Dagur - 05.06.1957, Side 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 5. júní 1957
- Ræða Eysteins Jónssonar fjárm.ráoh.
(Framhald af 1. síðu.)
því, að einhverjir aðrir vaskir
menn réðu, að sagt var upp samn-
ingum sjómannafélaganna, og sína
menn létu þeir vinna að því, að
ekki vrði samið nema veruleg
grunnkaupshækkun kæmi til, þótt
þeir fengju því ekki ráðið.
Um kosningarnar í Trésmiðafé-
laginu lét Bjarni Ben. segja, að
kjaramálin hefðu gleymzt undan-
farið, vegna pólitískrar misnotkun-
ar á félögunum, og gegn þessu yrði
að berjast með því að kjósa Sjáif-
stasðismenn.
Þegar Bjarni Benediktsson segir
frá því í blaði sínu 28. apríi, mjög
fagnandi, að iðnrekendur hafi
hækkað kaupið, þá gleymir liann
ekki að minna mjög ítarlega á, að
samkvæmt þessum nýja Iðjutaxta
hafi karlmenn nú hærri laun en
fastráðnir Dagsbrúnarmenn, tii
þess að minna á að röðin væri kom-
in að þeim.
Þegar prentarar ákváðu að segja
upp samningum, verzlunarmanna-
félagið og verkfræðingarnir, var
sagt frá þessu öllu undir sigorfyr-
irsögnum í Morgunblaðinu og um
prentarafélagið er það sérstakiega
tekið fram í sjálfri fyrirsögninni
með stóru letri, að þeir hafi virt
vilja Alþýðusambandsins að vétt-
ugi. En hver var þessi vilji Alþýðu-
sambandsins? Vilji þess var sá, að
menn skyldu ekki stofna til al-
mennra kaupliækkana, heldur bíða
og sjá hvað setur.
ÓHUGNANLEG TVÖFELDNI.
Að sjálfsögðir"þýðir þetta ekki,
að engar lagfæringar á kjöruni, sem
væru í algeru ósamræmi við annað,
gætu komið til niála. En það cr„
einn liður í moldvörpustarfi Morg-
unblaðsmanna í lauhámálum, að
túlka slík'ar Iagfæringar sem tilefni
að almennum kauphækkunum.
Þeim er sem sé ljóst, að almenn
kauphækkun leiðir í strandið.
Einn liður í baráttu Sjálfstæðis-
manna fyrir rdmennuni kauphækk-
unum og nýrri verðbólguöldu er
sá, að halda því á lofti, að fiski-
menn hafi fengið kauphækkun
nærri fyrstir manna á sl. vetri, og
svo er ályktunin þessl: Þarna sjáið
þið, fiskimenn fengu hækkun, og
þá v^fðá- allir- 1 landinu að sjálf-
sögðu að krefjast hækkunar.
Fiskverðið var hækkað í vetur og
auðvitað áttu hlutamenn að fá ])á
um leið hækkun á fiskverðinu til
sín. Allir vissu, að þetta var bara
leiðrétting til fiskimanna eftir á,
út af kauphækkunum, er urðu í
fyrra. En þetta þykjast Sjálfstæðis-
menn ekki sjá. Óheilindi þeirra
sjást ef til vill ekki betur á neinu
öðru en einmitt þessu, og svo það,
hvert þeir eru að fara. Þessi sjálf-
sagða leiðrétting á kjörum fiski-
manna á að vera grundvöllur að
nýjum kaupkrfifum allra annarra.
Jafnframt eru svo þessir menn að
tala um, að það þurli að gera betur
við fiskimenn samanborið við aðra,
en nú er gert. — Er hægt að hugsa
sér meiri tvöfeldni og flærð en frani
kemur í þessu?
Þá hafa Sjálfstæðismenn tuggið
þau ósannindi, og hefur það einnig
átt að vera liður í þvf að koma
af stað nýrri kauphækkunaröldu,
að Sambandið hafi komið af stað
nýrri kaapha-hkunarskridu með
þvi að hækka kaup starfsmanna
sinna á s. I. ári um 8%. Þó er það
staðreynd, að hér var hreinlega
um að ræða launabreytingu til
samræmis við það, sem opinberir
starfsmenn höfðu fengið, verzlun-
armenn annars staðar og skrif-
stofufólk. Hvaða málstað er verið
að þjóna með því að falsa svo
gersamlega staðreyndir, og með
því að endurtaka slíkar blekking-
ar án aíláts?
HVER GETUR TREYST
ÞEIM LENGUR?
Allir vita til hvers þessir refir
eru skornir allir saman. Forusta
Sjálfstæðismanna hefur tekið á-
kvörðun um að efna til upplausnar,
ef slíkt kynni að geta rofið sam-
tök alþýðustéttanna.
Nú þessa dagana er flokkurinn
að senda sérstaka menn út um
land til þess að reyna að fá verka-
lýðsfélögin úti á landi, til þess að
segja upp samningum og krefjast
hækkana.
