Dagur - 07.05.1955, Page 5

Dagur - 07.05.1955, Page 5
Laugardaginu 7. maí 1955 D A G U R 5 Akureyrarveður í Kaliforníu - Lát- laust imiaii dyra í Hvítatósinu - ís- lendingur í ábyrgðarstöSu í Wasliing- ton - Með bændum í Nebraska - r Abrifamikil kirkjuganga á páskurn Snoiri Sigfússon, fyirum námssftjóri, dvelst um þessar mundir í Berkeley í Kaliforníu. Þaðan skrifar hann Deai 24. april sl., og segir frá ferð sinni vestur að Kyrraliafi og ýmsu, er fyrir augu bar: Hér er rigningaveður, eklii ólíkt og á Akureyri í júlí, og hiti um 12°. En mikill er hér gróðurinn og dásamlegur og Jitir gróðursins er meiri en eg lief nokkurs stað- ar áður séð. Hér eiu allmargir íslendingar, sumir búsettir hér við föst störf, aðrir við nám, m a. Hörður Helgason, Olafssonar kennara á Akureyri, og var hann hér í kvöldboði með mér í gær. — Mér finnst Amerika og allar þessar órafjarlægðir of viðamiklar fyrir mig. í New York gæti eg ekki lifað. Þar verður maður að mús í flestum skilningi. Sama fannst mér eða svipað að vera mundi um Ghicago, en þar stanzaði eg stutt. En Washington er fögur borg og fcar sá eg margt. Eg kom í Hvíta húsið og hafði gaman af því vegna alls þess látleysis, sem þar blasir við auga — Eiginlega ekk- ert nema þessar myndir af for- setunum. Þá eru konungahall- irnar á Norðurlöndum eitthvað skrautlegri og meira í þær borið, að eg nú ekki tali um Bretland. — En þótt ekki sé þarna í Hv’ta húsinu mikill íburðurinn, þá er mikill og virðulegur blær þar á öllu og yfir öllu. Og þennan dag var stöðugur mannfjöldi, sem gekk þar um sali, svo að við þurftum að bíða á annan klukku t’ma eftir að komast að. Eg skoð aði hin miklu minnismerki þeirra Washingtons, Lincolns og Jeffer- sons, þar sem orð þeirra eru látin blasa við öllum og lifa á nöktum steini. Hafa sjálfsagt þennan eina dag mörg þúsund manna lesið þá lífsspeki og siðspeki, sem þar er skráð eftii' þessum mikilmenn- um, og þá ein'kum þeim Jefferson og Lincoln. Jón Árnason hankastjóri í Wachington. í Washington hitti eg Jón Árna- son baukastjóra, sem þar býr nú sem einn af stjórnendum Al- bjóðabankans.. Var gaman að hitta þennan. gamla og góða fé- laga og vin, sem brotið hefur sér merka braut með gáfum og skap- festu og dugnaði, og er nú síhugs- andi urn landsins gagn og nauð- synjar. Var hann, eins og kunn- ugt er, aðalfrumkvöðull að því, að Landsbankinn tók sér fyrir hend- ur að örva börn í landinu t'l ráð- deildar og spaínaðar með því að gefa hvéi’ju þéirra á vissu ald- ursskeiði 10 krpnur og gera þeim jafnframt auðvelt að auka þá innstæðu með því að hafa spari- merki til sölu í barnaskólunum, og næði sú síarfsemi smátt og smátt tiLállra -barna í landinu á skólaaldri. Nú er Jón Árnason, sem ýmsþ; fleiri, þungt hugsandi um fjármal okkar. En eg og við, sem að þéssu sparifjármáli höf- um unnið, erurn að vona, að ein- hver leið, finnist til þess að tryggja þetta fé barnanna gegn rýrnun, hvað svo sem á dynur. — Eg hef kómið hér í skóla. sem hafa um langt skeið haft spari- fjársöfnun meðal barna og unglinga,. og stendur ríkið á bak við það starf. Og vonandi fæ eg meira um það að vita síðar. Með bændum í Nebraska. Frá Washington flaug eg til Chicago og þaðan til Omaha í Nebraska. Þar var k.omið sumar og hitar. 