Dagur - 08.01.1958, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 8. janúar 1958
D A G U R
5
ía mál Álþingis var fjárlögin
en mesfa hifamálið kosningalögin
Viðtal við Bernharð Stefánsson alþingismann
Blaðið náði nýlega tali af Bernharði Stefánssvni alþingis-
manni og lagði fyrir hann nokkrar spurningar, sem hann góð-
fúslega svaraði á eftirfarandi hátt:
Hvað er helzt að frétta af þing-
störfum til þessa?
Til þessa hefur þingið virzt
fremur athafnalítið. Það hefur
ekki afgreitt mörg mál og jafn-
vel rætt færri mál en oft áður.
Er þó langt frá því að þingmenn
að minnsta kosti sumir þeirra,
hafi verið aðgerðarlitlir. En þing
störfin eru að breytast og hefur
sú þróun verið í mörg ár. Þegar
ríkisstjórn er studd af fleiri en
einum flokki, þarf sífellt samn-
ingastapp um málin. Frumkvæði
um löggjöf hefur meira og meira
færzt úr höndum einstakra þing-
manna í flokkana. Vinna þing-
manna er því orðin mest í flokk-
unum og í nefndum þingsins.
Stuðningsmenn stjórnarinnar
flytja orðið tæplega nokkurt
frumvarp og stjórnarandstaðan
fá, heldur beita þingmenn áhrif-
um sínum hver í sínum flokki til
að koma málum sínum fram og í
nefndum. Deildarfundir voru
því oft stuttir og fá mál á dag-
skrá en flokksfundir og samn-
ingafundir trúnaðarmanna stjórn
málaflokkanna því fleiri. Fundir
í sameinuðu þingi voru aftur á
móti alllangir sumir og þar oft
mörg mál á dagskrá. En þar voru
eingöngu ræddar þingsályktun-
artillögur — þar til fjárlögin
komu til umræðu — sem þing-
menn bera fram til að vekja at-
hygli á ýmsum málum, í stað
þess að flytja lagafrumvörp þó
þingsályktunin hafi ekki gildi
nema sem viljayfirlýsing. En eg
efast um að þessi þróun sé æski-
leg. En hún hófst fyrir áratugum
og hefur meira og meira færzt í
þetta horf á síðari árum.
Hvert var merkasta mál þings-
ins?
Auðvitað fjárlögin. Fjárlaga-
frumvarpið, eins og það var lagt
fyrir, var með verulegum
greiðsluhalla, sem stafar af síauk
inni hjálp, sem atvinnuvegirnir
krefjast og sennilega þarfnast
meðan núverandi efnahagskerfi
helzt. Það fór þó svo að fjárlög-
in voru afgreidd greiðsluhalla-
laus. En það náðist með því að
taka út úr frumvarpinu háa upp-
hæð til dýrtíðarráðstafana. Munu
styrkir til framleiðslunnar verða
greiddir af fé því sem veitt var
af fjárlögum, fyrstu mánuði árs-
ins. En framhaldsþingsins bíður
það verkefni, að ráða fram úr
efnahagsmálunum í heild. Er
nefnd hagfræðinga og fulltrúa
stjórnarflokkanna og aðal vinnu-
stéttanna starfandi til að rann-
saka þessi mál. Vonast er eftir
áliti hennar á framhaldsþinginu.
Þótti ekki rétt að hefja þingstörf
að nýju fyrr en hægt var að gera
sér von um niðurstöður nefndar-
innar.
Hverjar eru helztar fréttir af
þeim málum er mest varða hér-
aðið?
Fjárveitingar til héraðsins eru
svipaðar og fyrra ár og ekki
hækkaðar til muna vegna þröngs
fjárhags. En til helztu verklegra
framkvæmda í Eyjafirði var
þetta veitt:
Bcrnharð Stefánsson.
Til Múlavegar 200 þús., Ólafs-
fjarðarvegar 85 þús., Ólafsfjarð-
arv. eystri 40 þús., Hrísavegar
40 þús., Hörgárdatsvegar ytri
100 þús., Hörgárdalsvegar innri
35 þús., Vatnsendavegar 100 þús.,
Djúpadalsvegar 30 þús., til brúar
á Eyjafjarðará fram 200 þús. —
Fjárlagalið 1500 þús., sem áð-
ur hefur verið ætlaður til endur-
bygginga gamalla .stórbrúa var
breytt þannig, að fjárveitingin er
nú til gamalla brúa og hef eg von
um að Þverá hjá Munkaþverá
verði endurbyggð á þessu ári af
þeirri fjárveitingu. En þetta heyr
ir þó undir vegamálastjórnina en
Alþingi ákveður ekki um ein-
stakar framkvæmdii' í því efni.
Til hafnarmannvirkja í héraðinu
var veitt: Til Dalvíkur 125 þús.,
Grímseyjar 50 þús., Hauganess
200 þús., Hríseyjar 75 þús., Ólafs-
fjarðar 125 þús. og til hafnarmála
á Akureyri voru veittar 350 þús.