Ofan á allar þessar ráðstafanir
til þess að grafa undan afkomu
framleiðslunnar og verðgildi pen-
inganna, sem gerðar eru fyrir allra
augum og ómögulegt væri að
leyna, þótt þeir vildu, bætist svo
óskammítilnin nú undanfarið —
að ætla sér að snúa öllum stað-
reyndum við beint fyrir augun-
um á mönnum og þykjast hvergi
við.koma, en til þess gera þeir nú
tilraunir, sem heyra má hér í um-
ræðunum.
Fyrir utan tvöfeldnina, sem
þetta sýnir, þá gefur það tíl kynna
að þeir eru orðnir hræddir, og
mun það ekki ófyrirsynju, enda
mætti það fyrr vera, ef þessi fram
koma öll vekti ekki undrun og
eyðilegði álir og traiist.
Þótt leitað væri vandlega um
alla Vestur-Evrópu, mundi þar eng-
in stjórnmálaforusta finnast,
önnur en forusta Sjálfstæðisflokks-
ins á- íslandi, sem léti sér sæma
annað eins, og menn hafa nú orðið
áh'eyréndur og áhorfendur að síð-
ustu mánuðina.
Hver getur trúað eða treyst
manuum^ sem reynast málefnalcga
þannig, afhjúpa sig þannig og við-
hafa slíkar . starfsaðferðir?
FLOKKUR MILLILIÐA OG
BRASK ARA FYRST OG FRF.MST
Aratugum saman hafa Sjálfstæð-
ismenn bent á þá staðreynd, á-
samt öðrum, að almennar kaup-
hækkanir komi engum að gagni,
nema hagur framleiðslunnar leyfi
slíkt.
Þeir vita, að hagur framleiðsl-
unnar- er nú þannig, að almennar
kauphækkanir gætu ekki gert
nokkutt gagn. Vertíðin sem nú
er nýlókið, hefur verið hiti lé-
legasta um langa hríð, og orðið
stórkostlegt áfall meginþorra,
frantleiðenda við'sjóirm/ ;-■ ■/'
Aldrc.i hefur Sjálfstrtrðkflökk-:
urinn sýnt það betur en nú, að
hann er ckki í neinum skilningi
floklnir framleiðenda á Island'i.
Þvi síður allra stétla, — heldur
flokkur milliliða og braskara
fyrsia'ög fremst, eins og við and-
stœðingar hans höfum haldið
fram. Það eru þessir aðilar, sem
gerá Jfójikinn út, og það eru þeir
ieui hdfa fitað sig á verðbólg-
unni á kostnað almennings og
frarnleiðslunnar, sem hafa lifað
á þvk'margir hverjir að hafa að-
gang að bönkum landsins og geta
fengið þar lán, sern þeir þurftu
i 'raun og veru ekki að borga
til baká,- nema að sáralitlu leyti,
vegna túerðbólguþróunarinnar. —
þespir. aðilar telja sig ekki geta
þrifizl, nema eiga itök í lands-
stjórninni og ráða rniklu i bönk
unutn.
Það eru þessi öfl, sem krefjast
þess, að_ flokkurinn skirrist ekki
við að grafa undan þjóðarbúskapn-
um og framleiðslunni og verðgildi
peninganna, til þess með því, að
reyna að skapa ástand, sem kynni
að geta suhdrað samtökum stjórn-
arflokkanntf og orðið til þess að
Sjálfstæðisflokkurinn fengi ítök á
ný.
Það eru þessi öfl í Sjálfstæðis-
flokknum, sem krefjast þess af svo
kölluðunt leiðtogum ílokksins, að
þeir geri sig ómerka að öllu því,
sem þeir hafa^sagt síðustu 10—20
árin.
En getur nokkur maður, sem
horíir upp á þetta, haldið áfram að
treysta þessu liði, aðrir en þá þeir,
sem standa fyrir þessum ósköpum,
en það vitum við, að er tiltölulega
fámennur hópur, en óneitanlega
sterkur að ljármagni og áróðurs-
tækjum.
S J Á LFSTÆÐIS FLO K K U RIN N
ÓG STÓREIGNASKATTURINN.
Eg hefi rætt nokkuð, upp á
hvað Sjálfstæðisflokkurinn hefir að
bjóða um þcssar mundir framleið-
éndum og ahnenningi í landinu, en
það er fleira athyglisvert, sem nú
kemur fram í fari Sjálfstæðis-
flokksins. Þar á meðal er barátta
hans gegn stóreignaskattinum.