'talsverðir, en of lítið regn. Ekki.er land þar fagurt, en hver skiki,svo að segja.ræktaður. —- Þar er mikið um svínauppeldi og einnig kálfa af holdakyni. Kom eg að gamni á einn rnark- aðsstað í Weeping Water, þar sem boðnar voru upp hjarðir grísa og kálfa oa hafði gamnn af. Þar var líf í tuskunum Þeir, sem kaupa þessa ungu gripi, ala þá svo 6—8 mánuði og selia síðan til slátur- húsa. Má upp úr slíku hafa tals- vert fé oft og tíðum, en vitanlega nokkur áhætta þó. þar sem sölu- mark. getur skyndilega brcytzt til hins verra fyrir seljandann. Lcizt mér'mjög vel á þetta geld- neytaungviði, sem eg sá hér og þar í Nebraska og datt 'í hug að líklega væri það svipaðar skepn-. ur, sem bændur í Eyjafirði vildu láta flytja inn. Nebraska er fyrst og fromst ríki bændanna. Það er talsvert stærra að flatarmáli en allt ís- land og eru íbúar þess um 1400 þús. og þar eru um 112 búsund bændabýli. Þar eru aðeins 2 all- stórar borgir, Omaha, með um 250 þús. íbúa, og Lincoln, með tæplega 100 þús. íbúa. Það er höfuðborg r.'kisins, stílhrein og falleg. Þar er stórt og mikið þing- hús og sker sig þar úr öðrum byggingum. Er það 22 hæða hátt, og sést þaðan af efstu hæð yfir borgina. Er mér sagt að Nebraska sé eina ríkið, sem ekki á þinghús í stíl við þinghús alrikisins í Washington. Er þingið í Nebraska lika eina fylkisþingið sem starfar aðeins í einni deild, en hin ríkja- þingin öll í tveimur. Þetta rfki sker sig einnig úr að því leyti, að það greiða menn engan tekjuskatt og söluskatt ekki heldur. í kirkju á páskum. Á páskadag fór eg í kivkju í Weeping Water. Það er þorp með um 1200 íbúa. En þar eru 5 kirkj- ur og hin 6. í smíðum. Þetta undrar íslendinginn, en heima- menn ekki. Kirkjan er miðdepill alls menningarlífs í þoi'pinu, lif- andi af fjöri og áhuga. Eg hafði mikla ánægju af þessari kiikju- göngu. Kirkjan er ekki stór, rúmar venjulega um 400 manns, en getur rúmað talsvei’t mcir ef laust skili-úm er tekiö og sunnu dagaskólastofan lika notuð. Þessi 90 ára gamla kix-kja er mjög snot- ur og smekkleg og kunni eg ákaf lega vel við mig í henni. Hún er mjög breið og þar sem presturinn stendur er ofui'lítil upphækkun og ekki innai-lega, svo að manni finnst presturinn standa næi'ri því mitt á meðal safnaðarins. Þar „í New York vcrður maður að mús í flestum skilningi,“ segir Snori-i, í ferðapistli sínuin frá Banda- r.kjunum sein jbirtist hér í þcssu blaði. .Eitt var það í Ncw York sem snerti mig allt öðruvísi en hin ósköp- in, sem þar ber fyrir augu en það er heimili Sameinuðu þjóðanna,“ segir í þessu Ameríkubréfi frá Snorra Sigfússyni. Myndin er af húsakynnum alþjóðasamtakanna á Manhattaneyju i New York. — er altari og pi'édikunai'stóll eitt og hið sama, en pípuoi'gelið innan við prestinn. Um leið og messan hófst og upphafslagið byrjaði, kom söngflokkurinn syngjandi inn í kii'kjuna, kai’lar vinstra megin og konur til hægri, í einni samfelldri röð, og stillti sér upp í boga framan við og til hliðar við ox-gelið og aftan við prestinn, en söfnuðurinn tók kröftuglega und- ir. Sá eg engan mann, sem ekki söng með, svo að segja mátti með sanni að þetta vigða hús yi'ði voldugt sönghaf á augabragði. — Blóin til kirkjunnar. Þetta hreif mann, því að söngur- inn lyftir, göfgar og glæðir. Hef ef oft ovðið miður mín við messu heima, þegar allir