Dagur - 28.09.1955, Síða 5
Miðvikudaginn 28. sept. 195S
D AGUR
5
Þúsundir Iðxaseiða fátin í Eyja-
!■ * r I ■*■ r ■* r
fjaroara priðja arið i roð
Vart við laxaseiði, sem voru að ganga í sjó
í fyrsta sinn á þessu hausti
Á sunnudaginn var voru
mörg þúsund laxaseiði flutt
flugléiðis hingað á flugvöllinn frá
Reykjavík, og var þeim sleppt í
Eyjafjarðará.
Er þetta þriðja árið í röð, sem
seiðum er sleppt í ána að tilhlut-
an Stangveiðifélagsins Strauma á
Akureyri, sem hefur ána á leigu.
Seiðin, sem komu á sunnudag-
inn, voru frá eldisstöð Rafmagns-
veitu Reykjavíkur við Elliðaár, og
af stofni Elliðaárlax og Laxár í
Dölum. Voru þetta eldisseiði
nokkuð vaxin og komin yfir mesta
hasttutímann. Er talið að hvert
slíkt eldisseiði jafngildi mörgum
pokaseiðum, sem áður fyrr voru
einvörðungu notuð við fiskirækt.
Fóðruð á súrefni á norðurleið.
Seiðin, sem hér komu á sunnu-
daginn, voru sérlega spræk og
ekki orðið meint af flutningnum
norður. Var þeirra líka vel gætt á
leiðinni. Forstöðumaður klak-
og eldisstöðvarinnar í Reykjavík,
Erik Mogensen, kom með flugvél-
inni norður og hafði meðferðis
súrefnistæki til þess að tryggja
lífsskilyrði seiðanna í brúsunum.
Unnið að því að sleppa laxaseiðum í Eyjafj.á, framan við Saurbæ.
Var hann siðan félagsmönnum
stangveiðifélagsins til leiðbeining-
ar við 'að sleppa seiðunum á hent-
uga staði í ánni.
Hellt í milíi brúsa og fötu —
mörg laxaseiði í bununni!
Eins og undanfarin ár var þess-
um seiðum nú sleppt á svæðinu
frá Möðruvallabrú að Hólum. Eru
þar víða góð skilyrði fyrir ungviði,
hæfilegur malarbotn og talsverður
GERFITUNGL.
Vísindanna vitru feður
viður ýmsar gátur stríða.
Marga nýja himinhnetti
hamast þeir nú við að smíða.
Allir þessir urðarmánar
eru, ef fréttablöð skal marka,
fjarska Iíkir fótboltunum,
scm flestir eru nú að sparka.
Þó er enn að yfirstíga
afarmiklar tækniþrautir,
og ýta þcssum undratunglum
út á sínar himinbrautir.
Við þær háu himinspyrnur ‘
hafa þyrfti skotmenn góða,
en útlendingar, er hér kepptu,
áttu fáa slíka að bjóða.
Að þeim hcppnist himinsparkið
herfilega brugðist getur,
— ætli þeim á Akranesi
ekki myndi takast betur?
DVERGUR.
Erik Mogcnsen, fiskiræktarmað-
ur, kom með laxaseiðin í flug-
vélinni og fylgdist með hcilsufari
þeirra unz þeim var sleppt í ána.
gróður í botni. Virðist gróður með
mesta mótti í ánni nú, eftir hið
bjarta og hlýja sumar.
Vart við niðurgönguseiði í haust.
Snemma í þessum mánuði varð
vart við allmikið af niðurgöngu-
seiðum á mótum ferskvatns og
sjávar hér við austurlandið hand-
an við Pollinn. Magnús Brvnjólfs-
son bifreiðastjóri, sem er kunnur
og áhugasamur veiðimaður, var
með stöng að veiðum þar. Varð
hann var við stóra torfu af smá-
fiskum og lék hugur á að vita,
hvaða fiskar þar vafru á ferð.
Tókst honum að krækja einn fisk-
inn. Virtist honum þetta geta ver-
ið niðurgönguseiði af laxastofni.
Magnús fékk forráðamönnum
stangveiðifélagsins fiskinn í hend-
ur, en þeir sendu hann til veiði-
málaskrifstofunnar í Reykjavík til
rannsóknar. Nú hefur borizt úr-
skurður frá henni, að þarna hafi
verið laxaseiði, á leið í sjó í fyrsta
sinn. Gera stangveiðimenn sér nú
vonir um, að vænlegur árangur
geti orðið af fiskiræktinni og
Eyjafjarðará muni geta fóstrað
laxastofn þá tímar líða.
Ekki lax heldur sjóbirtingur.
