Dagur - 24.10.1956, Blaðsíða 1
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagur
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 31. október 1956.
XXXIX. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 24. október 1956
56. tbl.
Sigurvegarar í firmakeppni
Skíðaskálinn í Hlíðarljalli bætir aðstöðu
skíðafélks oy skólaæsku
Er aðeins 7 kílómetra frá Akureyri, en í nær 500
metra liæð og við ágætar skíðabrekkur
í íirmakeppni í knattspymu ,e rfram fór á Akureyri í haust, sigraði
sv.eit frá KEA, sem hér sést á myndinni með liinn myndarlega
verðlaunagrip, stýrishjól það er Slippstöðin gaf í fyrra til þessarar
keppni. Sveit KEA gerði 21 mark gegn 3. — Var úrslitaleikurinn á
milli KEA og Rafveitu Akureyrar. — Ljósmynd: G. P. K.
ísframleiðsla hafin í nýja hrað-
frysiihúsinu á Ákureyri
Merkur áfangi í þróun togaraútgerðar á Ak.
Landselur við flug-
völlinn
Síðastl. miðviltudag mátti sjá
marga bíla við vestustu brú
Eyjafjarðarár, sunnan flug-
vallarins og hóp af fólki, sem
skemmti sér við að horfa á
óvæntan og óvenjulegan gest.
En það var landselur. Svam
hann fram og aftur og var mjög
gæfur. Kom jafnvel fast upp
að árbakkanum, þar sem fólkið
stóð, reisti sig þá nokkuð og
horfði athugulum augum á
landkrabbana. — Ekki er blað-
inu kunnugt hvað orðið er af
selnum, hvort hann er aftur
kominn út á sjó ,fram í á eða í
pottinn hjá einhverjum bæjar
búurn.
Á laugardagskvöldiö um kl. 9
komu fyrstu ískornin úr ísfram-
leiðsluvélunum, sem settar hafa
verið upp í þeim hluta hins nýja
hraðfrystihúss Akureyringa, er
á að annast ísframleiðslu fyrir
togarana.
Var síðan haldið áfram að prófa
vélarnar og framleiða ís um helg-
ina, og sóttist vel. Einn af togur-
um Utgerðarfélags Akureyringa
h.f. var í höfn og beið þess að fá
ís í veiðiför, en skipið er að hefja
veiðar fyrir Þýzkalandsmarkað.
Áður þurfti að sækja ís til ann-
arra hafna, helzt til Reykjavíkur,
og var bæði dýrt og óhentugt.
Merkur áfangi.
Með þessu er náð merkum
áfanga í þróun togaraútgerðar-
innar á Akureyri, og lokið fyrsta
hluta hraðfx-ystihússbyggingar
innar, sem Utgerðarfélag Akur-
eyringa er að láta byggja á Odd-
eyrartanga.
Enn er langt að því marki að
fullgera húsið. Skortir nú fé til
áframhaldandi framkvæmda.
Frá Happdrætti hús-
byggingasjóðs Fram-
sóknarflokksins
Nú eru aðeins fáir söludagar
eftir. Dregið verður 1. nóvem-
ber um fullgerða þriggja her-
bergja íbúð við Bogahlíð
Reykjavík. Nokkrir miðar eru
enn óseldir. Þeir fást á skrif-
stofu Framsóknarflokksins og
á afgreiðslu Dags. Freystið
gæfunnar og takið þátt í glæsi
legasta happdrætti ársins. Mið
inn kostar aðeins 10 krónur. —
Sölubörn, komið á skrifstofuna
og takið miða til sölu. — Góð
sölulaun.
Stórhýsi það, er liéðan blasir við í Hlíðarfjalli, er skíðaskálinn
nýji. Hann er nú kominn undir þak, rafmagn hefur verið leitt þang-
að upp eftir og vegur lagður. Þetta mannvirki skortir nú fjármagn,
en góðvild og áhugi bæjarbúa, mun ekki láta framkvædir stöðvast.
Ungur félagsskapur hér á Ak-| íþróttaflög bæjarins, Barna- og
Tunnusmíðin hefst í
næsta mánuði
Allmikið er nú þegar komið af
efni til tunnuverksmiðjunnar og
næstu daga er von á viðbót. Er
gert ráð fyrir að tunnusmíði
hefjist í næsta mánuði.
í fyrra framleiddi tunnuverk-
smiðjan um 33 þús. tunnur og
reyndist það alltof lítið.
Tunnusmíðin er mikil atvinnu-
bót í bænum og verksmiðjan er
búin allgóðum vélakosti. En
tunnuskýli vantar tilfinnanlega
og verður að ráða bót á því hið
fyrsta.
Rússneskur sýningar-
bíll - Moskvitch
Rússneskur sýningarbíll af
Moskovitch M 402—gerð er nú
kominn hingað og er sýndur hjá
Jóhannesi Kristjánssyni h.f., sem
hefur umboðið hér fyrir þessa
tegund.
Miklar breytingar eru á bílnum
frá því sem áður var.
