Dagur - 22.12.1956, Blaðsíða 7

Dagur - 22.12.1956, Blaðsíða 7
Laugardaginn 22. desember 1956 D A G UR 7 KUML OG HÁUGFE úr heiðnum sið á íslandi eftir Kristján Eldjárn Bókaútgáfan Norðri gefur út. — Prentun annaðist Prentverk Odds Björns- sonar h.f. á Akureyri. Degi hefur verið send þessi bók til umsagnar, og skal það með gleði gert. Höfundurinn, Kristján Eldjárn, sem þjóðkunn- ur er orðinn á unga aldri, er ætt- aður frá Tjörn í Svarfaðardal, Þórarinsson Eldjárns hreppstjóra. Kristján Eldjárn hefur lengi unnið fræðimannsstörf, sérstak- lega fornleifafræði ásamt störfum þjóðminjavarðar og skrifað stór- fróðlegar greinar og flutt erindi um þessi efni. Hann hefur ferðast mjög um landið og rannsakað kuml og hauga, og sjálfur unnið að uppgreftri fornminja. Vel er, að hinn margþætti fróðleikur þessa áhugasama vís- indamanns er nú kominn út í stórvandaðri bók, þar sem ekkei't er til sparað í efni og frágangi. Hitt er þó meira um vert, hversu höfundi hefur tekizt, og er þá fyrst frá að segja, að Heim- spekideild Háskóla íslands hefur tekið bókina gilda og talið hana hæfa til varnar við doktorspróf. Fer vörnin fram'í janúar næstk. og verða andmælingar próf. Jón Jóhannesson og Jan Petersen. — Má segja að myndarlega sé af stað farið og allmikið kveði að, þá er fyrsta stófverk liöfundar hleypur af stökkunum. Bókin skiptist í þessa kafla, auk formála: Fundur íslands og fornleifar, kumlatal, umbúnaður kumla, haugfé og lausafundir, norræn stílþróun á söguöld, yfir- lit og lokaorð, greinargerð um myndir o. fl. í formálsorðum segir höfundur meðal annars: „Rétt þykir mér að geta þess, svo sem í skýringar skyni, að bók þessari er ætlað að þjóna tvennu markmiði, og ber hún þess menjar, sem eru ekki allskostar jákvæðar. Hún á að vera heirn- ildarrit fornleifafræðinga um ís- lenzkar víkingaaldarminjar. Að því leyti er hún fullt svo mikið miðuð við útlenda menn sem ís- lenzka, og orðum og efnismeðferð að ýmsu leyti hagað á þann hátt, að annað hæfði betur almennum lesendum. En jafnframt er þess þó freistað, að bókin geti orðið fróðleikslestui' fyrir almenna, ís- lenzka lesendur, sem eiga lítinn kost rita um þetta efni.... Að samanlögðu orka þessi tvö sjón- armið í þá átt, að gera bókina lengri en orðið hefði, ef ætlunin hefði verið að skrifa hana strang- lega fyrir annanhvorn hópinn, fræðimenn eða almenna lesend- ur.“ Hér langar mig til að bæta því við, að höfuðkostur þessarar bók- ar er einmitt sá, hve vísindin verða auðveld og aðgengileg til lesturs almennum lesanda og hefur af þeim sökum margfalt gildi. Og það er aðalsmerki þess- arar bókar. Bókin Kuml og haugfé er höf- uðrit íslenzkrar fornleifakönnun- ar og hin mesta nauðsyn fyrir framhaldsrannsóknir á þessu sviði og hreinn happadráttur fyrir erlenda fræðimenn, og hún varpar birtu á menningarsögu þjóðarinnar á víkingaöld. —o— Flestir íslendingar, að undan- skyldu gerfifólki. sem aldrei hef- ur á grasi gengið, kannast við kuml og hauga úr sinni heima- byggð. Kunna líka sögur og sagn- ir í sambandi við þau, en láta hugmyndaflugið bæta úr því sem áfátt er og dugir þó ekki til. Og á hverju sumri, sérstaklega hin síðari ár, korna bein og mun- jörðu .