Dagur - 06.04.1955, Side 8

Dagur - 06.04.1955, Side 8
8 Baguk Miðvikudaginn 6. apríl 1955 Vafnið í útisundlauginni á Ákur- eyri hifað með rafmagni Enn vantar talsvert fé til að Ijúka við innisundlaugina Byggivgarnefnd sun-dlaugarinnar hér á Akureyri og iþrQtlafulltrúi rikisins hafði fund með blaðamönn- um hér sl. sunnudag og hynnti þeim framkvœmdirnar við sundlaug baj- arins. Hafa nú fullkomin hitunartæki verið sett upp við laugina og eru nú tekin í notkun. Er vatnið leitt í gegnum hársíu og sancísíu í raf- . magnshitara og þaðan í laugarnar. Er þetla nýtízkuútbúnaður af beztu gerð. Verður eftirleiðis hægt að hafa hitastig laugarinnar að vtld. Það vinnst og við notkun taekjanna, að ekki á að þurfa að taka laugarnar til jivotla að innan nema sjaldan. Er hægt að hreinsa vatnið og fylgj- ast með því að ])að sé jafnan hreint. Rafmagnshitarana smíðaði Rafha í Hatnarfirði, en sandsiugcymana smíðaði Atli h.f. hér á Akureyri. Uppsetningu hreinsitækja annaðist Olafur Magnússon, pípulagninga- meistari, en allan rafmagusúthúnað Hrólfur Sturlaugsson, rafvirkja- meistari. Hitunartækin nýju hafa Jiegar reynzt vel, og þarf nú enginn að kvarta um kulda í lauginni hér. Er þetta mikil og góð úrbót, því að reynslan hefur sýnt það hér sem annars staðar, að fólk sækir ekki sundstaði, nema vatnið sé hæfilega heitt. Innisundlaugin. En hitun útisundlaugarinnar er aðeins áfangi í þeim framkvæmdum við sundstæði bæjarins, sem yfir standa. Innisundlauginni er enn ekki lo.kfð, en verkið sækist nú all- vel, og er ætlunin að taka þá laug í notkun seint á jjessu ári. Allur kostnaður við framkvæmd- irnar v.ið sundstæðið er orðinn 1.6 millj., og er.áætlað að heildarkostn- aður verði 2.1 millj. kr. Enn er tals- vert óselt af skuldabréfum bæjar- ins, ,er út vortx boðin á sl. ári. En jjau bréf gefa mjög góð vaxtakjör og er hagkvæmt fyrir menn að eiga þau. Sundmál Akureyringa. Þorsteinn Einarsson, íþróttafull- trúi, flutti ræðu um sundmál lands- manna og sérstaklega sundmál Ak- ureyringa. Hann di'ap meðal annars á, að Akureyringar stunduðu sund lítið, tniðað við aðra kaupstaði. Það myndi stafa af hinum lélegu skil- yrðum, er bæjarbúar ættu við að búa í þessu efni. Kuldann og hroll- inn legði ennþá að ntönnum frá skyldusundstímunum, ntenn vildu ógjarna endurtaka sundiðkanir sín- ar, er hinni almennu sundskyldu væri lokið. Væri þessu mjög á ann- an veg farið víða annars staðar, og nefndi hann tölur til sönnunar því, að fólkið sækir sundstaðitia vel, ef vatnið er sæmilega heitt og aðbún- aður góður að öðru leyti. Hann benti á, að sjálfsagt væri að selja að- ganginn að sundinu hér, eins og tíðkast annars staðar. Lét hann þess Búðum lokað kl. 4 á laugardag Á laugardag fyrir páska mun sölubúðum hér í bænum verða lokað kl 4 e. h. getið í því sambandi, að samkvæmt .reynslunni værj það oftast að Jitlu metið, sem gefið væri af þessu tagi. Rekstur sundstaða væri kostnaðar- samur, svo sem sjá mætti af {jví, að ,í Reykjavík }>yrfti bærinn að gefa nxeð hverju baði sent næst kr. 2.86, pg víri þó aðgangur seldttr. Ratin- verulegur kostnaður við að fara í sund jjar, vaæi um kr. 5.00. Þá gat hann eunfremur þess, að víða um lönd væri aðgangseyrir að sundstöðum hár, t. d. í Bandaríkj- unum, ]>ar færi aðgangseyrir upp í 8 dollara í sumum sundhöllum. 