Dagur - 08.06.1955, Side 2
2
D AGUR
Miðvikudaginn 8. júní 1955
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga
(Framhald af 1. síðu).
ikoðandi, á þá staðreynd, að end-
rrskoðendur hafa á hverjum
iðaifundi flutt tillögu um sam-
bykkt reikninga félagsins. og þar
neö lýst samþykki sínu á þeim,
>t! hann lýsti yfir, að núv. endur-
ikoðendur stæðu á engan hátt að
ii ásinni á framkvæmdastjóra,
,.em birtst hefur hér í bæjarblaði.
Cillögur stjórnar um endut-
^reiðslu.
Tillögur stjórnarinnar um end-
trgreiðslu til félagsmanna voru
aamþykktar, en þær eru: 5% af
agóðaskyldum vörum, 3% í stofn-
>jóð og 2% í reikninga, 5% af út-
ekt í Stjörnuapóteki, er félags-
nenn greiða sjálfir, 5% af bi'uuð-
mðum. Nema þessar greiðslur
rlls um 1,250 þús. kr.
Úr skýrslu framkvæmdastjóra
í skýrslu sinni komst Jakob Frí-
nannsson m. a. svo að orði.
,Aríð 1954 má vafalaust telja
neð betri verzlunar- og fram-
eiðsluárum. Veðrátta var yfirleitt
íagstæð fyrir framleiðslu til lands
>g sjavar og magn framleiðslu-
/ara nokkru meira en undanfarin
rr. — Atvinna var meiri en í
neðallagi og að öllu samanlögðu
nun kaupgeta sjaldan hafa verið
)llu meiri.
iukin vörusala.
V'orusala KEA hefur aldrei
/erið meiri en 1954. Þrátt fyrir
ækkandi verðlag á erlendum vör-
im hefur heildarvörusalan í búð-
Itn felagsins á Akureyri og í úti-
)úum við Fjörðinn aukizt um ca.
) milljónir, eða tæplega 15%.
vAegna þessarar aukningar á
rörusölunni hefur égóði á verzlun-
trrekstrinum reynzt nokkru meiri
ttl s.l. ár. Hefur því verið ákveðið
tó teija nú til ágóðaskyldrar vöru-
íttektar svo að segja allar vörur,
tð undanteknum áburði, bygging-
trvorum, innlendum afurðum, kol-
im, salti og olíu. — Lagt er til á
iðaliundinum nú, að greidd verði
>% til íélagsmanna, og nemur sú
jpphæð, sem greidd verður í
etkníng og stofnsjóð tæplega 1%
nilljón krónum. Er það um 50%
tærra en tilsvarandi upphæð, sem
mnurgreidd var fyrir árið 1953.
Vorubirgðir félagsins hafa enn
mkizt ailverulega. Má að vísu
>óÍR eöliíegt, að verulega aukin
verzlun útheimti auknar vöru-
birgðir á þeim tímum, þegar sam-
keppni er mikil um verzlunina. En
hins vegar er mjög kostnaðarsamt,
vegna hárra vaxtagreiðslna, að
liggja með miklar vörubirgðir, og
er því lögð höfuðáherzla á, að
draga úr vörubirgðum, eftir því
sem framast er unnt, án þess að
skerða verulega fjölbreytni á
vöruvali.
Aukainnstæður.
Sameignarsjóðir félagsins hafa
aukizt á árinu eftir því sem lög
og reglugerðir félagsins kveða á
um.
Nemur heildarinnstæða sam-
eignarsjóða nú rúmlega 10 millj.
króna, en innstæða stofnsjóða
félagsmanna rúmlega 8 milljónum.
Þótt þetta séu að vísu nokkuð háar
tölur á pappírnum, er þó aðgæt-
andi, að þessar sjóðeignir allar
gera ekki betur en að jafna þá
upphæð, sem félagið hefur lagt í
sínar fasteignir, ásamt vélum og
útbúnaði verksmiðja, slátur- og
frystihúsa.
