Dagur - 08.06.1955, Side 7

Dagur - 08.06.1955, Side 7
Miðvikudaginn 8. júní 1955 D AGUR 7 „Eiuvígi í sólinni" sýnd í Nýja-Bíó - Ýmis tíðindi (Framhald af 8. síðu). Húskveðju flutti sr. Friðrik A. Friðriksson prófastm í Húsavík. Einnig flutti Júlíus Havstein sýslu maður kveðjuorð. Jarðsungið var að Lundarbrekku og gerði það sr. Orn Friðriksson. Skæður mislingafar- aldur Mislingar hafa borist á 6 baei hér í sveit og bárust beir með börnum er voru á sundnámskeiði að Laugum en þangað með stúlku sem kom frá Hríscy. Veikin er allþung. Um 30 manns á heimilun- um hafa að öllum líkindum smit- ast, allt upp í 8 á sama bæ Héraðslæknirinn hefur ferðast um og litið eftir sjúklingunum og sprautað fullorðið fólk, svo að það fengi veikina léttari. Margt tvílembt Síðan kuldunum lauk fyrri part maí hefur tið verið einmuna hag- stæð, hægviðri og hlýindi. Jörð öll grær óðum og komnir eru góðir hagar fyrir sauðfé. Sauðburði er lokið að mestu og hefur víðast gengið vel. Sumstaðar hefur nokk- uð borið á óhreysti í lömbum, en lambadauði í smáum stíl. Víða eru margar ærnar tvílembdar allt upp í 5/6 og víða yfir helmingur ánna. Með meira móti er um að ær séu þrílemdar en áður hefur verið.. Mislingar, hettusótt og inflúensa Fosshcll. Mislingar eru nú á 6 bæjum í Bárðardal og hafa lagzt þungt á marga. Hettusótt og inflúensa hef- ur líka stungið sér niður á nokkr- um stöðum. Veldur þetta hinum mestu erfiðleikum á sumum heim- ilum. Mislingar eru líka komnir í Aðaldal og liggur fólk á 6 eða 7 bæjum, það sem undir mislingum var. Greni fundið í Isólfsdal. Greni fannst í Isólfsdal fyrir helgina. Grenjf skyttan í Bárðardal Páll Sveinsson frá Sandvík, lá á greninu þegar síðast fréttist og hafði þá skotið læðuna. Eftir or að leita í Mióadal, en þar er giunur á að sé skæður dýrbít.ur. Var hann svo aðgangsharður í haust sem leið að hann réðist á fé í fönn og hafði drepið 2 eða 3 kindur svo vitað væri með vissu. En fé fennti í fyrrahaust á þessum slóðum en fannst flest aftur og var grafið úr fönn, þótt refurinn yrði sumstaðar fyrri til. Bændur eru nú almennt lausir við fé og hafa rekið það til fjalla eða afrétta. Sauðgróður er ágæt- ur og kýr víða komnar á beit. Afgreiðslustúlka óskast nú þegar. Litli Bnrinn Shni 1977. r Arabátur TIL SÖLU. Afgr. vísar á. Til sölu 0 manna fólksbifreið í mjög jóðu lagi og vel útlítandi. Afgr. vísar á. Nýja-bíó sýnir um helgina mynd ina „Einvigi í sólinni" (Duel in the Sun), gerða af kvikmyndafram leiðendanum Selznick, en leikstjóri er King, Vidpr, og standa því að henni tveyr^.jöfrar, hvor á sínu sviði kvikmyndaframleiðslu. Mark ið var að Jrapileiða mikla mynd, mikla að^jgjfai og allri gerð, og ekkert. til sparað, að þetta mætti takast, epda mun kostnaðurinn hafa orðið sem svarar 100 millj. ísl. króna.; Ekkert verður um það deilt, að tekist hefir.að framleiða hér stór- fenglega kyikmynd. Efni er örlaga órungið, „fjöldasenur“ hinar stór- fenglegustú, aðalleikarar gera hlut- verkum sinum afburða góð skil. Hér er í rauninni um stóifelld átök góðra og illra afla í mann- legu lífi að ræða, bræður tvo, sem algerlegar andstæður, foreldra þeirra, harðlyndan föður og milda móður, og kynblendingsstúlku, sem bræðurnir eíska, og margt er gott um, en héfur skaplyndi