'Fullkomin laug. jþróttafulltrúinn sagði, að inni- laugin, sem nú er verið að byggja, væri mjög vönduð að ailri gerð og ekkert til hennar sparað. Það bezta hefði ætíð verið valið, og mundi hún svara öllum jjeim' kröfum urn hreinlæti og hollustu, er nú væru gerðar um sambærilegar sundlaug- ar. Hann sagði ennfremur, að vegria jjessa mundi viðhaldskostnaðurinn verða minni og daglegur rekstur auðveldari. í sambandi við hollustu og heil- næmi vatnsins sagði hann, að hver vatnsdropi í lauginni færi jrrisvar á sólarhring í gegnum hreinsunar- tækin, þar sem jjað væri dauðhreins- að. Mundi undirvatnslýsing laugar- innar ásamt nýjum og ströngum hreinlætisreglum, er allir sundlaug- argestir yrðu að fara eftir, gera fólki sundiðkanir eftirsóttar í framtíð- inni, hér eins og annars staðar, þar sem svipuð aðstaða er. Tillit til fatlaðra. Sérstakt tillit er tekið til fatlaðra og lamaðra í byggingu nýju laugar- innar. Þannig verður þeim auðveld- ara en annars staðar að iðka böð og sund með sérstakri aðstöðu að kom- ast í vatnið og upp úr jjví. Er jjetta mjög mikilsvert atriði og fullrar þakkar vert af þeim, er fyrir þessu hafa séð. Íþróttafulltrúinn sagði ennfrem- ur, að margir væru stórhuga, þegar verið væri að gera yfirbyggða sund- staði. Vildu hafa 30—50 metra sund- brautir. Reiknuðu menn jjá ekki með hinum daglega upphitunar- kostnaði, sem jjví miður væri mik- ill, þar sem ekkert laugar- eða hvera vatn vasri fyrir hendi. Hins vegar væri innlend reynsla fyrir því, að ágætir sundmenn kæmu frá stöðum, er hefðu svipaða laugarstærð og hér yrði. Nýja laugin er 12.5 X 5.8 m. Rannsókn við uppspretturnar. .Of snciuœt ,er ennjjá að segja um upphitunarkostnað gömlu laugar- innar. Þó er vist, að hann verð.ur nokkuð mikill. Mun Jj.á glijgglega koma í Ijós, hvers virð,i Jttlu, volgu Jaugarpar í Olerftrgjli eru. Þær er.u 48° heitar þar efra. En leiðslurn.ar esru orðnar lélegar og hitatap vatns- ins .óeðlilega ín.ikið. Með en.durbót- um á ein.angru.ninni og viðgerðum, m.unu jj.ær spara bæjarfélaginu tug- þúsundir króna árlega í uppliitun- arkostnaði. Sundlaugarnefnd hyggst líka beita sér fyrir endurnýjuðum ransóknum við uppspretturnar, ef vera mætti, að hægt væri að auka vatnið með viðráðanlegum kostn- aði. í nefndinni eru Guðm. Guð- laugsson, Hermann Stefánsson og Jón G. Sólnes. Menningar- og líknarsfarf slysa- varnardeldir kvenna í Ákureyri Deildín liélt hátíðlegt 20 ára afmæli sitt síðast liðirni laugardag Smárakvartettinn á hljómplötum Hinn vinsæli Smárakvartett hér á Akureyri siing á sl. ári inn á hljéim- plötur í Reykjavík fyrir híjóm- plötufyrirtækið Tonika. Sungu jjeir félagar alls 10 lfig. Eru fjögur lög nú nýlega kominn á markaðinn á tveim hljómplötum. Eru Jjað jjessi lög: Kvöldið er fagurt, enskt lag, Fagurt syngur svanurinn, ísl. þjóð- lag, radds. af Sv. Bjarman, Logn og blíða, eftir Bellmann og Fyrst eg annars hjarta hræri, eftir Bellmanu. I Smárakvartettinum eru Jóhann Konráðsson, Jósteinn Komáðsson, Gústav A. Jónasson og Magn.