Innlánsdeild félagsins og inn-
stæður í reikningum hafa enn
aukizt nokkuð, en þó ekki nægi-
lega til að standa straum af stöð-
ugt aukinni veltufjárþörf. —
Skuldir hjá félagsmönnum . voru
sama sem engar um áramótin og
er vonandi að hægt verði fram-
vegis að skýra frá því sama í
hverri ársskýrslu, að engar skuldir
hafi myndazt hjá félagsmönnum.
Rekstur verksmiðjanna og ann-
arra fyrirtækja félagsins hefur
gengið sæmilega. Flest fyrirtækin
skila rekstrarafgangi til sameigin-
legs ágóðareiknings og að auki við-
unandi afskriftum á vörubirgðum.
Afurðasalan hefur gengið öllu
greiðlegar en árið 1953, og þótt
talsverðar afurðabirgðir hafi legið
hjá félaginu um áramót, má þó
gera ráð fyrir að örugg sala sé á
öllum þeim birgðum fyrra hluta
yfirstandandi árs.
GóS afkoma.
Að öllu samanlögðu verður ekki
annað sagt en að afkoma félagsins
hafi verið góð á s.l. ári. Ber það
fyrst og fremst að þakka góðæri
til lands og sjávar, en á hitt ber
og að líta, að samheldni og sam-
hugur félagsmanna við Kaupfélag
Eyfirðinga er sú styrka stoð, sem
aldrei má bresta eigi félagið að
geta sýnt áframhaldandi vöxt og
þroska.
Arangurinn af löngu og merki-
legu samvinnustarfi í héraði ög
bæ hefur með hverju ári um 69
ára skeið, orðið meir og meir
áberandi í öllu verzlunar-, atvinnu-
og framleiðslulífi þessa bæjar og
héraðsins alls. — Engum blandast
nú lengur hugUr um, hvers virði
það hefur verið öllum íbúum
félagssvæðis Kaupfélags Eyfirð-
inga, að auðnast hefur að gera
þessi samtök fólksins jafn öflug
og raun ber vitni, — Innstæður
félagsmanna í stofnsjóðum og
sameignarsjóðir félagsins eru
órækt vitni þess, hvað frjáls sam-
vinna fjöldans á sviði verzlunar,
viðsikpta og framleiðslu, getur
gert til uppbyggingar framtíðar-
öryggis vor allra og þeirra sem á
eftir oss koma.
í þeirri von, að sú uppbygging
megi halda áfram að þróast eins
og verið hefur, öldum og óborn-
um til aukins öryggis í lífsbarátt-
unni, árna eg öllum félagsmönnum
og viðskiptamönnum KEA heilla
og blessunar.
Aðalfundi lýkur síðdegis í dag.
Hreindýraveiðar á Vesturöræfum
síððstl. sumar og vetur
öökum hinnra öru og síauknu
jölgunar hreindýrarjarðarinnar á
/esturöræfum, upp af Fliótsdal
>g Jokuldal eystra, ákvað hlutað-
úgandi stjórnarráð í fyrra að leyft
ikyldi að skjóta 600 dýr til hæfi-
egrar íækkunar, aðaiiega tarfa og
únnig nokkrar geldar kýr, ef svo
)æri undir. Skyldi veiðin skiptast
iamkvæmt ákveðnum hlutföllum
nilii 10 hreppa í báðum Múla-
iýslum. Var umsjónarmanni hrein-
íjarðarinnar, Friðriki bónda Stef-
mssyni á Hóli í Fljótsdal, falið að
iá um framkvæmd verks þessa.
Veiðileiðangrar urðu tveir, og
hófst sá fyrri um 20. ágúst og stóð
fram um miðjan september. Náð-
ust á því tímabili ekki nema 276
dýr alls, og var því leyft að fara
aðra veiðiför í desember, nokkru
eftir að fengitíma var lokið. Þá
voru dýrin komin út á heiðarbrún-
ir á yztu Fljótsdalsheiði, og því
mjög skammt til fanga. í þessum
leiðangri voru skotin 177 dýr, svo
að alls varð veiðin að þessu sinni
453 dýr, eða 147 færri en leyft
hafði verið. Alls tóku 20 skyttur
þátt í veiðunum.