ótemjunn- ar. Haná léikiir Jenr.ifer Jones frá- bærlega, en bræðurna, Gregory Peck þann, er einskis svífst, og Joseph Cotten göfugmennið. Föð- urinn leikur Lionel Barrymore, sem nú er nýlátinn, og kunnur var fyrir að gera jafngóð skil hverju hlutverki sem hann tók að ,sér á langri leikævi, smáum sem stórum. Lilian Gish leikur móðurnia dável, en hún eins og Barrymore á leik- listarferil að baki allt frá fyrstu dögum þöglu kvikmyndanna. — Tækni og leikstjórn eru með ágæt- um. — H. Herbergi TIL LEIGU. Sími 1765. Chervolet fólksbifreið TIL SÖLU. A. v. á. Kirkjan. Messað í Akureyr- arkirkju n. k. sunnudag kl. 2 eftir hádegi. — Aðalsafnaðar- fundur eftir messu. — K R. Fyrirlestrar um andleg mál. Danski rithöfundurinn Martínus kemur hingað í þessari viku og flytur hér nokkra fyrirlestra um andleg mál. Fyrsti fyrirlesturinn verður fluttur á miðvikudags- kvöldið kl. 8.30 í Varðborg. og verður hann um leyndardóm bænalífsins. Annar verður á fimmtudagskvöld væntanlega um lífið cftir dauðann. Hinir verða auglýstir síðar. Sýndar verða skuggamyndir með fyrirlestrun- um, og gefið stutt yfirlit yfir þá á íslenzku á eftir. Húsfrú á Akureyri skrifar blað inu á þessa leið: „Hvemig stend- ur á því að augnlæknirinii fer stundum í burtu f.vrirvaralaust og án þess að auglýsa það ræki- lega og án þess að setja nokkurn fyrir sig í staðinn. Margir kvarta um þetta og fara „snuðtúr“ í lækniser indum, stundum fólk nokkuð langt að komið. Vil ég biðja blaðið að koma þeirri fyrir- spurn á framfæri, hvorn beri að saka um þetta, og helst að færa mér svar sem fyrst.“ Friðrik Kristjánsson fyrrum bóndi að Einarsstöðum í Revkja- hverfi andaðist 4. júní s. 1. Hann var um áttrætt og blindur orð- inn, hin síðustu ár. Björn Jörundsson í Hrísejr and aðist aðfararnótt 1. júní s. 1 nær 96 ára að aldri. Björn var kunnur athafna og atorkumiiður og höfð- ingi í lund. Leiðrétting, í síðasta tölublaði Dags þar sérri bii.'ftþýeiykáutítíjxti Trésmíðafélags Akureyrar, mis- prentaðist greiðsla í sjúkrosjóð 10%, átti að vera 1%, og í kaup- taxta Múrai-afélagsins misritaðist eftirvinna 6%, átti að vera 60%. Leiðréttist þetta hér með. Áheit til Æskulýðsfélagsins kr. 100 frá félaga. Með þökkum mót- tekið. — P. S. Gjafir til Elliheimilisins í Skjaldarvík. Frá Líknarsjóði ís- lands kr. 2000.00. — Áheit frá K. P. kr. 50.00. — Hjartans þakkir Stefán Jónsson. Hjúskapur. 28. f. m. voru gefin saman í Akureyrarkirkju ungfrú Sigríður Steindórsdóttir og Jón Þorsteinn Hjaltason sjómaður. Heimili þeirra verður að Helga- magrastræti 4 — Á annan í hvítasunnu voru gefin saman í hjónaband ungfrú Ingibjörg Stefánsdóttir og Ásgrímur Stef- ánsson iðnverkamaður. Heimili þeirra verður Gránufélagsg. 53. Séra Kristján Róbertsson gifti. • Björgvin Guðmundsson tón- skáld er nýlega farinn til Banda- ríkjanna til 3ja mánaða dvalar þar. Handavinnusýning Sýning á handavinnu nemenda húsmæðra- skólans að Laugum í Reykjadal var opin almenningi á sunnudag- inn var. Aðsókn úr nærsveitum var minni en venjulega sökum veikinda, er þar ganga. F.n nokk- uð margt fólk héðan af Akureyri sótti sýninguna og lauk á hana miklu lofsorði. Allir þágu rausn- arlegar veitingar, svo sem þar er venja. S. 1. sunnudag opinbcruðu trú- lofun sína frk. Borghildur Garð- arsdóttir, Brávallag. 