I sumar var skýrt frá því hér í
blaðinu, að veiðzt hefði 14 pund&
lax í Eyjafjarðaré. Fiskurinn var
hreisturtekinn og hefur rannsókn
nú sýnt, að hér var um sjóbirting
að ræða en ekki lax. Fiskurinn
reyndist vera 11 ára gamall, og
hafa alls verið 4 ár í ferskvatni
en 7 ár í sjó. Sjóbirtingar vaxa
miklu hægar en laxar. Eftir 7 ár í
sjó er þessi sjóbirtingur ekki
þyngri en lax mundi vera eftir 2
ár í sjó.
Kappróður Æ. F. A. K.
Kappróður drengja í Æskulýðs-
félagi Akureyrarkirkju fór fram
laugardaginn 24. sept.. á Akureyr-
arpolli. — Róið var frá Höepfn-
ersbryggju og út að hafnarmynni
við Torfunefsbryggju. Vegalengd-
in er um það bil 910 metrar. —
Keppendur höfðu töluverðan mót-
byr.
Hjá yngri sveitum urðu úrslit
þau, að Neisti vann. A honum
reru: Magnús Aðalbjömsson, Ge-
org Tryggvason, Gísli Kolbeinsson,
Asgeir Gunnarsson. Stýrimaður
var Sverrir Leósson. Tími þeirra
var 5 mín. 47. sek. Glóamenn reru
örskammt á eftir, á 5 mín. 50 sek.
I flokki eldri drengja sigraði
sveitin á Glóa (þar eru suðurfar-
arnir): Knútur Valmundsson, Stef-
án og Róbert Arnasynir, Eggert
Eggertsson. Stýrimaður var Gísli
Kristinsson. Þeir reru vegalengd-
ina á 4 mín. 46,5 sek. Neistamenn
reru á 5 mín. 36,3 sek.
Tvær sveitir eiga eftir að ljúka
keppni. — Tímaverðir voru Rafn
Hjaltalín guðfræðistúdent og Pét-
ur Bjarnason. — Vetrarstarfsemi
félagsins hefst í október.
Engin raunvemleg breyfing á við-
horfinu í Moskvu
Krúsjeff leysir frá skjóðunni í Kreml
Að undanfömu hefur Dagux
birt nokkrar athyglisverðar
greinar urn alþjóðamál cftir
Walter Lippmann, hinn heims-
fræga blaðamann og rithöfund.
Kjarninn í greinum Lippmanns
um þessar mundir er, að hin nýja
hernaðartækni atómaldar hafi nú
sannfært leiðtoga þjóðanna í
austri og vestri um að styrjöld er
í raun og veru óframkvæmanleg.
Nútíma styrjöld jafngildir gjör-
eyðingu í löndum beggja styrjald-
araðila. Stríð getur enn síður en
nokkurn tíma í sögunnni leyst
nokkur deilumál. I ljósi þessarar
vitneskju hafa þjóðirnar í austri
og vestri raunverulega breytt
starfsaðferðum í samskiptamálum
sínum. Þær viðurkenna að þeir
verða að lifa saman og eiga sam-
skipti, enda þótt deilumálin séu
óleyst. Og langt er í land að þau
leysist. Það má kalla þegjandi
samkomulag að viðurkenna ststus
quo og reyna ekki að breyta til
með valdi á hvoruga hlið. En
hvorki hafa Rússar breytt um af-
stöðu né heldur ætla Vesturveld-
in að afsala sér aðstöðu sinni. Ný
viðhorf kunna að skapast þá tímar
líða. En skrafið um stórbreytt við-
horf í austri, er harla óraunhæft. I
skiptum stórveldanna er þrátefli
eins og stendur, og það setur mark
á dagleg samskipti.
FYRIR ÞÁ, sem hafa lesið
greinar Lippmanns um þessi efni,
er fróðlegt að íhuga ræðustúf, sem
Krúsjeff, framkvæmdastj. komm-
únistaflokksins rússneska, hélt í
samkvæmi er rússneska stjórnin
hélt Austur-Þjóðverjum nú á dög-
unum, er forustumenn þeirra
komu til Moskvu á hæla Adenau-
ers kanzlara Vestur-Þjóðverja. —
Varpar hún nokkru ljósi á við-
horfin, og styður í flestum grein-
um skoðun Lippmanns á núver-
andi viðhorfi stórveldanna. Og
hún sýnir einnig vel, að núverandi
„friðarsókn“ kommúnista í ýmsum
löndum, er fyrst og fremst áróð-
ursherferð í flokkslegum tilgangi.