Áhorfendur leiða hugann aftur í tímann til horfinna kyn- slóða. Lítill hóll, sem verið hefui' leikvöllur barna og lamba í margar aldii', er látinn hverfa samkvæmt ræktunaráætlunum bóndans. Jarðýtan brýtur utan af hóLnum í fyrstu ferð, og er þá eins og bók sé opnuð með mynd- um á báðum síðum. Ytan heldur áfram. Hún er að bylta jörð en ekki að rannsaka feyskin bein. Kristján Eldjárn hefur víða komið á vettvang við slíkar að- stæður, áður en næsta blaði var flett. Með vísindalegri nákvæmni í rannsókn sögu og minja,, er fyllri rammi skapaður um þjóð- líf og sögu í heiðnum sið. Kurnl og haugfé hefur að geyma nær 200 myndir, sem skýra þá heildarmynd, sem höf- undurinn dregur upp frá þeim tíma, þegar flestar íslendinga- sögurnar gerast. Munnmælasagn- ir og fyrirburðir í sambandi við fornminjar, lætur höfundur ekki freista sín, og er þó ærið frá- sagnarefni. Að samanlögðu má segja, að hin nýja bók sé stórvirki og höf- undi til hins mesta sóma. Var þó til mikils af honum ætlast. ir upp á yfirborðið í umróti á E. D. Jólasveinar Nú er orðið klaka-kalt kringum norðurpólinn, jarðarhvel er vöggu-valt, vetur myrkvar norðrið allt, enda er farið fast að nálgast jólin. Höfum við, um hátíð þá, heyrt af ýmsu tagi, ótal liðnum árrnn frá — óhikað því trúa má — og um jólasveina sér í lagi. Ýmislegt er ort og rætt um þá merkiskalla, víða höfðu þeir vinsemd mætt, þótt væru af miður góðri ætt og ættu heima óralangt til fjalla. Lítt þcir fóru á ferðum þá að fínna gesta háttum, lágu á gægjurn gluggum á, gripu cauðaföll af rá, þvörur sleiktu og þefuðu í gáttum. En allir vildu þeim athvarf ljá, og enginn gisting meina, eða muni og föng að fá, því fráleitt mönnum virtist þá að það væru jól án jólasveina. Margt liið góða og gamla er í glatkistuna farið, enginn lengur aska sér og eldhúsrótin fátt það ber, sem þessum körlum þótti mest í varið. Nú eru börnin um það ein að ætla þá nolckurs virði. Þeim cldri finnst ei upphefð nein ef þeim er líkt við jólasvein, því nafnið á þeim er nánast skammaryrði. Enginn fær þá framar hýst né fært þeim góðan beina. Á nýjabrum þeim naumast lízt, og nú á dögum hyggja víst mennina vera mestu „jólasveina“. DVERGUR. Walter Lord: SÚ NÓTT GLEYM j IST ALDREI. Bókin um Titanic- | slysið. Gísli Jónsson þýddi með leyfi höf. — Akureyri 1956. Þegar stórskipið Titanic lagði af stað í fyrstu för sína frá Eng- landi vestur um haf, 10. apríl 1912, var mikið um dýrðir. Litið var á skipið sem stolt og prýði og furðuverk tækninnar. Sérstak- lega var það á orði haft, að skip- ið gæti ekki sokkið. Botninn var tvöfaldur og hafði í holrúminu verið komið fyrir 15 vatnsþéttum skilveggjum, sem talið var að ætti að tryggja það, að jafnvel þótt gat brotnaði á skipið, væri samt hægt að halda lekanum í skefjum. En hér sannaðist sem fyrr, að .... veik er súðin sem oss ber um svefnþung dauðans höf. Stóreflis ísjaki, sem straukst með kinnungnum, braut hann eins og eggskurn, fletti ;undur skipshliðinni á svo löngu svæði, að inn féll sjói' kolblár ineð svo miklum þunga, að við ekkert varð ráðið. Eftir fáa klukkutíma lá þessi mikli Sindri hafsins á mararbotni. Þetta gerðist skömmu eftir miðnætti, mánu- daginn 15. apríl. Á skipið hafði safnast saman fjöldi auðkýfinga og fyrirfólks af enskum ættum, blaðamanna og listamanna, og þar voru f'irn hvers konar auðæfa. Eigi uggði þetta fólk að sér og var í bezta gengi að skemmta sér, er hinn válega atburð bar að höndum. — Sumir voru seinir að fást til að trúa því, að nú yrði að gera skyndilega og ófyrirséð leikslok. En þar kom að öllum varð það Ijóst, að dauðanum varð ekki mútað með hlutabréfum eða gim- steinum: Mjög var órótt, þá að fór nótt, dapur er dauðinn kaldi. Vegna þess að Titanic var talið, „ósökkvandi", var eigi hirt um að hafa bjöi'gunarbáta nema fyrir svo sem helming farþega. Eftir að þeir höfðu verið hlaðnir, tók skipið að síga í ölduna meir og meir, unz það stakk sér