Auk þess voru veittar nokkrar
upphæðir til menningarmála í
héraðinu. í þessu sambandi má
geta þess að fyrir þinginu liggja
ýmsar tillögur um breytingar á
vegalögum, meðal annars bar ég,
ásamt Friðjóni Skarpliéðinssyni,
fram nokkrar tillögur. Til dæmis
um að lengja Svarfaðardalsveg
og taka upp þjóðveg inn í Skíða-
dal, gera veginn um Dagverðar-
eyri um Skipalón og Hlaðir með
álmu að Skjaldarvík að þjóðvegi,
lengja Vatnsendaveg að Tjörn-
um o. s. frv.
Vegalagatillögurnar eru ekki
útræddar enn og óvíst að þetta
þing samþykki nokkrar breyt-
ingar. Þykir mörgum hyggilegra
að fela vegamálastjóra að endur-
skoða öll vegalögin í heild og
fresta málinu.
Hvcrt var mesta hitamálið á
Alþingi?
Tvímælalaust kosningalaga-
breytingin. Og fæ eg þó vart
skilið þær æsingar, því ekki sé
eg að lögin gangi á réttindi
manna og auðvitað ganga þau
jafnt yfir alla flokka. Þessi nýju
kosningalög koma til fram-
kvæmda við bæjarstjórnarkosn-
ingarnar síðar í þessum mánuði.
Mjög var fárast yfir því af stjórn
arandstöðunni að loka skildi
kjörstað kl. 23, en þeir þó fá að
kjósa, sem þá eru komnir á
kjörstað. Eg sé ekki að þetta geri
neina breytingu frá núgildandi
lögum hefði þeim verið fram-
fylgt, því samkvæmt þeim átti
kosningu að vera lokið klukkan
24 þó það ákvæði hafi verið marg
brotið bæði í Reykjavík og víðar.
En samkvæmt nýju lögunum,
munu þeir, sem komnir eru á
kjörstað kl. 23 verða að kjósa á
24. tímanum. Vei'ndun borgar-
anna á kjörstað, samkvæmt hin-
um nýju lögum er auðvitað alveg
í anda fyrri kosningalaga og sam
kvæmt tilgangi þeirra.
Hvernig fór um brennivíns-
málið svokallaða?
Brennivínsmálið var ekki ann-
að en það, að fram kom þings-
ályktunartillaga frá þrem þing-
mönnum um að banna vínveit-
ingar á kostnað ríkisins (í veizl-
um). Málið er ekki útrætt en
hefur þó verið rætt á þremur
fundum í sameinuðu Alþingi og
einn fundurinn fór algerlega til
umræðna um það. Um þetta mál
urðu fjörugar umræður í þing-
inu, sem ýmsum þóttu skemmti-
legar og var margt á áheyrenda-
pöllum.
Þú munt hafa tekið þátt í þess-
um umræðum?
Já, segir Bernharð og brosti
við, eg tók þátt í þeim. f fyrstu
lagði eg tii að málinu væri vísað
til annarrar nefndar, heldur en
flutningsmenn lögðu til. Enn
fremur upplýsti eg að þjóðhöfð-
ingjar þeir, sem skuldbinda sig
til að veita ekki vín í veizlum
sínum, væru fleiri en þeir tveir,
sem flutningsmaður nefndi í
framsöguræðu, meðal annars
ýmsir þjóðhöfðingjar Múhameðs-
trúarmanna. En þeim væri bann-
að í Kóraninum að neyta víns.
Þetta tóku flutningsmenn tillög-
unnar óstinnt upp, einkum einn
þeirra. Þótti mér hann ekki fara
rétt með orð mín og spunnust af
því nokkrar viðræður. Taldi eg
þetta hégómamál, sem ekki
mundi hafa nein veruleg áhrif á
drykkjuskapinn í landinu og nær
væri fyrir þessa menn að beita
sér fyrir algeru áfengisbanni.
Jón Pálmason bar fram breyting-
Verðlagning landbúnaðarvara
Garðar Halldórsson, bóndi að
Rifkclsstöðum, hcfur vinsamlega
orðið við þeirri ósk blaðsins að
skrifa nokkra þætti um verðlags-
mál landbúnaðarins. Skrif þeirra
Jóns Ingimarssonar hafa vakið
áhuga margra um almenna
fræðsla á þessum málum, en um
þau er Garðar Halldórsson
manna kunnugastur. Um leið og
hann kveður sér hljóðs vill blað-
ið eindregið hvetja lesendur til
að fylgjast með þessum greina-
flokki og kynna sér verðlagsmál-
in sem bezt, því að vissulega
koma þau öllum við og ckki
vanzalaust að kunna ekki á þeim
nokkur skil.
I. LÖG
um Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins, verðskráningu, verðmiðlun
og sölu Iandbúnaðarafurða o. fl.