í RÆÐU sinni komst Krúsjeff
m. a. svo að orði: „Hin rússnesku
bros eru einlæg, en sú skoðun vor
er óbreytt, að kommúnisminn
muni sigra að lokum. Vér munum
Þingeyingar eru að
koma upp byggðasafni
Þingeyingar liafa undanfarin 3
sumur unnið að söfnun gamalla
rnuna í héraðinu lyrir væntanlegt
byggðasaín. Nú í haust liefur Páll
H. lónsson kennari ferðazt unt all-
stórt svæði í þessu skyni og orðið
vel ágengt. í vesturhluta sýslunnar
hefur Sigurður Halldórsson, Stóru-
Tjömum, séð um söfnunina. Allir
eru munirnir geymdir á Stóru-Laug-
um í Reykjadal, og eru jieir orðnir
hátt á sjötta hundrað að tölu og
ýntsir af jreim lágætir. Bændafélag
Þingeyinga stendur fyrir jiessari
sölnun. Ekki hefur byggðasafninu
verið ákveðinn staður.
Burtlluttir Þingeyingar hafa sent
safninu marga muni, og er að Jiví
mikill styrkur. Enn eru nokkrir
hreppar eftir, sem ekki liéfur verið
leitað til í Jiessu efni.
sigra, en vér munum ekki þuifa að
fara í stríð til þess að ná þeim á:r-
angri.“ Áheyrendur skildu ræðu
hans á þá leið, að því færi víðs
fjarri, að Sovétrikin hefðu í hyggju
að hörfa á nokkrum vígstöðvum
kalda stríðsins, heldur væru þau
staðráðin í að halda aðstöðu sinni
og halda uppi sókn fyrir kommún-
ismann hvarvetna.
ORÐ KRÚSJEFFS hafa því
vakið mikla athygli, einkum með-
al þeirra vestrænna stjórnmála-
manna, sem hafa trúað því að
hægt mundi að fá Rússa til þess
að láta af stuðningi við hina
kommúnistíska stjórn Austur-
Þýzkalands, og sameina Þýzkaland
með þeim hætti. Krúsjeff lagði á
það áherzlu, að Rússar mundu
ekki aðeins styðja austur-þýzku
stjórnina með öllum ráðum, held-
ur héldu þeir fast við þá skoðun,
að þessi kommúnistíska stjórn
mundi verða sá segull, er mundi
draga allt Þýzkaland til sín þá
tímar liðu. „Vér sögðum dr. Adsn-
auer,“ sagði Krúsjeff, „að Vestur-
Þýzkaland væri á glötunarstigum
kapítalismans. En vegur framtíð-
arinnar er sá vegur, sem Austur-
þýzka alþýðulýðveldið fer eftir.
Að lokum mun allt Þýzkaland sjá
hina réttu leið. . . . “
í framhaldi af þessu ræddi Krú-
sjeff um núverandi þrátefli stór-
veldanna í alþjóðamálunum. Hin
friðsamlega samvist sem nú líkir,
er aðeins viðurkenning á þeirri
staðreynd, að heimurinn er skiptur
í tvö kerfi, og hvorugur aðili ætlar
sér að reyna að breyta hinu með
valdi. Á meðan beðið er eftir því
að straumur tímans renni fram,
sagði Krúsjeff, og skynse-min nái
yfirtökum (að skoðun kommún-
ista) og leggi heiminn að fótum
kommúnismans, vilja Rússar gjam
an eiga vinsamleg samskipti við
önnur lönd. „Þeir segja fyrir vest-
an, að eitthvað hafi breytzt síðan
Genfarfundurinn var haldinn,“
hélt hann áfram. „Þeir segja, að
leiðtogar Sovétríkjanna brosi, en
framkvæmdir þeirra séu í litlu
samræmi við brosið. En brosin eru
einlæg. Þau eru ekki gerfibros.
Við viljum friðsamlega sambúð.
En ef einhver skyldi halda að bros
okkar jafngildi því að við ætlum
að afneita kenningum Matx og
Lenins eða yfirgefa hina kommún-
istisku stefnu, þá eru þeir að
blekkja sjálfa sig. Þeir geta eins
sagt sjálfum sér að páskana beri
alltaf upp á þriðjudag." Og enn
segir Krúsjeff: „Við viljum frið-
samlegar samvistir. En við viljum
líka viðgang kommúnismans.
Ástæða þess að við kjósuin frið-
samlegar samvistir er, að veröldin
er skipt í tvö kerfi. Kapítalistar
halda sína leið unz þeir sjá, að það
er leið hinna blindu. Sigrar sósíal-
isminn? Við þurfum ekki að fara
i stríð til þess að sigra. Friðsam-
leg samkeppni verður nægileg. . .“
ÞETTA ERU lærdómsrik orð.
Þau sýna að andinn er hinn sami.
Undirróðursstarfsemi kommúnism-
ans mun halda áfram sem fyrr. En
sjálf styrjaldarhættan er sennilega
minni en á tímum Stalíns. Lepp-
arnir í öðrum löndum munu halda
áfram moldvörpustarfinu.