Vísir að handíðaskóla
Á sunnudaginn, 22. þ. m., opnaði
Æskulýðsheimili templara á Ak-
ureyri sýningu að Varðborg á fjöl-
mörgum munum, er gerðir hafa
verið á námskeiðum þess undan-
farna vetur. Sýningin var vel sótt
og sannfærðust menn um, að á
námskeiðunum hefur verið vel
unnið og furðumikið starf af hönd-
um leyst.
Námskeiðin eru ekki aðeins
dægradvöl, til þess ætluð að eyða
tímanum í eitthvað, sem talið væri
örlítið skárra en gatan og gæti það
þó vissulega verið nauðsynlegt,
heldur miklu fremur mjög fjöl-
breytt nám og hið athyglisverðasta
Hefur áður hér í blaðinu verið
sagt nokkuð frá öllum námskeiðun-
um. En á sýningunni á sunnudag-
inn gafst mönnum kostur á að gera
sér ljóst í stórum dráttum, hvað
unnið hefur verið og hvernig.
Framhald mun verða á þessum
námskeiðum næsta vetur, ef fjár
magn verður fyrir hendi og leik
stofurnar verða endurbættar og ný
tæki fengin.
Eftir - heimsókn á sýninguna í
Varðborg hlýtur sú spurning að
vakna, hvort ekki sé tímabært að
hefja undirbúning að stofnun hand-
íðaskóla eða jafnvel að námskeið-
in að Varðborg sé vísirinn.
Vegna þrengsla í blaðinu bíður
ýmislegt efni næsta blaðs, m. a.
frásögn af aðalfundi Útgerðar-
félags Akureyringa og afkomu
félagsins og togaraútgerðarinnar
hér á s. 1. ári.
Mig vantar húsnæði fyrir raftækjavinnustofu og verzlun í smáum stíl. — Má vera í úthverfi. Akureyri, 8. júní 1955. EBENHARÐ JÓNSSON, rafvirki, Brekkugötu 1.
Aðalf undur Veiðifélags Eyjafjarðarár verður haldinn í þinghúsi Hrafnagilshrepps, sunnudag- inn 19. júní n. k. kl. 2 e. h. Dagskrd samkvœmt félagslögum. 7. júní 1955. Stfórn Veiðifélags Eyfaffarðarár.
Hrossasmölun fer fram í SAURBÆJARHREPPI föstudaginn 10. júní, og eru hrossaeigendur áminntir um að vitja hrossa sinna í Borgarrétt kl. 5 síðdegis. Verði hrossanna ekki vitjað verðttr þeim ráðstafað á kostnað eiganda. Bannað er að taka liross af utanhreppsmönnum til sumarbeitar nema þau séu í öruggu haldi, og stóðhrossa- eigendur innan lrreppsins ámintir um að sjá um að hross- in gangi ekki í heimalöndum annara. HREPPSNEFNDIN
r:iL-
Gilbarco-ol i ubrennarar
og olíugeymar til húsakyndingar jafnan fyrir* liggjandi. — Útvegum olíukynta katfá) elda- vélar og hvers konar önnur olíukynditæki með stuttum fyrirvara. Olíusöludeild KEA, Símar 1860 og 1700.
Síldarstúlkur
óskast til söltunarstöðvar Norðursíldar h. f., Raufarhöfn. — Góðar íbúðir með rafmagns- hitun. — Kauptrygging. Nánari upplýsingar veita Valtýr Þorsteinsson og Hreiðar Valtýsson Sími 1489, Akureyri.
Héraðsmót Ungmennasambands Eyjafjarðar 1955 verður að Sólgarði í Eyjafirði dagana 18. og 19. júní n. k. — Nánari tilhögun mótsins aug- lýst síðar. Stjórnin