Dagur - 14.05.1955, Blaðsíða 1

Dagur - 14.05.1955, Blaðsíða 1
í Fylgist með því, sem gerizt hér í kringum okkur. — Kaupið Dag. — Sími 1166. Dagur DAGUR kcmur næst út miðviku- daginn 18. maí. XXXVIH. árg. Akureyri, laugardaginn 14. maí 1955 28. tbL Fíugfélagi byrjar áæflunarferðir Fréítamemi Ákureyrarblaðamia í köimunar- leiðangri til Stokkhólms Flugfélag íslands byrjaði áætl- unarferðir til Osló og Stokkhólms í gær cr Gullíaxi flaug þangað, og verður fíogið á hverjum fóstu- degi í sumar frá Reykjavík og heim aftur á laugardögum. Er lagt upp frá Reykjavík kl. 8.30 að morgni, komið til Osló kl. 15, dvalið þar í 30 mín., en síðan haldið til Stokkhólms og komið þar kl. 17. Lagt af stað heim kl. 9.30 á laugardagsmorgun, og farin sama leið til baka og komið til Reykjavíkur kl. 17. Fréttamenn í könnunarleiðangri. í tilefni af því, að íslenr.kt f!ug- félag tekur nú upp áætlunarferð- ir til Stokkhólms í fyrsta sinn, bauð Flugfélag íslands fiétta- mönnum héðan í fyrstu áætlun- arfei-ðina og fóru fréttamenn Ak- ureyrarblaðanna suður í fyrra- dag. Urðu að fara landveg vegna stórhríðarinnar, en héldu með Gullfaxa til Stokkhólms í gær og eru væntanlegir til Reykjavikur í dag, og hingað norður í kvöld eða á niorgun. Frá Degi fór Erlingur Daviðsson, frá íslendingi Jakob Ó. Pétursson, frá Verkamannin- um Björn Jónsson og frá Alþm. Bragi Sigurjónsson. Til Bretlands og Danmcrkur. Þá heldur F. í. uppi áætlunar- ferðum til Bretlands og Dan- merkur eins og undanfarin ár. Er flogið beint til Kaupmannahafnar á miðvikudögum og heim á föstu- dögum og ennfremur til Kaup- Páll hreppstjóri á Stóruvöllum látinn mannahafnar, með viðkomu í Glasgow, á laugardögum og heim, sömu leið, á sunnudögum. Til London, með viðkomu í Glasgow er flogið á þriðjudögum og heim samdægurs Félagið hefur nú báðar milli- landaflugvélar sínar, Gullfaxa og Sólfaxa, í þessum ferðum. — Er Gullfaxi nýlega kominn úr gagn- gerðri viðgerð og „klössun" í Danmörk. Nákvæmari upplýsingar um ferðatíma flugvélanna er að finna í auglýsingu um sumaráætlunina 1955, sem birtist hér í blaðinu í dag. Banaslys á götu í Rvík: Bifreiðin með A- merkio eti seíd til Reykjavíkur Hörmulegt bifreiðaslys í Rvík sl. fimmtudagskvöld, að öldruð kona varð fyrir vörubifreiðinni A—791 og bsið bana. Bifreið þessi var seld héðan úr bænum til fyrir- tækis í Reykjavík á sl. ári, þótt hún sé enn skrásett hér. Þá gerðist sá atburður aðfara- nótt 11. þ. m., að ölvaður maður fannst liggjandi á götu í Reykja- vík, með áverka á höfði. Var hann fluttur í herbergi í lögreglustöð- inni. Taldi næturlæknir um ölvun að ræða. En maðurinn andaðist þar um nóttina. Kom í ljós að höf- uðkúpan var brotin. Er talið að maðurinn hafi fengið áverkann fyrr en hann féll í götuna, og að banameinið sé heilablæðing. Mál þessi eru enn í rannsókn. 25 ára starf Skógræktarfélags Eyfirðinga: Séð úr Vaðlareit Skógræktarfélags Eyfirðinga inn Eyjafjaröarhérað. Skógurinn á myndinni cr plant- aður af félagsmöimum. Hæstu tré eru orðin 4 ínetra há. Álþingi lauk á mið- vikudag Þinglausnir fóru fram sl. mið- vikudag. Hafði þingið staðið í 168 daga. Mánudags- og þriðjudags- kvöld fóru fram almennar stjórn- málaumræður frá Alþingi. Hlýddu menn á þær me& nokkurri athygli. Skýrðust viðhorf flokkanna nokk- uð í umræðunum, en annars kom fátt nýtt fram. Stjómarandstaðan reið ekki feitum hesti. fró þeim