16a Reykja- vík og Guðmundur J. Guð- mundsson frá Felli í Tálknafirði, til heimilis í Reykjavík. Gróðursetning. Annað kvöld verður gróðprsett í Vaðlareit. Farið frá Hótel KEA kl. 7.30. — Laugard. 11. þ. m. verður gvóð- ui'sett í Kóngsstaðahálsi. Gert er ráð fyrir þátttöku þangað frá Dalvík og úr Svarfaðardal. — Þá verður einnig gróðursett í Jón- asarlund í Öxnadal Gert er ráð fyrir þátttöku þangað frá Akur- eyri og úr Öxnadal. Vinna hefst á báðum stöðum kl. 4 e. h Farið frá Akureyi'i kl. 3.15. Hjónaband. S.l. laugardag voru gefin saman af sr. Pétri Sigur- geirssyni, ungfrú Ellen Ragnars og Arngrimur Sigurðsson stud. med. — Heimili ungu hjónanna verður Hringbraut 37 Reykjavík. Hjúskapur. Sunnud. 5. júní voru gefin saman í hjónaband ungfrú Elínrós Eiðsdóttir og Grímur Hallgrímsson sjómaður bæði búsett að Bjargi, Hrísey. Nýr húsateiknari. Mikael Jó- hannesson Eyrarlandsveg 2Ö Ak- ureyri, hefur fengið leyfi hlutað- eigandi yfirvalda, til að annast húsateikningar hér á Akurej ri. Knattspyrnuæfingar K. B. A. verða á nýja íþróttasvæðinu kl. 8 e. h. eftirtalda daga: mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Einnig verður kappleikur milli úrvals- liðs og pressuliðs einu sinni í viku á grasvellinum. — K.R.A. Hjúskapur. Mánudaginn 6. júní s.l. voru gefin saman í hjónaband í Kaupangskirkju af sóknarprest- inum í Grundarþingum: Earl Gunnar Jensen, lögfræðhigur frá San Francisco og Mary Hunt, kennari við Stanford University, Stanford. Bandaríkjunum. Brúð- guminn er sonur Ingvars heitins Guðjónssonar 1 útgerðarmanns, alinn upp í Vesturheimi. Frá Golfklúbb Akureyrar. Nú stendur yfir keppnin um Gunnars- bikarinn. Keppnin öll er 72 holur. S.l. sunnudag var helming keppn- innar lokið. Stóðu þá leikar þannig: 1.—2. Jón Egilsson 158 högg. 1.—2. Arni Ingimundarson 158 högg. 3. Magnús Guðmunds- son 162 högg. 4. Þórir Leifsson 164 högg. — Seinni hluti keppn- innar verður leikinn sunnudaginn 12. júní og hefst keppnin kl. 8 f. h. Keppendur eru beðnir að mæta kl. 7.45. Keppendur athugið að það er búið að draga út í riðla þannig að þið getið séð í hvaða riðli þið eruð, ef þið athugið út- dráttinn upp í golfskála. 4 manna bifreið, nýuppgerð, til sölu. LTpplýsingar gefur Þorsteinn Jónsson, Þúrshamri. Góð píanóharmonika (Settimio Soprani). 4 kóra, 120 bassa, með 8 hljóðskipt- ingum, til sölu. Skúli Guðmnndsson Hafnarstrœti 35. Oska eftir að kaupa Einbýlishús eða góða íbúð. Þarf að vera laus 1. okt. Leiga kemur til greina. Tilboð óskast send afgr. Dags, fyrir 20 þ. m. merkt Húsnceði. lOlíumáli S. I. S. skoíið til þjóðardómstóls. Vörn Jónasar Jónssonar í olíumál- inu komin. ; *? •vsnÉör-v!' Bókaverzlun P. 0. B. •iíW Silniiaráætlun 1955 • .'T.V't Jfkureyri - Reykjavík - Akureyri 18 ferðir í viku - jar y'-r- "Mor-gunferðir: Alla daga. SÍðdegisferðir: Mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga, föstudaga. Akurevri - Egilsstaðir Þriðjudaga og föstudaga. Akureyr i - Kópasker á*’ Mánudaga og fimmtudaga. -'xzmM Akureyri - Grímsey (Frá 15 júní — 15 september) , Alla sunnudaga. • ih:, ■ í Þriðji hver íslendingur flýgur með Föxunum. ••■v-'VSi' - --.'wAkaái. k. ■ • —hf ■rigtfr ■ Flugfélag íslands

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.