Dagur - 14.05.1955, Blaðsíða 8

Dagur - 14.05.1955, Blaðsíða 8
Bagum Laugardaginn 14. maí 1955 ugvGíiur UH1 við ves Blelikingar kommúnista nm flugvöll- inn og „tortímingartæki^ þar þjóna ekki íslenzkum hagsmunum I eldhúsdagsumræðunum nú í vikunni flutti Eysteinn Jónsson, fjármálaráðherra, snjalla ræðu um varnarmálin og hrakti þar lið fyrir lið fullyrðingar og blekkingavaðal kommúnista og fylgifiska þeirra um þessi mál. Einkum varð kommúnistum og þjóðvarnar- mönnum svarafátt í sambandi við upplýsingar ráðherrans um stærð Keflavíkurflugvallar, en blöð þeirra hafa spunnið upp tröllasögur um þetta atriði nú upp á síðkastið og lialdið því fram, að hann hefði sérstöðu í flugvallarkerfi vestrænna lýðræðisþjóða og stafaði þess vegna af honum sérstök hætta. Hér á eftir verða rakin helztu atrið- in úr þessum kafla í ræðu ráðherrans. í upphafi ræðu sinnar rakti ráð- herrann, hversu umbótastefnan í framkvæmd varnarmálanna und- ir forustu Framsóknarmanna, hefði dregið úr þeim vandkvæð- um, sem fylgdu dvöl erlends her- liðs í landinu.Þeir, er með skefja- lausum ofsa beittu sér fyrir því, að ísland væri óvarið land, hefðu iþví orðið að hörfa til nýrra víg- stöðva. Þjóðviljinn og Frjáls þjóð hefðu nýlega birt hinar mestu ævintýra- og tröllasögur um Keflavíkurflugvöll, sem væri „aðalbækistöð tortímingartækja“ i heiminum. Væri erfitt að sjá, hvort málflutningur þessi ein- kenndist meira af vanþekkingu eða ófyrirleitni og væri þó óskammfeilnin sennilega meiru ráðandi. Keflavíkurflugvöllur ekki „einstæður“. Aðalinntak hinna nýju árása kvað fjármálaráðherra í því fólg- inn, að læða inn hjá almenningi þe-irri trú, að Keflavíkurflugvöll- ur væri einstæður í sinni röð. Því væri haldið fram að svo stórir flugvellir væru hvergi hafðir nærri stórborgum eða þess minnsta kosti gætt, að þeir hefðu ekki svo langar flugbrautir, sem gvíslegur sómi Karli Kristjánssyni mar sýndur á 60 ára afmælinu Mikill mannfjöldi úr Þingeyjar- sýslu og víðar að heimsótti Karl Kristjánsson alþingismann í Húsá- vík á sextíu ára afmæli lians s. 1. þriðjudag. Tók hann höfðinglega á móti gestum sínum og var hús- fyllir allán daginn héima hjá hon- um við góðan fagnað. Margar ræö- ur voru fluttar og kvæði, mikill fjöldi heillaskeyta barst víds vegar að. Þá voru honum færðar margar góðar gjafir, m. a. klukka rnikil og vönduð, er ýmsir vinir hans í Þing- eyjarsýslu gáfu honum. Verkið er írá ágætri þýzkri verksmiðju, en klukkukassinn, fagurlega útskorinn, er gerður af Kristjáni Halldórssyni úrsmið á Stóru-jTjörnum, og er listahandbragð á. nauðsynlegar eru fyrir stórar sprengjufluvél. eins og einkenndi Keflavíkurflugvöll. Þetta- hrakti fjármálaráðherra með upplýsing- um þeim, sem hér fara á eftir og flugmálastjórnin hafði látið í té. Keflavíkurflugvölíur hefði 4 flugbrautir, 1700—3000 m. lang ar og 60 m. breiðar. Idlewild- flugvöllur við New York hefði 6 brautir, 2000—3000 m. langar og 65 