Dagur - 24.10.1956, Side 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 24. október 1956
- Skíðaskálinn í
(Framhald af 1. síðu.)
gluggana vantar. Einnig er eftir
að steypa forstofu. Neðsta hæðin
er öll steypt og loft yfir. Hinar
hæðirnar eru úr timbri gamla
spítalans og er það enn mjög
gott. Líklega mest af því mikið
betra efni en nú er kostur á að
fá. Gömlu fótstykkin, sem eru úr
eik, eru enn svo hörð, að erfitt
reyndist að bora göt í þau. Er vel
að hinir gömlu kjörviðir sjúkra-
hússins skuli enn eiga að þjóna
heilbrigði manna og hollum lífs-
venjum.
Enginn á móti.
Enn sem komið er hefur ekki
verið leitað hart að almenningi
um þessa framkvæmd. Þess hef-
ur ekki þurft. Þó kostar bygging-
in þegar, ásamt rafmagni og vegi,
sennilega allt að 700 þús. krón-
um. Líklegt er að enn skorti um
hálfa milljón til að ljúka verkinu.
Þykir það ef til vill nokkur fjár-
hæð. Hér er þó framkvæmd á
ferðinni, sem enginn mælir í
gegn og á ríkan skilning og vel-
vild bæjarbúa. Með það í huga
ætti málefninu að vera borgið,
því að enginn vill hætta við þetta
verk hálfnað. Enda skyldi enginn
ímynda sér að þetta sé neitt
þrekvirki fyrir 8 þús. manna bæ.
Ovenjuleg skíðabrekka.
Svo hagar til að frá hinum nýja
skíðaskála, sem er aðeins í 7 km.
fjarlægð fx-á Ráðhústorgi á Ak-
ureyri, ér hægt að renna sér á
skíðum, nær óslitið að efri Gler-
árbrú. Er þá komið í útjaðar
bæjarins og aðeins mismunandi
stutt heim að ganga. Óvíða mun
á betra kosið í þeim efnum.
—o—
Geta nienn þegar farið að hug-
leiða skíðaferðir í Hlíðarfjalli. —
Léttast er að taka far með áætl-
unarbílnum upp eftir, vera þar
lengur eða skemur á skíðum eða
sem áhorfandi. En sjálfsagt er að
hafa skíðin með. Konan og börn-
in eru auðvitað með. Sjálfsagt er
að nota skíðin á heimleiðinni í
hinni ágætu brekku. Konan og
börnin á undan og húsbóndinn á
eftir til að aðstoða þá sem detta
eða „tína upp á leiðinni".
Ef til vill óskar konan að taka
áætlunarbílinn heim og hafa
börnin með sér, ef þau eru mjög
ung ,og þá þarf húsbóndinn ekki
að hugsa um neitt nema sjálfan
sig og kannski er það nóg. Hann
rennir sér á örfáum mínútum alla
leið niður á flatann neðan við
bæinn Glerá. Hann er langt á
undan bílnum og gefur sér góðan
tíma til að líta við og jafna sig.
Það er sennilegt að fleiri séu á
ferðinni, sem gaman væri að sjá
— hvort ekki kútveltust. Og lík-
lega kæmi fjölskyldan heim sam-
tímis. En hugmyndir má setja
upp á margan veg og gerir það
hver fyrir sig. En á þeim öllum
er nýji skíðaskálinn í Hlíðarfjalli
og brekkumar þar, bakgrunnur-
inn.
Skíðaskálinn sjálfur er nú orð-
inn reisulegt mannvirki og ber
hátt og skíðalyftan mun í fram-
Hlíðarfialli
tíðinni auðvelda íþróttamönnum
ferðina upp á Mannshrygg. Við
allar þær framkvæmdir, sem enn
er ólokið, verður fyrsta og ann-
að boðorðið að vera: Að vanda
allt sem mest og flýta verkinu.
Vamá^liðið og Iiá-
rningarnir
O
Fyrra þriðjudag lagði eftirlits-
flugvél ameríska sjóhersins, VP
—7, upp í aðra herferðina gegn
háhyrningum á þessu ári. Um 50
há’nyrningar voru drepnir í þess-
háhyrningar voru drepnir í þess-
ari ferð, og hafa varnarliðsmenn
því úti-ýmt samtals 70 háhyrn-
ingum á þessu ári.
Þetta er þriðja árið í röð, sem
varnarliðið tekst á hendur slíkar
herferðir að beiðni íslenzku rík-
isstjórnarinnar til þess að stöðva
ágang háhyrninga.