ús Sjg- urjónsson. — Hljómplöturnar fást í Sportvöru- og hljéiðfæraverzluninni við Ráðhústorg. Stjórn Amtsbóka- safnsins Á síðasta bæjarstjórnaríundi hér var ákveði ðað kaupa af Birni Halldórssyni 1. hæð húss þess, sem Amtsbókasafnið er nú í, fyr- ir 210 þúsund kr. Þá var kjörin bókasafnsnefnd til 4 ára: Davíð Stefánsson frá Fagraskógi, Þorst. M. Jónsson, Friðjón Skarphéð- insson, Eyjólfur Ámason og Stein dór Steindórsson. Kvikmyndir um páskana Kvikmyndahúsin hér bjóða upp á góða skemmtun um pásk- ana. Nýja-Bíó sýnir söngvamynd ina Söngur fiskimannsins, og leik ur og syngur hinn kunni og vin- sæli tenórsöngvari Mario Lanza aðalhlutverkið. Skjaldborgarbíó auglýsir tvær myndir á næstunnþ sem báðar eru líklegar til að vekja athygli: Læknirinn hennar, myndin er gerð effir skálds. Lloyd Douglas, „Magnificent Obsession“, og ítölsku myndina „Vanþakklátt hjarta“, en sú saga hefur komið út á íslenzku og er mörgum kunn. SESSELJA ELDJÁRN formaður Slysavamadeiídarinnar frá upphafi. Hinn 10. apríl næstkomandi eru liðin 20 ár síðan Slysavarnadeild kvenna á Akureyri var stofnuð af 53 konum. Forustu um félagsstofnunina höfðu þær frk. SesseJja EJdjárn og frk. Sigríður Þorláksdóltir. — Hefur Sesselja verið formaður ■deildarinnar frá upphafi, en Sig- ríður var gerð heiðursfélagi í 20 ára afmælishófi félagsins að Varðboi'g sl. laugardagskvöld. — Var 20 ára menningar- og líkn- arstarfa félagsins minnst þar með hátíðlegum hætti. Fjársöfnun til menningar- og líknarmála. Fi'k. Sesselja Eldjám stjórnaði hófinu og rakti í ræðu sögu deild- arinnar og drap á helztu störf. Hefur deildin stutt mörg merm- ingar- og líknarmál með ríflegum fjárframlögum. Hafa konur jafn- an verið ótrauðar að leggja á sig mikið erfiði til fjáröflunar fyrir deildina og orðið mikið ágengt. Sesselja skýrð frá því, að fyrstu 9 árin, sem deildin staríaði, hafi allt, sem inn kom, runnið til Slysavarnafélags íslands Þá gekkst deildin fyrir að koma upp skipbrotsmannaskýli að Keflavík á ‘Gjögrum, Jagði fram 10 þtts kr. til sjúkraflugyélakaupa Slysa- varnafélagsins, 5 þús. kr. til flug- björgunarsye.itar á Akureyri, röskar 3 þús, kr. tiJ ■&júkraluissins, nokkur þúsund kr. hefur félagið lagt til fjársöfnunar vegna slys- fara og liknarrnála og nú um hríð jhefur deildin unnið ötul'ega að fjársöfnun til björgunarskútu Norðui'lands. Er nú í sjóði hjá deildinni á 3. hundrað þús. kr. til þess málefnis. Þá hefur félagið staðið að námskeiðum í hjálp í yiðlögum, hefur útvegað björgun artæki og margt fleira gert, sem of langt er hér upp að telja. Veglegt afmælishóf. Fjölmenni var í afmælishófinu, félagskonur og gestir þeirra. Auk Sesselju fluttu ræður frú Sigríð- ur L. Árnadóttir, frú Fríða Sæ- mundsdóttir, frú Dóróthea Krist- insdóttir og frk. Sigríðut' Þor- láksdóttir. Kór deildarinnar