Skíðaskálinn í Hlíðarf jalli
Með skíðaskálanum myndast ný og betri aðstaða fyrir skíðaíþróttina.
ureyri, svokallað Ferðamálafélag,
hefur undir stjórnarforystu
Kristjáns Kristjánssonar, Jakobs
Frímannssonar, Kristins Jóns-
sonar, Hauks Snorrasonar, Karls
Friðrikssonar, Hermanns Stef-
ánssonar og Einars Kristjánsson-
ar og framkvæmdastjórn Her-
manns Stefánssonar, ráðist í það
stórvirki, að byggja stóran og
vandaðan skíðaskála uppi í Hlíð-
arfjalli. Hann er nú kóminn und-
ir þak og járnklæddur að mestu.
Tilgangur Ferðamálafélagsins
er sá, að beina hingað ferða-
mannastraumi vegna margra
ágætra ytri skilyrða, og er bygg-
ingin í Hlíðarfjalli einn liðurinn
á þeim vettvangi. En vert er að
vekja athygli á því, að þessi
skíðaskáli eða hótel, svo sem
sumir kalla hann, er þó fyrst og
fremst fyrir Akureyringa sjálfa.
Hann er byggður fyrir æsku
þessa bæjar, bæði þá sem nú er
hér og einnig fyrir langa framtíð,
í trausti þess að nú og síðar verði
heilbrigði og gleði sótt til fjalla,
svo sem verið hefur í vaxandi
mæli, allt frá þeim tíma er tröll
og útilegumenn hurfu af hálend
inu.
Vandfundinn betri staður.
Sennilega er ekki auðfundinn
staður ,sem hefur betri skilyrði
til að uppfylla þær kröfur er
gerðar verða til bygginga skíða-
skála en einmitt sá, er líta má
stórhýsi það, er nú er í smíðum
7 kílómetra frá Akureyri og ætl-
að er til eflingar skíðaíþrótt og
útivist bæjarbúa, og til að beina
hingað ferðamannastraum íþrótta
fólks víðs vegar að.
Vígsla og milliríkjakeppni á
næsta ári.
Bjartsýnustu menn vona að á
næsta ári verði skíðaskálinn full-
búinn og að þá fari fram milli-
ríkjakeppni í skíðaíþróttum. Ef
svo yrði, mætti segja að vígsla
þessa mannvirkis færi ekki fram
þegjandi og hljóðalaust og að
ekki þyrfti að kvíða, að ekki yrði
eftir tekið. En til þess að svo
megi verða, þarf að herða róður-
inn, sem hingað til hefur verið
léttur, vegna þess að enginn hef-
ur fyrirfundist, sem hefur beitt
sér á móti þessari framkvæmd.
Gagnfræðaskóli, eru aðilar að
byggingunni og mörg félagasam-
tök önnur, sjálft bæjarfélagið og
fjölmargir einstaklingar og hið
opinbera hefur sýnt máli þessu
stuðning fyrir atbeina góðra
manna á þingi og í ríkisstjórn.
Skólaæskan fær góða aðstöðu.
Fyrirhugað er að stórir nem-
endahópar Barna- og Gagn-
fræðaskóla hafi góð og mikil af-
not af skíðaskálanum virka daga,
en um helgar íþróttafélögin, og
síðari hluta vetrar verði haldin
þarna mörg námskeið, skíðavik-
ur og skíðamót. Ennfremur er
gert ráð fyrir að starfsmanna-
hópar fyrirtækja í bænum eigi
þess kost að nota hina ágætu að-
stöðu er þarna verður fyrir
hendi, svo og auðvitað einstakl-
ingar þeir er þess óska.
Stór þriggja hæða bygging.
Skíðaskálinn í Hlíðarfjalli er
mjög stór bygging, eða 250 fer-
metrar að flatarmáli og þriggja
hæða.
í kjallara verða skíðageymslur,
smíðaverkstæði, snyrtingar, böð
og setustofa. Á miðhæð verður
veitingasala með tilheyx-andi,
bæði eldhúsi, veitingasal, og á
þeirri hæð vex’ður einnig bóka-
herbergi, dagstofa o. fl. Á efstu
hæð verða tveir skálar, að stærð
6y2xl2y2 m. í kvistbyggingum,
sem ganga þvert í gegnum húsið
til beggja enda. Þar er hægt að
hýsa fjölda manns með svipuðu
fyrii-komulagi og „farfuglar" nota
með góðum ái’angri. Sumir kalla
slíka svefnskála pokaskála, og
gefur það hugmynd um að svefn-
pokinn sé hafður með. Milli
svefnskálanna eru mörg gistiher-
bergi.
Kjörviðir sjúkrahúss á nýjum
stað.
Sýnt þykir að þessi bygging
verði mjög falleg og mjög rúm-
góð. Utsýni er hið fegursta og
ekki nema steinsnar í ágætar
skíðabrekkur langt fram á sum-
ar. Vegur er kominn alla æið.
Hann þarf raunar lagfæringar og
stendur til bóta, og í'afmagn er
einnig komið upp eftir. Sjálft er
húsið ekki fokhelt ennþá, því að
(Framhald á 2. síðu.)