þegja nema uppstilltur söngflokkur, sem til þess er rá'ðinn. — Ekki tónaði presturinn þarna, en söfnuðurinn og hann lásu á víxl ritningar- greinar, og það var sannarlega ekki gert með hangandi hendi, og á því m. a. auðfundið að þessi söfnuður er vanur kirkjunr.i og siðum hennar. Og hug fólksins til kirkjunnar fannst mér eg m a. sjá á því, hve margir komu með blóm og færðu henni. — Ekki var ræða prestsins löng, enda sjáanleg engin þungamiðja guðs þjónustunnar, heldur söngurinn og lestur ritningargreina. En hún var skynsamleg og blátt áfram. — Og þá er síðustu hendingarnar voru sungnar af útgöngusálmin um, gekk söngflokkurinn syngj- andi út í sömu röð og hann kom inn, en nú voru hinir síðustu fyrstir. — Eg tók eftir því, að í hverju sæti lá fjölritað blað, sem ætlað var kirkjugestum, og var í einu broti. Var framan á íalleg mynd og skrautprentað: Kristur er upprisinn, en aftan á nokkur orð um páskaundrið Þessa prentuðu forsíðu og bakhlið læt- ur miðstöð þessarar kirkju prenta og sendir öllum kirkjum sínum út um öll Bandaríkin, en opnuna fyllir hver kirkju út. Hér var á fremri síðu opnunnar ýmsar til- kynningar til safnaðarins um starfsemina komandi mánuð: um skólann, ýmiss konar fundahöld nefnda og fulltrúa, c. s. frv. Eitt kvöldið átti að vera sonakvöld, þar sem feður og synir heim- sæktu kirkjuna og þægju kaffi (eða te) í borðsalnum í kjallara hennar, og er þar líka eldhús. Samstarf kirkju og safnaða. Þar ætlaði svo prestur að ávarpa gestina. Þetta og margt fleira bendir til náins samstarfs og vin- samlegs milli kirkju og safnaðar. Það virtist þá heldur ekki að menn gengju að því með hang- andi hendi að leggja fé af mörk- um til starfsins þennan hátíðis- dag, því að það ætla eg, að það hafi hvert mannsbarn, sem í kirkju var, gert, bótt ekki væri haft hátt um það eða þess mikið vart. Þegar eg gekk frá þessari há- tíðlegu athöín í hinni íburðar- lausu en lifandi kirkju, fór eg áð rifja upp fyrir mér ýmsar efa- semdir, sem á mig hafa sótt síð- ustu áratugina um það, hvort skipulag okkar á þessum mál- um, þ. e. þjóðkirkjan, væri hið eina rétta fyvirkomulag. Sá ríkisrekstur ber nú a. m. k. allt annan svip og syfjulegri en kirkjustarfið í Weeping Water. Sameinuðu þjóðirnai'. Eitt var það í New York, sem snerti mig allt öðruvísi en hin ósköpin, sem þar ber fyrir augu, en það er heimili Sameinuðu þjóðanna. Þangað komum við Gunnhildur dóttir mín ásamt Leifi Ásgeirssyni prófessor. Að vísu er stærð og hæð hallarinnar geysileg, en hún er fábrotin og einföld í sniðum. Og þegar inn er komið, er allt stílhreint, hag- kvæmt og látlaust. Við fengum að sjá þar alla sali undir stjórn leið- sögumanns. Voru þar hundruð manna í sömu erindum, en allt gekk hljóðlátlega og rólcga. í raun og veru er þetta tákn og tæki máske eina von mannkyns- ins um friðsamlega sambúð á komandi tímum. Og trúað gæti eg þvi, að hver og einn, sem gengur um kapelluna, sem eg vil kalla svo, stúku þagnar og bænar, biðji þess heitt og innilega, að sú von megi rætast, svo að þessi mikla höll, þetta stórkostlega mann- virki megi í sannleika kallast friðarhöll um alla framtíð. — ís- landi var þarna ekki gleymt, ,því að leiðsögumaður þess hóps, -sem. s Framhald á 7. síðu.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.