fundi. sfarfrækt í grennd víð Akureyri Eylirðingar vorn fyrstir til að stofna til skipulegra skógræktarsamtaka Kjörin nefnd til að gera tiifögur ríáttú Aðfaranótt sl. þriðjudags andað- ist að Stóruvöllum í Bárðardal Páll H. Jónsson hreppstjóri og fyrrum bóndi, nær hálftíræður að aldri, fæddur 13. okt 1860. Hafði hann haldið andlegri og líkamlegri heilsu allt fram á síðustu ár. Hann var þjóðkunnur bóndi og ræktun- armaður. Segir frá honum og ævi- starfi hans í bók Jóns á Yztafelli „Bóndinn á Stóruvöllum". Páll var hinn mesti merkis- og sæmdar- maður í hvívetna. Af hálfo Framsóknarraaíma eiga þar sæti Hermann Jónasson og Vilhiálmúr Þór Á fundi sameinaðs þings sl. þriðjudag fór fram hlutfallskosn- ing 7 manna í milliþinganefnd, ssm gera á tjllögur nm nýjar at- vinnugreinar og hagnýtingu nátt- úruauðæfa, samkvæmt þings- ályktunartillögu, sem samþykkt var á Alþingi 29. apríl sl. og var flutt af Hermanni Jónassyni, for- manni Framsóknarflokksins, og nokkrum öðrum þingmönnum flokksins. Komu ekki fram uppástungur um fleiri msnn en kjósa átti og vu'ðu því menn þeir sjalfkjörnir, er á listanum voru. AÍ hálfu Framsóknarmanna eiga sæti í nefndinni þeir Her- mann Jónasson og Vilhjálmur Þór. Aðrir í nefndinni eru: Eggert Þorsteinsson Einar Olgeirsson, Magnús Jónsson, Davíð Olafsson og Jóhann Jakobsson. Á miðvikudagskvöldið var þess minnst hér í bænum, að þann dag fyrir 25 árum komu 12 áhuga- menn um skógrækt saman hér á Akureyri og stofnuðu Skógrækt- arfélag Eyfirðinga, og voru það hin fyrstu skipulegu skógræktar- samtök landsins. Síðan hefur orðið mikil og ör framþróun í skógræktarmálum, pg hér í Eyjafirði hefur þetta félag unnið gagnmerkt starf cð verndun skógarleiía, myndun nýrra skógar- lunda og vakningu almenns áhuga íyrir skógræktarmálinu í lieild. Staríríns minnst. Núverandi stjórn félagsir.s bauð 1)1 kafíisamsætis í tilefni dagsins og þar fluttu forvígismenn skóg- rækíarmálsins ræður og minntust brauíryðjandastarfsins og verk- eína framtíðarinnar. Guðmundur Karl Pétursson yfirlæknir, form. félagsins, stjórnaði hófinu og flutti ávarp, en sögu félagsins og skýrslu um helztu störf þess, flutti Armann' Dalmannsson, fram- kvæmdastj.félagsins,en auk þeirra töluðu Þorsteinn M. Jónsson, for- seti bæjarstjórnar og settur bæjar- stjóri, Tryggvi Þorsteinsson, kenn- ari, form. Skógræktarfélags Akur- evrar, Jón Rögnvaldsson garð- yrkjumaður og Hannes J. Magnús- son skólastjóri. Auk þess flutti Ár- mann Dalmannsson kvæði. Síðan sýndi Edvard Sigurgeirsson kvik- myndir. Brautryðjendur heiðraðir. Formaður félagsins, lýsti heið- ursfélagakjöri á síðasta aðalfundi, i tilefni þessara tímamóta. Voru eftirtaldir menn gerðir heiðursfé- lagar fyrir störf í þágu félagsins og í þágu skógræktarmála yfirleitt: Jón Rögnvaldsson, garðyrlijumað- ur frá Fífilgerði, fyrsti form. fé- lagsins, Ólafur Thorarensen, bankastjóri á Akureyri, og Valtýr Stefánsson ritstjóri í Reykjavík. Það kom fram í raeðum manna, að upphafsmaður að stofnun fé- félagsins var Jón Rögnvaldsson. Hann var þá nýlega kominn heim eftir dvöl í Kanada, en þar vann hann um þriggja ára skeið í skóg- ræktarstöð ríkisins og kynntist þvi, aö haegt er að rækta skóg á norð- lægum slóðum. Hafði reynsla hér í Eyjafirði og sýnt það, að ýmsar trjátegundir döfnuðu hér vel. (Franihald á 7. síðu).

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.