Sjálfstæðisflokkurinn vílar ekki
íyrir sér að leggja á skatta og tolla,
það þckkjum við. Hann hefir átt
þátt í því, án þess að taka nærri
sér, að lögfesta hundruðir millj-
óna króna í sköttum og tollum í
einum áfanga. En nú ætla forkólf-
arnir alveg að rifna út af stóreigna-
skattinum. Það er ekki hægt að á-
ætla, hvað stóreignaskatturinn
muni gefa í tekjur, en menn von-
ast til að hann gefi 80 miljónir, sem
ber að greiða á 10 árum, eða 8
milljónir á ári að viðbættum vöxt-
um. Sjálfstæðismenn segja, að þessi
skattaálagning muni draga saman
atvinnurekstur í landinu, valda
stórkostlegri röskun í þjóðarbú-
skapnum og koma þungt niður á
framleiðslunni.
Því miður hefur ekki orðið sá
gróði á framleiðslunni undanfariiY
að þar sé að leita stóreignannæ
Verðbólgugróðinn hefur runniðl
aðra átt. Enginn á að borga stór?
eignaskatt nema sá, sem á meira eh
1 milljón, og eignamatið er svp
varlega sett, að allar eignir eril
metnar undir gangverði og það
verulega. Skip og önnur fram,-
Ieiðslutæki verða sérstaklega var-
lega metin.
Þessi skattlagning þykir Sjálf-
stœðismömnum hneyksli. Þeir
hafa á hinn bóginn hœkkað út-
svör í Reykjavík á undanförnum
árum um tœþar 30 milljónir að
meðaltali á ári.
Það þykir ágœtt, enda er þar
ekki fyrst og fremst um skatta á
auðmenn að raða. Sannleikur-
inn ér sá, að SjáIfstœðismönnurn
; blöskrar engin skattaálagning
j " önnúrlrfA ’sú/Sekn jl/nnA'Aiðitf (l
' • þeirn rihiislv. ‘ 1 ■ /.'
SJ Á LFSTÆÐISFLO K K URIN N
AFHJÚPAR SIG.
Þá ráðast þeir heiftarlega á
Framsóknarflokkinn fyrir það, að
skatturinn skuli lagður á allar eign-
ir hvers einstaklings hjá honum
sjálfum en ekki á félög hvert fyrir
sig. Allir vita, að helztu eigna-
menn landsins hafa dreift eignum
sínum í mörg félög, til þess að
Jétta á sér skattabyrðinni. Sjálf-
stæðismenn heimta, að þessar björg-
unarráðstafanir skuli halda gildi
sinu einnig, þegar um stóreigna-
skatt er að ræða. En Framsóknar-
menn liafa bæði 1950 og nú haldið
fast á því, að eðlilegt væri að allar
eignir hvers um sig væru taldar hjá
hoiium sjálfum, þegar stóreigna-
skattur er ákveðinn.
Það má mikið vera, ef nokhr-
um dylst, hvert ver-ið er að fara,
þegar athugaðar eru baráttuað-
ferðir forkólfa Sjálfstœðismanna
um þessar rnundir í kauþgjalds-
máluni og verðlagsrnálum, gegn
stóreignaskattinum og ofsa þeirra
út af því, að þeir skuli ekki geta
haldið áfram að liafa hreinan
meirihluta i báðum aðalvið-
skiplabönkum landsins.
Er nokkur vandi að sjá, hvað á
spýtunni hangir? Hefur nokkur
komið rækilegar upp um sig en
Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert nú
síðustu 10 mánuðina?
TILKYNNING
NR. 17/1957.
Innflutningsskrifstof'an hefir í dag ákveðið eftirfarandi
hámarksverð á selda vinnu hjá rafvirkjum.
I. Verkstceðisvinna og viðgerðir:
Dagvinna Eftirvinna Næturvinna
kr. 40.75 kr. 57.00 kr. 73.35
II. Vinna við raflagnir:
Dagvinna Eftirvinna Næturvinna
kr. 38.85 kr. 54.40 kr. 69.95
Söluskattur og útflutningssjóðsgjald er innifalið í
verðinu, og skal vinna, sem undanþegin er gjöldum
þessum, vera ódýrari sem þeim nemur.
Reykjavík, 1. júní 1957.
VERÐ LAG SSTJÓRINN.
Rykfrðkkar, poplin
með og án belti.
Sumarjakkkar
f jölbreytt úrval.
Buxur - Sportskyrfur
Nærtöt, stutt og síð
vefnaðarvörIjdeild
Laxveiðimenn!
r
’ Til leigu er veiðiréttur fyrif'"Þórbrandsstáðalandi í
Hofsá í Vopnafirði. Veiðisvæðið er ca. 7 krn. á lengd.
Til greina getur komið leiga í lengri tíma t. d. mánuð
ef um semst. Allar upplýsingar veittar í síma á staðn-
um, eða í síma 2451, Akureyri.
HELENÁ RUBENSTEEN
SHAMPOO, PÚÐUR, KREM,
margar tegundir.
HANDÁBURÐUR og MAK-UP.
Notið þessar snyrtivörur og þér
sannfærist um gæðin.