Dagur - 17.12.1955, Page 6

Dagur - 17.12.1955, Page 6
D A G U R Laugardaginn 17. desember 1955 Fataverksmiðjan Hekla á Akureyri hefur frá öndverðu notið mikilla vinsælda um land allt fyrir framleiðslu- vörur sínar, hvort sem það hafa verið vinnuföt, undirföt kvenna úr prjónasilki, sokkar, sportföt ýmiss konar eða peysur. Mestum vinsældum hafa þó HEKLU-peysurrzar náð, enda eru þær aðalframleiðsla verksmiðjunnar. Hafa peysurnar nú verið fluttar út, m. a. til Finnlands, og þar sannað, hversu samkeppnisfærar þær eru, auk þess sem þær hafa verið sendar sem gjafir víða um heim. HEKLU-peysurnar eru prjónaðar eftir mynstrum, sem sérfræðingar verksmiðjunnar sjálfir gera, og koma svo til á hverju ári ný mynstur, ný -tízka. — Fylgizt með HEKLU-peysurzum og reynið þær. — Þær eru bæði hlýjar, þægilegar og fallegar. — Það er ekki að ástæðu- lausu, að sama fólkið biður aftur og aftur um þær. HEKLA framleiðir peysur sínar úr ýmiss konar ullar- garni. Sumar gerðir eru úr íslenzku ullinni og hafa alla hina ágætu kosti hennar til að bera. Aðrar peysur, ekki sízt kvenpeysur, eru einnig prjónaðar úr erlendu garni, margar úr fínasta frönsku garni. HEKLA hefur ýmsar gerðir prjónavéla til þess að fá fram fínt prjón, venju- legt eða gróft, eftir því hvers óskað er í hverja peysu. Peysurnar eru fyrir unga og gamla, karla sem konur, og af ýmsum gerðum. Fylgizt með því, þegar næsta kaup- félagsverzlun eða önnur verzlun, sem hefur HEKLU- vörur á boðstólum, fær sendingu af peysum. Þ>ær standa venjulega ekki lengi við í búðinni, og úrvalið er því mest fyrst í stað. \\ 11 j 1 ! «» L, i h J igjg oj) 1fj 1 r ) % << í .4;- 'ýí&jg

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.