Fréttamaður úr ameríska sjó-
hernum hefur skýrt svo frá, að
íslenzkir sjóm»nn hafi tilkynnt
varnarliðihu um stóra torfu af
háhyrningum skammt þaöan, sem
þeir voru að véiðum, og er eftir-
litsflugvélin var komin á staðinn,
hafi skothríðin á torfuna staðið
yfir í eina og hálfa klukkustund.
í flugvélinni voru Agnar
Gttömundsson, skipstjóri, og
nokkrir aðrir íslendingar ásamt
fjórum varnarliðsmönnum. Voru
íslendingarnir leiðsögumenn í
ferðinni til þess að hindra það,
að drepnir væru hvalir, sem ís-
lendingar hafa not af.
Flugvélinni stýrði Clyde D.
Martin, lautinant. Hefur hann
skýrt svo frá, að flugvél frá
varnarliðinu og áhöfn geti verið
tilbúin að leggja í slíka herferð
innnan örfárra mínútna, frá því
að íslenzkir sjómenn hafi gert
viðvart um háhyrningatorfu.
NORÐLENDINGAR!
Munið! Þegar þér dvelj-
ið í Reykjavík. Dagur fæst
í Söluturninum við Arnar-
hól.
í glösuni.
Kjötbúð KEA.
Epfamauk
í glösum.
Kjötbúð KEA
Ðaglega
Kjötbúð KEA.
tíSíSéWL*. ' _
Leiðrétting
Viðvíkjandi frétt í síðasta blaði
Dags um sund yfir Oddeyrarál,
skal það tekið fram, að Sigrún
Sigtryggsdóttir frá Breiðabóli, þá
kornung, þreytti ekki þetta sund,
heldur synti hún frá Veigastaða-
bás að Torfunefsbryggju, sem er
helmingi lengri leið ,eða um 2
km. Var hún 1 klst. og 10 mínút-
ur á leiðinni. Er hún fyrsta og
eina konan sem þetta sund hefur
þreytt.
Ennfremur skal þess getið, að
Pétur Eiríksson synti þessa leið
nokkrum árum áður.
Dömuullarbuxur
og skyrtur
Skjört,
í mjög fjölbr. úrvali
Slankbelti,
2 br., bleik og hvít.
UNGLINGA
sokkabanclabelti
(teygja)
HRINGSTUNGIN
brjóstahöld
Yerzlunin DRÍFA
Sími 1521.
Lifur, hjörtu
nýru
Kjötbúð KEA.
Spilakvöld Léttis
Næsta spilakvöld Hestamanna-
íólao'sins Léttis verður í Al-
o
þýðuhúsinu n. k. sunnudags-
kvöld, 28. október, kl. 8.30.
Góð kvöldverðlaun.
Mœtið stundvislega.
Skemmtinefndin.
rari í heilum
pokum.
Kjölbúð KEA
Hraðfryst
Hrefnukjöt
í 1 kg pökkum.
Kjötbúð KEA.
Tek að prjóna
krakkasokka og nærföt.
SÍMI 2282.
Tilky
nning
Hefi tif sölu IIROSS bæði til
lífs og slátrunar. Einnig úr-
val af folöldum, af þekktu
reiðhestakyni.
GESTUR JÓNSSON.
Sími 2242.
Bíll til sölu
Austin 10, 4ra manna, til
sýnis og sölu hjá
Pdli Magnússyni,
Grundargötu 3.
Sími 1890.
Herbergi óskast
lielzt með einhverjum hús-
gögnum, sem næst sjúkra-
húsinu. - Uppl. í síma 1923
kl. 5—7, daglega.
Atvinna!
1—2 karfmenn geta fengið atvinnu í SKÓGERÐ
IÐUNNAR. — Unglingar geta komið til greina.
Talið við okkur sem fyrst.
UPPLÝSINGAR í SÍMA 1938.
ÚTSALA
SELJUM í DAG OG NÆSTU DAGA
POPLINKÁPUR og SKÍÐAÚLPLR
með 15—25% afslœtti.
Klæðaverzlun Sig. Guðmundssonar h.f.
BUTTERICK-SNIÐ
Hausttízkan 195 6
NÝKOMIÐ ÚRVAL AF BUTTERICK-SNIÐ-
UM FYRIR BARNA- OG KVENFATNAÐ.
Auknar vmsældir sniðanna sýna, að
konnr um land allt hafa gerl sér Ijóst,
hve auðvelt er að hagnýta sér þau.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
VEFN AÐ ARVÖRUDEILD.