í kaf með um 1500 manns. En auðn og þögn hins mikla úthafs gleypti á fáum augnablikum þessa miklu meist- arasmíð mannlegs anda og slíkt hið sama angistaróp og dauðavein þeirra er fórust. Höfundur þessarar bókar, Walter Lord, hefur unnið að því í 28 ár að safna gögnum til henn- ar, baeði úr opinberum skýrslum, fi'á fólki sem bjargaðist eða af- komendum þess. í henni eru dregin fram í dasljósið ýmis at- vik, sjóslys, sem eigi hafa áður verið kunn. Rás viðburðanna þessa örlaganótt er rakin með dramatiskum þunga, næstum því mínútu eftir mínútu, svo að les- andinn fylgist með von og kvíða þeirra, sem þai-na háðu sitt dauðastríð. Þýðinguna, sem verið hefur talsvert vandasöm, hefur Gísli Jónsson menntaskólakennari ann ast með prýði, og er allur frá- gangur frá útgefandans hendi hinn bezti. Fjöldi mynda, er gefa glögga hugmynd um þau íburð- armiklu þægindi, er Titanic bjó farþegum sínum, prýða bókina. Ármann Kr. Einarsson: UNDRA- FLUGVÉLIN. Saga handa börn- um og unglingum. Akureyri 1956. Þessi nýja barnasaga Ármanns Einarssonar er framhald af fyrri sögum hans. Árni í Hraunkoti hefur eignazt caforiagi Odds isonar nýja flugvél, sem gamli, enski flugstjórinn hefur sent honum. Hún er geymd ósamansett í kassa úti í skemmu í Hraunkoti, meðan Árni fer til Reykjavíkur til að fullkomna sig í fluglistinni. Af því að þetta er þyrilvængja, þarf hann að taka sérstaka tíma í meðferð slíkra flugvéla hjá ensk- um flugmanni í Reykjavík. Allt gengur þetta eins og í sögu. í Reykjavík kynnist Árni ungl- ingspilti, sem kallaður er Olli of- viti, en hann er flugvélavirki af guðs náð. Hann fer með Árna austur í jólafríinu, og byrja þeir þar á því að setja saman flugvél- ina, auk þess sem þeir lenda í ýmsum ævintýrum. Eftir að Árni hefur tekið flugpróf um vorið, er unnið ósleitilega að því að búa þyrilvængjuna til flugs, og ekki líður á löngu áður en þessi undraflugvél kemst á loft. Þá þurfa nú margir að bregða sér með Árna og ýmisleg' ævintýr gerast. Meðal annars flýgur Árni inn yfir jökulinn og finnur þar nokkra jöklafara í nauðum stadda. Hann færir þeim vistir og varahluti. Sagan er, eins og fyrri bækur höfundarins, ævintýraleg, og er án efa skemmtileg fyrir börn og unglinga á þessari öld flugtækn- innar. Hún er skrifuð á lipru og hreinu máli. Benjamín Kristjánsson. Okunn afrek Ævar R. Kvaran tók sam- an. Bókaútgáfan Norðri. Ævar R. Kvaran er kunnur orðinn af útvarpsþáttum sínum, innlendum og erlendum, er hann hefur þýtt og endursagt. í fyrra kom bokin hans, íslenzk örlög, út og var vel tekið, svo sem vænta mátti. Hin nýja bók, Okunnun afrek, er 18 frásagnir, flestar fjalla þær um afrek á ein- hvern hátt, sem áður hefur lítt verið á lofti haldið. Þá eru enn- fremur dulrænar frásagnir og fyrirburðir, sem torskírðar eru, en ærið umhugsunarefni. — Stíll bókarinnar er mjög geðþekkur og sums staðar snjall, og er bókin skemmtileg og víða beinlínis spennandi aflestrar. Morgunii Tímarit um andleg mál. Ritstjóri Jón Auðuns. Annað hefti, júlí—des. 1956, er komið til kaupenda. Hefst það á ritstjórnargreininni: Úr ýmsum áttum, Kii'kjurnar og sálarrann- sóknir, þýtt, Úr.sálrænni reynslu minni, eftir frú Jean Thompson, Þjáningar saklausra, eftir rit- stjórann, J. W. Edmond hæsta- réttardómari, eftir ritstj., Um miðilsstarfsemi, eftir Sn. J., Kenningar andanna, eftir W. St. Moses, Dáleiðsla — endurholdg- un o. m. fl. er í hefti þessu. Sálarrannsóknarfélag íslands gefur Morgun út. Áskriflarsími TÍMANS á Akureyri er 1166

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.