Lög þessi eru frá ái'inu 1947,
með breytingu 1956, aðallega um
sölu matjurta og gróðurhúsa-
framleiðslu.
Svo sem fyrirsögn laganna
bendir til, byggjast verðlagsmál
landbúnaðarins á þeim, og þar
sem þau mál eru löngum um-
deild, þykir rétt að rifja upp
nokkur helztu atriði þeirra.
Svokallað framleiðsluráð land-
mbúnaðarins hefur á hendi aðal-
framkvæmd laganna og er það
þannig skipað: Fimm menn eru
kosnir af aðalfundi Stéttarsam-
bands bænda, einn frá þeirri
deild SÍS, er fer með sölu land-
búnaðarafurða, einn frá Mjólk-
artillögu þess efnis, að hafa
veizlur færri en verið hefði.
Taldi hann einkennilegt að svo
virtist sem flutningsmenn þessar-
ar tillögu vildu láta halda veizl-
ur „en bara ekki hafa neinn
veizlukost“. Fjöldi áskorana hef-
ur borizt Alþingi, um að sam-
þykkja þessa tillögu. En ekki
hygg eg að allir þeir, sem áskor-
anirnar hafa sent, hafi gert sér
grein fyrir, hvað hér er um lítið
að ræða.
Hvernig gengur samstarf
stjómarflokkanna?
Vel til þessa. En á hana reynir
fyi'st fyrir alvöru á framhalds-
þinginu þegar ráða þarf fram úr
efnahagsmálunum. En vonandi
tekst að leysa þau mál með sam-
komulagi á varanlegan hátt.
Hvað finnst þér um stjórnar-
andstöðuna?
Mér finnst hún ekkert sérstak-
lega hörð en ófrjó og ábyrgðar-
lítil, eins og oft vill brenna við
um þá flokka, sem eru í stjórn-
arandstöðu. Hækkunartillögur
þeirra við útgjaldahlið fjárlag-
anna eru dæmi um þetta. Hins
vegar hefur ekki bólað á neinum
tillögum frá þeim, um það, hvern
ig fjár yrði aflað né önnur stærri
vandamál leyst.“
Blaðið þakkar alþingismann-
inum fyrir viðtalið og tekur und-
ir vonir hans um að vandamál
efnahagsmálanna verði leyst á
viðunandi hátt á framhaldsþing-
inu síðar í vetur.
ursamsölunni í Reyjavík, einn frá
mjólkurbúunum utan sölusvæðis
Rvíkur og Hafnarfjarðar og einn
frá Sláturfélagi Suðurlands. Alls
9 menn, allir kosnir til 2ja ára í
senn og samtímis.
Framleiðsluráð kýs úr sínum
GARÐAR HALLDÓRSSON.
hópi 3 menn í framkvæmdanefnd
til ákvarðana og afgreiðslu mála
milli funda Framleiðsluráðs. —
Einnig ræður Framleiðsluráð
framkvæmdastjóra til þess að
annast dagleg störf.
Aðalverkefni Framleiðsluráðs
eru:
1. Að fylgjast með framleiðslu,
sölu og vinnslu landbúnaðar-
vara.
2. Að stuðla að eflingu landbún-
aðarframleiðslunnar í samstarfi
við Búnaðarfélag íslands, svo
að hún fullnæig, eftir því sem
kostur er á, þörfum þjóðarinn-
ar.
3. Að stuðla að umbótum á
vinnslu og meðferð varanna.
4. Að vinna að aukinni hagnýt-
ingu markaða fyrir þessar vör-
ur, utan lands og innan.
5. Að vinna að því að beina fram-
leiðslu landbúnaðarins að þeim
framleiðslugreinum, sem land-
búnaðinum eru hagfelldastar
og samrýmast bezt þörfum
þjóðarinnar á hverjum tíma.
6. Að ákveða verðmiðlun á kinda
kjöti, mjólk og mjólkurvörum
samkv. fyrirmælum laga þess-
ara.
7. Að ákveða mjólkursölusvæði
samkv. lögum þessum.
8. Að verðskrá landbúnaðarvörur
í samræmi við vísitölu Hag-
stofunnar. — G. H.
(Framhald.)
Vöruskemmdir af
særoki
Síðastliðinn laugardag gerði
hér suðaustanrok. Hekla lá við
Torfunefsbryggju og var verið
að skipa upp úr henni ýmsum
vörum, þar á meðal sykri og' ann
arri sekkjavöru, þegar skyndi-
lega hvessti á tólfta tímanum.
Gekk særokið yfir bryggjuna
alla og norður yfir skip og báta
í dokkinni. Hekla leysti þá land-
festar í skyndi til að forða
skemmdum. Lá hún svo á Poll-
inum þar til vcðrið gekk niður
síðari hluta dags. — Nokkrar
skemmdir urðu á vörum á hafn-
argarðinum.