söng undir stjórn Áskels Snorrasonar, Finnur og Ingimar Eydal skemmtu með hljóðfæraleik, Ein- ar Kristjánsson las frumsamda smásögu og Eggert Ólafsson söng gamanvísur, sem ortar voru til deildarinnar. Var hóf þetta hið ánægjulegasta í alla staði. í SlysavarnadeiJd kvenna á Ak- ureyri eru nú fimmta hundi'að konur. í stjórn eru: Sesselja Eld- járn, form., Sigríður L. Árnadótt- ir, gjaldk., Fríða Sæmundsdóttir, ritari, meðstjórnendur eru Mar- grét Sigurðardcttir, Soffía Jó- hannesdóttir, Dóróthea Kristins- dóttir og Valgerður Friðriksdótt- ir. DAGUR Vegna hátíðisdaganna ketnur ekki annað blað út í þessari viku. Næsta blað ‘kemur út ÍUnmtudaginn 14. apríl næstk. Ymis fiSindi úr nðgrannabyggðum Sjúkraflugvél lenti á Vestmannsvatni Björn Pálsson llugmaður skrapp í fyrri viku norður í Reykjadal í Suðttr-Þingeyjarsýslu Jjeirra erinda að Ilytja sjúkling jjaðan til Reykja- víkur. Björn lenti á ís Jtjá Vest- mannsvatni og tókst lending og flugtak ágæta vel. Sjúklingurinn var éir húsmæðraskólamint á Laug- um, en átti heima í Reykjavík. — Flugvélar hafa áður setzt nokkrum s.i.nnuin á Vest.inan;usva.tni, en það er enn undir þykkum ís. Hefur skotið tvær hrefnur Páll Pálsson hrefnuskytta er bú- inn að fá tvær hrefnur á vertíð þeirri, sem nýlega er hafin. Skaut hann þá fyrri á Grímseyjarsundi en þá síðari við Hrísey. Hann hyggst ltalda þessum veið- um áfram eftir hátíðarnar. Handavinnusýiiiiig og samsöngur á Laugran Um síðastliðna helgi var handa- vinnusýning námsmeyja héraðssköl- ans á Laugum. Var jjar margt fag- urlega gerðra muna, og undruðust gestir aíkiist nemetKla og hand- bragð. Handavinnukennari cr Anna Stefánsdóttir frá Eyjadalsá. Nokkur dagamúnur var að ijðru leyti á Laugum þennan dag. Skóla- kórarnir sungu undir stjóni Páls H- Jónssonar fyrir nemendur og .gesti. Eru jjejr þrír, karla- og kvennakór héraðsskólans og kvennakór hús- mæðraskéilans. — í tilefni dagsins heimsótti kirkjukór Einarsstaða- kirkju skólann og siing undir stjéjrn Páls H. Jémssonar. Og að siðustu sungu allir kéirarnir sameiginlega, og var söngfólkið þá um eða yfir 100. Alls voru sungin 25 lög. Þessi sýningardagur og söngdag- ur var hinn ánægjulegasti. Prófin fyrir yngri og eldri deild og smíðadeild héraðsskólans hefjast í dag. í framhaldsdeildinni munu próf hefjast um miðjan maí. Heilsufar heíur verið gott að und- anförnu, en vegna ótta við inflú- enzu, verður nemendum eigi gefið heimfararleyfi um páskana að [jcssu sinjti. 80 silungar á einum degi úr heiðavatni Fosshóli, í gær. Veiðimenn hér um .shiðir bregða sér öðru hverju upp að Kálfborgar- vatni til að veiða. Mesta dagsveiðin er 80 silungar. Veðurblíða er dag hvern, og er nú orðið snjólítið. Jörð.er jjó talin fremur létt til beitar. FIjótsh@iði er aðeins fær jeppabílum. Nokkur aur- bleyta er á vegum á láglendi. Tréskurðarnámskeiðinu á Foss- hóli er nú lokið. Kennarinn, Jón Bergsson,' byrjaði kennslu á öðru tr.éskurðarnámskeiði í Kinn á mánu daginn. Stendur það að Landamóti.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.