m. breiðar. — London Airport hefði 6 brautir, 2500— 3000 m. langar og 100 m. breið- ar. — Orly-flugvöllur við París hefði 4 brautir, 2000—2700 m. Iangar og 65 m. breiðar. — Flugvöllurinn við Rómaborg væri og af svipaðri stærð og Keflavíkurflugvöllur, auk um það bil 20 flugvalla í Frakk- landi sem væru álíka stórir. Þjóna ekki íslenzkum hagsmunum. Hann kvað fróðlegt, ef unnt væri að fá um það upplýsingar í hvers þágu væri hamast á þeim blekkingum, að Keflavíkurflug- völlur væri aðalbækistöð tortím- ingartækja. Það væri að minnsta kosti alveg víst, að það gæti ekki verið í þágu 'slenzkra hagsmuna. Hakla áfram umbótum. í lok ræðu sinnar sagði fjár- málaráðherra, að íslendingar ættu mikið undir því að ekki kæmi til styrjaldar. Þeir hefðu valið sér samstöðu með hinum vestrænu lýðræðisþjóðum. En við yrðum að halda áfram um- bótum á framkvæmd varnarmál- anna meðan óhjákvæmilegt væri að herlið dveldist í landinu. En vonandi bötnuðu svo friðarhorf- ur í heiminum innan skamms, að það geeti horfið úr landi fyrir fullt og allt. Ræktunin sækir á ftlaTarían — hinn skæði sjúkdómur — hefur vcrið einn versti óvinur landþúnaðarins í Indlandi. Sérfræðingar frá Matvæla- og landbún- aðarstofnun S. Þ., frá Heilbrigðisstofnuninni og fleiri alþjóðasam- tökum, hafa aðstoðað indversk stjómarvöld við að frelsa raklend héruð frá malaríuplágunni, sem mývargur úíbreiðir. Landþurrkun hefur verið mikilvæg framkvæmd í þessari baráttu. Myndin sýnir indverskan bónda aka dráttarvél sinni um landssvæði, þar sem áður voru mýrar og fen en nú er rækað þurrlendi og lausí við malariuna. Skóli fyrir skattgreið- endur - Fmmsýning Leikfélag Akureyrar frumsýnir að forfallalausu franska gamanleikinn Skóli fyrir skattgreiðendur fimmtu- daginn 19. maí, kl. 8 e. h. Leikstjóri er Jón Norðfjörð. — Aðgöngumiða- sími er 1639 milli kl. 1 og 2 daglegn. Aðgöngumiðar afgreiddir í afgr. Morgunblaðsins frá kl. 4.30—6 leik- dagana og í Jeikhúsinu kl. 7—8. — Fastir frumsýningargestir vitji að- göngumiða sinna í Rakarastofu Sig- tryggs og Jóns á þriðjudag 17. þ. m. Annars verða Jreir seldir öðrum. Þeir frumsýningargestir, sem ekki vitja miða sinna á tilsettum tíma, eiga á hættu að tapa tilkalli til þeirra í framtíðinni. r Ottast að fé hafi feniit í eppsveitum Þiugeyjarsýslu Útsæði undir smásjá Með aðstoð Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna hefur tekizt að finna útsæðiskomblöndu fyrir rís, sem gefur miklu meiri uppskeru en áður hefur þekkzt í Austurlöndum. Er nú verið að reyna þetta nýja útsæði í Indlandi. Myndir sýnir útsæðiskornið imdir smásjánni og starfsmann S. Þ. að störfmn sínum. Upp úr kuldat ðinni, sem ríkt hefur hér um norðanvert landið undanfarna viku, kotn norðan- stórhríð, með hvassviðri og fann- komu, um Norðausfurland i fyrri nótt og gær og fram eítir aðíara- nótt föstudagsins. Setti niður allmiki'nn snjo og var sem um hávetur væri í lyrradag og gærmorgun. Hér