Dagur - 17.12.1955, Síða 6
D A G U R
Laugardaginn 17. desember 1955
Fataverksmiðjan Hekla á Akureyri hefur frá öndverðu
notið mikilla vinsælda um land allt fyrir framleiðslu-
vörur sínar, hvort sem það hafa verið vinnuföt, undirföt
kvenna úr prjónasilki, sokkar, sportföt ýmiss konar eða
peysur. Mestum vinsældum hafa þó HEKLU-peysurrzar
náð, enda eru þær aðalframleiðsla verksmiðjunnar. Hafa
peysurnar nú verið fluttar út, m. a. til Finnlands, og þar
sannað, hversu samkeppnisfærar þær eru, auk þess sem
þær hafa verið sendar sem gjafir víða um heim.
HEKLU-peysurnar eru prjónaðar eftir mynstrum, sem
sérfræðingar verksmiðjunnar sjálfir gera, og koma svo
til á hverju ári ný mynstur, ný -tízka. — Fylgizt með
HEKLU-peysurzum og reynið þær. — Þær eru bæði
hlýjar, þægilegar og fallegar. — Það er ekki að ástæðu-
lausu, að sama fólkið biður aftur og aftur um þær.
HEKLA framleiðir peysur sínar úr ýmiss konar ullar-
garni. Sumar gerðir eru úr íslenzku ullinni og hafa alla
hina ágætu kosti hennar til að bera. Aðrar peysur, ekki
sízt kvenpeysur, eru einnig prjónaðar úr erlendu garni,
margar úr fínasta frönsku garni. HEKLA hefur ýmsar
gerðir prjónavéla til þess að fá fram fínt prjón, venju-
legt eða gróft, eftir því hvers óskað er í hverja peysu.
Peysurnar eru fyrir unga og gamla, karla sem konur, og
af ýmsum gerðum. Fylgizt með því, þegar næsta kaup-
félagsverzlun eða önnur verzlun, sem hefur HEKLU-
vörur á boðstólum, fær sendingu af peysum. Þ>ær standa
venjulega ekki lengi við í búðinni, og úrvalið er því mest
fyrst í stað.
\\ 11 j 1
!
«»
L, i h J igjg oj)
1fj 1
r )
% << í .4;- 'ýí&jg