsfirðingur. Úrslit urðu þau, að 1. varð Hjálmar Stefánsson, Sigluf., 2. Sigtryggur Sigtryggsson, Akur- eyri, og 3. Gunnar Sveinsson, Siglufirði Bezta brautartíma hafði Sigtr. Sigtrygsson, 55 sek. t íbúð óskast 1. eða 14. maí. Skilvíst og reglusamt fólk. SÍMI 2282. JEPPI til sölu. Velmeðfarinn og í góðu lagi. a. v. á. Unglingsstulka 13-14 ára, óskast til heimilis- starfa strax eða síðar. Eitt barn í heimili. A. v. á.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.