í bænum rak sam- an í skaíla, en ekki varð veruleg umferðartálmun af þeim sökum. Mún meiri snjór var hér út með firðinum, þótt samgongur stöðvuð- ust ekki. Vaðlaheiði varð illfær í fyrradag. Var áætlunarbíllinn til Húsavíkur 5 klst. til Fosshóls í fyrrakvöld og kom ekki hingað í gær. Suðurleiðin tepptist ekki. Kom áætlunarbíllinn frá Reykjavík í fyrrakvöld og fór 'aitur í gær- morgun. Meiri snjór austur jrá. Víðs vcgar um Þingeyjarsýslu setti niður mikinn snjó. 1 gær Var [jar enn kafaldshríð í útsveitum, og skaflnr 1—2 metrar í Húsavík og í neðanveröum Aðaidal. Var þungt færi á Aðaldalsvegi og samgöngur eriiðar. Sauðburður er aimennt byrjaður, og eiga bændur og aðrir sauðf járeig- endur í miklum eríiðieikum með að hýsa allt sauðféð og búa til stíur fyrir lambærnar. Er viða erfitt um vik í hlöðum, t. d. hér í Eyjafirði, vegna fyrninga. Annars snjóaði ekki; til muna í innsveitum Eyjafjaiðar. Óttazt að fé hafi fennt. Allmargir bændur í Suður-Þing- eyjarsýslu höfðú rekið geldfé til afréttar, og var nokkur uggur í mönnum í gær að fé kynni að hafa fennt, }iví að aiiar lágir voru auðar orðnar og líkiegt, að fé liafi leitað skjóls þar, Jjví að vcðurljæð var mikil. Hrakviðri i Ólafsfirði. Frá Ólafsfirði var blaðinu símað í gær, að Jtar hefði verið versta yeð- ur í fyrradag og fyrrinótt, en ekki mikill sjógangur. Var ekki vitað til, að tjóit hefði orðið í veðrinu. SkafJ- ar eru víða meira en metri á dýpt, og vegurinn fram Ólafsfjörð var illfær í gær. Búið var að moka snjó al jjjóðveginum á Lágheiði, er byl- inp gerði, en umferfj ekki liafin. Mun hún nú ófær aftur. Þetta veður er eitt versta maí- áiílaup, sem komið hefur í mörg :ir. Sæmilegur afii á nýja ioðuu Iijá Ólafsfjarðar- bátum Fyrrihluta þessarar viku veidd- ist talsvert af loðnu í Ólaísfirði, allt upp í 20 tn. á dag, og beittu triliur, sem róa frá Ólafsfirði, nýrri loðnu, og hafa aflað allvel. En gæftir eru mjög stopular og síðustu daga hefur ekki verið farið á sjó. Filmía sýoir „Elskaða óviniim“ á morgun A morgun kl. 1 e. h. verður kvik- myndin „Elskaði óvinurinn" sýnd á vegum Filmíu í Nýja Bíó. Er það írönsk gamanm,ynd. Næsta suhnu- dag 22. Jj. ro., verður þýzka myndin „La Paloma", öðru raafni „Grpsse, Freihcit No. 7“, sýnd, og ntunu síðan verCa sýningar á hverjum sunnudegi fyrst um sinn. Jafnframt er ný efnisskrá væntanleg nú tint he’gina fyrir næstu myndir. „Elskaði óvinurin“ er skemmti- og gamanmynd, gerð árið 1936. Er hún tálin riieðal skcmmtilegustu og beztu verka ffanska leikstjórans Max Opliiils, sem stjórnar henni. „Elskaði óvinuri:in“ fjallar um drauga og afturgijngnr og er þrung- in gallverskri kímni og frásagnar- gleði í ríkum rnæli. Ophúls er meðal þekktustú leik- stjóra Frakka. Það var hann, sem gerði m. a. hina heimsfrægu kvik- mynd „I-Iringekjuna“ (La Ronde), sem einning hefur verið sýnd ný- Jega hér á iandi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.